föstudagur, desember 31, 2004

síðasti dagur ársins og ég farin að háma í mig súkkulaðirússínur.
ekki seinna vænna, ha?
held ég segi gleðilegt ár seinna. það er meira kúl.

fimmtudagur, desember 30, 2004

ég er búin að hlusta á píanókonsert nr. 4 eftir Beethoven og allan strengjakvartett nr. 1 eftir Borodin og maðurinn heldur áfram að öskra "húh!" og "haaah!" og mála litla herbergið. svo heyrist mér hann vera farinn að tala við sjálfan sig OG svara sér líka.
nú spyr ég... hversu mikið er hægt að mála eitt lítið herbergi? er þetta ekki að verða gott? og ætti ég kannski að kalla til sálfræðinga?

gott að mála?

það er einn skrýtinn maður að vinna með okkur jónisæta. ok, kannski fleiri... og ekki eru nú kellingarnar minna skrýtnar. en allavega, þessi tiltekni maður er mjög skrýtinn. við köllum hann annað hvort "plastmanninn" eða "gervimanninn" af því að hann er eitthvað svo gervilegur. gerfilegur jafnvel líka. hann er s.s. soldið gamall, en litlar hárið á sér mahóní brúnt og er alltaf með mjög skringilega sveipi í því. soldið svona eins og james bond. nema.... jah, ekki. ein sagan af honum er þannig að hann var að flytja eitthvað dót, en datt og hálsbrotnaði. En fattaði það víst ekki fyrr en 3 mánuðum seinna. bara búin að rölta um með hausinn hálf-fastan á. jónsæti er stundum soldið hræddur um að gerfimaðurinn gleymi því að anda og detti niður dauður.
en þetta er nú mjög góður maður og allt það, skít duglegur líka, er búin að gera ótrúlega mikið síðan hann byrjaði. húsvörðurinn er nefnilega alfeg á fullu í einhverju rótarý-dóterí eða hvað það nú er og má bara ekkert vera að því að sinna hinum ýmsu húsvarðarstörfum. en svo var gervimaðurinn ráðinn og er á nokkrum mánuðum búinn að pússa upp útihurðina, steypa upp í holurnar á planinu, skella ljósaperum á allaþá staði sem ekki voru ljósaperur og þar frameftir götunum. svo þegar snjóar mokar hann alltaf svona gönguleið frá bílunum til útihurðarinnar.
núna er hann að mála litla herbergið sem er við hliðina á klóstinu hérna á hæðinni. mjög ljótt og leiðinlegt herbergi sem hefur aldrei verið notað til neins, þangað til pípararnir komu hér (sælla minninga) og rifu sundur klóstið í gegnum einn vegg á herberginu.
enívei.
herbergið var s.s. í rúst og nú er verið að mála það. sem er gott þannig séð, nema kannski að þessi tiltekni skrýtni maður er mála það. og maðurinn.... Gerfimaðurinn er alltaf að gefa frá sér skrýtin hljóð.
"HÚH!" eða "HAAH!" eða "VÚÚÚH!"
eða þá hann talarvið sjálfan sig í hálfum hljóðum, en húh-in og höh-in koma alltaf samt inná milli í fullu blasti svo maður eiginlega hálf hrekkur í kút. fyrst var ég svona að spá hvort hann væri kannski að kafna inní herberginu, það væri að líða yfir hann eða eitthvað, hann er nefnilega með lokaða hurðina. var égbúin að nefna að þetta er gluggalaust herbergi og ekki stærra en 4 fermetrar?
en hann mætti nú samt íkaffi áðan og var svona næstum því eðlilegur, þannig að það er ekki málið.
en allavega... i´ll keep you posted on this issue, en það veit guð að ég fer ekki fyrir mitt litla líf á klóstið við hliðina á honum meðan þessi óhljóð standa yfir.

O.N. prufuspilið

þeir vinir mínir og kunningjar sem ætla að þreyja prufuspil í byrjun janúar gætu hugsanlega haft gaman af þessu...
en þetta er hljómsveitarparturinn af Rimsky-Korsakov verkinu sem enginn getur borið fram.
- Japanir borða mjög litla fitu og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
- Frakkar borða mikla fitu og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
- Japanir drekka mjög lítið af rauðvíni og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
- Ítalir drekka mjög mikið af rauðvíni og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
- Þjóðverjar þamba bjór og háma í sig pylsur og fitu og þeir fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.

- Niðurstaða: Það skiptir engu máli hvað þú borðar eða drekkur svo framarlega sem þú talar ekki ensku.

þriðjudagur, desember 28, 2004

var ég búin að segja ykkur að ég á 45 krónur?

þodn í

komin í vinnuna. get næstum því öskrað úr fýlu, og kulda, svona ef út í það er farið, af því að mig langar svo til að fara heim -HEIM undir sæng og sofa.
sofnaði nefnilega ekki fyrr en klukkan var næstum því að verða fimm. ekki mjög gáfulegt. gerði samt alfeg góða tilraun til að sofna kl. 12.00, um 1.00 og svo aftur um 3.00. var alfeg við það að standa upp og ná í ævisögu Jónasar Ingimundar sem lá inná klósti, en tilhugsunin ein var þess valdandi að ég steinsofnaði undir eins.
ég hata ævisögur.
ákvað að skipta jónasi ekki afþví að hann er nú svona tónlistarmaður og bleble... en þetta er bara svo hrottalega leiðinlegt aflestrar að ég gæti gubbað. sem útskýrir afhverju bókin er inná klósti. núna er ég til dæmis búin að lesa eina fimm eða sex kafla og hann er ennþá að telja upp eitthverja vini pabba síns sem voru svo sterkir kallar og duglegir á sjónum og bladíbla. who cares? ég les þá bara sjómannatíðindi eitt, tvo og þrjú ef ég vil endilega komast í einhverja sjávarstemmingu. ojbara. í guðanna bænum minnið mig á að skrifa aldrei ævisögu mína.

mánudagur, desember 27, 2004

aaaaaf hverju er ég ekki farin að sofa?
getur einhver ansað mér því?
reyndar gæti fjórða matarboðið núna áðan (á bara 3 dögum, nota bene) haft eitthvað með það að gera... er eðlilegt að prumpa svona mikið af tvemur sneiðum af hangikjöti?
held ekki.
svo er ég jafnvel að spá í að fara að hugsa útí að æfa mig svona eitthvað allaveganna smá kannski örlítið á morgun. er eiginlega komin með magasár af samviskubiti. en það er nú bara jólalegt, ekki satt?

sunnudagur, desember 26, 2004

Gleðileg Jól!

maður verður nú víst að skutla einni jólakveðju á liðið, svona í tilefni þess að það er annar í jólum.

uh.

gleðileg jól

þriðjudagur, desember 21, 2004

próf-dúllur dagsins

milli þess sem ég hóstaði litríku, svitnaði, svaf, hóstaði og vorkenndi mér þá hugsaði ég afar heitt til minna heittelskaðra Tuma sem stóðu í stórræðum. eða sátu. og svo auðvitað sólskinsbarnið Fríða sem var við sömu iðju.
ef svo ólíklega vildi til að ykkur hefði gengið illa, þá getiði kennt því um að straumarnir sem tóta sendi ykkur voru kannski með örlitlu óráði...
en til hamingju með að vera búnar!

mánudagur, desember 20, 2004

tóta veik :(

tótfríður fór í skemmtilegustu útskriftarveislu EVER á laugardaginn hjá henni Eydísi "þessi bolur getur ekki verið flegnari, punktur". drakk þar á mig 20 púka og fór svo niður í miðbæinn. þar gerðist sá merki atburður, í fyrsta skipti á ævi minni að einhver gaur borgaði fyrir mig bjór. og ekki bara einn heldur tvo. fullur kani í stuði, alfeg með derhúfuna og allt. brjáluð stemming.
en jæja ég var notla það leiðinleg að ég stakk útskriftarfólkið af og fór að hommast með arnari og ella sæta. svo keypti tótan sér hlöllabát og labbaði heim á hjarðarhaga.
sem dró heldur en ekki dilk á eftir sér. ég er orðin svo ógeðslega mikið veik að ég hef bara aldrei vitað annað eins. var með massa hita í gær, svimaði og var óglatt (sem var einkar smekklegt þar sem ég sat í afmælisveislu hjá mágkonu jónssæta), fekk svo brjáluðustu beinverki sem ég hef fengið. var með svo mikinn verk í mjóhryggnum að það leiddi út í hné og gat varla gengið. heldur ekki legið. og það var ekkert gott að sitja. var á tímabili að spurja hvort þeim væri ekki sama ef að ég leggðist á gólfið.
beilaði á því.
en svo fórum við bara heim og horfum á bond. mér leið nú aðeins betur.
úff.
þannig að núna er jorstrúlí bara heima með trefil og í ullarsokkum og vorkennir sér. endilega komið í heimsókn....

föstudagur, desember 17, 2004

hey tsjekkið á gaurnum í danska konservatoríinu sem kennir músík-dramatík! talandi um að vera með mynd við hæfi :D
svo kennir hann á víólu líka!
ég ætla pottþétt að sitja um þennan gaur. hvort sem ég kemst nú inn í skólann eða ekki... en fyrir grandalausa, þá er ég s.s. að sækja um í det kgl. danske musikkonservatorium. er einmitt búin að vera á fullu (eða því sem næst) að fá elskurnar niðrí tónó til að útbúa fyrir mig eitthvað plagg um það hvaða aukafög ég er búin með. algjör steik.
held þetta reddist nú alfeg. en ef ekki þá fá ég bara dramatíska gaurinn með mér í lið og geri eitthvað drama.
hehe

kaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaalt

mér er svona frekar mikið svakalega mál að pissa, en mér er svo kalt að tilhugsunin ein um að þurfa að girða niðrum mig og setjast á eitthvað sem ekki er upphitað er nóg til að fá mig til að vera ekki jafn mikið mál og áður.
en þar sem þetta er búið að ganga á í svona 4 tíma, held ég að til dramatískara aðgerða verði að grípa.
kannski ég pissi bara á mig. hlýnar allavega í smá stund...

tilviljun eða tækling?

nei það var sko enginn sem sagði mér það að æfing fyrir tónleika sinfóníuhljómsveit unga fólksins væri klukkan sex. ákvað hins vegar eftir nokkur vel valin símtöl í hina ýmsu aðila...
"nei hann Gunnsteinn er ekki heima, hann er á æfingu"
"neineinei, Svafa er að spila á tónleikum"
"biiiib-biiiib-biiiiib" (gróa svaraði ekki í símann)
... að skokka út í neskirkju og tsjekka á málunum. kom rétt svo tímanlega til að fá rjúkandi heita og góða pizzu og kalt kók. sniðug hún tóta.
en GUÐ MINN GÓÐUR þið getið ekki ímyndað ykkur hvað gerðist næst. ég fór nefnilega upp aftur til að setja á mig maskara.
!!!
nei nei, ég geri það nú stundum, það er ekkert merkilegt, en þegar ég er að labba þarna fram sé ég brúnan pappakassa fullan af svona óskilamunum og dóti. ég fæ nottla tremma og fer strax að leita, því FYRIR ÞREMUR árum síðan týndi ég sjali í neskirkju. og það var bara ekki eitthvað sjal, það var SJALIÐ sem hún mamma mín heklað á mig úr vínrauðu garni. og ekki bara eitthvað garn. heldur garn sem eitt sinn var peysa á mjög ljótan og leiðinlegan mann sem á sér það eitt til góðs að vera faðir bróður míns. en allavega, þetta sjal var mér afar kært og grét ég sáran þegar það týndist hér forum daga. og þrátt fyrir að hafa leitað myrkranna á milli, hér forðum daga, stóðst ég ekki mátið að kafa ofan í þennan brúna pappakassa sem stóð á gólfinu.
en ég fann ekkert.
með tárin í augunum fór ég fram á gang þar sem spegillinn er og hóf að lita augnhárin mín svört með þar til gerðum bursta. þeir sem hafa speglað sig í þessum svonefnda "presta-spegil" í neskirkju vita líka af því að að á hægri hönd er fatahengi með hillu. og mér varð litið (gleraugnalaus og á hlið) á þessa hillu, eða öllu heldur á það sem Lafði niður af hillunni.

SJALIÐ MITT!!

kátari hefur tóta ekki verið í mörg ár (þrjú ár nánar tiltekið) og stökk hún hæðir sínar í hamingjunni. hér sannaðist með skýrum hætti að það er EINHVER uppi á efstu hæð sem heldur að hann sé alfeg VOÐALEGA fyndinn að fela hlutina manns og púsla svo saman skrýtnum atburðum og lætur mann "tilviljunarkennt" rata réttu leiðina eftir að hafa plantað vísbendingum hér og þar.
en mérer sama, ég er svo ánægð að hafa loksins loksins fundið sjalið mitt. enda tek ég það ekki af mér, þó það sé svona égerbúinaðliggjauppáhilluíþrjúár lykt af því.
húrra húrra :)

en jújú tónleikarnir gengu og vel og það var bara gaman.

fimmtudagur, desember 16, 2004

vó, er paranojan í bandaríkjunum ekki farin að ganga einum of langt?

kom með skæri í skólann

en maður getur nú svossem búist við öllu af barni sem heitir Porche...
í hinni miklu leit minni af tímasetningu mætingar á tónleikana í kvöld, rakst ég enn og aftur á síðuna hans Jóa.
en hann minntist ekkert á hvenær hljómsveitin á að mæta í kvöld.
meiri dóninn.
en hann fær nú samt link. kannski mest út af því að hann er bróðir hans Matta, og ég er viss um að ef Matti væri með blogg myndi hann taka það fram hvenær hljómsveitin á að mæta á eftir.

jesúsminn... held það endi með því að ég hringi í einhvern til að tjekka á þessu....
vill einhver í guðanna bænum segja mér hvenær er mæting í kvöld á þessa helvítis Ungfóníu tónleika?
síminn minn er, eins og fyrr sagði, dauður inní hafnarfirði og ég man engin númer.
nema nottla mitt eigið og það svarar enginn í hann....
djös bömmer

skúli fúli

ég hata þessa helvítis fimmu sem er alltaf verið að senda manni. nú hef ég svarað þessum heimskulegu, ljótu, leiðinlegu spurningum og könnunum og tilboðum um ógeðslegar bækur og eitthvað djöfulsins pixell-gsm-drasl í næstum ár og hef ekki einu sinni fengið hálfan bíómiða, hvað þá meir.
hefur einhver í ALVÖRUNNI fengið vinning í þessu djöfulsins feik viðbjóðslega ælu leik?

vignir þú mátt ekki svara

síðustu droparnir

í kvöld hélt frú tótfríður (jors trúlí) að hún myndi vera svo heppin að spila síðustu opinberu tónleikana í hinni ógurlegu jóla-törn. að nú gæti hún loks sest niður með bjór í hönd, skellt fótunum upp á þartilgerðan skemil, kveikt á leiðinlegu sjónvarpsefni og haft það næs.
kannski borðað óhollan mat og nammi.
en annað kom nú í ljós svona þegar litla skinnið fór að hugsa (eitthvað sem víóluleikar ættu að læra að gera ekki).
næsta laugardag var ég búin að lofa að spila í veislu. sem er gaman. svo var ég pínd til að spila í útskrift um morguninn. sem er glatað. gleymdi ég nokkuð að nefna æfinguna sem verður kl. 10? við erum að tala um laugardag, gott fólk.
22. des var verið að biðja mig um að spila á jólatónleikum Þrastanna. ég hef reyndar ennþá smá sjens til að segja nei nei nei ég vil ekki spila meira arg arg, en hver vill fá heilan karlakór á móti sér?
svo er það dúett dauðans pó og mó, sem vilja endilega hafa Strengjabrúðurnar (guð hvað ég hata þetta nafn) með sér að spila í aðfangadags-miðnæturs-messu í fríkirkjunni. ég hefði átt að segja nei strax, en þá hefði ég nú heldur en ekki verið strokuð út af allavega þremur jólakortalistum meðdesamme.

svona á ég nú bágt. endilega hringiði í mig og bjóðist til að gera eitthvað fyrir mig, eða þá bara vorkennið mér svakalega. bæði gott. en reyndar svona þegar ég fer að hugsa (doh!) þá er síminn minn dauður einhversstaðar inní hafnarfirði.

jesúsminn hvað er erfitt að vera ég.

þriðjudagur, desember 14, 2004

þriðji í afmæli og mér er ennþá illt í maganum.
en þrátt fyrir það ætla ég að syngja hið bráðhuggulega lag "óskalisti tótu litlu" á tónleikum í kvöld. nánar tiltekið kl. 20.00 í hásölum hafnarfirði.
andri eyjólfsson mun að öllum líkindum slá á strengi mér til aðstoðar.
húrra húrra.
Drinking quotes

"I feel sorry for people who don't drink. When they wake up in the
morning, that's as good as they're going to feel all day." ~Frank
Sinatra~

"When I read about the evils of drinking...I gave up reading." ~Henny
Youngman~

"24 hours in a day, 24 beers in a case....Coincidence? I think not."
~Stephen Wright~

"When we drink, we get drunk. When we get drunk, we fall asleep. When
we fall asleep, we commit no sin. When we commit no sin, we go to
heaven. Sooooo, let's all get drunk and go to heaven!"
~Brian O'Rourke~

"Beer is proof that God loves us and wants us to be happy." ~Benjamin
Franklin

mánudagur, desember 13, 2004

afmælisbarn gærdagsins át yfir sig

og er þar af leiðandi heima hjá sér í dag að drepast úr magapínu (með fylgir ókeypis ógleði og mikill vindverkur). svo er hún líka með rosalega mikinn hausverk og er til skiptis að drepast úr kulda eða svitnar svo að taumarnir streyma.
litla skinnið (ég) verður þó að mæta á æfingu í kvöld, svo þetta veldur nú töluverðum áhyggjum.
og svo fer nú að styttast í ýmis norðurlanda-ísk prufuspil. er einmitt að hlusta á Mahler 1 (takk guggý :* )
en vá hvað var gamað að sjá alla í gær. vildi ég hefði nú verið eins og manneskja og tekið myndir, en nónó, var of upptekin við ða TROÐA í mig.
jesús.
en jæja... þá er að sinna dollunni..

laugardagur, desember 11, 2004

ég var að baka enskar engifersmákökur og þær urðu ekki jafn góðar og þær sem mamma bakaði um daginn. skrýtnar þessar kökur alltaf. eða kannski er það Rafha eldavélin hans sæta stráks sem er skrýtin?
nje.
minni fólk á kammersveitatónleikana á morgun kl. 16.00, svona svo það sé nú örugglega víðsfjarri. maestro don oliver kallar tónleikana "heitar lummur". legg ekki meira á ykkur.

fimmtudagur, desember 09, 2004

tónleikarnir í gær voru nú bara sveimér þá bara ansi góðir. Barrokksveit tónlistarskóla hafnarfjarðar stóð sig með prýði og voru, að öðrum ólöstuðum, víólurnar langbestar og greinilega í fantaformi.
litla hrútaberslyngið hann Eyjólfur kallaði ennog aftur fram tár í augu áhorfenda og þá ekki vegna lélegs textaframburð ef fólk skyldi halda svo. svo verð ég nú bara að hrósa honum Finnboga sem söng afar fallega, skrítnustu Bach aríu sem ég hef heyrt. en. hún. er. öll. svo. na. ba. ra. eitt. at. kvæ. hæ. ði.
eða eitthvað. samt soldið töff. og hildur fríðu systir söng líka einsöng. rosa fallega aríu, sem reyndar virtist aldrei ætla að enda. sem er nú bara ágætt. jájá.
óþolandi samt þegar kemur svona mikið af fólki á tónleika, það verður alltaf svo heitt. meira pakkið.

þriðjudagur, desember 07, 2004

róleg vika framundan

mamma mín getur hvorki bakað piparkökur né skreytt þær svo neinu magni telji, nema BÆÐI börnin hennar taki virkan þátt. framan af var minn virki þáttur aðallega í því að éta það kökudeig sem stóð undan þegar búið var að stimpla formunum. lagði ég mikinn metnað í að gera þetta á sem hljóðlegastan og laumulegastan hátt.
tókst það yfirleitt og má leggja rök af því í framhaldi, að eftir sem ég eltist (hvað segir málfarsfasistinn við þessu?) varð fjöldi kaknanna (ég fletti þessu orði upp og það er bæði rétt) meiri og almennt heilsufar mitt betra.
en ég fékk s.s. símtal frá móður minni sem byrjaði á þessa leið:

M: hæ elskan, við ÞURFUM að baka piparkökur
t: já ekkert mál, þetta er nú frekar róleg vika hjá mér

en svo til að vera alfeg viss setti ég mömmuna á hold og náði í Svörtu Bókina, sem gegnir sama hlutverki í mínu lífi eins og minnishluti heilans í öðrum, og fletti upp á vikunni sem ég hélt að væri "róleg".

mánudagur- jú reyndar var hann nokkuð rólegur, þar sem að ég hafði misminnt mig um æfingu kl. 1900.
þriðjudagur- tónleikar kl. 20.00 í hásölum, mæta 19.00, á sama tíma þyrfti ég að vera staðsett í Sigurjónssafni við Sæbraut að renna Shostokovitz með mínum ástkæra Tuma. veit ekki alfeg hvernig ég redda þessu....
miðvikudagur- tónleikar kl. 20.00, reyndar þeir sömu og á þriðjudaginn, en ble...
fimmtudagur- jólatónleikar nemenda þórunnar guðmunds.
föstudagur- tónleikar framhaldsdeildar tónskóla sigursveins þar sem Tumi mun flytja shostokovitz öllum til mikillar jóla-gleði og ánægju
laugardagur- kammersveitartónleikar kl. 16.00

við mæðgur náðum þó að troða bakstrinum á fimmtudagskvöldið og allir ánægðir. ég fékk reyndar vægt taugaáfall og stresskast yfir yfirvofandi viku sem braust út eins og venjulega í formi þreytu og kæruleysis. var þessvegna vakandi til tvö í nótt og svaf svo yfir mig.

hó hó hó

föstudagur, desember 03, 2004

en málið var að...

...HINN strengjakvartettinn minn, sem var seint í gærkvöldi nefndur (maður má víst ekki segja skýrður út af öllum málfars-fasistunum sem lesa blogg hjá saklausu nautheimsku fólki sem kann varla íslensku) Strengjabrúðurnar (ég er ekki ennþá sátt við þetta nafn) var að spila tónleika með Herr Pál Óskari og Moniku hvaðhúnnúheitirsemeftirnafn, á Ólafsvík. sem er bæ ðe vei bara soldið krúttlegur bær, allavega skárri en fokkin stykkishólmur. en reyndar er geggjuð hamborgarabúlla á stykkishólmi. anyways...
ég var búin að éta ógeðslega mikið af svona gulum (sítrónu) extra brjóstsyktri eða hvað þetta á nú að vera á leiðinni í bílnum og var bara prumpandi út í eitt. veit ekki hvað það er með þennan brjóstsykur sem eykur svona loftmyndun í maganum á manni eða eitthvað. anyways... auðvitað fannst mér þetta nú soldið leiðinlegt þar sem við stúlkukindurnar vorum nú að þykjast vera soldið professjónal, vorum allar í fötum sem voru eins á litinn og svona, ég hafði meira að segja farið í sturtu og hún Fríða var með nýju eyrnalokkana sína. svaka smekklegar.
svo erum við niðri í einhvejru herbergi að bíða eftir að tónleikarnir byrjuðu. og ég -af einskærri TILLITSEMI labba að klósettinu, slengi rassinum í átt að dyrunum og hleypi af einu hressilegu prumpi. allt í einu snarþagna stelpurnar og horfa á mig einsog ég sé eitthvað geðveik.
auðvitað er það ekkert svakalega smekklegt að vera að prumpa svona, ég geri mér grein fyrir því, en eitthvað varð ég að gera til að losna við þetta loft!
"Páll Óskar er þarna inni!" sagði þá Elfa og dó úr hlátri.
mér var ekki skemmt (eða svona)
þá var semsagt litli homminn inn á klósti (ég hafði nú reyndar heyrt eitthvað svona söngl, en gerði mér ekki grein fyrir því ða þá var innan af klóstinu) að fokkin skíta og ég fattaði ekki neitt. prumpa bara óhikað á dyrnar hjá honum.
og ef þið haldið að þetta hafi nú kannski ekkert heyrst inn, þá.... jah.... Think again.
en það fyndnasta (ef einhverjum finnst þetta nú fyndið á annað borð, ég var nú bara mjög hneyksluð á stelpunum að vera að hlægja sovna að þessu) var kannski það að ég var (og er) búin að vera að rakka niður þessa tónlist hans palla og moniku, gjörsamlega hata þetta hörpu-gutl og mér finnst hann í alvörunni ekki syngja vel (hvað er málið með að Haaaaaaaaaaaanga í tóninum eins og þú sért á klettasnös?) og ðegörls vissu ekki að klósetthurðin var lokuð né heldur að ég vissi EKKI að palli var þarna inni. þannig ða þær héldu bara í rólegheitunum að ég væri í ALVÖRU að prumpa á grey manninn.
og þetta kallar maður vinkonur sínar!
heldég þurfi að fara aftur yfir jólakortalistann...
ég er svo heiladauð að ég get bara ekki sest niður og skrifað prumpusögu gærdagsins...
en hún kemur stelpur mínar :)

fimmtudagur, desember 02, 2004

ég vil...

... að einhver fari að taka sig saman í andlitinu og koma upp svona síðu þar sem allar nýjustu kjaftasögurnar eru birtar. bæði sé hægt að fletta upp eftir nafni, aldri, búsetu og kynhneigð. svo gætu kannski verið myndir og als konar.
ég var s.s. að heyra -ekki bara eina- heldur TVÆR kjaftasögur sem ég vil endilega fá staðfestar sem fyrst.
spurning bara um að kaupa sér nýjasta séð og heyrt?

jólajól

nú er komin 2. des
og ekkert ves
-en.
brjálað stuð og stemming
og engin lendir í hremming.

eða það.

ýtið á hreindýrin :)

þriðjudagur, nóvember 30, 2004

ég veit maður á nú ekki að vera að viðurkenna að maður þekki svona fólk... en þetta hér er hún Guðný Birna vinkona mín.

gúrka

stundum er ég geðveikt hneyksluð á því hversu leiðinlegar og óáhugaverðar fréttirnar geta verið. í gær var t.d. alllöng og ýtarleg frétt um eitthvað afríkuríki sem er farið að bjóða fólki skíðaferðir.
á sandi þeas.
mjög ansalegt að mínu mati. gleymum ekki hálfsíðufréttinni í morgunblaðinu þegar lögregluþjónn fylgdi andamömmu yfir götuna ásamt litlu ungunum sínum.
auðvitað er nú samt betra að heyra svona fréttir heldur en eitthvað morð og misþyrmingar. en þurfum við endilega alltaf að hlusta á eða lesa fréttir? getur fréttatíminn ekki bara verið styttri ef að lítið er í fréttum? fólkið í kastljósinu getur þá kannski leyft viðmælendum sínum að klára setningar í staðinn... for a change. sama finnst mér um moggann. ef mig langar til að lesa eitthvað skemmtilegt yfir kókópöffinu þá næ ég mér nú bara í andrés blað eða eitthvað.
en jæja, maður vinnur víst ekki allar orustur. orystur?
hvers konar orð er þetta nú eiginlega?
almáttugur.
ég þarf að fara að skella inn "skitið yfir íslenskt mál" færslu bráðum.
en það sem kom mér nú á bragðið að tala illa um ómerkilegar fréttir var (nema hvað) færsla úr hið skemmtilega suðuramt sem undirrituð er að slá inní þessum töluðu orðum.
innslegnu orðum.

