föstudagur, ágúst 11, 2006

myyyyyyyyyyyyyyyyyyndir

komnar af síðasta brjálaða partý sem ég fór í.
ekkert nema hresst stuð og gleði, enda fór fjörið fram í tvemur mismunandi kaupstöðum og einni höfuðborg...


fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Lau-hau-ha-har

fór s.s. í Laugar í gær. alfeg í augnskannann og allt. brjálað stuð. mesta stuðið var þó á pínulitla, grindhoraða asíumanninum sem gekk um og skúraði í allar þær 30mín sem égvar á hlaupabrettinu. mér leið eins og ógeðslegum, feitum og spilltum ríkum manni sem á þræla.
en hlaupabretti eru samt til margra hluta nytsamleg, tjekk þiss át...

miðvikudagur, ágúst 09, 2006

ho ho :)

Sérsníða þurfti búninginn og minnka bunguna stafrænt til að fólki svelgdist ekki á poppkorninu.

http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1215446

níundi ágúst

er í dag. síðast þegar var níundi ágúst var fyrir ári.
svona er ég full fróðleiks litlu börn. ég er soldið skrítin núna í hausnum og ringluð, vona þið ljáið mér það ekki. svo borðaði ég hálf-þurrkaða gráfíkju í gær og hún var mjög vond. annað hvort alfeg þurrkaða eða ekki, segi ég nú bara eftir þessa reynslu.
en Guði sé lof fyrir þetta hér.

þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Blau-haut Verslunarmannahelgi

reyndar ekki jafn blaut innra... þ.e.a.s. miss tót gerði sér lítið fyrir og fór á Kristilegt mót í Kirkjulækjarkoti. ekki mikið um fyllerí þar, enda allir í stuði með Guði og engin aukaefni þörf :)
en almáttugur minn hvað rigndi mikið, púha! minnti mig helst á GayPride gönguna 2004, hoho. þetta var samt yndisleg helgi og miss tót komst að ýmsu í sambandi við sjálfa sig sem hún ekki vissi og mun það frá og með þessu mómenti gera hana sterkari og betri. og vonandi ekki svona fáránlega ófélagslynda.
veit bara ekki hvað í óskupunum er búið að vera að mér í sumar, ermeð 20 manna lista sem ég var staðráðin í að heimsækja og eyða "kvolití tæm" með, en svo er ég bara als ekkert búin að því. hins vegar er ég búin að þyngjast um 5 kíló og farin að hata sófasettið mitt út af lífinu.
En núna er ég í vinnunni og komin með mitt eigið ótrúlega flotta horn, sem er útí horni (duuh) og þar er STÓÓÓR lampi sem ég ætla að taka mynd af bráðum og sýna ykkur af því að hann er svo ótrúlega stór að ég fer alltaf að flissa þegar ég kveiki á honum. ég breyti líka alltaf röddinni þegar ég segi "kveikja á lampanum" sem mér finnst líka fyndið.
sad.
vinnunni, já, best að halda áfram (eða réttara sagt fara aðdrullast til að byrja) og skella inn nokkrum nausynlegum staðreyndum um fugla, inná svokallaða Staðreyndasíðu Fugla, sem mun kannski innan tíðar verða online.
sem minnir mig nú á það að ég þarf að downloada msn :D hohoho, sé ykkur það.

kær kveðja, Ríkisstarfsmaðurinn

fimmtudagur, júlí 27, 2006

ég er ekki í jafn mikilli fýlu og áðan.
en ég er líka búin að fá mér langloku með pepperóni og osti og einhverri dularfullri sósu. ég keypti líka súkkulaði en ég er ekki búin að borða það... ho ho ho!
svo var ég líka að bemerkja að það er ekki lengur rigning. ætli kannski að Rigning = Skúli?
jah nú er mér spurn.

hrumpf

sveimér þá andskotinn ef að Skúli Fúli er ekki aðeins farinn að láta á sér kræla hér á miðjum fimmtudegi. óþolandi karakter.
lætur mann pæla í asnalegum hlutum og leiðinlegum, minnir mann á allt það sem maður þyrfti nauðsynlega að vera að gera (ener ekki að gera, er ekki einu sinni að hugsa um að fara að gera) og kórónar svo allt með því að benda manni á blogg hjá fólki sem gjörsamlega virðist ekki stoppa í því aðvera duglegt og komast langt áfram í lífinu án þess að vera geðveikt gamalt.
en þar sem ég fór upp á Snæfell þá ætla ég að reyna að bola burt þessum Ekkivini mínum og kannski gera lista yfir það sem ég þyrfti nauðsynlega að gera til að vera ekki í svona fýlu.
Byrja á því að fara útí 11-11 og fá mér hádegismat.

koma svo!

rigning

á leiðinni í vinnuna í morgun sá ég stelpu frá vinnuskólum reykjavíkur (eða eitthvað svoleiðis) þrífa umferðarmerki.
með vatni.

ég fór uppá Snæfell :)

þriðjudagur, júlí 18, 2006

úbbs!

er að reyna að byrja heilbrigðan lífstíl í dönskum anda og fékk mér því brauð með osti, sódavatn, epli og gulrætur í hádegismat.
og kaffi.
En núna er mér svo ógeðslega óglatt að mig grunar þetta muni enda illa og hef í því tilefni opnað fram á gang og tekið alla hluti úr gangveginum svo bein braut liggi inná klósett.
ætli líkaminn minn sé að afneita hollustu? þannig að ef ég ét eitthvað sem ekki inniheldur vist hlutfall af sykri eða fitu þá heldur maginn að þetta sé eitur?
eða voru gulræturnar eitraðar? þær eru innfluttar sko...
jahérna nú er bleik brugðið. (aldrei skilið þennan málshátt)

mánudagur, júlí 17, 2006

fuglarnir slá sig ekki inn sjálfir

í gagnagrunn Náttúrufræðistofnun Íslands, svo ég, miss tót, er komin á staðinn til að bjarga málunum. eða svo gott sem.
er hérna í góðum rólegheitum alein í húsinu að fletta upp latneskum ættbálkaheitum hinna ýmsra fuglategunda. stórkostleg skemmtun, mæli með þessu við alla.
En við þessa iðju mína rakst ég á þessa önd hérna sem myndin er af. kvak-kvak. hún heitir því virðulega nafni "Bucephala clangula" á latnesku en "Hvinönd" á íslensku. aftur á móti er hún kölluð því ofursvala nafni "Goldeneye" á ensku.
afhverju var þetta ekki notað þegar James Bond myndin var sýnd?

"...nýja James Bond myndin, "Hvinöndin" slær öll met í sprengingum og æsilegum eltingaleikjum..."

nei bara pæling sko

mánudagur, júlí 10, 2006

komin heim

á hjarðarhagann og það er æði :) talvan mín gamla virðist hins vegar vera aftur komin í sitt fyrra horf og slekkur á sér svona þegar henni sjálfri hentar. mjög óhentugt fyrir mig aftur á móti og frekar svekkjandi eftir 2 vikna viðgerðarferli úti í birmingham og svo 6 þús króna viðgerð hjá Svar.is
afhverju geta tölvur bara ekki verið í LAGI? :@
grrr!
en endilega hringiði í mig og pantið tíma, er með gamla góða númerið ;)

miðvikudagur, júlí 05, 2006

sccccccchiphol

jájájájájá
við jón sæti sitjum hér í góðu yfirlæti á netkaffi í amsterdam flugvellinum og erum að gæða okkur á gúrme ungversku snakki. með paprikubragði.
nema hvað
vorum svo grand á því að kaupa bara 24 tíma af netaðgangi svo nú verður aldeilis hangið á netinu í þessa fjóra tíma sem við heiðrum hollendinga með dvöl okkar. annað á dagskrá mun vera að fara á klósett og bíða eftir flugi.
brrrjálað stuð svo ekki sé meira sagt. svo er það Birmingham í kvöld og nótt (í NÝJA húsinu mínu notabene) og Loooondon á morgun. ætlum að gista á hóteli þar sem frægur íslengdingur dvelur venjulega á ferðum sínum og fengum við þessa ábendingu frá manni sem vinnur í kópavogi.
ekki mjög heillavænlegt, en þetta er ódýrt svo við látum slag standa. nema náttúrulega þetta sé eins og ógeðslega mellu hótelið sem við lentum á síðast.
tryllt stemming og whitney houston syngur í bakgrunninum.
síðar....

miðvikudagur, júní 28, 2006

soldið löt

við að blogga þessa dagana enda er hinn sæti kominn í menninguna, þeas í heimsókn til sinnar og sefur bara stórvel í herbergi 433. þó það sé að sjálfsögðu algjörlega bannað. svona er maður wild.
tónleikar á föstudaginn og svo er þetta ár bara búið. tóta 1, birm 0
eh...
allavega :p
svo ekkert heyrist frá mér þá skal ég láta ykkur vita að ég kem heim hinn fagra 9. júlí.
húrrahúrra!

miðvikudagur, júní 21, 2006

uh....

... já takk!

naaammm!

Haniyyah fær stimpilinn bestíheimi í dag þar sem hún bjó til Flapjacks
naaaaaammi namm
og já ég er búin að fá uppskriftina :D

oj bara

ég er búin að éta svo mikinn ruslmat síðustu viku að mér er stanslaust óglatt. get samtekki hægt og fékk mér t.d. frappútsjínó með karmellu og bananabragði. oj oj. svo er ég núna að spá hvort ég eigi að fara út að skokka og sjá hvort þetta lagist ekki, en ég er samt mjög þreytt og langar helst að fara að sofa, samt svaf ég í klukkutíma í hádeginu (mozart var svo indæll að sleppa því að hafa víólur í Vespers og hljómsveitin er að æfa það, þannig að Við fengum að fara snemma heim).
svo þarf ég að fara útí búð og kaupa í matinn. á ekkert nema frosið brauð og pakka súpu. oj.
eða jú svo á ég krukku af jarðarberjasultu. mér finnst sulta reyndar góð.
jeminn hvða lífið manns er erfitt þessa dagana :p

mánudagur, júní 19, 2006

aaaaw

var ða horfa á monsters inc.
já aftur.
vá hvað hún er ógeðslega skemmtileg og krúttleg. mér er farið að finnast teiknimyndir miiiikið skemmtilegri heldur en alvöru myndir. ég meina hver vill horfa á Ben Afflekk þegar hægt er að horfa á eineygt grænt skrímsli?
:)

sunnudagur, júní 18, 2006

einhverra hluta vegna finnst mér þetta ótrúlega asnalega orðað

"Markalaust í hálfleik hjá Japan og Króatíu
Japönum og Króötum mistókst að skora í fyrri hálfleik liðanna í F-riðli á HM í Þýskalandi."

og F-riðill hljómar líka mjög dónalega

blogg hérna

fór í messu áðan og það var einhver kelling að glápa á mig og það fór geðveikt í taugarnar á mér. svo voru endalaus atriði þar sem einhver börn sungu lög og það fór líka í taugarnar á mér og svo var ég nú næstum farin þegar einhverjir gaurar stilltu upp marki og létu svo aðra tvo skjóta í mark.
var þetta messa eða hvað?
almáttugur minn er hvergi hægt að fara án þess að heyra eða sjá fótbolta?
mér fannst þessi íþrótt allt í lagi áður en þessi viðbjóðslega HM keppni byrjaði, en núna HAAAAAATA ég fótbolta. út af lífinu.

annars er allt gott að frétta, var að borða subway og súkkulaði svo ekki grennist maður í dag hoho

mánudagur, júní 12, 2006

helgin var æææææði

held sveimmér þá þetta hafi verið með bestu dögunum mínum hér í uk þetta árið :)
fór með Alinku, Rachel og Hanyyiah að heimsækja Zarah sem býr með okkur hér á hæðinni. svona þegar hún býr ekki í Cheltenham... ef þið skiljið.
allavega þá var veðrið Geeeeeðveikt og ég var svo fegin að sjá loksins eitthvað af bretlandi sem ekki er 90% steypa og malbik. þetta er í rauninni mjög fallegt land svona þegar maður pælir aðeins í því. en við fórum semsagt í "smá" göngu á laugardeginum (klifruðum upp snarbratta hlíð inni í skógi, mættum illilegum hundi (sem var svartur), róluðum og borðuðum brauð og salat) og vorum svo bara rólegar á sunnudaginn, sátum heillengi í einhverjum garði, prófuðum að drekka "holla" vatnið sem er einkenni Cheltenham, spiluðum Uno (ALLT of lengi.... alinka neitaði að hætta fyrr en hún myndi vinna a.m.k. einu sinni) og svo eldaði Russ kærasti Zarah fyrir okkur voða góðan kjúkling. njammnjamm.
komst að einu og öðru varðandi malasíu, einu og öðru varðandi dramadrottningar, og einu og öðru varðandi það að ég er greinilega mjög léleg stelpa...

en það var óóóóóóótrúlega gaman og núna er RAUÐI liturinn orðinn næstum því fjólublár! hohoho!

myndir hér (vonandi)

fimmtudagur, júní 08, 2006

loksins kemst hann í gang

blesaður blogger. búinn að vera leiðinlegur við mig í gær og í dag :@ urri urr!
eins og ég ætlaði nú að blogga skemmtilega í gær. en svona er þetta víst... lítið við því ða gera.
hmm.
veðrið í börm hefur aldeilis tekið stakkaskiptum og nú skín sólin alla daga og hitinn er hátt á þriðja tug. eða svona allavega í áttina. þannig að tótan skellti sér í brjálaðan göngutúr í engu föruneyti nema sjálfs síns og þar náði hún sér í fyrsta bruna sumarsins! húrra fyrir því :D
reyndar held ég að það hafi verið nokkuð langt síðan fyrstibruninn sé í júní...
aaaaallavega þá er ég búin að kaupa after-sun og þetta er allt að jafnast út svona smá saman. en göngutúrinn lá semsagt í einhvern grasagarð hérna í börm sem var síður en svo áhugaverður... eða svona þannig. ég hef eiginlega ekki gaman að blómum nema ef ég hef ræktað þau sjálf. soldið selfish... en ég meina hey.
en svo er nú bara skollin á hljómsveitaræfingasyrpa sem mun engan enda taka fyrr en í mánaðarlok. þannig að endilega hugsið hlýtt til baksins míns, eða öllu heldur sálarlífsins. ekkert jafn ömurlegt eins og að setjast niður kl. 10.30 og vita til þess að maður kemst ekki út í sólina fyrr en 16.30.

mánudagur, júní 05, 2006

góð og vond dýr

ég skellti mér í gær í sunnudagsferð til höfuðborgarinnar með henni Alinku vinkonu minni. vona ég hafi ekki móðgað neinn með því. fórum aðsjá uppfærslu af don giovanni í óóóóótrúlega litlu "leikhúsi" með bar á efri hæðinni. var nú eiginlega frekar bar með leikhús á efri hæðinni. sniðugt samt... og það var frekar notalegt svona í leiðinlegustu resitatívunum að vera með einn kaldan í hendinni og vita það væri ekki nema 10 sek. hlaup niður stiga ef hann kláraðist.
söngvararnir voru (svo maður noti nú söngvaraslangur) La-la og var hann þarna hvað hann nú heitir sem er kærasti Donna Önnu, áberandi mest leiðinlegastur. en það er nú kannski bara af því að hann er tenór greyið. Ali benti mér reyndar á að hann væri nákvæmlega eins og kóngurinn úr Shrek og eftir það fannst mér hann alls ekki jafn pirrandi. hoho. en veikleiki minn fyrir ljóshærðum síðurensvoveiklulegumkannskisoldiðíhinaáttina karlmönnum ölli því að uppáhaldssögupersónan mín var þjónn Don Giovanni, Lepparetto eða eitthvað. aaaaaalgjör sjarmör. og skeggjaður! úff ég hélt mér nú fast í sætið þegar hann byrjaði.
svo var píanó dúett sem spilaði hljómsveitarpartinn og þeir voru svo arfalélegir að ég held sveimér þá að fjórðastigs söngnemandi úr söngskólanum hefði getað spilað betur. og píanóið var falskara en brosið á halldóri ásgríms (svo maður sé nú soldið pólitti-kal). samt var þetta bara stuð þó ég hafi borðað Burger King á leiðinni heim í lestinni og þrusað steinvölum í kjölfarið langt fram á nótt.
Svo ég fari nú að vitna í titil póstsins þá mættum við Ali tvemur nagdýrum á þessari ferð okkar, báðum á nákvæmlega sama stað (sem gerir þetta soldið spes skiliði). gott dýr: hið fyrr var grár íkorni sem stóð á barminum á ruslatunnunni fyrir utan húsið okkar. voða sætur og svo skoppaði hann svona líka íkornalega upp í næsta tré og sagði "skvíkití skví, skvíkskví svkíkjur!" (fyrir þá sem ekki hafa séð nýja stíl keisarans og kunna þar af leiðandi ekki íkornamál, þá þýðir þetta "góða ferð sætu stelpur". við töluðum líka stuttlega við öryggisvörðinn og hann sagði okkur að þetta væri mjög svo staðbundinn íkorni og þeir kölluðu hann Frank. Gerist ekki mikið krúttlegra.
vont dýr: á leiðinni heim þegar klukkan var orðin rúmlega tvö mættum við hins vegar nagdýri sem er ekki með loðið skott og frekar illilegt til augnanna. það dýr var að éta rusl uppúr ruslatunninni og hljóp oní næsta niðurfall þegar það sá okkur.
namm...

laugardagur, júní 03, 2006

blogg barlómur

voða er ég orðin löt að blogga og það verður alltaf leiðinlegra og leiðinlegra með hverjum deginum.
en svona er þetta bara, if you don´t like don´t read it, eins og maðurinn sagði. eða svona.
annars er það helst í fréttum að ég mun flytja út af skólagörðum UCE við Brindley Drive og búa einhversstaðar lengst útí rassgati í húsi sem er á Milner street í Sally Oak hverfinu... er að fara að skrifa undir samning í næstu viku.
sem þýðir 20 mín í strætó eða klukkutíma labb í skólann. sem þýðir líka ekkert fokkin helvítis ógeðslegt brunavarnakerfi sem fer í gang ef fólk ristar óvart brauðið sitt í 20 mín og enginn skemmtistaður hinumegin við götuna og brjáluð hraðbraut þar sem allavega 10 sírenubílar keyra um á hverjum degi, svo maður minnist ekki á strætóana.
þetta þýðir líka pláss í ísskápnum, þvottavél sem ekki kostar 1 pund og 40 pence, digtal sjónvarp, þráðlaust GOTT net (ekkert proxy rugl), BAÐKER og garður.
deili þessu himnaríki með Rachel, Mark og einhverji stelpu sem ég veit ekkert hver er en Rachel segir að hún sé fín (sem þýðir örugglega að hún sé í alvöru fín af því að Rachel er ekki týpan sem lýgur mikið að manni).
vá hvað það verður líka gott að komast aðeins úr miðbænum, er alfeg búin að fá nóg af steypunni.
það besta er náttúrulega að það verður NÓÓÓÓG pláss fyrir alla að gista hvenær sem er og ENGINN getur sagt eitt einasta orð!
pantið flug núna...

:)

fimmtudagur, júní 01, 2006

kata lata

reyndar heiti ég tóta, en það rímar ekki við lata svo ég ætla að kalla sjálfa mig kötu í smá tíma.
eða ekki.
úff. ég þyrfti eiginlega að fara að sofa, en nenni því bara alls ekki. sem er mjög asnalegt. svo svaf ég reyndar í allan dag svo það er nú kannski ekki skrýtið að maður sé hress á pakkanum. svo er ég með hausverk. :( alltaf soldið fríkí að vera illt í hausnum svona þegar maður pælir í því, vegna þess að í rauninni er hann bara fullur af einhverju svona gumsi, engir vöðvar eða liðamót eða neitt svona sem manni er venjulega illt í. strange.
en well well....

laters (lei-örs)
Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur?

Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu
setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.

Fínar dömur: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í
sundur og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og
drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.

Fínar dömur: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn
ekki í gegnum það.
Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er
örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.

Fínar dömur: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að
setja epli í pokann með þeim.
Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í
eldhússkápnum.

Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu
áður en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu
þessu bara.

Fínar dömur: Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á
sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip..
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna
krukkuna!

Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og
nota í sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín?

þriðjudagur, maí 30, 2006

nýju lögin!

við nágrannarnir sömdum nokkur lög í gær svona í tilefni þess að við nenntum ekki að æfa okkur.

Sunny Rain þetta lag er um daginn í gær þar sem sólin skein sem mest hún mátti á milli þvílíkra úrhellisrigningarskúra

In hell lag um hvernig við höfum fundið ástæður til að losna við að spila í hljómsveitinni

jessöríbob

haldiði ekki bara að hún tóta ykkar sé búin í prófinu sínu!
gekk ótrúlega vel, ég er þvílíkt ánægð með mig :) held mér hafi aldrei gengið svona vel á prófi spilalega séð. ekkert stress, ekkert óöryggi, ekki neitt bull. :D
víííhííí!
svo nú er það bara sólbað og kokteilar.
eða þannig.

mánudagur, maí 29, 2006

Hell Yeah!

prófið mitt er á morgun og ég er svo fokkin löt það hálfa væri nóg. ætla að spila fyrsta kaflann úr Víólu Sónötu eftir Rebeccu Clarke og svo fyrstu selló svítuna, en samt ekki alla af því að "my recital" má bara vera 20 mín. MEÐ bili milli verka.
þvílíka recitalið eða hitt þó heldur. en allavega.
David er með masters recital á miðvikudaginn og það er heilar 45 mín. algjört pöff. hverskonar masterspróf er það? æj ble.
en við erum s.s. búin að finna okkur ýmislegt til dundurs á þessum ögurtímum... erum t.d. búin að semja þrjú ný lög á plötuna okkar sem mun vonandi aldrei koma út.
stuð stuð stuð. getur vel verið ég skelli þeim á netið.
eða ekki...

laugardagur, maí 27, 2006

búúú húúú

skype er leiðinlegt við mig svo ég get ekki talað við jónsæta :(
ó aumingja ég.

en tjekkið á my space síðunni minni, hún er awsome
(linkur til hægri)

fimmtudagur, maí 25, 2006

Neeeeeenni ekki

að gera neitt. vaknaði rétt fyrir ellefu í morgun og er núna, um hálfsex leytið gjörsamlega að drepast úr þreytu og leti. samt er ég eiginlega ekki búin að gera neitt í allan dag nema drekka te.
og kaffi.
já hey ég er búin að finna uppáhaldskaffidrykkinn minn! en fyrir þá sem þekkja tótuna/skúlafúla þá vita þeir hinir sömu að hún/hann drekkur ekki neitt sem mjólk hefur verið blandað útí svo þetta er frekar flókið þegar kemur að kaffi drykkjum.
jájá
en drykkurinn er semsagt, americano MEÐ auka skoti af espresso.
mjög frumlegt en AKKÚRAT passlegt fyrir mig. svo nú megiði bara gjöra mér svo vel að koma í heimsókn og gefa mér kaffi.
eða eitthvað, ég er allavega alfeg að sofna... púúúú

miðvikudagur, maí 24, 2006

Leiðinda Rigning

hæ hó hér er lagið sem við Skúli sömdum saman saman áðan... (vona þetta virki :S )

http://totaviola.badongo.com/


það eru soldið léleg gæðin á því og það heyrist eiginlega ekkert í mér af því að míkrafónninn var svo langt frá. eða svona. en textinn er:

Ég vildi að sóli skini
innum gluggan minn, beint á mig
en úti er allt blautt
allt á kafi í regni.

bara í smá stund, sjá sólina,
bara aðeins, stutta stund
tréin myndu glöð vilja
aðeins fá smá sól
það er ekki alltaf nóg að
fá bara regn

bráðum held ég
að ég drukkni,
drukkni í vatni, aumingja ég
því að sólin hefur ekki
sést hér lengi
það er alltaf bara engin sól
bara regn helv** regn...


ætla að biðja plötuútgefendur um að tala bara beint við markaðsstjórann minn... þeas ef hann á lausa stund. skúli vill heldur ekki tala við neinn. bara ALLS ekki.

atlaga gerð að skúla

ég og Margaret, í slagtogi við Schubert, Strauss og Mahler, gerðum MJÖG góða tilraun til að losa okkur við Skúla Fúla í dag. Löbbuðum sem leið lá í úthverfi eitt sem heitir Bourneville og er bara ansi langt frá. allavega vorum við svo orðin svo þreytt við tókum lestina til baka.
og nei ég sá enga götubardaga, var ekki rænd og það eru ekki bara verksmiðjur útum allt. ég sá reyndar eina verksmiðju, en ákvað að strunsa framhjá henni og ímynda mér að hún hefði alls ekki verið þarna.
þegar ég kom heim fékk ég mér svo baunir í matinn sem voru alls ekki góðar og tuggði heila agúrku. en agúrkur eru uppáhaldsmaturinn hans Finnboga.
svo fór ég inní herbergið mitt og samdi lag á gítarinn minn um það hvað ég hata rigningu mikið... getur vel verið ég reyni að skella því á netið, það var nefnilega soldið skemmtilegt.
en Skúli situr sem fastast og til að vera ennþá meira til leiðinda ákvað hann að prumpa geðveikt mikið inní herberginu mínu útaf öllum baununum svo ég sé fram á að þurfa að eyða nóttinni frammi í stofu með tappa í ra.... jah allavega er fýlan hérna inni hræðileg.

reyni eins og rass við setu
rembist eftir bestu getu,
en þótt ég við það púli
þrjótinn út að bera,
þá virðist hann kominn til að vera
vondi, ljóti, skúli fúli

þriðjudagur, maí 23, 2006

mrs. Price

þegar ég er orðin stór ætla ég að verða Dame Margaret Price.
nei ég ætla ekki að vera EINS og hún, ég ætla AÐ VERA hún. það er gella sem segir sex. og þá helst á þýsku eða eitthverju svona dramtísku tungumáli.
tjekkiði bara á kjólnum! sjæse, svona klæðast bara Scnhillingar. ég var s.s. að kaupa disk þar sem hún syngur nokkur vel valin og er gjörsamlega heilluð.
ég þ.e.a.s. er heilluð, Margaret hefur nottla heyrt þetta áður þar sem hún var á staðnum þegar gaurinn var tekinn upp. þetta er life sko, ekkert fokking remix eða klippt til kjaftæði. Margaret er echta.
svo ætla ég að láta gefa mér þennan dvd disk.

herra Fúli reynir að borða epli

ég var svona að spekúlera hvort það væri hægt að fá ælupest nema...
... bara útúr öfugum enda?
virkar þa...
...nnig að hvað sem maður setur ofan í sig, vill synda með fi.... ...skunum strax.
og þá meina ég strax.

mánudagur, maí 22, 2006

ég er alfeg búin að ákveða það að í næsta lífi sem ég fæðist, þá ætla ég ekki að eignast neina vini, heldur búa ein einhversstaðar uppá fjalli.
kannski eiga kött.

hrumpf!
-Skúli Fúli

föstudagur, maí 19, 2006

ég veit ekki hvað í andskotanum ég er að gera komin og fætur og búin að klæða mig og ég veit ekki hvað oghvað. flugið mitt er ekki fyrr en kl. 10 og ég er svona 10 mín að labba á lestarstöðina og 9 mínútur þaðan út á flugvöll.
en maður er bara svo fjandi spenntur! hohoho
er sko að fara til Kjöben að heimsækja hommana mína. ég er náttúrulega yfir mig hneyksluð á að ísland skyldi ekki komast áfram í júró, þetta er greinilega ekki alfeg alltílagi lið sem dæmir þetta... var fólk í alvörunni að hlusta á lagið frá tyrklandi?
ég hef nú reyndar ekki heyrt það sjálf, en ég veit að það var ömurlegt og sylvía okkar mikið betri.
jammsííí...
en nú eiga allir að hugsa vel til skýjanna sem eru í köben og reyna að lokka þau út á atlantshaf því ég nenni ekki að þurfa að fara að kaupa mér hlýja peysu þegar ég kem þangað.

túúúúrílúúúú!

miðvikudagur, maí 17, 2006

what the?

já ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ég hef bara búið í Bretlandi frá því í september.. en í alvöru talað... Frank Skinner? þetta getur ekki verið alvöru nafn!
og Benjamin Zephania?
ég er nú bara fegin að þekkja ekki neinn sem heitir svo skuggalegu nafni.


UCE Birmingham will be launching the New Generation Arts Festival on 31st May 2006. The festival includes over 1,000 arts based students, some 200 alumni in over 30 exhibits in 25 venues around Birmingham. The festival is backed by big names like Frank Skinner, Betty Jackson, Ruby Turner, Philip Pullman, Jim Crace and Benjamin Zephania to name but a few.

sunnudagur, maí 14, 2006

meiri tónlistarsöguprófs undirbúiningur

rakst á þessa góðu grein:

"Berlioz was a French composer. Berlioz had a son, two sisters, two wives and many friends. He had lots of people close to him die. Berlioz was a very good friend to everybody. As a musician he went to Italy, Germany, and France."

er ekki soldið erfitt að eignast einn son ef maður á tvær konur? líka leiðinlegt ef fólk sem kemur nálægt mann er bara sísvona að deyja.
en þetta er bara svo vel orðað... fer með þetta í prófið, ekki spurning.

laugardagur, maí 13, 2006

aaaaawwww

"Haft er eftir Bach að hann hafi sagst semja góðar bassalínur guði til dýrðar og fallegar laglínur í efstu rödd til að gleðja mannfólkið. " (tekið af tónlistarvefnum)

fann mestu snilld í heimi tilað hjálpa mér fyrir tónlistarsöguprófið. þessi vefur er víst fyrir grunnskólanemendur, en það segir nú bara ansi mikið um þennan ljóta áfanga sem ég er í og standardinn á þessu "háskólanámi" mínu. hoho!

Stephan Fry er snillingur

er að lesa bók eftir hann sem heitir "Stephen Fry´s incomplete & utter history of classical music" og er (hence the name) um sögu klassískrar tónlistar. kannski ekki alfeg besti undirbúningurinn fyrir tónlistarsöguprófið mitt á mánudaginn, en allavega í áttina...
allavega, hann er að tala um hvernig óperan byrjaði og alla þessa geldinga...

"But nevertheless, opera was here to stay, and, with opera, came egomaniac primadonnas. But, as we´ve said, not female ones. In fact, arguably, much worse: egomaniac primadonnas with a grudge. In fact, with a grudge and no balls. what an awful combination."

Egomaniac primadonna with a grudge but no balls, er frá og með deginum í dag uppáhaldsorðið mitt.

föstudagur, maí 12, 2006

próf og prump

var í 2 prófum í dag. í sama áfanganum samt. "þessi þarna" áfangi sem ég er búin að vera að blóta HÁSTÖFUM í allan vetur. gekk frekar illa :S en maður á nú ekkert að vera að segja frá því, þá heldur fólk kannski að maður sé vitlaus.
svo er mér illt í maganum og blá á litin... :(

er nefið á mér að stækka?


þriðjudagur, maí 09, 2006

ókei ókei, ég er alfeg að fara að sofa...

This Is My Life, Rated
Life:
6.9
Mind:
6.7
Body:
6.6
Spirit:
8.3
Friends/Family:
5.6
Love:
4.6
Finance:
4.5
Take the Rate My Life Quiz

hrein hörmung

ímyndið ykkur:
1) verstu tónsmíð sem þið hafið á ævi ykkar heyrt
bætið við hana:
2) ömurlegasta hljómagang í heimi
3) lélega raddfærslu
4) ógeðslega ljótt stef sem fer EKKI NEITT
5) alvarlega misnotkun á trillum og þríundum
6) lokahljóm sem er fjórðipartur, punkteraður áttundi + sextándipartur, fjórðipartur

og þá hafið þið því miður kannski komist nálægt því að upplifa tónsmíð mína fyrir píanó í 18. aldar stíl sem ég var að leggja lokahönd á.
ef ég fæ hærra en 40 stig fyrir þessa misheppnuðu sóun á pappír, þá eru prófdómararnir blindir, heyrnarlausir og fjölfatlaðir.
en þar sem þetta auma verkefni er bara rúm 5% af lokaeinkun (sem er svo hvort sem er bara fall eða náð) þá ætla ég bara að tsjilla feitt á pakkanum og fara að sofa.
túdilí lúúú

ps-vill einhver kenna mér (aftur) hljómfræði í sumar?

laugardagur, maí 06, 2006

það held ég nú

í dag var hroðalega gott veður hér í börminu, sól og heitt og ég veit ekki hvað og hvað. mér tókst að forða mér frá bruna með því að hlaupa inn um leið og ég fann brunalykt stíga uppúr hálsmálinu öskrandi "i don´t want to burn my skin black!" og sá fyrir mér svarta brunarúst svona eins og þegar pabbi er að steikja kótelettur (kót E lettur? er það frekar kót I lettur? nú fer ég að koma með íslenskuhornið mitt aftur... þetta gengur ekki!) en sólbaðsfélagi minn David skammaðist sín hins vegar hrikalega þar sem einn af sekjúrití köllunum stóð rétt hjá okkur.
og hann er kolsvartur (vinnur aðallega næturvaktir þá sjá bófarnir hann ekki -djók).

en það er semsagt komið gott veður og því hefst hér með formlega berfætta tímabil tótunnar. ég semsagt legg öllum sokkum og lokuðum skóm þangað til að fer aftur að snjóa.
eða rigna mikið.
eða það sé kalt.
sem minnir mig á það að ég þarf að fara og kaupa mér sokkabuxur sem eru ekki með sokkum á. hvað er það kallað... leggings?
einhvernveginn sé ég bara fyrir mér Duran Duran þegar ég heyri orðið leggings. og túberað hár auðvitað.
talandi um hár þá hrósaði Rivka mér í há(r)steit með þetta flotta nýja hár og sagði að nú gæti maður loksins séð á mér andlitin. öndlötin. svo ég gerði náttúrulega ekkert annað allan daginn en að skipta um andlit og gretta mig. henni fannst ég fyndin, sérstaklega þegar ég hermdi eftir yfirmanni strengjadeildarinnar.
jæja farin að kúka og svo að sofa
góða nótt!

fimmtudagur, maí 04, 2006

FAAAAARIÐ!

já það kom að því.
ég er búin að klippa af mér hárið! húrra fyrir því!
loksins loksins loksins. ég var reyndar mikið búin að vera að hugsa um að raka það allt af, taka kíví, en ég beilaði líka á því.
en vááááá hvað þetta er miiiiiiiiiiikið mikið mikið betra.
*dæs*

fjórburar

eru fyndnir. greinilega samt ekki jafn fyndnir og pabbi þeirra :)

kjút alert í hæðasta gæðaflokki....

miðvikudagur, maí 03, 2006

tóta dulle

ég bjó til svo góðan fisk áðan að ég er alfeg bara að deyja úr stolti. bjó sko sjálf til uppskriftina og ég veit ekki hvað og hvað. er líka alfeg að springa ég át svo mikið :) húhúhú.
en fiskur er nú hollur og góður, nammi namm. en svona gerir mar:

1) setur smá slatta af ólifu olíu í eldfast mót
2) skerð niður grænmeti. ég notaði lauk, kartöflu, gulrætur, zuccini og blaðlauk en ég held það sé alfeg hægt að skella hverju sem er í þetta... fínt ef maður á afganga ogsvona (sjett hvað maður er orðinn húslegur) svo setti ég líka 3 hvítlauksrif og smá klump af skornu engiferi en það er víst ekki grænmeti...
3) setur fiskfiskflökin oná allt saman
4) aftur smá sletta af ólífu olíu
5) kryddað. ég setti oregano, salt og chilli, svo skar ég líka eina sítrónu í sneiðar og setti ofaná, en það þarf ekkert að vera að það séu einhverjir afarkostir (hvað svo sem það þýðir nú, ég þarf greinilega að fara að rifja upp "íslenska rökkuð niður" þáttinn minn sem ég var með hérna um árið)
6) inní ofn í 180 gráður í svona 40 mín

þetta tróð ég í mig á fullu. namminamm

ps- SIF myndirnar eru á leiðinni... þarf að kaupa snúru :D

miðvikudagur, apríl 26, 2006

finale

var að downloada Finale til að geta gert eitt verkefni í skólanum (já ég geri annað en að hangsa í kaffiteríunni) og þar rakst ég á þetta líka snilldarlega element...

Human Playback

NotePad can simulate a human performance during playback. With Enable Human Playback checked under the Options Menu, NotePad interprets articulations and hairpins, and produces an overall human-like performance of the music. Finale files will playback using the Human Playback Style set for that file in Finale. New NotePad files use the Standard Human Playback style.

hvorki meira né minna. ætli maður megi verða með svona með sér á performance tónleikum?

not a perfectionist

Advanced Global Personality Test Results
Extraversion |||||||||||||| 56%
Stability |||||||||||||||| 70%
Orderliness |||||||||| 36%
Accommodation |||||||||||| 43%
Interdependence |||||||||||| 50%
Intellectual |||||| 30%
Mystical |||||| 23%
Artistic |||||||||||||||||| 76%
Religious |||||||||||||||||||| 90%
Hedonism |||||||||||||||| 70%
Materialism |||||||||| 36%
Narcissism |||||| 23%
Adventurousness |||||| 30%
Work ethic |||||| 23%
Self absorbed |||||||||||| 50%
Conflict seeking |||||| 23%
Need to dominate |||||| 23%
Romantic |||||| 30%
Avoidant |||||||||||| 43%
Anti-authority |||||||||||||||| 70%
Wealth |||| 16%
Dependency |||| 16%
Change averse |||||||||||||| 56%
Cautiousness |||||||||||| 43%
Individuality |||||||||||||| 56%
Sexuality |||||||||||||||| 63%
Peter pan complex || 10%
Physical security |||||||||||||||| 70%
Physical Fitness |||||| 24%
Histrionic |||||||||||||| 56%
Paranoia |||||||||||| 43%
Vanity |||||| 30%
Hypersensitivity |||||||||||| 50%
Female cliche |||||| 30%
Take Free Advanced Global Personality Test
personality tests by similarminds.com


Stability results were high which suggests you are very relaxed, calm, secure, and optimistic..

Orderliness results were moderately low which suggests you are, at times, overly flexible, improvised, and fun seeking at the expense of reliability, work ethic, and long term accomplishment.

Extraversion results were moderately high which suggests you are, at times, overly talkative, outgoing, sociable and interacting at the expense of developing your own individual interests and internally based identity.

trait snapshot:
messy, tough, disorganized, fearless, not rule conscious, likes the unknown, rarely worries, rash, attracted to the counter culture, rarely irritated, positive, resilient, abstract, not a perfectionist, risk taker, strange, weird, self reliant, leisurely, dangerous, anti-authority, trusting, optimistic, positive, thrill seeker, likes bizarre things, sarcastic

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Mahna Mahna

ef einhverjum finnst þetta EKKI fyndið...

go get help

http://www.devilducky.com/media/7452
púha.
stuðið að verða manni að ofurliði hérna í birmingham, var að búa mér til kjúklingasalat með eplum og vínberjum. svo er mér illt í bakinu og það er vond lykt af mér, hvoru tveggja út af því að ég keypti svo mikið í matinn og þurfti að bera það allt saman heim. ó hvað ég sakna einkabílsins....
en þetta hlýtur nú að reddast. annars er það feitast í fréttum að ég er aðverða gjörsamlega brjáluð á hárinu á mér, sérstaklega þar sem ég gleymdi hárburstanum mínum heima á íslandi og finn ekki þennan sem ég hélt að væri ennþá hér.
langar ÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓtrúlega mikið til að taka kíví á þetta...
jæja uppí rúm Rivka á morgun :D

mánudagur, apríl 24, 2006

komin í vorið

nú er litla skinnið hún tótfríður aftur komin til Birmingham og hér er farið að vora.
ég er samt graut fúl og langar bara heim að knúsa manninn minn og borða súkkulaði. ótrúelgt hvað maður er fljótur að venja sig á að liggja allan daginn og éta.
njamm.
en þarf sem ég var einstaklega löt og leiðinleg í þessari íslandsheimsókn minni náði ég varla að hitta neinn af þeim sem ég vildi kíkja á og biðst ég innilegrar afsökunar hér með. sérstaklega vil ég biðja litlu systur mínar afsökunar frá dýpstu hjartarótum.
en svo er það bara 9. júlí sem heillar!

:)

miðvikudagur, apríl 19, 2006

það held ég nú

helvítis kellingin bara á leið í sumarbústað á morgun með familíunni. þ.e.a.s. mömmu, ása og jónisæta. svo eru samningarviðræður við Ömmuna um að fá hana með. hún er soldið svona "hard to get" ef þið skiljið.
svo vorum við að spá að drösla kettinum með, en hann er svo bílhræddur að við erum hálf hrædd um að hann muni æla eða pissa á leiðinni. jájájá... fyrirhuguð prumpukeppni og svo verður þvílíkt raðað í sig af nammi og góðum mat að ég býst eiginlega ekkert frekar við því að eiga afturkvæmt.
þvílík sæla að drepast bara úr ofáti.... mmmmmm

sunnudagur, apríl 16, 2006

Gleðilega Páska!

elsku dúllurnar mínar og megi Guð fylgja ykkur :)

for david: Go to hell

fimmtudagur, apríl 13, 2006

ég er að horfa á Sirkus og einhvern þátt sem heitir RVK eða eitthvað álíka hálfvita. þvílíkt rusl. mig langar næstum því að skipta um stöð, en ég nenni því ekki.

for david: i´m very lazy

föstudagur, apríl 07, 2006

útskýring á neðanmálsgrein fyrri pósts

... David vinur minn, amríkaninn sem yfirleitt commentar eitthvað um helvíti er mjög næs gaur og hefur svo sannarlega verið mér mikil stoð og stytta í veru minni í Birmingham.
núna er David kominn heim tilsín í páskafrí og honum leiðist greyinu svo hann reynir ítrekað að lesa bloggið mitt (já mjög aumkunarvert, ég veit) til að lífga annars viðburðarsnauða daga sína. þannig að nú mun ég þýða póstana mína.

for David: you need to get a life

detta af mér allar


haldiði ekki bara að ég sé að horfa á tónlistarmyndband með engum öðrum en Ricky Martin?!
ég var gjörsamlega búin að gleyma þessum gaur og var í rauninni hálfvegis að vona að hann væri orðinn bólugrafinn og feitur, kominn með 3 krakka í einhverju slum úthverfi í bandaríkjunum og helst búinn að missa einhverjar tennur líka. en það er öðru nær.
hann er að gefa út nýja disk blessaður (skv. www.rickymartin.com) og svona líka búinn að breyta lúkkinu, kominn með skeggbrodda (örugglega feik, það vita allir að hann er kona), tattú og skítugan hlýrabol. í þessu myndbandi er spænsk gella að syngja eitthvað svona "úúú - úúú" og svo feitur, rámur amrískur rappari með "boðskap".
þröngnabuxna hommalúkkið hefur greinilega ekki selt nóg, nú fer hann yfir í "églemkonunamína og er stoltur afþví" töffaralúkkið.
mig er næstum því farið að dauðlanga í þennan disk.
svona getur popptíví komið manni á óvart.

for david: ricky martin is gay

fimmtudagur, apríl 06, 2006

hvað hef ég gert til að verðskulda þetta?!

núna mætti dæma Rondo 87.7 útvarpsstöðina fyrir tilraun til manndráps, en sú stöð er núna búin að spila lag sem sameinar allt það illa í heiminum:

1)þverflautu
2)la campagniella (eða hvað það í andskotanum heitir þetta ógeðslega lag)
3) varíasjónir

þetta rúllaði grínlaust í næstum 10 mínútur! og það þýðir ekkert að kenna mér um þetta, ég hefði þurft að STANDA UPP til að ná í fjarstýringu og skipta um rás.

ekki grín!

ég var vakin FYRIR klukkan átta í morgun!
sem er mjög hættulegt, ég hlýt að búa með adrenalín fíkli. svo lét hann mig keyra sig í vinnuna! svona til útskýra þetta nánar, þá vakna ég ekki fyrr en um hádegi, hvort sem ég sé farin á fætur eður ei.
svo þóttist ég æfa mig í smá stund og fór svo í sund og var EIN í lauginni. þ.e.a.s. áður en einhver 12 ára bekkur gusaðist oní með píkuskrækjum og hávaðagangi.
svo þegar ég var að klæða mig tók ég eftir að ég var í gulu pilsi og grænum sokkabuxum.
sem er nú svossem bara ágætt, en þegar égvar búin að setja á mig rauða sjalið mitt leið mér eins og umferðaljósi.
ansi mikil stemming.
svo er ég núna að troða í mig 300 gr. af grænmeti og reyna að finna mér eitthað að gera það sem eftir lifir dags sem ekki inniheldur mig sofandi uppí rúmi. svo nenni ég heldur ekki að gera neitt uppbyggilegt.
ætli endi ekki með því ég fari að reyna ða bæta metið mitt í pac man? :)

miðvikudagur, apríl 05, 2006

ekki eðlileg

pakkaði upp víólunni, spilaði G dúr í svona hálfa mínútu og lét svo bróðir minn senda mér pac man.
high score ið mitt er 38.890
fimmta borð!

löööööööööööööööööööööööööööööt

éger svo löt égheld að næst þegar ég lít upp verð ég komin með brennimerkt koddafar yfir allt andlitið.
á það svossem skilið.
ég fór nú reyndar að æfa mig í morgun, en það var nú ekki nema í rúma 2 tíma. samkvæmt viðurkenndum "verðabetrihljóðfæraleikari" stöðlum, er það ekki mjög mikið.
núna væri líka sniðugt hjá mér að:
1) vaska upp
2) setja í þvottavél
3) fara í sund
en mig langar svo ógurlega að leggja mig að ég næ varla að klára heila hugsun án þess að

mánudagur, apríl 03, 2006

m y n d i r




búið að ferma litla bróður minn.
veitti sko ekki af.
en myndir fyrir áhugasama (og forvitna)
er á http://www.flickr.com/photos/tota121280/sets/72057594097684101/

fimmtudagur, mars 30, 2006

HMOAAAH HO HO HO!

ó já!


Thorunn --

[noun]:

A poltergeist sent back in time to change the course of history forever



'How will you be defined in the dictionary?' at QuizGalaxy.com

overheard in New York

ef þið eruð ekki búin að tjekka á þessari síðu þá er tækifærið núna.
eða bara seinna.
þetta er svona síða sem fólk getur skrifað inná ef það heyrir (overheard) eitthvað fyndið út á götu í nýju jórvík (new york).

http://www.overheardinnewyork.com/

dæmi:
Tween girl: The thing most people don't get about techno is, it's so emotional.
--76th & 2nd

Guy #1: Excuse me, sir, but do you know you're white?
Guy #2: Yes, I do know that. Now will you stop following me?
--40th & 8th

Teen girl #1: We're not going to KFC! Their food is, like, poison.
Teen girl #2: Yeah, they kill their chickens alive.
--96th & Lexington

Girl: Excuse me, do you have any biographies of TuPac?
Library guy: Probably, though they'd be with the other biographies on the second floor.
Dude: But isn't this the fiction section?
Library guy: It is. You might be able to find some books about him in non-fiction.
Girl: "Non-fiction"?
Library guy: Non-fiction means true.
Dude: ...And fiction means false.
Library guy: Sort of.
Girl: So if it's in non-fiction then that means he must still be alive.
Library guy: I don't think you understand.
--Brooklyn Public Library, Grand Army Plaza

miðvikudagur, mars 29, 2006

MYNDIR

frá höfuðborg Slóveníu, Ljubljana, eru komnar á hið æsivinsæla net, undir því glæsta vefnafni: http://www.flickr.com/photos/tota121280/sets/72057594092851802/

stundum...

...langar manni til að spóla aftur í tímann og gera hlutina öðruvísi.
stundum ekki.
og stundum bæði.

stundum veit maður ekkert hvað manni finnst og stundum er maður svo viss um það sem manni finnst, að manni finnst maður vera að springa.

ég þoli ekki þegar fólk skrifar setningar og notar "maður" í staðinn fyrir orð.
hrumpf.

fimmtudagur, mars 23, 2006

bráðum

verð ég komin í flugvél á leið til Ljubljana slóveníu :)
er að fara á árshátíð með jónisæta og svo ætla ég bara heim. skrópa í skólann í viku. en mér er fjandans sama, þeir mega eiga sig.
sérstaklega þeir sem gáfu mér MEÐALS einkunn fyrir verið sem ég samdi fyrir sóló víólu hér fyrir jól. þetta var bara mjög skemmtilegt og fallegt verk sem verður án efa eitt af aðalverkunum í víólureppinu á komandi árum. heldur betur. það heitir einmitt "when Death entered the room". mjög dramatískt.
allavega.
svo núna er ég búin að pakka og er að bisast við að ná öllum þessum svörtu þykku ljótu hárum (takk kærlega fyrir þetta gen pabbi!)af löppunum á mér. er með svona háreyðingarkrem og það fokking stinkar hræðilega. en þar sem ég ætla að vera sætasta kærastan á árshátíðinni verð ég víst að láta þetta á mig fá.
verst bara hvað þetta er hroðalega leiðinlegt. svo er klukkan orðin soldið margt og ég þarf að ná lest kl. 6.30.
oh well
bjútí is boring einsog einhver sagði....

þriðjudagur, mars 21, 2006

já Prumpi prumpi prump

prumpidí prump.
ég er búin að vera með vindverki í 4 daga. og þá er ég ekki að meina svona "hí hí hún prumpaði, en sætt!" vindverki, heldur "Vó ég er að drepast í maganum (gretta)" og svo hleypur fólk í burtu öskrandi.
þ.e.a.s. þeir sem ekki hníga niður öreindir vegna gaseitrunar.
svo ofan á allar þessar hrakfellingar þá er ofninn í herberginu mínu (reyndar á allri hæðinni líka) bilaður þannig að það er nú frekar kalt öllu jöfnu hérna hjá mér. sem leiðir af sér að "lofta út" verður frekar erfitt í framkvæmdum. kannski ekki erfitt... en mjög afleitt af því mér verður kalt.
sem mér finnst ekki gott.
jamm.
en nú spyr ég; er eðlilegt að vera með vindverki svona lengi?
sérstaklega í ljósi þess að:

a)ég hef skipt um matarræði (í dag fékk ég mér t.d. spagettí en ekki pastaskrúfur og snickers í staðinn fyrir mars)
b)stundað líkamsrækt (fór aukaferð niður á fyrstu hæð um daginn til að kaupa pepsi)
c)verið góð við magann á mér (þvoði honum með þvottapoka)
d) allskonar

ósanngjarnt segi ég og vona svo sannarlegasannarlega þetta verði ekki lengur vandamál Hinn daginn, þegar égþarf að fara í flugvél til Ljubljana í Slóveníu. vil nú helst ekki fá einhver slóvena brjálaðan útí mig svona þegar ég er að heimsækja landið hans í fyrsta skipti....

sunnudagur, mars 19, 2006

ég veit þetta er soldið kjánlegur póstur, en vissuðu að pundið er komið uppí 120 krónur?
ég er hér með hætt að borða mat sem þarf að kaupa.

næstum

laugardagur, mars 18, 2006

kostir, gallar og ósk

stundum þegar fólk er að reyna að vera næst við mig þá fer það alfeg ótrúlega mikið í taugarnar á mér.
þetta finnst mér vera minn stæðsti galli og ég fæ yfirleitt massa sammara þegar ég stend sjálfa mig að því að vera pirruð á næs fólki.
annar galli er að mér finnst mjög leiðinlegt að vakna á morgnana. líka þegar ég á frí. stupid.
en stór kostur er að ég á hrikalega sætan kærasta sem verður ekki pirraður þegar fólk er næs við hann (eða mig) og honum finnst ekki erfitt að vakna á morgnana. honum finnst aftur á móti erfitt að vekja mig, en það er annað mál :p
og núna vil ég að hann komi online og tali við mig á skype.

V is for Vandetta

er geðveikt góð mynd. skellti mér í bíó, í góðum gír, borðaði hnetur og drakk dæet kók.
en mjög góð mynd samt

þriðjudagur, mars 14, 2006

vonandi verða allir hressir á morgun :S

bjó áðan til kjúkling í indverskri sósu til að eiga í hádeginu á morgun. sem er bara ansi gott hjá mér. smakkaði hann svona aðeins og fannst hann bara ok. samt soldið sterkur og svona einhvernveginn súr hálfvegis.... en allavega!
svo bauð ég vinkonu minni að fá sér ef hún vildi. og hún bara jammijamm og trauð í sig.
svo nú er bara að krossleggja fingur og vona að hún vakni hress á morgun :S
annars fæ ég sammara vegna þess að hún er næs.

svo er ég aðhlusta á klezmer tónlist með klezmer hljómsveitinni hans perlmanns.
steikt.

mánudagur, mars 13, 2006

ég er ekki klár kona

og þessi óklárleiki virðist alltaf koma sterkar og sterkar í ljós. sérstaklega virðist þetta með "að vakna snemma" og "gera hluti FYRIR hádegi" ekki ætla að síast inn almennilega. jafnvel bara ekki.
í gærkvöldi var ég harðákveðin í því að vakna snemma og gera hluti fyrir hádegi. ég ætlaði að fá mér góðan morgunmat, fara í ræktina og jafnvelmeiraðsegja reyna að fá herbergi uppí skóla til að æfa mig í. svo ætlaði ég líka að ná tali af heittelskuðum kærasta mínum sem er óravegu fjarri á tölvuráðstefnu þar sem klukkan er 1 um nótt þegar klukkan er 8 að morgni hjá mér.
EN.
kl. 8 vaknaði ég og stillti símann minn á "korter seinna". kl. 10 vaknaði ég og vekjaraklukkan mín var 9. síminn var hinsvegar 10. ég ákvað að trúa þeirri klukku sem myndi veita mér lengri tíma upp í einamanalegu rúmi mínu, sem þó var hlýrra og þægilegra en jah.... allt annað og vaknaði því ekki almennilega og fór á fætur fyrr en kl. 11.
sem þýðir að það er klukkutími í tónlistarsögutímann minn og eftir hann, hálftími þangað til ég sannfæri heimskasta mann Bretlandssögunnar um það að ég sé mjöggóður víóluleikari. Eiginlega bara svo góður að ég þurfi ekki að taka ár númer tvö.
smá plott í gangi.
en hvað geri ég?
fer og fæ mér te. sest niður og blogga.
ég er bara alls ekki klár kona.

sunnudagur, mars 12, 2006

what about china, have you seen the great wall?

all walls are great if the roof doesn´t fall.

er að hlusta á Selmasongs með Björk. Soundtrackið úr myndinni Dancer in the Dark. ég keypti þennan disk eftir aðhafa grenjað úr mér augun yfir myndinni og grenjaði svo í viku yfir þessum disk. eða svona.
ákvað svo að rippa hann þegar ég fór heim um daginn og get núna ekki einu sinni farið að sofa af því að hann er svo góður.
elska það þegar fólk gerir flott lög og er líka með flotta texta. jájá.
en hérna í den þá hlustaði ég á hann stanslaus og fyrir rest varð ég eitthvað leið á honum. held ég hafi hlustað of mikið á hann, þannig að ég hef ekkert heyrt hann síðan þá. það var líka einhver sem fór á myndina sem ég þekki og talaði svo illa um hana. veit nú ekki afhverju ég var að taka eitthvað mark á því, tek nú sjaldan mark á fólki. sérstaklega þegar það er ósammála mér, hehe.
en þvílík kommbakk.
best finnst mér lagið 107 steps þegar hún erað telja skrefin. ótrúlega töff. einu orðin eru tölustafir. og einu sinni segir hún jú steps. björk er snillingur.
yeah!

kjáni

bjáni bumba.
ég er búin að borða ógeðslega mikið af súkkulaði í dag. svo á ég að vera farin aðsofa vegna þess að ég þarf að' vera dugleg á morgun. já DULLE!!!
tæknipróf á mánudaginn.
er samt eiginlega of róleg fyrir það... soldið skerí. en málið er að mér er svo andskotansdrullufjandans sama hvaðég fæ á þessu að það er, jah... soldið skerí.
þeir sem dæma eru hvort sem apar og halda að víóla sé bara stór fiðla og dæma eftir því. svo er þeir hræddir við kennarann minn og þeir gefa nemdendum hennar alltaf mjög lágt í öllum prófum til að reyna að fá útrás fyrir þessa hræðslu.
eða eitthvða.
úff.
svo er ég að hlusta á Beth Gibbons.
hún er best. vildi að hún væri búin að gefa út fleiri diska....
(fyrir þá sem ekki vita, þá er hún söngkonan í Portishead, og fyrir þá sem ekki þekkja portishead.... af síðunni minni núna!)
svo er ég í fýlu af því að þegar ég spila sims þá slekkur talvan mín á sér :( þyrfti að prófa að taka leikinn út og setja hann aftur inn. tími því bara ekki vegna þess að fjölskyldan mín á orðið svo geðveikt mikinn pening :(
voða er lífið erfitt, ha?

fimmtudagur, mars 09, 2006

fyrsta ...

er að hlusta á Brahms 2.
úff.
hvernig getur það ennþá verið erfitt eftir ÁTTA ár? stundum er maður bara drullu ruglaður :)

mánudagur, mars 06, 2006

einfalt = fallegt?

nú spyr ég mig.
það er nú reyndar ekki í fysta skipti sem ég spyr sjálfa mig einhvers. ég spyr mig sjálfa oft að einhverju.
sem er í rauninni mjög kjánalegt, því ég ætti náttúrulega að vita hvort ég sjálf viti það sem ég er á annað borð að fara að spurja.
þessi setning var líka mjög kjánalegt.
en það var nú ekki spurningin.
ég er nefnilega að hlusta á Fimmta kaflann í fræga kvartettinum hans Messiaen, "Louange á l´Éternité de Jésus". sem þýðir eitthvað um jesú og eilífð (takk kæra flensborg fyrir mjög eftirminnilega 7 áfanga í frönsku).
fyrir þessa sem leggja ekki nöfn á minnið, frekar en númer eða tímasetningar, svo ég minnist nú ekki á pin númer, þá er þetta kaflinn með selló sóló og píanó hljómum undir.
laaaaaaangar nótur og svossem ekkert mikið stöff í gangi, eiginlega varla maður greini laglínu og svei mér þá ef að hljómabreytingarnar eru ekki bara líka frekar svona venjulegar.
vá.
það er samt eitthvað við þetta sem er svo óEndanlega fallegt að ég get aldrei hlustað á þetta einu sinni. bara verð að skella númerinu í rípít og sit svo bara og stari út í loftið eins og sombí. nema nottla núna þegar ég náði að rífa mig upp og skrifa um hvað mér finnst þetta fallegt.
en svo fór ég að spurja mig einsog ég var búin að nefna og er þessvegna bæði að skrifa þetta, hlusta á óendalegan jesú og reyna að svara mér sjálfri.
hrikalega mikið lagt á lítinn víólunema.
en spurningin er...
er allt sem er einfalt fallegt?

þetta verk er einfalt og fallegt.
lítið blóm (með titrandi tár) er mjög fallegt og meðað við stóra blómvendi úr Blómaval eða Garðheimum, einfalt.
lítil börn eru fallegust í heimi. ég er ekki að segja börn séu einföld (þvílíkt maus að búa þetta til allavega hehe) en þau eru nú ekki að flækja hlutina með því að tala eða hafa skoðanir og allskonar svoleis = einfalt.
sjórinn er mjög fallegur og hann er bara ekkert nema sjór.... eða eitthvað svoleiðis.

æj þetta er alltof flókið og asnalegt, ég ætla að fara fram og fá mér te.

þriðjudagur, febrúar 28, 2006

:)

skype virkaði ekki af því að proxy var vitlaust stillt... búið að laga
mér var kalt af því að ég var búin að sitja á rassgatinu fyrir framan tölvuna forever... búið að laga.

það þriðja :) ... búið að laga, fer aftur út á sunnudaginn, þið sem eruð með númerið mitt...

go wild

föstudagur, febrúar 24, 2006

afhverju virkar skype ekki?
afhverju er mér svona kalt?
afhverju get ég ekki bara farið heim?

muuuuuuuuuuuuuuuuu

miðvikudagur, febrúar 22, 2006

ekki kaupa þessa



jú kids éger að meina nýji STÍLLINN keisarans, sósorrístína.
ég keypti btw nýja stíl keisarans TVÖ í fríhöfninni á leiðinni út og næstum því fór að gráta hún er svo hræðilega léleg.
LionKing TVÖ var skárri númertvö mynd heldur en þessi.
só STEI AVEI!!!

sunnudagur, febrúar 19, 2006

Klukkuð....

...af henni Sif minni :)


Fjórar vinnur sem ég hef unnið um ævina:
-skjalaskráritari þjóðskalasafns íslands
-Afleysingarkennari við Tónlistarskólann í Hafnarfirði
-í slættinum góða góða :)
-sem liðþjálfi á hrafnistu í hafnarfirði

Fjórar bækur sem ég gæti lesið aftur og aftur:
-Biblían
-harry potter (allar)
-hitchikers guide to the galaxy
-bróðir minn ljónshjarta

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
-shrek
-nýju fötin keisarans (disney myndin sem enginn þekkir nema ég og ási bróðir minn)
-fantasia (I og II)
-Austin Powers!! aaaaaaaarrrrnar

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég reyni að missa ekki af:
-Dallas. elska. dallas.
-boston public
-brat camp (breskur þáttur um ofdekraðar unglingsstelpur sem eru sendar í sumarbúðir einhversstaðar út í rassgati)
-South park, simpsons

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
-Þúfubarð 14, 220 Hfj.
-Hellubraut 1, 220 Hfj.
-Hringbraut 45, 220 Hfj.
-Hjarðarhagi 36, 107 Rvk. (algjörlega þess virði kysskyssjónminn)

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
-København
-portúgal þegar ég var 10 ára
-illugastaðir, akureyri (ó já!)
-yfirleitt er ég alltaf að spila í "fríunum" mínum svo mér dettur ekkert annað í hug. nema kannski þegar við fórum einu sinni í sumarbústað nálægt akureyri með pabba og kidda og vorum allan tímann í prumpukeppni :)

