föstudagur, september 19, 2003

Morðið í Alþingishúsinu
mér var að detta í hug að nota þetta blogg til að rakka niður bókmenntir. það er bæði skemmtilegt og fyndið, og þar sem ég er nú sjálf Bókmennafræði-dropout þá tel ég mig sjálfa vera einkar vel í stakk búna til þess arna. alvöru bókmenntafræðingar eru nefnilega allt of klárir og vel lesnir til að geta hreytt almennilega. með öðrum orðum, þeir hafa ÞURFT illu heillu að lesa svo hrottalega leiðinlegar bækur í námi sínu. ég held í alvörunni að það sé til einn áfangi uppí H.Í. sem heitir "leiðinlegar bókmenntir", sem er þá væntanlega undanfari "drepleiðinlegar bókmenntir" (kenndur annað hvert ár, sem tillitsemi við kennarann) og svo getur maður tekið valáfangann "leiðinlegri en allt í heiminum bókmenntir" sem er virkilega óspennandi. furðu margir sem taka áfangann, flestir þó úr raunvísindadeild.
en nóg um það og yfir í rakkið.


ég var að lesa Morðið í Alþingishúsinu. þess vegna stendur Morðið í Alþingishúsinu hérna efst. fyrirsögnin sko, ekki bullið um háskólann. en morðið í alþingishúsinu (bókin) er svona spennusaga. þannig að hún á að vera spennandi. þetta er það fyrsta sem klikkar. sagan vellur einhvernvegin áfram á asnalegan hátt, atburðarásin er hröð á þann hátt að maður fattar yfirleitt ekki hvað er aðgerast og lausir endar eru út um allt eins og á gömlu, illa vafnu teppi. aðalsöguhetjann er Lögfræðingur að nafni Stella Blómkvist (þvílík tilviljun, það er einmitt líka höfundur bókarinnar!) og hún er bæði sexý, fyndin, hörð í horn að taka, einhleyp, tvíkynhneigð, klár og ferlega rík. þekkir fólk útum allt, t.d. blaðamann, löggu og einn sem er krimmi. allt ferlega fyrirsjáanlegt og leiðinlegt. Og það er EKKI SJENS Í HELVÍTI að höfudur bókarinn sé kvenkyns, það getur ekki verið. þetta er ábiggilega einhver graður, bólugrafinn unglingsstrákur sem finnst töff þegar stelpur eru með stelpum.
svo endar bókin á því að stella leysir öll vandamálin, veltir bílnum sínum ofan á Jódísi sem myrti Salvöru og þegar stella kemur heim til sín bíður á tröppunum lettnesk ofur fyrirsæta með kampavín. en þær sváfu einmitt saman fyrr í sögunni. voða krútlegt allt saman.
hoh!
nú er ég búin að eyðileggja morðið í alþingishúsinu fyrir öllum, hohoho hooooooo!!
Þetta er Magnað!

Svmkmaæt rnsanókn við Cmabrigde hkóásla þá stkpiir ekki mlái í hðvaa röð stfiar í oðri eru, það enia sem stikipr mlái er að frtsyi og stíasði stinaurfn séu á rtéutm satð. Aillr hniir sfitarnir gtea vireð í aöljrgu rlgui en þú gtuer smat lseið það aðvuledlgea. Áæðsatn fiyrr þsesu er að mnnashgrniuun les ekki hevrn satf friyr sig hleudr oirðð sem hiled.
ég var líka að fatta að það er ekki búið að setja inn exel eða access eða msn á þessa tölvu.
æj æj.... ég verð þá bara að hanga á netinu í allan dag.
vó maður!
ég var að fá nýja tölvu í þessum töluðu orðum. ég veit nú reyndar ekki af hverju, þar sem hin nýja var svossem alfeg nógu andskoti góð. en ég kvarta ekki :) svo er hún líka svört, geggjað töff. nýja lyklaborðið er líka svo smúth að ég hef bara aldrei vitað annað eins. það eina er að skjárinn er svo stór að mér finnst ég vera við það að klessa fésinu framan á hann og sit þess vegna lengst aftur í stólnum með bakið klesst við stólbakið. lítur frekar asnalega út, ef ég á að segja eins og er, en maður er nú vanur því að líta asnalega út. nefni mér til stuðnings kórbúningana fagurbláu...