29. janúar 1903
SA-D II nr. 661. um fótbrot Auðuns Jónssonar á Dagverðarnesi.

mér finnst...

...leiðilegt þegar fólk heldur afmælisveislurnar sínar á stöðum sem maður kemst ekki á

kalt....

..og nokkuð niðurdregin.

s.s. blá í orðsins fyllstu merkingu

föstudagur, nóvember 26, 2004

11. maí 1904
SA-D II nr. 596. Sakamál gegn Oddi Björnssyni í Snússu á Kjalarnesi (fyrir tvíkvæni).

hvernig er annað hægt en að stunda tvíkvæni þegar maður býr á bæ sem heitir "Snússa"?

miðstigsprófs-fígúra

hin fróma tótfríður var í hádeginu í sína fyrsta söngprófi. stemming engu að síður og ætlaði allt um koll að keyra. var það djörf að taka af mér gleraugun sem gerði það að verkum að ég sá hvorki né skynjaði nokkuð annað en óljósa skugga hér og þar í stofunni.
mjög áhrifaríkt. gleymdi samt heilu frönsku erindi og klúðraði uppáhaldslaginu mínu :( vona að signý sæmunds lesi ekki blogg fólks, það er nefnilega aldrei að vita nema ég hafi komist upp með herlegheitin. hver þarf réttan franskan framburð þegar hægt er að geifla sig í framan og vona að erindið sem maður gleymdi sé um það sama og erindið sem maður gleymdi ekki?
ekki ég.
en ég var soldið foj yfir uppáhaldslaginu mínu.
mjuh.
en svo endaði ég á því að syngja Wagnerinn minn og tók virkilega á því (útskýrir kannski af hverju mér líður eins og gamalli -Rauðri- blöðru), hreinlega Vældi í himnadrottningunni um að leyfa mér að drepast.
svo þegar ég rankaði við mér úr Wagner-Wímunni sá ég signýju sæm þurrka sér um augun og segja milli ekkasoganna:
"ég held ég bara geti ekki annað en gefið þér hreina tíu... þvílík frammistaða!"

Getraunin!!

nei þetta er ekki svona dagskráliður eða neitt þannig og mun örugglega ekki koma aftur hér á síðuna...
en nú spyr ég.
hverjir eru mennirnir?
:)

nýr linkur

bætist við. endar held ég bara með óskupum þessi linka listi minn. en hann er yfir á hana Sóleyju sem varð (skiljanlega) móðguð útí mig þegar ég sagði að flautuleikarar væru leiðinlegir og ég hataði þá.
sóley er s.s. flautuleikari.
þannig að ég verð einhvernvegin að troða þessu aftur ofan í mig, því svona þegar ég fer að hugsa málið þá eru flautuleikarar yfirleitt ekkert voðalega leiðinlegir. Bestaskinnið Eyjólfur er t.d. flautuleikari þó hann þykist vera einhver tenór núna og svo spilaði ég undir flautunni Berglindi í fyrra og ekki er hún leiðinleg þó hún eigi hvíta skó. svo á ég líka vinkonu sem heitir Tobba og er heldur betur hress og kát. flautuleikari.
þannig að nú ropa ég hátt eftir að hafa étið þetta allt til baka og bið þá sem fúlir urðu afsökunar.

urðu?

allavega.

fimmtudagur, nóvember 25, 2004

leiðrétting!

eins og maðurinn sem er alltaf að hitta móður mína í strætisvögnum bæjarins benti réttilega á eru tónleikarnir í kvöld klukkan 18:00.

dumma tóta

í hásölum! mæta
i want to live in a wooden house
making more friends would be easy
i want to live where the sun comes out

fortíðarljómi

er víst íslenska orðið yfir nostalgíu ef ég man rétt.
en ég er hér í þessum töluðu orðum ða hlusta á Coldplay, Pharachutes. minnir mig svo óskaplega á Stade ferðina okkar í janúar 2001 að ég er gráti næst. eða svona... kannski ekkert endilega gráti næst, bara hálf melló. varð svo yfir mig ástfangin af Lettneskum Hornleikara í ferðinni að annað eins þekktist varla. en hann vildi mig ekki, eins skringilega og það nú hljómar. sagðist eiga kærustu sem væri flautuleikari.
einmitt ein af þeim ástæðum sem ég Hata flautuleikara. hin er að þeir eru yfirleitt leiðinlegir.
fyndið samt hvað gamlar tilfinningar geta skotið upp kollinum þó maður sé á allt öðrum stað í lífinu og kannski búinn að "refresh-a" viðkomandi tilfinningu gott betur. t.d. myndi ég gubba af hlátri ef fyrrnefndi hornleikari skyti upp kollinum nálægt mér núna, ekki fræðilegur möguleiki í Geimi að mér finnist það sama um hann nú, eins og þá.

samt er ég hálf lin yfir að vera að hluta á þessa plötu.
kannski er ég bara svöng...
You are 80% Sagittarius



... heldur hótun



stundum þegar ég vakna langar mig afskaplega mikið til þess að fara aftur að sofa.

Minni á tónleika í kvöld kl. 18.00, Hásölum Hafnarfirði þar sem ég mun troða upp með einstaklega vel æfðu og skemmtilegu miðstigsprófsverkefni.
auk mín munu þau Finnbogi og Björk sýna sig og láta í sér heyra, aðalatriði kvöldsins er engu að síður ég og allt sem ég geri.
allir að mæta.

þetta er ekki boð...

þriðjudagur, nóvember 23, 2004

subbusagan

þannig var mál með vexti að jónsætiogsísvangi bauð henni tótu sinni út að borða rétt eftir hádegið. gjörðumst við djörf mjög og fórum á ASK. namminamm. fengum okkur feitar klúbb-samlokur ásamt meðfylgjandi kartöflum. franskættuðum.
namminamm.
svo skundum við til vinnu, erum þar hress og kát og allir una vel við sitt. nema þá fær tóta litla skelfilega illt í magann. kannski ekkert skelfilega, en svona svolítinn seiðing og vissi hún þá af fyrri reynslu að aðeins eitt væri til ráða. Og sem betur fer er Þjóðskjalasafn Íslands nokkuð vel búið af hreinlætistækjum og fylgihlutum svo að athöfnin sem á eftir fylgdi var nokkuð einföld í framkvæmd.
hóst.
en guðminngóður fýlan sem fylgdi!! oj oj. hinn fyrrnefndi jónsæti var fyrir löngu búin að taka kúkafýluspreyið sem var til í sumar (út af því að einn sem vinnur hér var með sífelldan niðurgang í marga mánuði þangað til hann fór í aðgerð) og henda því af því að lyktin af því var næstum því jafn hroðalega og... jah... fýlan sem það átti að fela. en lítið var til ráða þannig að tóta bara þvær sér vandlega með sápu og lokar svo hurðinni, nær dauða en lífi. er þó ekki að hugsa um þetta frekar, svossem ekki í fyrsta skipti sem einhver eignast illa-lyktandi afkvæmi innan um gulu flísarnar.
Varla eru liðnar nema nokkrar mínútur þegar húsvörðurinn birtist í dyrunum með heilan her af PÍPURUM.
"jájá! það þarf víst að taka klósettin hérna niðri í gegn, við erum bara að tjekka á lögnunum og svona, gera smá vettvangskönnun... látið ykkur ekki bregða."

látið YKKUR ekki bregða hugsaði ég nú bara og stillti Wagner óperuna á fullt í heyrnartólunum svo ég myndi nú ekki heyra öskrin....

hún tótfríður harðdal...

...setti inn nýjan link. en vil ekki segja hver það er eða hvað hann(nú er ég ekki endilega að segja að bloggarinn sé karlkyns...) hefur áorkað í lífinu, út af allskonar konfliktum í hausnum á mér. stundum þekkir maður bara OF margar hliðar á OF mörgu fólki sem tengist á OF mismunandi hátt gegnum OF mismunandi aðstæður.
ef þetta gerir ykkur ekki forvitin þá veit ég ekki hvað.

en svo er þetta víst líka einhverskonar tilraun, hjá fyrrnefnda bloggara, svona að sjá hvað margir fatta bloggið án þess að hann (bloggarinn)auglýsi það á einn né neinn hátt.
nett.

svo langar mig ótrúlega mikið til að skella inn einni subbu-sögu... algjörlega óskylt öllu sem áður hefur fram. einn kaffibolli í viðbót og þá kemur hún.
hohoho!

vegna vondrar færðar ætla ég að biðja verndarengilinn minn hann Bob um að hjálpa gangandi vegfarendum í dag á milli 12 og 16.
vinsamlegast takið númer.

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

tótfríður harðdal svarar Idol spurningunum

Fullt nafn: tótfríður harðdal
Fyrirmyndin í lífinu? bogi og örvar. fullir EN fyndnir.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? 304 kokteilar
Hvern myndir Uppáhaldsnafn (ef þú mættir velja þér annað nafn)? eitthvað sem er auðvelt að segja á fimmta glasi.. óa?
þú mest vilja hitta? henry V. heineken
Uppáhalds hlutur? myndavélin. fyrir blakkátin sko....
Æskudraumur? man það ekki, var í blakkáti
Hvernig er tannburstinn þinn á litinn? skola mig bara vel uppúr einhverjum spíra... virkar yfirleitt.
Hvað sefurðu yfirleitt marga tíma á nóttinni? rúmi? á nóttunni? er í fyrsta lagi á djamminu og sef bara á daginn.
Leiðinlegasta sem þú gerir? vakna á kvöldin og gubba um leið og maður er búinn að fá sér sopa af góðum vin.
Ef þú fengir einn dag aleinn/alein, hvað myndirðu gera? vera í blakáti.
Ef þú gætir skipt um starf, hvað sérðu fyrir þér að gera? bruggari.
Leyniuppskrift fyrir hæsi og kvefi? vodki
Uppáhaldsmatur/uppskrif? vodki með skvettu af gini útí. skreytt með bjórhnetum.
Mannstu eftir mómenti? sem breytti öllu í lífi þínu? neibb, var í blakkáti.
Bugs Bunny eða Duffy Duck? duffy bunny, djöfulsins bull, þoli hvorugan
Skúrar þú heima hjá þér? já, með andlitinu
Hvar ætlarðu að eyða ellinni? á barnum með einn ískaldan

oj oj oj!

ég var að lesa hrottalegasta blogg í heimi. það var svo ótrúlega væmið og viðbjóðslegt að ég þurfti í alvörunni, frú Tinna Sigurðardóttir Maillard, að skreppa fram á klóstið (var reyndar mál -en alveg sama!)!
oj barasta.
hélt fyrst að þetta væri einhver sjúklega væmin stelpu-tuðra, en annað kom nú í ljós. drottinn minn dýri!

meira um óperuna

sem ég gleymdi var það að ég hitti Berglindi og Huga. það var geðveikt skemmtilegt, sérstaklega af því að þau voru að drekka rauðvín. mér finnst alltaf skemmtilegra að hitta fólk sem er með rauðvín heldur en annarskonar fólk, sem jafnvel heldur ekki á rauðvíni.
núna er klukkan alfeg að verða níu og þar sem skjölin sem ég þarf til að hefja vinnu mína eru læst og lokuð ofaní rammgerðum kjallara, neyðist ég til að gera eitthvað annað þangað til (æ æ) og eina fólkið sem er mætt online á þessum ókristilega tíma er einmitt það fólk sem framtíðar sinar vegna mætir í skólan eldsnemma. ég er semsagt í Hörkuvyðræðum vyð hana Berglindi um notkun Y og i ý almennum samræðum fólks.
svo var hún að bjóða mér í afmæli.
það fannst mér fallega gert. hefði jafnvel tárast nema augun á mér eru full af svona stýrum. stírum?
aaaaallavega.
svo er jónsæti í útlöndum. fór reyndar bara í gær og kemur á morgun. en sama. sakna afa :(
svo er hann alltaf að hringja og spurja mig hvað hann eigi að kaupa.
KAUPA!!
eins og maður geti ekki farið til útlanda án þess að sleppa sér í að eyða peningum!
nje. ætli það. svo er nú aldrei að vita nema hann kaupi eitthvða fallegt handa tótunni sinni... allt í læ að sleppa sér í því, guðminn góður þó það nú væri og betra ef fleiri tæku sér hann til fyrirmyndar. svo má líka alfeg bara leggja pening inn á reikninginn minn beint. kæmi sér afar vel.

AAAAAFAR VEL

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

það snjóar og snjóar og svo er mér svo kalt á puttunum að ég get varla slegið á lyklaborðið. sem verður nú að teljast töluverður ókostur, vinni maður við innslátt. samt hef ég reynt að drekka kaffi og hugsa dónó.
en mér er ennþá kalt.
svo er elskulegur jónsæti að fara til danmerkur á morgun. verður reyndar bara í 3 daga, en mér er sama. finnst það hroðalegt :( ætla flytja heim til mömmu á meðan og föndra geðveikt mikið af jólaföndri. svo er ég reyndar líka komin í smá drekasyrpu sem útskýrir skróp mitt í hljómfræði, tónheyrn og tónlistarsögu. kjammkjamm.
en talandi um jónsæta þá er ég að bíða eftir honum núna á meðan hann er að ég veit ekki gera hvað... gerir hann sér ekki grein fyrir hversu kalt mér er orðið.
svo er líka brjálæðislega dimmt úti! á ekki að "birta til" (sagt með svona röddu) þegar snjóar? mér finnst nú bara ekkert "bjart til".
hehe.... nú var kona húsvarðarins að kveikja á útvarpinu, snild svona óhljóðeinöngruð hús. einangruð?
ein angruð kona. einn angraður maður.
manni dettur helst í hug í hug lagið "im angry because im cold and it´s dark" í þessum aðstæðum.
nei djók, það er ekki til neitt lag sem heitir þetta.
ble.

ég sakna tuma :(

alltaf fyndið

ég veit nú bara ekki hversu oft ég hef lesið þetta... en mér finnst það alltaf jafn fyndið.

-vertu fíbl-

1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.
2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni. 3. Stattu föst/fastur á því að netfangið þitt sé: Xena-Warrior-Princess@skjalasafn.is eða Elvis-the-King@hi.is eða olafur@ragnarsson.is
4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu,má bjóða þér franskar með þessu?"
5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir,,Inbox"
6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við hurðahúna
7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.
8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.
9. Ljúktu öllum setningum þínum með; "...Samkvæmt spádómum."
10. Ekki nota punkta.
11. Hoppaðu í stað þess að ganga.
12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur svarað.
13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé,,taka með".
14. Syngdu með í óperunni.
15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.
16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð af diski alla daga.
17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú sért ekki alveg upplögð/upplagður.
18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu, Rock Hard.

palli eldgamli...

...sendi mér þetta hérna hér. gælunöfn á alþingismönnum og fleira. funny

ó-hljóða-pera

ég fór á Sweeney Todd á föstudaginn. fékk boðsmiða sko gegnum hana elsku sætu Tinnu mína (sem á þökk skilið að nenna að umgangast mig yfirhöfuð, hvað þá að láta sjá sig með mér á almannafæri ;). jájá. reyndar hefði ég svossem líka getað fengið boðsmiða, nema ég var ekki með nemendaskírteinið mitt úr tónóhafnarfjarðar -AF ÞVÍ ÉG HEF EKKI FENGIÐ NEITT SVOLEIÐIS AF ÞVÍ AÐ ÞAU HAFA EKKI VERIÐ BÚIN TIL, svo þetta var auðveldast.
svona allavega.
og nú ætla ég að rakka niður þessa sýningu. byrja samt á því sem var verst og enda á því sem var best svo að Hildigunnur verði ekki brjáluð út í mig og felli mig í tónheyrn af því að 66,6 % systkina hennar voru í sýningunni. :D

Lóetta, leikin/"sungin" af Ingveldi ýr var hroðaleg. þvílík raddbeiting. held hún sé eitthvað að misskilja og haldi að orðið sé radd-Breyting, svo hrottalegt var þetta. nema kannski að raddböndin á henni séu í alvörunni staðsett í kokinu á henni og hljóðin myndist í alvörunni þar. Í ALVÖRUNNI! svo gerði hún akkúrat ekkert við aumingja Lóettu eins og það hefði getað verið Kikkassmoðerfokker fyndið og skemmtilegt hlutverk. ég reyndar sá kannski atriði í Lóettu sem enginn annar sá, eins og það að hún hefði verið kynóð og notfært sér asnalega strákinn sem snorri wium lék. but anyway. svo er ég nottla líka soldið öfundsjúk af því að MIG langaði til að vera Lóetta, þó ég hafi hvorki raddgerð, þjálfun, getu né hæfileika til að vera hún.

snorri wium, var asnalegur. fyrst fannst maður hann vera gamall kall (af því að hann ER gamall kall) og svo seinna meir kemur í ljós að þetta er bara stráksbjáni og vill að Lóetta sé mamma sín (aftur geri ég mér aðeins meiri grein fyrir þessum kynóða-misskilningi mínum). og er það bara ég eða Haltraði hann BARA eftir hlé?

maríus sverrisson, hefði átt að vera heima hjá sér. passaði engan vegin í hlutverkið, var alltaf að sveifla sér meðan hann söng (asnalega sveifla sér, ekki töff sveifla sér) og stappa (eins og Tinna benti svo skemmtilega á) og hvað er málið með RAPID WHITE tennurnar? langar ykkur á námskeið og læra að brosa svo að ALLAR tennurnar sjáist... call maríus. auðvitað var þetta kannski svona tilraun hjá einhverjum sniðugum til að gera óperuna meira "almenningslega" og hafa svona óperu "SLASH" söngleik, en þá hefði nú þurft meira til en einn slepjulegan permanettaðan sólbrúnan gaur í Röndóttum buxum. svo söng hann ekki vel.

örn árnason var fyndinn. og geðveikt töff líka, með ljótustu hárkollu í heimi og svo hvítmálaður í framan að liturinn skagaði langt uppí litinn á tönnunum í maríusi. svo var hann líka bara helvíti góður að syngja. maríus skagaði hátt uppí hann. okei nú er ég hætt að rakka niður þennan maríus.

Þorbjörn sæti var geðveikt sætur, og átti án efa fyndnustu aríuna þegar hann var alltaf að gaula "tilfinningalíf" og eitthvað svoleiðis. verst reyndar að allir hinir í umrædda kvartett/kvintett voru að kúka í sig. maríus var til dæmis mjög greinilega með kúkinn útu.... allavega. svo var karakterinn hans líka nokkuð góður. mér fannst hann hafa mátt vera kellingarlegri, en það er nú bara ég og mitt hommastand.

kórinn var geðveikur. og á einum stað meira að segja á geðveikrahæli. nokkuð nett. öll svona stór hópatriði fannst mér æði og YOU GO GIRL hallveig með fokkin sjöstrikað fís eða hvað það nú var! :) svo fannst mér ég nú þekkja nokkur feis, þó það hafi nú verið hálf erfitt oft á tíðum með allaþessa bauga útum allt. en whatever works, eins og kellingin sagði.

sviðsmyndin var ÓGEÐSLEGA flott! (loksins á "ógeðslega" rétt á sér ;) hef bara aldrei séð óperuna jafn töffaða og þarna. ljósin voru líka frábær og kaflinn þar sem kórinn söng í myrkrinu og kveiktu á vasaljósum framan í sig var Brilljant. reynar hugmynd sem var illilega stolið frá mér, vigni, Lilju, hreiðari og fleirum sem gerðu sama leik á ísafirði forðum daga, svona rétt fyrir háttinn. ef ég hefði fengið einhverju ráðið, hefði ég bara haft meira blóð. meira blóð meira blóð meira blóð, eins og stendur í jólakvæðinu.
aldrei of mikið blóð.

Ágúst er bestur. þvílíkur kroppur. æðisleg rödd. svo lengi sem hann þarf ekki að tala þeas. allavega skildi ég hann bara þegar hann var að syngja. og glottið í dyragættinni var BEST! BESTBESTBESTBEST!

og gellan á textavélinni! sú kunni nú til starfa ;)

jæja kids. gó wæld.

finnst ykkur stundum....

þegar þið talið við kjærastan/una ykkar að það sé eins og að tala við vegg?
góða djammið á tótunni laugardagskvöldið. fór í party með nonnanum hjá vinum hans sem hann er ekki búinn að hitta forever. og þar var fólk sko ekki feimið við súpa á. enda voru sumir svo að segja dregnir út í bíl til að fara í bæinn. ekki varð ég heldur minna hissa þegar sú sem ég hélt að væri næst mér í aldri, Aðalbeibið by the way, go var með þykkasta lagið af meiki og í flegnasta bolnum, stysta pilsinu... (you know the type) fór að tala um dóttur sína. tólf ára! átti svo tvö önnur líka. brjáluð stemming. en drullumikið fjör. fékk nokkrar safaríkar sögur af darlingdjonní frá því í árdaga þegar hann var ungur og óspilltur.
eða svo gott sem.
en ég fór eftir þessi óskup og hitti hommagreyin á cafecozy. fór svo á jón forseta og (aðégheld) eitthvað ball.
stemmari.
en svo þarf maður bara að fara að drulla sér aftur af stað í ræktina... búin að taka ansi marga letidaga uppá síðkastið með nammi og kóki og þvíumlíku. datt í mjólkurþamb heima hjá mömmu í gær. djöfl er mjólk góð.

leiðinlegt blogg?

leiðinleg tóta...

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

ooooo.... glorioses plaaaaaa -YES!


nei það er ekki verið að setja í mig stólpípu, heldur er ég að syngja fallegt lag. og í kvöld kl. 19:30 í Háskólabíói Íslands, sal 1, mun yðar einlæg einmitt flytja þetta fallega lag ásamt 4 einsöngvurum, kór og sinfóníuhljómsveit (en ég veit nú ekki hvað þeir voru að kalla til allt þetta aukalið... finnst röddin mín alltaf sóma sér best þegar hún er alein og óstudd), svo í ofanálag mun bíómyndin "jóhanna af örk" eða eitthvað svoleiðis (myndin er allavega UM hana) rúlla á bíótjaldinu fólki til gagns og gamans. eða gráts og gnístans, hún er ekkert rosalega hressileg.
myndin þ.e.a.s.
og ekki jóhanna heldur, en hún var nottla svikin og brennd og allt það svo það er nú ekki furða.

þriðjudagur, nóvember 09, 2004


0911

ég lít út eins og...

tina turner.
nei ásdís ég er ekki að reyna við þig ;) en nú grátbið ég alla um að kvetja ungfrú tótfríði í því að klippa af sér allt hár fyrir jól og vera eins og manneskja þegar hátíðarnar ganga í garð. einnig bið ég fólk vinsamlegast um að senda póst á herrabyrjaðaníræktinni og lýsa þar með rökstuddum dæmum hversu gott sé að eiga stuttklippta kærustu, hve hagkvæmt það sé efnahagslega séð og að almennt álit fólksins á götunni sé eindregið að hallast í átt að því að kvenfólk sé stuttklippt.

fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Unglistar Plögg

já það er rétt. Strengjakvartettinn TUMI ætlar að lúta í duftið fyrir hinum almenna borgara og spila á Unglist 2004. á klassísku tónleikunum þeas. þó við séum nú eiginlega með fokking brjálæðislega rokkað verk. en við munum spila hinn melódíska og geðþekka kvartett nr. 8 eftir meistara Shostokovitz. okkur eru reynar sett þau takmörk að spila helst ekki lengur en 15 mínútur svo aðeins kaflar eitt og tvö verða spilaðir.
tek sérstaklega fram að í kafla 2 er flottasta víólusóló geims.

tónleikarnir byrja kl. 20:00 næstkomandi sunnudag, 7. nóvember 2004 og eru í hinu magnþrungna Tjarnarbíói. algjör skyldumæting fyrir aðdáendur- og stendur tótunnar, þar sem hún er jafnvel að spá í að fara í sturtu og gera sig almennilega útlits fyrir óskupin.

tootie applenose

>> Use the third letter of your first name to determine your new first name:
>>
>> a = poopsie b = lumpy c = buttercup d = gadget e = crusty f = greasy g = fluffy h = cheeseball i = chim-chim j = stinky k = flunky l = bootie m = pinky n = zippy o = goober p = doofus q = slimy r = loopy s = snotty t = tootie u = dorkey v = squeezit x = skipper y = dinky z = zsa-zsa

>> Use the second letter of your last name to determine the first half of
>> your new last name: a = apple b = toilet c = giggle d = burger e = girdle
>> f = barf g = lizard h = waffle i = cootie j = monkey k = potty l = liver
>> m = banana n = rhino o = bubble p = hamster q = toad r = gizzard s = pizza t = gerbil u = chicken v = pickle w = chuckle x = tofu y = gorilla z = stinker
>>
>> Use the fourth letter o f your last name to determine the second half of
>> your new last name:
>> a = head b = mouth c = face d = nose e = tush f = breath g = pants h =
>> shorts i = lips j = honker k = butt l = brain m = tushie n = biscuits o = hiney p = chunks q = toes r = buns s = fanny t = sniffer u = sprinkles v
>> = kisser w = squirt x = humperdinck y = brains z = juice

>> Thus, for example, George W. Bush's new name is Goober Chickenshorts.
>> William Jefferson Clinton is Bootie Liverbiscuits.

miðvikudagur, nóvember 03, 2004

ich meine gúde Deutch geglosen

eða á mannamáli, þá er ég að glósa þýsku aríuna mína sem ég á að syngja á stigsprófinu mínu. mig grunar að það kunni að hjálpa til að vita UM hvað blessunin er, auk þess sem ég á (ótrúlegt en satt) auðveldara með að muna utanað texta sem ég skil.
svo svona "whileimatit" fletti ég upp mínu fagra nafni, en það er ekki til í þýsku. guðisélof, bendi fólki á að fletta nafnorðinu "tóta" uppí íslensku orðabókinni :@ en það næsta sem ég komst var "Totalisator" sem þýðir "veðmálastofa".
þannig að þið skuldið endilega gefa mér alla peningina ykkar og kannski vinnið þið í veðhlaupinu "verður eitthvað úr henni tótu?" sem mun snúast um það hvort ég nái að verða að manneskju áður en ég drepst eða ekki.
miklar vinningslíkur og veðhlaupahestur af góðu kyni, er kominn með sæmilegan knapa, en líkurnar minnka þó sem á líður svo nú er hver að verða síðastur.
jee...

aber nu darf ich meine arien geslutten fur meine gesange-zeit bist hier.

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

tuma æfing í kvöld, húrra húrra!
viðerum nefnilega að fara að spila á unglist næsta sunnudag.
allir að mæta.
ég myndi nú segja meira um þetta, ef ég vissi meira. en svona er það þegar maður er yfirleitt aldrei að fylgjast með einu né neinu...
oh well...

garfield klikkar ekki

nema er maður ætlar að láta hann birtast á blogginu manns...

Tommi kúkar á sig

já neinei, ég er alls ekki gay. ég er bara svona hommalegur í útliti, ekkert sem ég get gert í því. smá maskari og kinnalitur er nú bara eitthvað sem allir karlmenn nota. og þó ég DÁI beckham og er number one aðdáandi (sem á bytheway mestu peningana) er það als ekki kynferðislegt, ég hef alltaf haft gaman af fótbolta (strákar í stuttbuxum, slefslef)

skúli fúli fær að víkja....

...fyrir bróður sínum Lúlla Leiða.
ég er semsagt búin að þróa með mér enn einn alter-egóinn. það er nottla nauðsynlegt að búa sér bara til karaktera til að takast á við mismunandi aðstæður og tilfinningaflækjur. þá þarf maður sjálfur ekkert að gera, felur sig bara bak við Skúla fúla, eða þá Lúlla Leiða ef því er að skipta, og er svo bara kátur og hress þegar allt er yfirstaðið. spotless and carefree. næstum eins og ónotað dömubindibar. svo að auki er maður bara nokkurnveginn í blakkáti, man ekkert hvað gerðist eða út af hverju. tekur enga ábyrgð á sögðum orðum og framkvæmdum vondum hlutum.
je.
kaffi anyone?

sunnudagur, október 31, 2004

bara að sjá

hvort að þetta virki sem ég var að prufa...
oj ég er svo södd!
hvað er málið með að éta eins og svín og vera svo bara hissa þegar maður þyngist og þyngist?
svo er mér kalt og ég þarf að pissa.

föstudagur, október 29, 2004

áðan eyddi ég töluverðum tíma, umslögum og geðheilsu einnar samstarfskonu minnar ("hvaða píp er þetta alltaf í prentaranum? þetta er svo þreytandi... blebleble") í það að finna út hvernig á að prenta út Umslög á rosaflotta og tæknilega prentaranum (sem er líka skanni og ljósritunarvél)hér á bæ. tókst það að lokum og allir kátir. nema nottla samstarfskonan sem missti nokkra dropa úr geðheilsunni (sem hún má nú ekki við...). svo er ég að rölta niður á skrifstofuna mína, ferlega góð með mig og aldeilis búin að gera gömlu konunum greiða, þegar ég mæti fjármálastjóranum.
með prentara í fanginu.
sem prentar bara út límmiða til að líma á umslög.

stundum er best að vera bara HEIMA HJÁ SÉR undir sæng og láta lífið í friði.

fimmtudagur, október 28, 2004

horsí hors
fríða litla krúsímúsí var ða senda mér þennan líka ótrúlega öfluga og sniðuga kór. mikið væri maður nú til í það stundum að geta bara slökkt á sumum röddum með einum músarsmell... segi ekki meir.

kór... minnir mig á drauminn sem mig dreymdi í nótt... svakalegur

hress og kát og nýkomin úr ræktinni eins og sést.
ennþá kátara er þó hið staðfesta og naglfasta DEIT sem ég, miss tót, á við ungfrú sigríði geirsdóttur á sunnudaginn.
só sorrí hljómsveit listaháskólans, ef þið eruð búin að plana æfingu þá... ég var að bóka daginn í annað!
HMOOOAH HO HO HO HO
in a perfect world

Bonobos use sex to appease, to bond, to make up after a fight, to ease tensions, to cement alliances. Humans generally wait until after a nice meal to make love; bonobos do it beorehand, to alleviate the stress and competitiveness often seen among animals when they encounter a source of food.

The species is best characterized as female-centered and egalitarian and as one that substitutes sex for aggression. Whereas in most other species sexual behavior is a fairly distinct category, in the bonobo it is part and parcel of social relations--and not just between males and females. Bonobos engage in sex in virtually every partner combination (although such contact among close family members may be suppressed).

Lest this all sound like a nonstop Caligulean orgy, Dr. Frans de Waal, a primatologist at Emory University in Atlanta who is the author of "Bonobo: The Forgotten Ape," emphasizes otherwise. "Sex is there, it's pervasive, it's critical, and bonobo society would collapse without it," he said in an interview. "But it's not what people think it is. It's not driven by orgasm or seeking release. Nor is it often reproductively driven. Sex for a bonobo is casual, it's quick and once you're used to watching it, it begins to look like any other social interaction."

miðvikudagur, október 27, 2004

tímasetninga lesblinda

sumir eru með lesblindu og alskonar svoleiðis. sumir geta ekki lesið stærðfræði, eða tölur og svona og sumir eru meira að segja litblindir og sjá ekki rétta liti á réttum stað.
ég er með svona tíma-lesblindu. að eigin sögn. ég man ALDREI tímasetningar (þó ég skrifi þær niður) og ég er sífellt að ruglast á tímum sem eru "hálf" eitthvað.
tökum sem dæmi tíma sem er klukkan 14:30.
fyrir venjulegt fólk er þetta hálf þrjú.
fyrir mér er þetta hálftími yfir tvö, sem svo getur ruglast yfir í hálftíma Fyrir tvö, eða þá hálftíma yfir fjögur af því að stundum notar heilinn á mér sjónminni og tölustafurinn fjórir kemur fyrir í 14.
svo er lítil rödd aftast í heilanum á mér sem öskrar "hálf þrjú heimskinginn þinn - HÁLF ÞRJÚÚÚÚ!" og þá fer ég að ruglast með þrjá. hálf þrjú, eða kannski hálftíma fyrir þrjá?
eins og gefur að skilja er þetta mjög kvimleitt og leiðinlegt vandamál. tala nú ekki um þegar nágrannaþjóðirnar fara að breyta yfir í sumar og vetrartíma. þó það hafi nú ekki áhrif á mig, svona beint. þá finnst mér mjög erfitt að vita af þessu og stundum er ég mjög ráðvilt.

burg

svo er núna blogger að segja mér að klukkan sé 1. 09 þegar ég veit að hún er 12.16. þetta er nú skrýtið. en ég er nú niðri í tónlistarskóla svo það hlýtur einhver að láta mig vita þegar tíminn minn byrjar.
af hverju getur geðvonska, fúllyndi og þunglyndi ekki dreift sér yfir alla ævina, svo maður sé bara fúll og geðvondur í nokkrar mínútur á dag, en ekki í heila daga stundum og svo heila daga kátur og hress?
af hverju eru sumir dagar bara afspyrnuslæmir frá upphafi, sama hvað maður gerir?
hrumpf

þriðjudagur, október 26, 2004

blogging for the homies
ég var búin að gleyma hvað mér finnst ógeðslega gaman að grúska í svona html-dóti. eða hvað það nú heitir allt saman. fyrir hina ómeðvituðu, þá er það dótið sem stendur inní "template"-inu á blogginu. þar sem maður setur linkanaog það... æj duh.
svo er ég nærri því að verða of sein á Barrokk-Bands æfingu sem á að byrja 17:30. veit ekki alfeg hvernig þetta á eftir að verða allt saman, en við fáum víst subbulegan mat á kostnað tónlistarskólans fyrir vikið. svona er að hafa aðstoðarskólastjórann í bandinu.
soldið vond lykt af því máli finnst mér nú samt. hversu oft hefði ekki óliver kammó viljað gefa okkur druslunum subbumat á æfingum til að halda öllum kátum? sú sveit er nú búin að rúlla í yfir 10 ár og aldrei fengið eitt né neitt nema það sem hún vann sér inn.
oft á blóðugan máta.
en í annað.
ég er semsagt næstum því að verða of sein á æfingu (klukkan tifar) vegna þess að ég er í mesta sakleysi mínu að fremja illúðlegt glæpaverk með því að rippa tannháser-diskinn semég fékk lánaðann á bókasafni hafnarfjarðar. oj hvað ég á eftir að fá vond samviskubit. er ekki búin að fara á bókasafnið í mörg ár, kem svo og fæ lánaðan disk bara til þess eins að kópera hann inná tölvuna í vinnunni! svona myndu þverflautuleikarar aldrei gera.
og þó.
þverflautuleikarar geta sko aldeilis komið manni á óvart, svo ég segi ekki meir.

svo ég segi als ekki meir.*

en til að fyrirsögnin sé ekki útúr kú, þá verðég nú bara að benda fólki á hversu falleg blogg-síða Tinnu er orðin :) enjoy

*fyrr en soldið seinna

föstudagur, október 22, 2004

hvað í andskotanum er maður að spá að vera að þvæla sér út í einhverju tónlistar-rugli? þetta hér er málið. tölvuleikir.
já takk.
var að skella inn tvemur nýjum linkum og laga einn gamlan.
og getið nú!
annars stefnir allt í skemmtilegt kvöld með Tinnunni og herra Blogger. gott ef að ungfrú rauðvín kíkir ekki í heimsókn og ekki yrði ég hissa ef Ritz tvíburarnir kíktu með konurnar sínar camenbert og sultu.
ef þetta er ekki mesta snildarhugmynd ársins þá veit ég ekki hvað. :D
ég ætti kannski að gera svona síðu fyrir krúttið mitt hann Óskar og segja að ef ég fái ekki jah... 500.000 þúsund krónur fyrir mánaðarlok, setji ég hann í megrun.
það ætti nú að kveikja á gjafmildi hins almenna borgara. mikið er það annars skrýtið að ég skuli ekki eiga meiri pening...

fimmtudagur, október 21, 2004

ég veit nú ekki afhverju kannski, en mig grunar að Þessi leikur eigi eftir að rífa tónheyrnarkennarann ógurlega uppúr veikindum sínum. :)
svo er ég að hlusta á Beethoven píanókonsert nr. 4 og hann er þvílíkt sætur og skemmtilegur. ég spilaði hann meira að segja hérna um árið, og hún Valgerður undirleikarinn minn í tónó hfj. spilaði hann svo undursamlega. bið alla að taka sérstaklega vel eftir víólu-sólóinu í þriðja kaflanum. undursamlegt.

svo er ég að líka að hlusta á Tannhauser eftir Wagner. heima hjá mér sko. þegar ég er í ullarsokkum og á súkkulaði. finnst eins og ég sé að stelast til að fýla hann, af því að eftir að hafa spilað eitthvað Parsifal-samsull með einhverri unglingasinfóníunni hef ég ekki gert annað en að tala illa um aumingja Wagnerinn.
og sveimér þá ef að stundum.... EKKI alltaf! en stundumstundum langi mig til að verða ógeðslega góð wagnersópransöngkona sem yfirgnæfir 90 manna hljómsveit (n.b. þar sem 70% eru brasshljóðfæri) og hefur lítið fyrir því. skellir sér uppá hæðstu tónana án þess að belgja út æðarnar í hálsinum og er Aldrei rauð í framan.
það væri soldið kúl.

það er samt líka kúl að vera víóluleikari...

:/
hver kannast við Þennan Kauða? :D

þriðjudagur, október 19, 2004

af því að ég er svo skotin í henni Iðunni fékk ég mér líka svona . ég veit samt ekki alfeg hvernig þetta virkar eða svoleiðis nokkuð... en það hlýtur nú að koma í ljós og ég læt ykkur nú vita.
svo er kannski gott og gaman að geta þess að herra égerekkibúinaðbloggasíðanísumar Eyjólfur Eyjólfsson lét dívu-stælana gossa og hnerraði niður nokkrum velvöldum orðum (og nottla mynd með) á bloggsíðuna sína.
einmitt þegar ég ætlaði að fara að skrifa harðort og grimmdarlegt comment um fólk sem ekki bloggar þegar það er í námi erlendis... svona getur nú illskuhamur tótunnar ferðast um láð og lönd án þess að nokkur fatti.
ég vild´ég væri Pamela í Dallas...
þetta er nú kannski ekki alfeg satt, þar sem Pamela er gift mesta væmnis-ælu-góður-við-börn Bobby Ewing og svo er hún alltaf í hvítu. ég þoli ekki hvít föt. minna mig á fermingar, já eða þá fólk sem situr á geðveikrahælum. þannig er það alavega alltaf í sjónvarpinu, hef ekki ennþá verið lögð inn. sem er í raun mjög skrýtið (víóluleikari?). en sæti strákurinn (sem vill ekki lengur vera kallaður Afi Önd) var að kaupa fyrstu seríuna af Dallas á DVD.
ég veit ekki hvort að "snild" séu nógu gott orð til að lýsa þáttaröðinni sívinsælu, "sturlað gott stöff" er kannski nær því, en "ómægodþettaerskemmtilegastasjónvarpsefniíheimi!" er nokkuð heitt. jájá. við erum búin að horfa á 8 þætti og spennan er í hámarki, svik og prettir á hverju strái, Allir halda fram hjá öllum með öllum (nema nottla Bobby gubbupollur) og það líður ekki þáttur að einhver múti ekki einhverjum.
alfeg eins og í venjulegum fjölskyldum....

fimmtudagur, október 14, 2004

ég held svei mér þá að það sé bara ekkert sniðugt að gerast þessa dagana... allavega dettur mér ekkert í hug.
svei mér þá.
en svona til að gera allavega eina konu káta, þá get ég viðurkennt með gleði í hjarta að "modus nouvus" og "Folksongsingingseries V" eru komnar í hús :D
svo kvet ég alla til að hlusta vel á síðdegisþátt Freysa á X-inu. þvílík snild.
Kröfur ýmsra hreppa í Suðuramtinu á hendur Kirkjuhvammshreppi í Húnavatnssýslu fyrir styrkveitingu til Jóhanns Bjarnasonar "bera".

ætli hann hafi fengið styrk fyrir fötum?

fimmtudagur, október 07, 2004

í gær og í dag
ég var veik heima í gær. með hita og óráði. beinverki og annaðhvort geðveikt svöng eða svo flökurt að ég gat ekki hugsað um mat án þess að kúgast. það kallar maður nú óráð í lagi.
eða í ólagi?
allavega þá hristi ég slenið af mér með dæet kók og haribó hlaupi og er mætt til vinnu fersk eins og nýkreistur kjúklingur. reyndar hafði ég ekki þrek til að vakna fyrr en um ellefu leytið og tók því bara hálfan dag á þetta.
klikkaði nú samt ekki á böddípömmpi í hádeginu sem er að verða blífast í skedúalinu mínu. mamman klikkaði hins vegar og kenndi kvenlegum þroskaferli sínum um slappleika og kranklegheit.
aftur á móti hitti ég kunningjakonu mína (svo ég hljómi nú alfeg eins og ammagamla) sem var hress og kát og ljóshærð sem endranær. en þetta var hún sóley flautuleikari.
dúndur og dauði. annars er mér mjööööög illt í vinstra lærinu og sé fram á að komst ekki upp né niður stiga það sem eftir lifir viku.
*andvarp*

fimmtudagur, september 30, 2004

þriðjudagur, september 28, 2004

þessi linkur er tileinkaður henni fríðu sætu, sem er sú allra mesti litla-loðinna-krúttlegra-dýra dýrkandi sem ég þekki.

soldið samhengislaust klippa samt... en hvað með það?
ég virðist ekki ætla að muna skemmtilegu söguna sem ég mundi eftir í morgun. en jæja. en þa ðer svossem ekkert verra að skella hérna einum link.
hversu gaman væri það nú ekki að vera með fjölskyldunafnið Nigger?
þetta hérna er bara hreint alfeg ógeðslega fyndið. bjargaði deginum mínum, hehe :)
djöfull er hann nettur! :D
argh!
nú er ég í rúmar 7 mínútur búin að horfa í kringum mig til að reyna að muna söguna sem ég allt í einu mundi og ákvað að skrifa á bloggið mitt. svo gleymdi ég henni bara aftur og núna er ég algjörlega sögulaus.
hrumpf.

föstudagur, september 24, 2004

nám er Böl, borðum söl
á síðustu árum. aðallega bara síðast ár samt, frá því í september hef ég átt erfitt. mjög erfitt.
nú er ég ekki að tala um elskulegan unnusta minn sem gekk með mér í heillavænlegt samband á svipuðum tíma, heldur þá fáránlegu staðreynd að ég er góð (lesist: ekki léleg, annars segir fólk ég sé montrass) í tvemur hlutum.
og af því að ég er svo sniðug (lesist: vitlaus og hrædd við að taka ákvarðanir sem virkilega hafa áhrif) ákvað ég að vera í námi í þessum tvemur hlutum.... já gott fólk... Á SAMA TÍMA.
þessu má líkja við það að læra lögfræði OG stærðfræði á sama tíma, æfa sund OG frjálsar á sama tíma, eða tala í símann OG elda. allt á sama tíma.
gefur auga leið að þetta er mjög erfitt í samsetningu, framkvæmd og tími/rúm stangast yfirleitt á hvorn við annan ef ekki hvort tveggja sé. jájá.
ef einhver heldur að þessi póstur fari eitthvað, eða býst við niðurstöðu, skal sá hinn sama hætta að lesa. mæli með bakkamon leiknum hér til vinstri.
ég var bara að fatta svo skemmtilega myndlíkingu, sem smellpassar við báða hlutina eins og .... jah... grá flíspeysa við ullarhúfu.

hlutirnir mínir tveir eru eins og sumir hafa kannski gert sér grein fyrir... söngur og víóluleikur. myndlíkingin er að kúka og svo að skeina sér.

hið fyrra er eðlileg framkvæmd líkamans sem allir gera með einu eða öðru móti. það er yfirleitt ótrúlega auðvelt og alla stóra galla er hægt að tækla með því einu að slaka á öllum vöðvum og anda djúpt að sér. góð líkamsstaða er líka til bóta. margt er auðvitað efiðara/flóknara en annað, en allt virðist þetta þó skila sér með tíma og þrautsegju. iðnin á sér sterkar rætur í bókmenntaheiminum, þó kannski fræðingum finnist það ekki alltaf dýr pappír.

talandi um pappír.

hið seinna er það flókið að maður þarf að fá einhvern til að gera það fyrir mann fyrstu árin. það er erfitt og leiðinlegt. það er ekki hægt að drífa það af, vegna þess að maður verður að vanda sig. líkamsstaðan skiptir þarna meginmáli og maður er í rauninni alla ævi að þróa og betrumbæta tæknina sína. kunnátta og handbragð á hinum ýmsustu hjálpartækjum er ekki bara æskileg, heldur beinlínis nauðsynleg. það er vond lykt af því og þetta er skítavinna (bókstaflega). en fyrir heildina er þetta eitt af mikilvægustu athöfnunum sem þú gerir. það veitir manni ekki neina sérstaklega ánægju meðan á því stendur, en seinna meir er maður sjálfum sér mjög þakklátur. sem og fólk sem maður umgengst.

en þrátt fyrir þessa hjálplegu myndlíkingu er ég engu nær því innst inni þykir mér það vænt um báða hlutina að ég held ég gæti aldrei án annars verið. svo er kannski einn afleiðing af öðru ef maður einblínir ennþá myndlíkinguna...
æj fokk í raun hjálpaði hún mér ekki rassgat. meira kaffi!

þriðjudagur, september 21, 2004

noh
ég er svo aldeilis hissa að ég þarf næstum að pissa.
eða svo gott sem. ungfrú megabeib Sophia Loren á son sem heitir Carlo Ponti og er píanóleikari OG klassískur stjórnandi. þetta finnst mér mjög merkilegt. ég hafði einhvernvegin gert ráð fyrir því að öll börn frægs fólks væri dópistar og/eða bandbrjálað lið sem ekkert gæti og ekkert yrði úr. sjáiði bara hana Svölu Björgvins. úff, þvílíkt líferni á barninu.
en málið var að þessi Carlo Ponti var að gifta sig og ég var svona að tsjekka á því, ég hef alltaf fylgst mjög vel með börnunum hennar Sophiu, mér finnst það eiginlega vera orðin skylda mín eftir allt þetta. en allavega... þá rakst ég á þessa líka skemmtilega síðu fyrir fólk í giftingarhugleiðingum. þar er mjöööög skemmtileg grein um ísland :) þar stendur m.a. þetta:

"Although there's no Icelandic word for "interesting" (the closest is gaman - "fun"), there's a plethora of words to do with fish and the sea: pín porskur! ("you cod!") is a term of abuse, whilst "to give up" is often rendered as leggja ára í bát , "to lay one's oars in the boat". If something isn't up to much, it's ekki upp á marga fiska - "not worth many fish". Rural life has also left its mark on the language: on Friday nights in Reykjavík you'll find plenty of people who're sauðdrukkinnn - "as drunk as a sheep"; the word for sheep, fé , is also the generic term for money. Dogs also speak Icelandic and can quite clearly be heard to say voff (small children will refer to a dog as a voffi ) whilst cows on the other hand say mö . "
nýverið hef ég verið að slá inn skjöl hér á skjalasafninu (enda er ég skjalaskráritari) og það hefur verið frekar óspennandi af því að skjölin hafa bara verið með tölustöfum á.
"SA-J F nr. 1000-1009 (1894)."
og svona lagað. ég er búin að kvarta og kveina og vorkenna mér. þetta sé svo óspennandi og leiðinlegt. en bíðum við... fara ekki allt í einu að streyma skjöl uppúr kössunum með prenti á. og á því fyrsta stendur "Um ólöglegan líkskurð"

ég er hætt að kvarta
afmæli

í gær áttum við Afi Önd eins árs afmæli. sumum er það orðið ljóst eftir langa samveru við mig, hversu gaman ég hef af afmælum. öðrum ekki. en í gær söng ég s.s. á tónleikum, fór svo og borðaði afganga af sunnudagsmat tengdaforeldranna og horfði á sjónvarpið. dauf tilraun mín til hátíðahalda í formi DunhagaÍss lífgaði að vísu uppá hressinguna en samt sem áður finnst mér afmælisfíkn minni ekki fullnægt.
hvað er að mér?
hvernig get ég komið því til skila án þess að virðast vera heimtufreka að ég vil helst 24 tíma stanslaust partý þegar ég á afmæli? ég vil dýrar gjafir og ég vil flottan mat. ég vil háleggjaðar konur og kalla í loðvestum með þykkar keðjur um hálsinn, ég vil trúða og blöðrur, ís, nammi, popp með karmellu og kandífloss. helst vil ég líka frægar hljómsveitir frá útlöndum og miniature skemmtigarð.
*andvarp*
en ég fékk nú samt voðalega fína eyrnalokka svo ég ætla að steinhalda kjafti og gera mér þetta að góðu. hvað er líka málið að verða alltaf einsog smábarn bara þegar maður á afmæli? það er ekki eins og þetta sé eðlilegt... fólki á ekkert að finnast afmæli svona merkileg.

laugardagur, september 18, 2004

ligga ligga lái
ég er að fara á Damien Rice tónleikana! híhíhí hí hí hí.
svo kvet ég alla eindregið til að fara ekki á geisladiskamarkaðinn í skífunni, vegna þess að það er stórhættulegt, ég var næstum því búin að sleppa mér og kaupa ógeðslega mikið. en viti menn,ungfrú sjálfsstjórn.is mætti á svæðið og hvísaði orðum eins og "símreikningur", "euro-kort" og "nýr víólukassi" í bæði eyrun mín og ég hljóp út með einungis einn disk í farteskinu. og viti menn.... með Damien Rice!
:)
svo heyrði ég í Guju í dag, það var skemmtilegt. nema þegar skelltist á hana vegna þess að síminn minn var batteríslaus. ég er að spá í að nota símann minn ekki neitt allan næsta mánuð. gera svona tilraun, skrá niður samfélagslegar athuganir mínar á viðbrögðum annara við símleysi mínu sem og líkamlegar/andlegar breytingar á geði mínu, heilsu og mannlegum samskiptum. soldið svona eins og gaurinn í "super size me", nema ekki. svo er það starfsmannaferð þjóðskjalasafns íslands í fyrramálið. djöfulsins hark verður það. úff púff ma-gúff og fullt af bjór. ætla samt að sleppa því í þetta skiptið að taka gítarinn með. enþ að er nú bara vegna þess að mér var hótað lífláti.
einmitt af sömu manneskju og lét plata sig all rækilega útí svakalegt ólíferni fyrir einu ári.
hó hó hó

þriðjudagur, september 14, 2004

núna rétt í þessu reyndi gjör-ókunnug fiskifluga að fljúga upp í munninn á mér. þetta þykir mér ansi gróft í ljósi þess að:

a) ég lít ekki út eins og fiskifluga í framan (ég er t.d. ekki með 400 augu eða geðveikt langan rana sem ég nota til að æla matnum mínum upp og niður)
b) það er komið haust og svona flugur eiga að vera dauðar eða í dvala.
c) ég fann ekki neitt sem gæti hafa verið númer C, en það er samt svo asnalegt að vera bara með a og b.
stade, stade, stade

ég fór í tónlistarsögu í gær. fékk næstum því taugaáfall þegar ég kom inn í stofuna. alla mína tónlistarsögu var ég í bekk með tvemur, kannski þremur öðrum, svona bara fjör og rólegheit. já neinei! í þetta skiptið var bara stútfull stofa. fullt af fólki, meira að segja fólki sem ég hafði ekki séð áður og svo fólki sem ég hafði séð áður, en fyrir löngu síðan. og það var bara þungt loft og aumingja tóta litla þurfti bara að sitja á stól og ekki með neitt borð :( en það var nú svossem í læ. ég kvartaði ekki mikið.
allavega ekki fyrr en eftir tímann. ég var búin að steingleyma hvað þetta er viðbjóðslega leiðinlegir tímar. svo kann ég þetta allt saman eiginlega. (ég er svo gáfuð).
en í tímanum voru: einn heimskur fiðluleikari, einn hávær fiðluleikari, einn "éggerðiekkineittégeraðfylgjastmeð fiðluleikari og einn mjög hamingjusamur fyrrverandi fiðluleikari. svo nottla fullt af slefandi söngvarapakki og skítugum trommurum. ég held þessi hópur væri geggjað góður í eitt feitt partý. tóti gæti komið með og spilað á gítar úti á palli, haldið uppi smá útilegustemmingu.
jájájá.

en annars hef ég nú bara þrennt um þetta aðsegja....
við sköturnar vorum vaknaðar rúmlega átta og mætt til vinnu fyrir klukkan níu. þetta er mikið kraftaverk og slóum við öll fyrri met með þessari þrusumætingu. viljum við aðallega þakka því að við fórum að sofa um tíu leytið.
maður er orðinn svo gamall....

föstudagur, september 10, 2004

he he he


stal þessu af síðunni hennar Hildigunnar sem stal þessu af síðu hjá konu sem heitir Anna (ekki nein af þeim önnum sem ég þekki samt) og ég býst nú alfeg eins við að þessu verði stolið af mér. sem er nett. ætli samfélagið sé kannski að breytast, allir stela af öllum og allir bara sáttir við það?

hmmm.
pæling
fann þessa líka sætu mynd af nágranna mínum :) hehe

blaut og köld en með góða hugmynd
fröken tótfríður labbaði í vinnuna í morgun. tók hana að vísu hálftíma, en labbað var það heillin. ekki samt til heilla eins og mun rekjast hér á eftir. þar sem ég er enn að þrjóskast við að fara að nota góðufalleguhlýjuvindogvatnsheldu úlpuna mína (þetta er VETRAR-úlpa fyrir úthverfan grátur*) þá var mér bæði kalt og blautt.
eða hvernig sem það er nú orðað á góðri lensku fyrir ísa... en allavega þá var ég hvorki þurr né hlý þegar ég staulaðist upp stigann hér á skjaló nær dauða en lífi. og svo komst ég að því að það er næstum allt lokað á laugaveginum til 10!! hverskonar verslunarmennska er það nú eiginlega?! hvað með fólkið sem vaknar hresst og kátt uppúr hálfsjö-sjö leytinu og vill endilega skella sér á laugarann og máta föt, fá sér pulsu eða kaupa sér úr?
ég er bara mjög hneyksluð.
en svo var ég að fá svona líka brilljant hugmynd sem tengist bæði morgnum og laugaveginum, skemmtilegu fólki og kaffi... tí tí hí :)

*lauslega þýtt (þýdd) úr ensku

þriðjudagur, september 07, 2004


0709
Posted by Hello

það sem ég ætlaði að segja í sambandi við þessa mynd var það að ég er mjög óánægð með hárið á mér og ég vil endilega að fólk hvetji mig eindregið í því að klippa mig. klipp klipp.
svo er það tóta fiðlukennari á morgun. hehehe, hohoho, HA HA HA, HMOOOAH HMOOOOOOAAAAH HAAAAAAAAA!!!!

sunnudagur, september 05, 2004

kaffi? já takk
tóta litla tók heldur betur á því í gærdag. fór fokkin ÞRISVAR sinnum á kaffihús. á ÞRJÁ mismunandi staði og alltaf með mismunandi hóp af fólki. samtals fengu 10 manns að njóta þess með mér í gær að sitja með mér á kaffihúsi.
hins vegar ætla ég ekki að telja upp hve miklu ég eyddi í þessar þrjár ferðir, vegna þess að ég vil helst ekki vita það. en svona til að fólk fá einhverja hugmynd um endanlega tölu, þá má geta þess að ég fékk mér kökusneið á súfistanum.
svo er klukkan núna langt gengin í tvö og ég er gjörsamlega viðþolslaus af kaffi withdrewal.
búin að vera svo lengi í englandi búin að gleyma íslenskunni. hohoho.
jæja... afi kallar, kaffi ferð :D

föstudagur, september 03, 2004


Posted by Hello

þetta er ég. voða sæt. en þarna má með sönnu sjá að ég þarf mjög nauðsynlega að komast í klippingu. ég býð hverjum þeim sem telur sig ráða við þetta hár að kommenta hér fyrir neðan. stutt verklýsing, kostnaðaráætlun og C.V. skal fylgja.

þarna má líka sjá nýju gleraugun mín. Yeah! prada beibí, prada!
(éger ekki að plata)
blogg um geitung

áðan flaug geitungur inn um gluggann hjá okkur jónisæta á skrifstofunni og hann öskraði eins og lítið stúlkubarn. tóta hugdjarfa lét sér þó fátt um finnast og náði með (svo aðsegja) einni handsveiflu að veiða litla skinnið í glerglas. svo stóð glasið bara á borðinu hjá mér í smá stund. öfugt nottla svo hann kæmist ekki út, geitungurinn. jónsæti hélt áfram að ýla uppi á skrifstofustólnum og þá datt mér það snjallræði í hug, hvort ekki væri hægt að þjálfa svona geitung sem gæludýr. eða öllu heldur árásardýr. hehehe.
geitungar eru litlir og þægilegir í meðförum. maður gæti geymt þá í vasanum bara, eða á öxlinni ef maður væri nú að labba í skuggalegu hverfi svo allir myndu sjá. þeir eru mjög matgrannir, einn sykurmoli myndi t.d. duga. Alltaf. svo menga þeir ekki neitt og eru ekki í neinu stéttarfélagi heldur, svo maður gæti komið geðveikt illa fram við þá. þeir kunna ekki heldur að lesa. hohoho.
en svo var mér litið niður á pilsið mitt og það er brúnt, svo ég henti honum útum gluggann. ég er sko ekki týpan í vera með lífvörð sem ekki bekenar við fötin mín.
hú hú
stundataflan mín er öll að skríða saman, held ég endi á því að vinna á skjaló tvisvar í viku frá 8 *hóst* til 4. eða eitthvað svoleiðis. reyna svo að nota hina dagana til að æfa mig og fara í tíma og svona allt saman. jájá. er heldég meira að segja að fara í tónlistarsögu, svona í fyrsta skipti í milljón ár. átti alltaf eftir að taka tónlistarsögu númer FIMM. :) ég elska tónlistarsögu. svo er bara spurning um að massa þetta almennilega og gerast besti víóluleikari bæjarins og sópran söngkona Dauðans.
-ho ho ho ho!

en svo átti hann pabbi minn afmæli í gær og varð 43 ára! húrra fyrir því :)

miðvikudagur, september 01, 2004

mánaðarmót
mánaðarmót... þar sem mánuðir mætast. þetta er eitt af þessum íslensku orðum sem ég er nokkuð sátt við, annað en "honum", "dámar" og "tómatar". en það sem er líka skemmtilett við mánaðarmót er að maður fær útborgað. en þarsem ég er nú eiginlega, strangt til tekið (gjörsamlega) búin að eyða laununum mínum Nú Þegar hlakkar mig ekkert til að fara inn á isb.is og tsjekka á stöðunni. ég veit líka að staðan verður nákvæmlega sú sama og hún var í gær, á morgun.
andvarp.
ef einhver veit um leið til að græða fullt af peningum á skömmum tíma, við enga fyrirhöfn... þá má hringja í mig. verð við símann í allan dag.
eða svo gott sem.

mánudagur, ágúst 30, 2004

muuuuuuuuu
mér er kalt á höndunum og ég er afskaplega svöng :(
jæja þá er ég komin heim. túttílí dútt!
lá allan sunnudaginn og svaf (og át toblerone -hehe) og byrjaði svo vikuna á því að skella mér í ræktina með jónisæta. hélt ég myndi drepast illilega. gerði það samt ekki og er koin í vinnuna. *púff*
get samt ekki beðið eftir að byrja í skólanum húrra húrra! :) á samt eftir að... *hóst* redda skólagjöldunum... *hóst-hóst* en það hlýtur nú að reddast, ha pabbi? :D:D

miðvikudagur, ágúst 25, 2004

Rivka Golani er snillingur, bara svona for the record. algjor gella og brjaladur toffari. var med tonleika i gaer sem eg tok upp, hehehe. tott tad vaeri stranglega bannad, hehehe.
er ad fara i tima hja henni kl. 1400, var i mat. maturinn herna er oged, mer er svo flokurt ad eg er alfeg ad farast. fekk mer einhverja faranlega koku i eftirrett tott eg vissi ad mer myndi tykja hun vond og eg vissi ad eg myndi fa i magann af henni. hvad er eiginlega ad mer? heimska tota.
en eftir timann hja rivku fer eg ad spila mozart kvintett (fyrir TVAER violur, hehehe) og svo er eg bara buin i dag. spurning um ad dissa matinn herna og kaupa ser bara kok og snikers, fara heim i heimavistarholuherbergid mitt og lesa bok og drekka bjor (og borda kok og snikers) og fara ad sofa bara um kl. 10? hmmmmm....
tetta eru allt forvitnilegar spurningar sem eg er ad velta fyrir mer ad hugsa um a medan eg bid eftir tvi ad klukkan verdi 14.00.

hoho

sjaumst ekki a morgun, ekki hinn, heldur HINN!!!

föstudagur, ágúst 20, 2004

hallo hallo hallo

bara sma frettir fra dartington, gengur bara vel, jajaja. tetta er hin svokallada "songvika" hja mer og er tar af leidandi eiginlega bara buin ad vera i songmasterklass timum. sem er fint. se samt soldid eftir ad hafa ekki kikt a violugaurinn sem var med masterklassa, en tad var alltaf a sama tima og hitt svo... bleble.
en vedrid er buid ad vera omurlegt, rigning og kalt og rok og hundfult bara. tad stytti reyndar adeins upp i gaer, en tad var nu ekki lengi ad hverfa. vona ad tad verdi betra i naestu viku. hihi. annars er bara buid ad vera mjog gaman og buin ad laera ogedslega mikid. er svossem ekki mikid buin ad sosalisera, tar sem eg by nidri i bae (er 40 min ad labba i skolann, heyridi tad), en tad er svossem ekkert tad slaemt. en eg aetladi nu bara ad lata heyra adeins i mer... hotmail er med einhverja staela svo eg get ekki skrifad bref, en allavega.
verd ad tjota. tooorilooo

föstudagur, ágúst 13, 2004

jæja jæja, þá er ég farin til Dartington :)
góða skemmtun án mín, hittumst 28. ágúst

kyss kyss
ókei ég er aðeins skárri í skapinu eftir að hafa skoðað þetta -híhí
Skúli Fúli


...þeir sem ekki þekkja skúla fúla eiga ekki að lesa þennan póst....


oj ég er í svo vondu skapi ég gæti urrað. sem er eiginlega það eina sem ég er búin að gera í allan dag, svo þetta eru nú ekki miklar fréttir. byrjaði á því í morgun að BRJÓTA brjóstahaldarann minn! hvað er eiginlega málið með það?!! heimska drasl. ég veit samt um tvær stelpudruslur sem hlægja núna, en þessar tvær hinar sömu sáu mig einmitt BRÆÐA þennan sama behe saman fyrir 2 vikum. talandi um að redda sér. svo tók ég eftir því að það vantar eina tölu á uppáhalds-skyrtuna mína (sem jónsæti litaði bleika úr hvítu hér um daginn, svona svo ég rifji nú upp hluti til að gera mig ennþá fúlari) og talan er einmitt í miðjunni á henni svo að núna þarf ég að næla hennisaman með öryggisnælu. ekki það að ég geti hneppt henni á annað borð þar sem ég er enná ný orðinn að fellingakrypplingi og enn meiri fituhlung en nokkru sinni.
ég er samt ennþá í vondu skapi þó svo að kexkóngurinn á skjalasafninu ætli að stíga niður af Frón-hásæti sínu og grilla fyrir fólk í hádeginu. en þetta fólk stóð einmitt yfir mér fnæsandi og taugaveiklað meðan ég ljósritaði og það reyndi að prenta út (ljósritunarvélin er s.s. líka prentari), alltaf að garfa í blöðunum mínum og segja FOKKING Nautheimska hluti eins og "þú verður að gefa okkur tækifæri á að prenta" , "er þetta ekki koma?" "ble ble ble" , gleymum ekki vandlætingar-andvarpinu og fórnuðu höndunum.
FOKK JÚ!!!!
þessi helvítis vél virkar nefnilega þannig að það kemur svona LÍTILL HVÍTUR KASSI í annað hornið ef að það er prentun á leiðinni, en þar sem þetta fólk er ekki með heila nema til að glápa á gömul ógeðsleg rifin og vængefin blöð og skilja hvað stendur á milli myglaðra hrákaslettna og guðmávitahvað þá SKILUR það ekki nein tæki eða hvernig þau virka!
svo er bara hreytt í mann. eins og ég SJÁI það ekki þegar hvíti kassinn kemur? halda þau að ég standi bara allan daginn og einoki vélina? djöfulsins trega pakk!
aaaaaaaaaaargggghhh!
eg er nú orðin frekar pirruð. svo halda þau að mín vinna sé eitthvað minna mikilvæg en það sem þau eru að prenta út!! þetta er nú bara alfeg jafn mikilvægt, þó ég sé ekki með asnaleg ljót SAGNFRÆÐI próf sem nýtist hvort sem er engum nema slefandi þroskaheftum ættfræðingum sem hafa ekki þvegið sér í marga mánuði, þá er ég ekkert enhver skítaklessa út í horni sem má traðka á!!!
aaaaaaaaaaaaaarghhh! argh! aaaaaaaaaaarrrgh!
djöfull hlakka ég til að drulla mér í burtu frá þessu heimska húsi og ömurlega landi og vera innan um fólk sem getur hugsað um fleira en einn hlut í einu, kemur fram við mann eins og manneskju ekki sauðfé og er svona nokkurnveginn á sömu ÖLD og maður sjálfur!
urrr
ég fékk sms frá Berit!
sem er mjög skemmtilegt. fyrir þá sem ekki vita þá er hún dönsk og var góð vinkona mín í orkesternorden. weehee :)
svo er tóta litla að fara til útlanda á morgun. :o ja nú verður maður að hysja uppum sig brækurnar og drífa sig í að klára hlutina... svossem ekki mikið eftir.

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

þetta var nú ljúft....

"Engir ógreiddir reikningar fundust"

en þetta var nú ölluverra :(

"Staða: -xx.xxx"

yfirdráttur punktur is, blóm og kransar afþakkaðir, en þið ættuð að vita hver er fjárþurfi!
jeminn ég veit ekki hvað éger að gera hérna það er svo gott veður ég verð að fara út ég nenni ekki að vinna eða æfa mig vil bara fara útí sjó að vaða og drekka kalt vatn og borða ís í stuttbuxum og ekki vera inni

aaaaaaaaarghhh!

þriðjudagur, ágúst 10, 2004

things to say and do
eða var það do and say? allavega erþetta diskur með moloko sem mér langar í og svo á ég eftir að gera glettilega marga hluti, svona áður enég fer og þar sem það eru bara 4 dagar, þá magnast spennan og þetta er orðið stórkostlega skemmtilegt.

1) fá mér yfirdrátt -Yeah!
2) kaupa mér gleraugu -about time!
3) borga reikninga -djöfull er asnalegt að gera svona komment á eftir öllu...
4) kyssa vigni -og við erum að tala um kossaflens hér, litla krúttið mitt
5) drekka kaffi með pabba hans Baldurs -B má svossem vera með líka
6) hitta stórsöngkonuna Þórunni og finna góða afsökun af hverju ég er ekki búin að syngja lögin mín með píanóleikara.... úff ég verð hengd upp og úrbeinuð :p
7) hringja í stórvinkonuna Þórunni sem á afmæli á morgun og er á spáni
8) pakka
9) hitta Tinnu sætu
10) kaupa gjaldeyri
11) hitta Aðal-gellurnar
12) æfa mig æfa mig æfa mig æfa mig æfa mig
13) ljósrita
14) kúka
15) selja eyfa ferðatöskuna mína (ekki þessa sem ég verð búin að pakka í hohohhohoh)
16) fara 4 sinnum í sund eða sambærilega líkamsrækt
17) drekka vatn

hmmm...
best að byrja.... can´t waste no time.
eða eitthvað. og ef þið vitið um e-ð fleira sem ég þarf að gera fyrir laugardaginn 14. ágúst, tell me tell me tell me once, tell me twice...

mánudagur, ágúst 09, 2004

jæja jæja þá er ég búin að kaupa mér lestarmiða frá Paddington station til Totnes í suður englandi. haldiði að maður sé hress?
þakka eyjólfi veitta hjálp við þetta mikla verk. jájájá. en miðinn kostaði nú líka rúmar 9000 krónur, svo það er einsgott þetta sé almennilegt :p púff.
gay for a day is okay
djamm dauðans á laugardagskvöldið, þvílíkt stuð segi ég nú bara. rokk og ról á Nasa. veit nú reyndar ekki hversu gaman smjörtarfinum glerfína fanst, þar sem hann hvarf skömmu eftir komuna. en það var svossem nóg af fólki á staðnum, segi ekki annað. hitti held ég alla þá homma sem ég hef kynnst á æfinni, sem er nú hreint ekki fáir, nema nottla þýska hommann sem ég var svo ofsalega ástfangin af þegar ég var sextán ára. hversu heimskulegt er nú það?
en maður ræður víst ekki við ástina þegar hún skellur á manni, sniff sniff og snökt. tala nú ekki um þegar maður er sextán.
sunnudagurinn var síðan undirlagður af hræðilegri þynnku og dagurinn í dag byrjaði á því að enginn af okkur tvemur nennti á fætur og mættum við hjú því ekki til vinnu fyrr en um tólf leytið. skammi skamm! :@ svo er ég nú svo andskotanum svangari að mig langar mest að taka þessa svörtu ljótu mús og skella henni í súkkulaðidýfu... eða pulsu. vá hvað mig langar í puuuuulsu. og kók og súkkulaði. æj.
puh.
ég á svo bágt

föstudagur, ágúst 06, 2004

jemminn hvað ég er ekki búin að gera neitt í dag í þessari svokallaðri vinnu minni! Sigrún ofurgella sem vann einu sinni á símanum kom nefnilega í heimsókn og hélt uppi samræðum frá því hún kom (15:00 og þangað til hún fór 16:05). sem er nottla bara algjör snild.
jessör. annars er ég alfeg á því að fara bara í sund núna og æfa mig svo eins og berserkur. kannski ég framkvæmi eins og eitt lítið símtal?
hræðileg þessi símafælni :p búin að ýta þessu á undan mér í viku...
pepsí og laukur
fór í mötuneyti DAUÐANS áðan og fékk pasta og hvítlauksbrauð. hljómaði voða vel, en drottinn minn dýri hvað það bragaðist illa. og var ljótt! pastað var svona grábrúnt með húðlituðum litlum kögglum í sem maður bara vonaði að væru skinkubitar, hvítlauksbrauðið var gegnsósa í endunum, en þó ekki af hvítlauksosti, því það var eiginlega ekkert hvítlauksbragð af því.
afar óhuggulegt.
svo ég og Unnur megabeib fengum okkur Pepsí með matnum. sem olli því að Gunnar fékk sér malt og hinn gunnar fékk sér líka pepsí. jón keypti sér svo súkkulaði sem olli því að Ég keypti mér súkkulaði. svona er glatað að kaupa Pepsí út í bláinn. en svona til að meika sens í titilinn þá, þá er best ég taki það fram að ég dúndraði fullt af rauðlauk í pastað mitt úr of þurrum grænmetisbar svo núna anga ég af lauklykt. allavega finnst mér það... en vó hvað mig langar í kók... sjæse
helgin að skella á!
stefnir allt í tryllt party á morgun. er búin að lofa hátíðlega að hitta hér um bil ALLA sem ég þekki annað kvöld, vegna þess að um næstu helgi er tóta litla af landi farin að spila og syngja fyrir útlendinga í útlandinu englandi. og á meðan ég rétt svo leyfi mér að skreppa út fyrir fjöruborðið eru tveir.... tveir af mínum svölustu meðlimum búnir að leyfa sér að Flytja til útlanda! hvað í andskotanum á það nú að þýða?! þetta verður rætt síðar.

miðvikudagur, ágúst 04, 2004

oohhhhh mér leiðist svo miiiiiikið. er að BÍÐA eftir jónisæta meðan hann er égveitekkiaðgerahvað. oooooh það er svo leeeeeeeeiðinleeeeegt. mig langar að leggja mig, enda vöknuð fyrir allar aldir, takið eftir því. svo er maður búin að fara í spinning og svona. fokkin geðbilun. ég held að líkami minn sé ekki skapaður fyrir þessi hjól. ég get alfeg hjólað og svitnað og svona í 20 mín, en þá er líka bakið á mér í hakki, mér er illt í Öxlunum og mjóbakinu. ekki það að ég sé með mjótt bak.
boring. jæja.... þá er bara að taka einn Bakkamon leik. djöfull er ég orðin góð í bakkamon. nokkrum sinnum hef ég UNNIÐ tölvuna og við skulum átta okkur á því að hún er FORRITUÐ til að vinna. þannig að breiníakk tóta, góðan dag...
þessi er nett

In questa reggia

djöfull hlýtur að vera gaman að vera svona brjáluð óperudíva, feit og ljót og svo bara "hey þú asnalegi með prikið! hægara tempo!" eða "ég ætla að flýta..... NÚNA" og allir hlýða bara. hehehe :) rokkogról
spinningur
afi gamli ætlar að draga tótu sína í spinning í hádeginu. úff-úff-húff! veit nú ekki hvernig það endar. annaðhvort fæ ég hjartaáfall eða druknna úr svita... eða bæði. ég er ekki góð í spinning, fatta aldrei þetta með taktinn og fæ alltaf illt í rassinn. sem er hvoru tveggja mjög kjánalegt, búin að vera í Taktvissu Tónlistarnámi frá tíu ára aldri og er með Risastóran Rass.
stuð að stuðla.
svo fór ég nú á www.spinning.com svona til að koma mér í gírinn og það fyrsta sem blasir við manni á síðunni er mynd af voðalega ungri og tiptop gellu og eitthvað "In Loving Memory" undir. manni bregður nú bara í brún, hvað á þetta skylt við spinning.com? er þetta kannski Lífhættuleg heilsurækt? ég bara spyr mig sjálfa. en þar sem mér er ennþá töluvert óglatt hef ég ákveðið að svara mér ekki.
en fyrir áhugasama, áhorfendur eða hugrakka þáttakendur, þá mun þessi mikla þrekraun eiga sér stað í Þrekhúsinu vestur í bæ klukkan 12:05. það verður auðvelt að þekkja tótu sína, verð manneskjan sem lítur út eins og hún sé nýkomin úr sundi í öllum fötunum og sé eiginlega alfeg að kafna.
yeaaaaahhhh!
nei bara djóka.
ótrúleg!
nei kæru vinir, þetta er ekki sjónhverfing, blekking eða svona samsæri þar sem öllu er til tjaldað svo að hinir almennu fatti ekki sannleikann. þetta hér er helblár sannleikur, klukkan er 9:40 og ég er mætt til vinnu!
júhú!
enda er ég með svo mikla magaverki að ég efast um að ég nái að klára þessa færslu áður en morgunmaturinn nær að.....

þriðjudagur, ágúst 03, 2004

komin til vinnu og búin að fá mér pönnusteiktan kjúkling í sambal-sósu frá veitingarhúsinu Asíu. mjööööög gott. helgin var hrottalega skemmtileg og allt að verða vitlaust, fór m.a. á tónleikana hans Eyfa litla í Skálholti með mömmu, ömmu, ása og döggu systur. við litlu systurnar ætluðum svo að skjótast aftur til skálholts og tjútta svolítið, en bílleysi hamlaði aðgerðum svo við tókum bara vel á því heimahjá sif sætu, í e-u party hjá e-m gaur og svo hjá Arnari íslandssól. góóóóð stemming, þó ég hafi eytt of miklu af honum euro frænda :( en það verður nú víst bara að hafa það.
bú hú
svo er vika mikilla æfinga framundan... bara tíu dagar í Dartington :o

laugardagur, júlí 31, 2004

lát mig sætlega sofna
er niðrí tónlistarskóla á bókasafninu að hlutsa á "Erbarme Dich" svo dyggir lesendur geta kannski ímyndað sér hugarástandið á kellingunni.
langar mest af öllu að taka bara víóluna mína, fjallrevenpokann minn fullan af nærbuxum og fljúga burt frá þessu vonda ljóta landi. setjast að á fjallstindi og læra að syngja. halda svo tónleika einu sinni í mánuði. fyrir guð. fólk á ekki skilið að heyra tónlist, það er vont, ósanngjarnt og fordómafullt.

annað minna dramatískt sem hægt er að gera er að drulla sér upp í skálholt og hlusta á Undramund syngja fallega. ég er nú reyndar búin að lofa sykurpúðanum sólar-ljóshærða að kíkja frekar á morgun. en þar sem ég ófær um að taka eina einustu ákvörðun, hvað þá framkvæma þær, eða bara haga mér eins og venjuleg manneskja í smá stund, efast ég um að ferlið sem fylgir því að koma sér 100 km leið eigi mikilli brautgengni að fagna.

hvað ætli það taki langan tíma að verða manneskja? líffræðilega er það nottla 9 mánuðir, 14-18 ár að verða hæfur til umframeldis, 20-40 ár að ná frama í því sem hugurinn/hjartað/aðstæðurnar segja manni að gera, 60 ár að skila af sér því sem maður vill að heimurinn muni eftir manni fyrir... er maður þá orðin að manneskju? eða er maður alltaf manneskja og eyðir bara tímanum í það að þóknast sjálfum sér án þess að hafa neikvæð áhrif á aðra? hvernig getur maður orðið betri manneskja á hverjum degi? hvenær er maður orðin góð-betri-best manneskja? hvort er mikilvægara ða vera góð manneskja frá sínu eigin sjónarmiði eða sjónarmiði annara?

ég skammast mín ekki fyrir að trúa og það er á stundum sem þessum sem fátt kveikir ljós í myrkrinu, en það er samt alltaf einn logi sem tórir... sem betur fer :)

"...Ég svara, Drottinn, þökk sé þér!
Af þínu ljósi skugginn er
vor veröld öll, vort verk, vor þrá
að vinna þér til lofs sem má
þá stund, er fögur hverfur hjá."

Þorsteinn Valdimarsson

föstudagur, júlí 30, 2004

verslunarmannahelgi að upprenna
nú fer að koma helgi, helgi, helgi,
fylla allir sína belgi, belgi, belgi
og elta elgi, elgi, elgi.

þetta fína ljóð væri mjög fínt í noregi, því það er svo mikið af elgum þar. en hins vegar eru norðmenn ekki með svona verslunarmannahelgi, þannig að þetta er eiginlega dauðadæmt frá byrjun. oh.
en mér tókst með miklum undanbrögðum að sofa yfir mig í morgun og fékk þess vegna stuttan matartíma. í þessum fyrrnefnda tíma er við mat er kenndur fór ég hins vegar í mikla ránsför (óviljandi) og át grænkál frá einhverjum samstarfsmanna minna.
ég elska grænkál.
en nú er ég að fara heim í fjörðinn og er svona hugsa um það hvort ég eigi að leiðrétta þennan stuld eða bara vera kúl á því. hmmm. það myndi hjálpa til ef ég vissi hver átti umrætt grænkál, vegna þess að mér er mishlýtt til samstarfsmanna minna eins og gefur að skilja. einum samstarfsmanna er mér t.d. mjööööööög hlýtt til... en það er önnur saga. nú held ég hins vegar að ég ætti að fara að drífa mig heim og víólast í smá stund.
hóhóhó!

góða helgi börnin mín :*