ég er lötust í heimi núna í dag. svaf og svaf alfeg þangað til amma hringdi (tvisvar) og fór berrössuð að svara í símann. mæli ekki með því, varð frekar kalt á..... já allavega þá fór ég á fætur í hádeginu og talaði við hana ömmu mína í símann. hún er svo mikið krútt, þessi elska.
en eftir að hafa farið í sund og hringt í hann Gumma víólusjení, þá ákvað ég að skella mér í vinnuna, því að það var ekkert til að borða heima. mjög skrítin ástæða, iknow, en svona er þetta bara. fattaði á leiðinni að ég gleymdi símanum mínum heima, þannig að ég veit ekkert hvort Hljómeykis æfingin byrjar klukkan fimm eða hálf sex.
ég er nú hvort sem er að vinna til fimm, þannig að skiptir kannski ekki miklu. svona þannig.
og svo er ég komin í það hörkupúlsverkefni að slá inn manntalið 1835. það er nú barasta ágætt, verð ég að segja. alla vega skárra en helvítis yfirlesturinn. jesús hvað það er ömurlegt!
þar sem bullið nær yfirhendinni oftar en þig grunar // the blabbering blob
fimmtudagur, október 31, 2002
þriðjudagur, október 29, 2002
ég var að breyta litunum á Blogginu mínu, en ég veit ekki alfeg hvort mér finnist það flott eða ekki flott. endilega tjáið ykkur um það, svo ég viti....
þessu er vel hægt að breyta aftur til hins fyrra... eða ekki.

þetta er það sem ég henti út úr templateinu mínu.....
kannksi gott að eiga þetta....
kannksi gott að eiga þetta....
Frodolives a peaceful life in the Shire until he is unfortunate enough to inherit the ring from his Uncle Bilbo. Frodo is determined to destroy the ring and defeat the Dark Lord. Though the thought of this scares him out of his wits, he still marches forth bravely into Mordor with his faithful friend and servant Sam.
Take the "Which Hobbit are you?" quiz created by Cora Black
jei, ég er fróði! alfeg eins og Vignir vinur minnhmmm.
ég hefði nú frekar vilja vera Sam. það er eitthvað við hann sem bara fær mig til að hríslast um af vellíðan. "he´s my kind of guy" eins og Ken sagði þegar fyrsta
Action-man dúkkan var sett á markað.
Sam is the faithful servant of Frodo Baggins. He cares an awful lot about his master and would probably give his life for him. Though Sam meets many marvelous people as he journeys with Frodo, he still wishes he was back home in the Shire.
Take the "Which Hobbit are you?" quiz created by Cora Black!
ef maður ætlar að fara í FOKKING guildhall skólann í hinu hræðilega Lon-Don og er að læra söng eða píanóglamur, þá er nóg að kunna 3 verk utanað. þú mátt alfeg velja þau sjálfur. má þá kannski bara syngja gamla nóa og spila fúr elíse?
allavega!
en ef maður spilar á STRENGJAHLJÓÐFÆRIÐ VÍÓLU, þá er nú annað hljóð í skrokknum. (reyndar fallegra hljóð, en það skiptir greinilega litlu) þá þarf maður að gjöra svo vel að spila eftirfarandi:
Viola
All major and minor (harmonic and melodic) scales; chromatic scales; all major, minor, diminished and dominant 7th arpeggios in
3 octaves: one key each of 3rds, 6ths and 8ves over a span of two octaves
One study by Kreutzer (no.26 onwards) or Rode or Campagnoli or a more difficult study at the discretion of the candidate
The 1st and 2nd movements from a concerto in the standard repertory
One contrasting piece of the candidate's own choice
maður ætti kannski að skella sér. þetta er nottla barnaleikur!
2 áttundir af áttundum! ha-ha-ha! ég geri það sofandi með annan fótinn í fatla!
reyndar er þetta fyrir "BMus Audition Requirements". hvað þýðir það? ég skil þetta ekki. af hverju er þessi síða ekki myndskreytt betur og skrifuð í einföldu máli? þetta er alls ekki greinagóð síða fyrir víólunemendur....

jæja... ungfrú OFUR hress mætti í suðurbæjarsundlaug Hafnarfjarðar klukkan FOKKING hálf átta!!!
enda er ég þreytt eftir því.
enda er ég þreytt eftir því.
mánudagur, október 28, 2002
meðan ég var að bíða eftir strætó í gær, rakst ég á þennan líka skemmtilega leik. þetta er svona Air-Hockey, eins og er í öskjuhlíðinni.
mæli eindregið með honum fyrir fólk með EKKI þráðlausar mýs, vegna þess að mín mús er þráðlaus og ég sökka í þessum leik af hennar sökum.
eitthvað sambandsleysi, segir hann jón mér....
http://electrotank.lycoszone.com/games/airhockey.swf

jæja jæja jæja.
loksins kemst ég í tölvu sem hægt er að gera eitthvað á, en þetta er búið að vera í einhverju hakki hérna síðan Eiríkur opnaði póst með yfirskriftinni "mjallhvít og dvergarnir sjö" hvað sem það á nú að þýða.
en anyway.
helgin var ágæt, spilaði dúetta með Baldri Páli og datt í það á A. Hansen, allt samt mjög siðprúðt og fallegt. jamm.
annars gat ég með engu móti vaknað í morgun og lýsi hér með frati í sjálfa mig, fyrir að vera svona löt. :(

föstudagur, október 25, 2002
talandi um góða og yndislega daga... þá fékk ég líka 3 bréf með póstinum í dag. eitt frá euro, sem við viljum ekkert meira vita um og svo eitt frá hinum ramm-kaþólska Stephan Lúttich og eitt frá mega-beibinu Stefaníu, sem er stödd í Hollandi.
ég las bréfið hans Stebba í strætó og flissaði eins og vitleysingur og sagði "oooh" og "aaah" á mismunandi stöðum. fólk horfði á mig.
svo er ég að spara bréfið frá stefaníu þangað til á eftir... :)
oh, það er svo gaman að frá bréééééééf!!
ég fékk líka bréf frá Eyfa á miðvikudaginn, þar sem hann var að segja mér að hann væri búinn að kaupa afmælisgjöfina mína og það væri einn sætur sænskur píanóleikari í skólanum. tíhíhí!!!
má ég minna fólk á að ég fer til hins hræðilega Lon-Don eftir 40 daga. fjárframlög vel þegin (sjá fyrr í postinu, þar sem minnst er á bréf frá ónefndu fyrirtæki...)

hin ótrúlega svakahressa og þvengmjóa tóta er mætt enn á ný og var svo óóógeðslega hress í morgun að ég hreinlega SVAF til hádegis og fór svo í sund og synti 30 ferðir. það gera 15 ferðir ef maður telur 2 ferðir sem 1.
allavega tel ég mig manna ferskasta.
manna ferskustu?
manns ferkstu?
mannaferskju?
manneskju?
ble?
gott hjá mér.
allavega tel ég mig manna ferskasta.
manna ferskustu?
manns ferkstu?
mannaferskju?
manneskju?
ble?
gott hjá mér.
miðvikudagur, október 23, 2002
og hér er fallegasta, myndarlegasta og mest hæfileikaríkasta fólk í heimi. haldandi á besta drykk veraldar.
tilviljun?
tilviljun?
jahá!
ungfrú ég, tótan sjálf, í öllu sínu þriðja veldi er á leiðinni til london!!!
hahahahhaha!!!!
keypti mér nettilboð á mánudaginn á 19700 með euro. svo ekki búast við að fá neinar jólagjafir í ár. :)
ég er út 5. desember og kem heim 12. desember, þannig að ég verð úti á afmælisdeginun mínum híhí!!!!

mánudagur, október 21, 2002
hmmm
haldiði ekki að ég hafi bara fundið þennan líka áhugaverða drykkjuleik á netinu. verst að ég er eiginlega hætt að drekka.....
Stokkið spilastokk og setjið hann á mitt borðið. Einn leikmaður má draga eitt spil í einu. Snúið spilinu við og sýnið öllum spilið. Hvert spil hefur reglur sem eru:
Ás - drektu einn sopa
2 - drektu tvo
3 - drektu þrjá
4 - Spurning: Þú lítur á þann sem þér sýnist, hann/hún verður að svara spurningunni með spurningu og þannig heldur það áfram þangað til einhver klikkar. Dæmi. Hvað er að ske? Af hverju snertirðu þig? Þú þarft ekki að spyrja manneskjuna sem spurði þig. Vertu bara örugg/ur að ná augnsambandi.
5 - Gefðu fimm sopa
6 - Ég hef aldrei. Hér segir sá sem dró spilið eitthvað sem hann hefur ekki gert en sá/sú sem hefur gert það verður að drekka tvo sopa.
7 - Puttar: Sá sem dregur spilið setur einn putta á borðið og sá sem er síðastur að setja putta á borðið verður að drekka einn sopa. Sá sem dróg má gera þetta eins oft og hann vill þangað til næsta 7 kemur.
8 - : Sá sem er sjáanlega minnst fullur verður að drekka 3 sopa..
9 - Rím: Allir verða að koma með orð sem rímar við þitt. Dæmi: Gull...sull...bull..o.s.frv
10 - Sameiginlegt: Allir drekka einn sopa.
gosi - asna drykkur...Strákar drekka.
Drottning - Tíkar drykkur....Stelpur drekka.
Kóngur - Vatnsfall: Þetta getur verið mjög erfitt, Það fer eftir drikkjufélögum. Sá sem dregur spilið drekkur eins og hann getur af bjór og sá sem er á eftir honum verður að drekka eins lengi og nr.1, þriðji verður að drekka eins lengi og nr.2, og þannig gengur það áfram. Ef sá fyrsti er mikill drykkjumaður getur þetta verið mjög erfitt fyrir hina!!!!.

kúl!
ég er harley barbie :)
You are Harley Barbie! You don't asocciate with "sophisticate" barbie and never "nsync #1 fan" barbie, but you know who your friends are and you do what you want. Plus, you have a kick ass motorcycle.

tóta mjóa mætt tvíelfdari en nokkru sinni fyrr, nýkomin úr sundi og ferskri morgunstund í stofu 10, niðrí tónó.
ég er svo ótrúlega dugleg það sem af er degi að ég bara held ég sé að fara yfir um. en það er nú þegar búið að bjóða mér í kökuveislu í kvöld, svo þetta ætti að reddast.
hmoah.
helgin mín var nú reyndar hálf aðgerðalítil, var bara á fullt af einhverjum æfingum og gerði eiginlega ekkert merkilegt. nema nottla að ég keypti Pepsí BLUE sem er versti og ógeðslegasti drykkur sem ég hef á ævi minni ofan í mig látið, og þá meðtalið allt það sem maður píndi ofan í sig á unglingsárum í þeim tilgangi að verða kátur og hress.
oj.´
mér er eiginlega orðið óglatt bara af því að hugsa um það :p jesús.

föstudagur, október 18, 2002
nammi nammi namm!
haldiði ekki bara að mega-beibið hann Jón Viðar hafi komið með TVÆR súkkulaðikökur í kaffinu og líka gervi-rjóma. sem sumir kalla plast-rjóma. sem stundum er kallaður jurta-rjómi.
svo spunnust upp miklar umræður í kringum konur og karla. eða kellingar og menn, eins og sumir sögðu. það var einkar áhugavert. ég lét mig nú reyndar hverfa þegar þeir jón og hrafn fóru að tala um hvað það væri leiðinlegt hvernig kvenfólk er endalaust hangandi utan í þeim.
en það var nú bara vegna þess mér var svo mál að skíta, ekki það ég væri ósammála.
svo er gaman frá því að segja að í kvöld verður Kolrössu partý í Geysishúsinu og horft verður á vídeóið og læti. ég ætla að sýna mig og sjá aðra, þótt þetta verði nottla ekki sveipur hjá sjón, án þess að hafa hann Eyjólf með. spurning um að taka loðinrassgatið Óskar með, svona til að einhver fjórfættur sé viðstaddur.....

er ekki bara kominn föstudagur enn einu sinni og allt að verða vitlaust eins og venjulega.
ég sem sagt lá heima í gær með hita og hausverk andskotans og gerði ekki neitt nema éta óhollan mat og drekka kók. það er semsagt ekki mjög hollt fyrir fólk að vera í megrun í meira en tvo daga í einu.
en núna er ég líka með massa samviskubit og svo gat ég ekkert æft mig fyrir kvartett æfingu áðan, og spilaði eiginlega bara mjög illa.
en það sem var gaman við kvartett æfinguna áðan, var það að nokkrir krakkar úr leiklistarhópnum LHÍ, komu og horfðu á okkur (og hlustuðu vonandi líka). þar á meðal hann Jói Presley, vinur okkar allra. og hann sagði að þetta hefði verið voða flott hjá honum, þannig að jah..... ég held barasta að þetta sé voða flott hjá okkur. ekki lýgur hann Jói Presley.
:)

miðvikudagur, október 16, 2002
það er líka gaman að minnast á leikSIGUR minn sem átti sér stað í gærkvöldið, og reyndar kvöldið þar áður líka.
ég er strax komin með leyninúmer og 3 KOLSVARTA einkalífverði sem fylgja mér hvert fótmál (og vel það, he-he-he), vegna þeirrar gífurlegu athygli sem ég hef orðið fyrir. vitanlega mjög svo verðskuldaðri.
Ég hef hlotið mikla og verðskuldaða, jákvæða gagnrýni í fjölmiðlum, eins og lesa má á síðunni leiklist.is, en þar stóð:
"Síðasti þáttur fyrir hlé var "Þú segir ekki" eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Fríðu B. Andersen. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir og Þórunn Harðardóttir léku í bráðsmellnum þætti um málfar og málvöndun. Þátturinn byggir nánast algerlega á því að textanum sé komið til skila hratt og örugglega og tókst það ágætlega þó örlítils óöryggis gætti á stundum. Áhorfendur skemmtu sér vel yfir málvillum og umvöndunum og leikarar hefðu að ósekju mátt gefa þeim betra færi á að láta það í ljós."
semsagt.... á milli línanna stendur: "Þórunn er einkar vel að sér í málfari og því var þessi leikur einstaklega auðveldur fyrir þessa hæfaleikaríku stúlku. Vitaskuld hefði stórt leikhús með miklum íburði og glæsileika átt betur við svona stórstjörnuleik, en þetta er bara enn einn kostur afburðaleikkonunnar Þórunnar, sem þrátt fyrir alla frægðina er bæði hógvær og lítillát."

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)