vó.
síðasta ár var klárlega lélegasta bloggár mitt ever.
en mér er líka nokkuð sama, haha.
reyndar var ég að ekki aðspá í að hafa það sem nýársheiti að vera duglegri á blogginu, en ég er að spá í að skrifa nýársheitin mín hér og skrifa svo hvernig gengur að uppfylla þau. s.s. alfeg horrible aflesning fyrir alla nema mig. en þar sem þetta er bloggið mitt...þá verðið þið kæru lesendur bara að 'suck it up'.
en áramótaheitin eru 3... stíllinn er svolítið stolinn frá Ásdísi 'stjúpu' minni, og er það vel, svo maður tali nú eins og hálfviti.
10 KG
10 KM
og
10 tónleikar
þetta eru s.s. tónleikar sem ég ætla að fara á... gengur gjörsamlega ekki legnur hvða ég er löt að fara á tónleika. engin tilviljun ég Þekki engann og fæ aldrei nein gigg þegar ég ligg bara heima hjá mér og borða nammi. 10 KM verða teknir í ágúst á maraþoninu (ef ekkert annað kemur uppá :) og 10 KG eiga að fara AF bumbunni á mér. ekki á.
jæja
þá er bara að byrja að EKKI borða nammi :)
2 ummæli:
Mér líst vel á stílinn á þessum heitum :)
Er að spá í að stela þessu en kannski leyfa mér að breyta, eins og t.d. þeirri staðreynd að ég hleyp ekki. (10 tindar kannski í staðinn?)
kveðja Fjóla
góð!
ég reyndar hleyp ekki heldur... meira svona skvampast spor úr spori.
en einhverstaðar (og einhvervegin) verður maður að byrja! og fyrst bollan hann pabbi náði að hlaupa hálft maraþon, þá hlýt ég að geta skriðið 10?
:)
takk annars fyrir jólakortið elsku Fjóla! við vorum Mega-Löt í jólakortunum þetta ár, en þú ert komin á listann fyrir næsta (ég er sko líka með áramótaheit fyrir jólakort-bransann, en hanner leynilegur).
x
Skrifa ummæli