mánudagur, september 01, 2003

söngkonu-bloggá föstudaginn fór ég í fyrsta söngtímann minn. það var aldeilis skemmtilegt svo ég öndersteitmenti þetta nú aðeins. kom mér einstaklega á óvart hvað ég er með hryllilega ljóta og áheyrnarslæma rödd. úff. en hún hefur þá ekkvað að gera manneskjan í þessum tímum! ekki er maður að borga fúlgur fjár fyrir að vera fullkominn og gera ekkert.
jeeeeess. :)
en áfram hélt menningin á föstudeginum, skundaði til Guðnýjar Birnu með eitt stykki óperu í hendinni og rauðvín í hinni. en óperan mun vera hin franska, H-rómantíska Lakmé. ferlega falleg. við fórum líka og keyptum osta og kex og grænar ólífur með steinum (mmmmmm). svo var hlustað þangað til Guðný sofnaði, en ég hélt ótrauð áfram, enda er þetta uppáhaldsóperan mín. sniff sniff og snökt snökt.
hún endar svo sorglega, blessunin. svona er maður orðin mikil söngdrottning, ekki nóg með að maður sé að æpa þetta fram og til baka, heldur er maður með þetta í eyrunum hálfandaginn líka. jeremías minn, hvar endar þetta eiginlega?
talandi um fólk sem hefur lokið söngnámi sínu, þá sá ég Hildigunni áðan og hún var á hlaupabretti.

sumir blogga alltaf með svona fyrirsögn. ég veit ekki hvort ég fýla það. kemur í ljós.
en HVAR er hann Jón minn?

Engin ummæli: