þar sem bullið nær yfirhendinni oftar en þig grunar // the blabbering blob
föstudagur, apríl 23, 2010
takatil tiltaka takk
jónsæti er að vinna þannig að ég er ein heima með fúla kettinum. ég var s.s. að kíkja uppí hann áðan og sjá hvort hann sé nokkuð með tannholdsbólgu sem hann fær stundum, en það virtist vera í ókei-inu. en fýlan hefur núna staðið á annan klukkutíma. ÉG SAGÐI SORRY!
oh jæja.
baðframkvæmdirnar komnar á næstum því loka-level... múrararnir farnir og píparinn búinn að koma og skrifa miða. en samt verður sturtu, vask og klósettlaust fram á mánudag. sem er ástæðan fyrir því ég fer ekki fram og fæ mér vatnsglas þó ég sé svona líka agalega þyrst. það er reyndar klósett í húsinu... niðrí kjallara. oj.
en ég er búin að taka til í 2/5 hluta efriskápanna í eldhúsinu og innri ganginn og næstum því hornið mitt í borðstofunni. mæli ekki með því fyrir börn og hjartveika að láta sér detta í hug að þrífa bak við borð og borðtölvu sem ekki hafa verið hreyfð svo mánuðum skiptir. frekar steypt ástand þar á bak við. svo fannst mér ég verða að taka allt skrifborðið í gegn líka... og er strand. er búin að skipta þessu nokkurnvegin niður í þrjá hauga: drasl, meira-drasl, tunnu-drasl.
bara búin að ákveða hvað ég geri við þann síðastnefnda.
en í bjartsýnni kantinum þá erhægt að nefna það ég fann sápukúlubox... kannski það verði til að gleðja litla loðdýrið (ég reyndi að setja á hann partýgrímu sem ég fann en honum fannst það ekki skemmtilegt).
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Vildi hann ekki Partýgrímu? Hvurslags eiginlega~! Ég held í alvoru ad tú verdir ad fara senda hann í atferlismedferd! Kannsi teim takist tar ad kenna honum ad brosa? Efast reyndar um tad en samt tess virdi ad profa! Annars ta bara lyfjamedferd handa greyinu! Ekkert annad i lausninni!
En tetta med klosettleysid: Enginn sens a ad fa ad skvetta ur skvísunni (ala Gudny) i boxid hjá Skúla Fúla (aka Óskar) ?
Skrifa ummæli