laugardagur, febrúar 17, 2007

sætar stelpur hafa aldrei hægðir...



einhver sem ég bý með (samt örugglega ekki Mark) keypti um daginn svona ilm-drasl til að hengja innan í klósett til að gera góða lykt.
heima hjá mér er reyndar vaninn bara að þrífa klósettið þegar svo ber undir og þessvegna hef ég sjaldan, ef ekki bara aldrei haft svona tækniundur undir sjálfri mér komið.
það angrar mig samt svolítið (aðallega andlega) að setjast niður á þessum merku tímamótum í degi hvers manns (ef allt er í ókei-inu og engin anórexía í gangi eða stífla) og svo stuttu seinna gýs upp..... RÓSALYKT?

sá sem veit hvaða hljómsveit og hvaða lag titillinn er úr á inni hjá mér 2 rúllur af tvöföldum ljósbleikum skeinó.

föstudagur, febrúar 16, 2007

nú er tækifærið!

já kæru vinir... pundið er ekki nema 131 íslensk króna. núna er rétti tíminn til að senda mér vænar summur fjár, sem gengisins vegna verða enn vænni.
nei segi bara svona.
um daginn var ég að hjóla heim en hafði gleymt ljósunum. ekki sniðugt og þið getið treyst því að ég var manna leiðust yfir þessum mistökum í pökkun. en það var orðið dimmt og svo var rigning (aldrei þessu vant), en samt hjóla ég fram hjá skokkara í strigaskóm og stuttbuxum. og reyndar hettupeysu.
en hanner svo viðurstyggilega apalegur og öskra "lights!" á mig. ég leit nú ekki einu sinni við enda langt yfir það hafin að virða svo viðrini viðlits (prófið að segja þetta 10 sinnum eins hratt og þið getið). en svo stuttu seinna kom mér hug hvað hefði verið geðveikt kúl að svara honum um hæl "Pants!"
en þar sem hálfur heilinn á mér er bara á næstum því fjórðungs hraða, fatta ég aldrei neitt svona fyrr en seinna.
en núna er ég sko þvílíkt tilbúin NÆST þegar einhver í stuttbuxum æpir eitthvað á mig.

ég fékk íslenskt súkkulaði (Draum) frá jónisæta í dag í póstinum og fór smá að grenja það var svo gott :)
fékkreyndar líka smá bréf með sem var ooooofsalega yndælt :)

jeminn mætti halda ég væri söngvari, er orðin eitthvað svo tilfinninganæm uppá síðkastið... haha.

fimmtudagur, febrúar 15, 2007

tvennt

1) þýska vinkona mín var með 2 vinkonur sínar í heimsókn að horfa á desparate housewifes og ég held önnur þeirra reyki. sem hún gerir bara úti og ekkert um það að kvarta. en ég get svo svarið það, að það er reykingar-andfýla í stofunni.

2) ég náði tækniprófinu en skalarnir mínir voru "careless" og tvígripin "poorly" spiluð.

mig langar í dæet pepsí.
og hlaup. helst svona haribo sem er hart utaná en mjúkt inni, heitir örugglega tuttifrutti eða eitthvað svoleiðis, það er svona fugl utan á pokanum með rosa langan gulan gogg.

mánudagur, febrúar 12, 2007

hey þið litlu fiðlubörn...

... afhverju er Glazunov fiðlukonsertinn svona lítið spilaður?
eða er hann bara sjaldan spilaður þar sem ég er?
allavega þá var ég að hlusta á hann og mér finnst hann nú bara mjög skemmtilegur, það er meira segja soldið frægt stef í þriðja kaflanum.

oh jæja.

föstudagur, febrúar 09, 2007

tækni spækni

prófið gekk bara ok...
soldið skrautlegt samt. dagurinn byrjaði á því að bekkjarsystir mín hringdi í mig 2 mín áður en prófið hennar átti að byrja. "aha! hún er að beila" hugsaði ég með mér, en neineinei. það s.s. vantaði HINN prófdómarann, sem var engin önnur en miss Rivka Golani kennarinn okkar, sem greinilega var búin að steingleyma þessu. allavega vorum við í tíma síðasta fimmtudag og hún minntist ekkert á að vera prófdómari. ANYWAYS. svo hringdi yfirmaður strengjadeildar útum kvippin og kappinn að reyna að finna hana, en svo kom í ljós að hún var upptekin.
næs.
en eftir smá bollaleggingar (þar sem ég m.a. stakk upp á að enginn myndi spila og við myndum bara allar fá meðaleinkun og málið dautt) var ákveðið að hringja í ofboði í einhvern mann og fá hann til að hlaupa í skarðið. sem hann og gerði. reyndar fiðluleikari, en oh well.... svo var hann rétt svo ókominn... þá fór brunavarnakerfið á. og bretarnir eru nú ekkert að djóka með brunavarnakerfi. allir út og þá meina ég allir. enginn með fýlusvip við skrifborðið sitt að þykjast ekkert heyra eins og tíðkast í sumum löndum. en jæja... eftir nærri klukkutíma seinkun byrjuðu tækniprófin. fyrst fór ein bekkjar systir mín og ég var næst, búin að hita vel upp og klár í slaginn. þá fór brunavarna kerfið aftur á. og aftur allir út.
en svo gerðist ekkert meir, ég tók prófið mitt, kúkaði á mig í tvígripum og taldi örugglega vitlaust í þögnunum í hljómsveitarpartinum.
en éger búin.

BÚIN SEGI ÉG!

þriðjudagur, febrúar 06, 2007

Tori Amos er æði

enn og aftur er ég að fatta frábæra tónlist fyrir tilstillan huggulegs arkítektarnema.
Vignir, þú ert snillingur. lovjúlovjúlovjú.

3 dagar í tæknipróf og ég er hætt að nenna að æfa mig.
og það er ekki vegna þess að skalarnir mínir eru í svo góðum málum.

oh well

soldið heimskulegt...

... sérstaklega þegar maður er ekki með millinafn.

Your real name:
- Þórunn Harðardóttir

2. Your Gangster Name: (first 3 letters of real name plus izzle.)
- Þórizzle

3. Your detective name: (fav color and fav animal)
- Blue Cat

4. Your soap opera name: (middle name, and current street name)
- Nothing Milner Road

5. Your Starwars name: (the first 3 letters of your last name, first 2 letters of your first name, first 3 letters of mom's maiden name)
-Harþóásb

6. Your super hero name: (2nd favorite color, favorite drink).
- Black Beer


7. Your Iraqi name: (2nd letter of your first name, 3rd letter of your last name, any letter of your middle name, 2nd letter of your moms maiden name, 3rd letter of you dads middle name, 1st letter of a siblings first name, last letter of your moms middle name)

Órsár

8. Your witness protection name: (mothers middle name)
Nothing

9. Your goth name: (black, and the name of one your pets)
- Black Óskar

mánudagur, febrúar 05, 2007

oh my....

búin að kaupa afmælisgjafir handa ÖLLUM systrum mínum.
fékk hugmynd, framkvæmdi og keypti... allt á innan við 5 mínútum. á netinu.
er soldið stressuð samt af því að ég er nýbúin að lenda í netsvindli.
en þetta verða BESTU afmælisgjafir ever!

keypti líka eina handa mér :)

sunnudagur, febrúar 04, 2007

drrraasl

netið hjá mér er í ruglinu, dettur inn og út og er hroðalega leiðinlegt :( svo er ég að drepast úr leti. nenni ekki á fætur, nenni ekki að klæða mig, nenni ekki að fá mér morgunmat o.s.frv. kannski gott að taka fram í framhaldi að ég er að fara í tæknipróf á föstudaginn. svona eiginlega 2. stæðsta próf ársins. er svossem alfeg á góðu róli, búin að vera dugleg framan af. en núna vil ég bara sofasofa sofa.
ansans bansans.
hey já í gær fór ég úti búð að kaupa dót með miklum sykri í svo ég myndi kannski ekki sofna með víóluna á öxlinni og Mark sem ég bý með bað mig að kaupa fyrir sig banana. ekki málið ég keypti banana en þegar ég kom heim var hann kominn inní herbergið sitt. þannig að ég skildi bananana eftir í eldhúsinu en skrifaði á þá "Mark´s Bananas".
mér finnst þetta ennþá fyndið.
honum fannst þetta líak mjög fyndið. en ekki jafn fyndið og mér, enda tiltölulega eðlilegur ungur maður.
kvartettinn minn spilaði á tónleikum í St. Martins kirkjunni Birmingham, rétt hjá the Bullring. það gekk bara mjög vel þó við hefðum VEL mátt æfa MIKIÐ meira.
þetta er bara soldið mikið steik.... 2. fiðlan okkar hefur aldrei tíma til að æfa og er óþolandi (týnir nótum, á erfitt með að einbeita sér(ég er viss um að hún sé ofvirk og/eða með athyglsibrest)er alltaf þreytt) en hún er samt nokkuð góð. sellóleikarinn er yndisleg og talar stanslaust en það er bara sætt af því að hún er svo mikil dúlla og svo er 1. fiðlan geðveikt áhugasamur. vill helst æfa 2svar á dag og svoaðsegja lifir fyrir kvartett æfingar. hann er bara svo lélegur! eða svona... ekkert eitthvað vandræðalega lélegur, hefur bara greinilega aldrei verið með almennilegan kennara sem hefur tekið á því að krakkinn spilar eins og gömul eldhústuska. sumir kennarar taka bara ekki ábyrgð á neinu og finnst það ekki vera þeirra að bæta tæknina hjá fólki. en hvernig er hægt að vera frambærilegur hljóðfæraleikari ef það er EITTHVAÐ í tækninni manns sem ekki virkar? ætlaru segja "nei því miður get ég ekki spilað Walton konsertinn með Berlinar fílharmóníunni... ég er nefnilega með svo hræðilega tækni í að spila sexundir"?
hélt ekki. en það sem er eiginlega verst við greyið 1stu fiðluna er að hann tekur allri gagnrýni svo illa. ég er alltaf að reyna ða fá hann til að spila almennilegan tón, sem er reyndar hans versta hlið svo kannski ætti ég að hætta... en hann fer bara í geðveika vörn og ble.
hvernig er hægt að vinna með svona fólki?
æj hvða ég Sakna Tuma. það var kvartett sem kunni að æfa. held... nei, ég VEIT að í gegnum allt námið mitt heima á Íslandi (að öllum viðkomandi nokkurnvegin ólöstuðum)lærði ég mest af því að vinna með stelpunum mínum í Tuma. og það var nú eiginlega bara við sem gerðum allt... fórum í rosalega fáa tíma og fengum sjaldan tilsögn.
aaaallavega. ef einhver er til í að gerast karríer-leigumorðingi á einn lögfræðing og stærðfræðing þá skal ég byrja að safna. djók! :)
æj jæja, nú er ég búin að vera á fótum í næstum tvo tíma, kominn tími á að leggja sig...
já eða drulla sér af stað og æfa:

*alla skala, dúr og moll, arpeggíur og krómatík
*d, es og f dúr og moll í 3undum, 6undum og 8undum.
*c dúr flaututóna, 2 áttundir
*Rode drulluskítaógeðsæfingu nr. 4
*2 hljómsveitarparta (prokofiev og tsjæ 6)

vá þegar maður er búin að skrifa þetta niður lítur þetta út fyrir að vera EKKI NEITT.

leggja.
mig.

miðvikudagur, janúar 31, 2007

ekki hálshöggvin

og sá enga hryðjuverkamenn í dag. nema náttúrulega sekjúrítí gaurinn í skólanum sem virðist ALDREI fara í bað. en tjekkið á þessu: "Þá voru nokkrar bifreiðar fjarlægðar, þar á meðal hvítur sendiferðabíll."
HVÍTUR SENDIFERÐABÍLL?!! ég hjóla framhjá hvítum sendiferðabíl á HVERJUM DEGI. pottþétt sá sami.... nú ferég og kaupi mér meis.
annars allt gott.

mánudagur, janúar 29, 2007

mesta bullið

fáránlegasta drulla þessarar annar er komin úr prenti. gjörsamlega ekki pappírsins, hvað þá bleksins! virði. en ég var semsagt, Nauðug, í áfanga um strengjakennslu. einu sinni í viku kom mjög misviturlegt fólk og sagði okkur frá hvernig það kenndi krökkum. flestir reyndu líka að selja okkur kennslubækurnar sem það sjálft hafði gert og þær voru allar svo hræðilega mikið 'það er gaman að læra!' að manni varð hálf óglatt. svo er þetta náttúrlega ekki alvöru nám, frekar en annað bóklegt hér í menntahöllinni Birmingham Conservatoire (tjekkið á franska hreimnum), svo að til að standast áfangann, sem reyndar skiptir engu máli þó maður falli í, þarf maður að skil inn dagbók.
ég var lengi vel að spá í að skila innsvona 'elsku dagbók...' dagbók þar sem ég myndi telja upp það sem ég át, hversu mikið ég saknaði jónssæta og svo myndi hver færsla enda á smá umræðu um hversu ömurlegt veðrið í englandi er. jafnvel þá í samanburði við önnur lönd.
en allavega, þessu er ég búin að skíta útúrmér og bíð núna alfeg í ofvæni eftir að morgundagurinn rísi upp svo ég geti skutlað þessu inn. oh my.

smá sýnishorn til aðþið áttið ykkur nú örugglega á alvöru málsins:

String teaching for an LEA Music Service, John Clemson was again replaced, now with his wife

Sadly I didn’t catch the poor woman’s name which talked to us about the Birmingham music service. She told us what we would have to do and prove to the Music Services when applying for them, which was very useful. We have to hand in an application and have an interview where questions about teaching methods could be asked. Which makes you realize that choosing some sort of a method to follow is maybe not mandatory, but implied. But it’s very good to be able to point out to future employers that I actually have some method to follow, not just making something up on the way.

föstudagur, janúar 26, 2007

til hamingju með daginn!

eeeelsku besta sæta Dagga mín!
Þú ert laaaaang best af öllum og ég elska þig.
milljón kossar og knúúúúúús





sjáiði bara þetta smetti... þau gerist ekki fallegri :)

miðvikudagur, janúar 24, 2007

ein handa mömmu


þessi dökki = kaupa tannbursta
rauði = þvo naríur

skrítið hvernig maður verður alltaf líkari og líkari mömmu sinni með aldrinum :) ég er reyndar hæst ánægð með það, það væri mikill heiður að fá að verða jafn yndisleg manneskja og hún mamma mín, þó ég nái nú örugglega aldrei að verða jafn kærleiksrík, myndarleg og skemmtileg og hún. alltaf hægt að reyna samt.

annað skemmtilegt frásagnar er það að frá og með í gær kaupi ég the independent á hverjum degi í viku og á að skrá hversu margir ritdómar eru þar um klassíska tónlist. þetta er sko verkefni í skólanum, mér datt þetta ekki í hug sjálf. en ástæðan fyrir því að ég valdi þetta blað, er sú að the independent gefur alltaf eitthvað með blaðinu. þessa vikuna eru það póstkort með breskum fuglum :) gæti ekki verið meira viðeigandi.

svo mega allir gjöra svo vel og hugsa hlýtt til tveggja ritgerða og einnar fúgu (sem reyndar er þriggja radda) og að sá sem les yfir þessi hroðaverk mín verði uppfullur af þolinmæði, umburðarlyndi og helst hálf sofandi.

en jæja það er kannski kominn tími á ða fara að hugsa um að fá sér kvöldmat... klukkan náttúrulega ekki nema 5 mín í ellefu. :) langir dagar rokka!

sunnudagur, janúar 21, 2007

ég er svo þreytt að ég er alfeg stíf.
klukkan líka alfeg að verða þrjú bráðum.... en fúgan er búin og ein ritgerðin eiginlega alfeg líka.
svo er ég geðveikt drullug af því ég nenti ekki í sturtu áðan. langar núna en klukann er alfeg að verða þrjú bráðum. maður er svo tillitsamur.
jæja
sofa
lovjúgæs

föstudagur, janúar 19, 2007

1284

orð komin í ritgerðina mína um Pipe dream. sem er tónverk eftir einhverja gellu sem finnst ekki í neinum bókum eða bókasafnsskrám. bögg.
kannski er hún ekki einu sinni til. jú ég reyndar rakst á nafnið hennar á google, við hliðina á nafni kennarans sem er með þennan áfanga og á eftir að lesa yfir þessa ritgerð. púff. örugglega einhver svaka vinkona hans og ég rakka niður verkið hennar. neinei segi svona. en þessi ritgerð er svo uppfull af bulli þið mynduð örugglega ekki trúa mér ef ég segði ykkur frá því. ætla nú samt að koma með smá dæmi.... 2 heimildir eru: www.talktofrank.com og http://blackdog.net/games/arcade/pipe/index.html
allt að verða vitlaust.
svo langar mig svo ógeðslega mikið til að taka einn Sims leik mér er næstum illt. en þaðmyndi nú bara enda í 4 tíma maraþoni og ég má nú ekki við því. svo þarf ég að vakna fáránlega snemma á morgun, búin að lofa mér á kvartett æfingu kl. 9. ekkert smá mikil stemming þar á bæ :)

en jæja... 716 orð eftir.

miðvikudagur, janúar 17, 2007

á lífi

þar sem ég sagðist hálfpartinn búast við að hjóla oní holu í gær er kannski best að taka það fram ég gerði það ekki. og það er bara ekert búið að springa á hjólinu samt er ég búin að hjóla tvisvar í skólann og heim. nokkuð gott bara.
helst í fréttum er samt að ég er smá saman að átta mig á því að það verður bráðum að fara að byrja á þessum tvemur 2000 orða ritgerðum sem eiga að skilast á miðvikudaginn. svo þarf ég líka ða skrifa 3-radda fúgu en ég veti ekkert hvenær á að skila henni af því að ég er bbúin aðtýna blaðinu sem það stóð á. á þessu blaði stóð líka í nánari smáatriðum hvað þessi 3-radda fúga átti að innihalda... hvða hún ætti að vera löng og svona...
púúú.
en ég er s.s. búin að fá lánað efni í aðra ritgerðina og finna nótnaskrifspappír (og skrúfblýant!) fyrir fúguhelvítið.
svo nú er bara að hætta að hugsa um kvöldmat, 6 tíma hljómsveitaræfingu á morgun (sem ég er ekki búin að ná mér í parta fyrir) og byrja.
riiiight.

þriðjudagur, janúar 16, 2007

bölvun hjóla-tótu

ég veit ekki hvernig ég get útskýrt þetta án þess að hljóma soldið eins og geðsjúklingur, en held það verði bara að hafa það.
ég er viss um að einhver/eitthvað Vill ekki að ég hjóli og það sé bölvun á hjólinu mínu, eða þá á mér ef ég hjóla á því.
það hefur sprungið á því linnulaust frá því ég fékk það og meira að segja sérútbúnar slím-slöngur virðast bara springa eins og 17. júní blöðrur undir mér þó að framleiðendur þeirra lofi því að öll göt undir 3 mm. eigi sjálfkrafa að lokast.
sem það gerir ekki.
en nú er ég búin að skella nýrri slímslöngu í og allt reddí... þvoði hjólið meira að segja og spreyaði WD-40 á öll sjáanleg liðamót og skrúfganga.
og hvað gerist?
mið-england breytist í andrúmslofts-sundlaug. það hefur rignt stanslaust síðan ég pumpaði í viðgerða dekkið og það ekki smá. líku er spáð út vikuna.
mig er farið að gruna að gæðablóðið Bryngerður amma mín sé farin að færa út kvíarnar og auk þess að setja upp vandlætingasvip og fussa sérkennilega þegar henni mislíkar, sé hún farin að stunda kukl og álaga-ásetningu.
henni fannst s.s. ekki sniðugt að ég skyldi kaupa mér hjól og ætla að hjóla í skólann...

en ég ætla nú bara samt að fara á hjólinu í skólann.

ef hér er ekkert bloggað á næsta mánuði þá hef ég hjólað oní holu og horfið af yfirborði jarðar.

mánudagur, janúar 15, 2007

sorry strákar

held við séum búin að láta allar ömmur og frænkur vita svo nú er bara alþjóð eftir:

jæja þá er truntan ykkar komin til fyrirheitna landsins. eða svona...
er allavega aftur komin í fjólubláa herbergi andskotans og ákvað að rifja upp fyrir sjálfri mér ó-tilvist tveggja ritgerða og 3radda fúgu sem sumt fólk ætlast til ég afhendi í byrjun næstu viku.

ætla að bursta tennurnar og sjá hvort það hjálpi eitthvað til.

allavega er kannski möguleiki á örlítli hreyfingu á bloggi allra landsmanna á næstunni, ekki sjens ég nenni þessum ritgerðaniðurgangi án þess að geta vorkennt mér all svakalega mikið.

adju