föstudagur, október 18, 2002

nammi nammi namm!
haldiði ekki bara að mega-beibið hann Jón Viðar hafi komið með TVÆR súkkulaðikökur í kaffinu og líka gervi-rjóma. sem sumir kalla plast-rjóma. sem stundum er kallaður jurta-rjómi.
svo spunnust upp miklar umræður í kringum konur og karla. eða kellingar og menn, eins og sumir sögðu. það var einkar áhugavert. ég lét mig nú reyndar hverfa þegar þeir jón og hrafn fóru að tala um hvað það væri leiðinlegt hvernig kvenfólk er endalaust hangandi utan í þeim.
en það var nú bara vegna þess mér var svo mál að skíta, ekki það ég væri ósammála.
svo er gaman frá því að segja að í kvöld verður Kolrössu partý í Geysishúsinu og horft verður á vídeóið og læti. ég ætla að sýna mig og sjá aðra, þótt þetta verði nottla ekki sveipur hjá sjón, án þess að hafa hann Eyjólf með. spurning um að taka loðinrassgatið Óskar með, svona til að einhver fjórfættur sé viðstaddur.....

Engin ummæli: