fimmtudagur, mars 22, 2007

leti er löstur

haha, titillinn á þessu bloggi var í minninu! greinilega ekki í fyrsta skipti sem ég er gjörsamlega að kálast úr leti. þurfti ekkert að mæta í skólann í dag svo ég ákvað að sofa út.
svo ákvað ég að fá mér að borða.
svo ákvað ég að horfa á einn 24. svo annan.
og núna er klukkan að verða þrjú. mér er svona skapi næst að bara vera inni í náttfötunum í allan dag... en veit samt að ég á eftir að fá samviskubit yfir að æfa mig ekki smá. en það þýðir að ég verði að fara niður í skóla. og þá þarf ég að fara útúr húsi.
svo margar ákvarðanir... oh well... horfi bara á einn 24 í viðbót og hugsa málið svo í smá stund...

horfi svo á annan.

:)

Engin ummæli: