föstudagur, maí 27, 2005

nýr kynþáttur 1, 2 og 3

arghh ho ho ho ho!

éger búin að skipta um kynþátt á mér, jónisæta, skrýtna fólkinu á safninu og öllum í fjölskyldunni minni. vá hvað þetta er gaman.
hohoho!

change my race
nærbuxur fyrir tortryggjandi kærasta... :)


afþví að ég er svo mikil listaspíra og svona artist innrameð mér OG algjör sökker fyrir allri japanskri menningu og list þá verð ég endilega að linka yfir á síðu hjá gaur sem heitir Hideaki Kawashima. eða gellu. maður veit ekki með þessi japönsku nöfn sko, gæti verið hvoru tveggja. en mér finnst herrafrúeðahvaðíóskupunum Kawashima ótrúlega töff gaur. eða gella. þannig að vinsamlegast gefið mér svona málverk í afmælisgjöf.
megið alfeg vera nokkur saman, jájájá.

annars er bara allt að tryllast hér á safninu, stemmingin er gífurleg.

heyrðu mig nú?!

ég var að vona að ALLIR myndu taka sig til og kommenta eins og þeir ættu lífið að leysa um það hversu ó-hrokafull ég sé og ég sé í rauninni vanmetinn snillingur.
hrumpf.
en jæja. bleikur veit þá ausan dettur í brunninn.
en annars er ég nokkuð hress á því. held reyndar ég hafi náð að móðga heilan hóp af tónóíreykjavík-fólki sem stóð fyrir utan ísbúð. einn þeirra meira aðsegja í grímubúning. ætlaði að spjalla og vera með almenn almennilegheit, en svo var ég bara svo svöng ég óð inní "hamborgara og thai grill böðvars*" til að panta mér að borða.
en svona er þetta.
thai maturinn kostaði 580 (thai núðlur í grænmeti og kjúkling) og var eiginlega ekki krónu meira virði. en hvorugt okkar fékk niðurgang, útbrot eða taugaveiki svo þetta er bara nokkuð vel sloppið.
rokkedí rokk.


*ég er ekki viss um að hann heitir böðvar, en það er bara svo töff að eiga hamborgara og thai búllu og heita böðvar