Fjórir veitingastaðir sem ég held uppá:
-CASPARI
-Búllan
-Riz Raz
-Austur Indíafélagið

Fernt matarkyns sem ég held uppá:
-ísinn hennar ömmudöggu á jóladag
-matesers kúlur
-pasta með tómatjukki, hakki og því sem ÉG vil aðsé í því
-hvítlaukur

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
-hjarðarhaga 36 (2. hæð til vinstri, önnur dyr til vinstri. undir sæng)
-hringbraut 45 að klappa óskari, drekka kaffi með mömmunnni minni og borða kaffisúkkulaði og hlusta á RÚV
-í suuuuuuundi
-að spila á tónleikum með TUMA mínum

Fjórir hlutir sem ég hlakka til:
-Hitta Jón í Ljubiana :)
-komast í íslenska sumarið
-hitta Arnar yfir Góóóðum kööööööldum bjór og taaaaaaaaaaaaaaaaaaaaala
-djamma með tónó liðinu mínu í mars/apríl

Ég ætla að klukka:

Palla (-hellubrautar)
Döggu mína -bestí heimi eins og Th...
Siggu mömmu
Tinnu næstummömmu
og Elfu Rún


einntveir og Gó!

yeah!

i hate my friend David Kelts.
he´s a fucking idiot.
here´s a photo for you to see the guy you want to try to kill next time you see him.
that is after you see this photo.
don´t do much good killing a photo now will it?

föstudagur, febrúar 17, 2006

hollt og gott

ég er búin að borða 600 gr. af grænmeti í dag.
það er meira en hálft kíló.
vei.
annars er ég bara hérna í herberginu mínu í rólegheitunum að hlusta á christo'riley spila radiohead. langar heim :(
svo er ég eiginlega orðin soldið stressuð fyrir tækni prófið mitt sem er 13. mars og ég þarfað drífa mig í að klára ritgerðina mína um Rebeccu Clarke.
æj ble.
svo langar mig óóógeðslega mikið í súkkulaði.
oh well....
can´t be always christmas eins og einhver sagði :)

fimmtudagur, febrúar 16, 2006

líður mikið mikið betur í dag, bara svona til að róa fólk.
þyrfti samt mjög nauðsynlega að fara að sofa.
núna.
en einhvernvegin get ég það ekki.
einhver massa hljómsveitaræfing á morgun þar sem við aumingjarnir eigum að lesa í gegnum beethoven 6. meira stuðið. ég kíkti á verkið samtals í 15 mínútur í dag þannig að ég verð "spot on" eins og alltaf.
not.
en þessi dagur verður góður fyrir mig að prófa nýju tæknina sem ég lærði (gegnum tárin) í gær og felst í því að nota Engann axlarpúða.
ég er komin með marblett vinstra megin á hökunni út af því, en ÞEGAR þetta verður orðið fullkomið hjá mér (helst á morgun (fyrir hádegi)) þá verð ég með fallegasta víólusánd í heimi. og ég er ekki að ýkja, ég heyrði það aðeins í morgun meðan ég var að búa til marblettinn og það er magnað.
sándið, ekki að búa til marblett.
svo mun "stúlkan sem þið þekktuð sem tótu feitu" byrja á hinum byltingarkennda DDV kúr á morgun, þannig að plís skiptið mér út í símaskránni hjá ykkur fyrir "tóta mjóa".
þetta var soldið skrítin setning.
só?
er eðilegt að blogga og svara sjálfum sér í leiðinni.
nei.
ég er nú samt að gera það.
þú þarft að fara að sofa.
haha! sagðir ÞÚ! ég er er ekki ég að tala við mig!

ok hætt

þriðjudagur, febrúar 14, 2006

ógeðslega

vondur og leiðinlegur dagur.
er í niðurrifsskapi frá helvíti dauðans með svo miklu offorsi að ég get varla dregið andann án þess að heilinn í mér segi mér að það sé vitlaust gert, röng tækni og svo sannarlega að þetta sé eitthvað sem ég get ALS ekki gert.
spurning um að hætta bara að anda.
svo var vinkona mín og sambýlingur Alinka að komast inní eitthvað óperustúdeó bledí ble ble ble sem mun bjarga lífi hennar (hefur maður á tilfinningunni) og er í svo miklu sólskinsskapi að gleðiköstin eru hér um alla veggi. ætla svo sannarlega að læsa hurðinni minni um leið og nenni að standa upp frá töllunni og slökkva ljósin, draga fyrir og þykjast ekki hafa komið heim rétt áðan.
maður er svo næs.
prófaði áðan að spila hverásérfegraföðurland í mörgum mismunandi tóntegundum, loka augunum og ímynda mér ég væri heima. tókst ekki. prófaði líka að spila íslandfarsældafrón í fimmunudum (bara í þægilegum tóntegundum) og ímynda mér að ísland væri hérna hjá mér.
tókst ekki heldur.
svo er þessi helvítis ljóti asnalegi valentínusardagur í dag, svo að ALLIR þykjast vera voðalega ánægðir með lífið. þori nú samt að veðja að 70% þeirra kvenna sem fengu gjöf eru óánægðar með hana og vildu einhverja dýrari. konur eru leiðinlegar. ég er líka viss um að á morgun verða 70% þeirra karla sem gáfu konunum sínum gjöf óánægðir vegna þess að þeir fengu ekkert að ríða í nótt. karlar eru leiðinlegir.
30% eiga kærasta/kærustur í útlöndum.
hmmm... spurning um að snúa níelsi niðurrifi yfir í skúla fúla?
hann er þó allavega fyndinn á köflum. þeas þegar fólk fer ekki að skæla undan honum... nje. ætla að setja brúnan pappapoka yfir hausinn og fara fram og fá mér kvöldmat og vera svo í allt kvöld inní herberginu mínu að horfa á eitthvað sem maður þarf alls ekki að brosa yfir.
mbl.is?
passamyndin sem ég tók af mér um daginn?

argh.

sunnudagur, febrúar 12, 2006

í dag þarf ég að hitta eina stelpu klukkan 12 og víólast svolítið, fyrir utan það ætla ég að liggja uppí rúmi og gera ekki neitt.
EKKI NEITT!
ég er meira að segja að spá í að sleppa af mér beislinu og kaupa dæet kók.
jeeeeee

föstudagur, febrúar 10, 2006

ó hó

það er svo yndislegt að vera kominn með tölvu fyrir framan sig loksins.
verst að msn virðist ekki virka og alltí einu er enginn á skype :(
oh well... þetta fylgir víst lífi fólks sem er á ystubrún.

ég þarf að fara að sofa......... NÚNA
æj ég er í fýlu að vera ein heima og full og enginn til að tjútta með mér :(

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

go women go!

Women over 50 don't have babies because they would put them down and forget where they left them.

One of life's mysteries is how a 2 pound box of candy can make a woman gain 5 lbs.

My mind not only wanders, it sometime leaves completely.

The best way to forget all your troubles is to wear tight shoes.

The nice part about living in a small town is that when you don't know what you're doing, someone else does.

The older you get, the tougher it is to lose weight because by then, your body and your fat are really good friends.

Just when I was getting used to yesterday, along came today.

Sometimes I think I understand everything, then I regain consciousness.

I gave up jogging for my health when my thighs kept rubbing together and setting my pantyhose on fire.

Amazing! You hang something in your closet for awhile and it shrinks two sizes!

Skinny people irritate me! Especially when they say things like, "You know, sometimes I just forget to eat." Now I've forgotten my address, my mother's maiden name, and my keys. But I've never forgotten to eat. You have to be a special kind of stupid to forget to eat.

A friend of mine confused her valium with her birth control pills. She had 14 kids, but she doesn't really care.

I read this article that said the typical symptoms of stress are: eating too much, impulse buying, and driving too fast. Are they kidding? That is my idea of a perfect day.

I know what Victoria's Secret is. The secret is that nobody older than 30 can fit into their stuff.

Endurkomin!

loksins loksins loksins! er talvan mín komin úr viðgerð. og svona líka mikið viðgerð að jah... það er bara EKKERT inná henni.
ójá, þeir voru svo sætir að gjörsamlega þurrka allt út af henni. guð sé lof ég var ekki byrjuð á söguritgerðinni minni, segi ég nú bara.
þannig að nú á ég ekki neitt. en dvd drifið virkar!! :D
en þökk sé herra flickr, þá á ég bakköpp af öllum myndum og öll þessi skólaverkefni voru hvort sem er svo fokkin leiðinleg að það er bara gott aðvera laus við þau.
eina sem ég sakna er öll tónlistin sem ég dundaði mér við að rippa í jólafríinu.... en það verður víst að bíta í súra eplið með það.
jammsí já.
annars er msn ið mitt einnþá í fýlu svo það vill ekki opnast, en skype er í brjáluðu stuði. en allir kontaktarnir mínir virðast hafa dottið út :( þannig að: skype-me please.... það er totaviola.
jess.
jæja, þarf að fara að dunda mér við að downloada forritum....

miðvikudagur, janúar 25, 2006

yeah.... sing it girl

ég ákvað að taka eina kjellingu á þetta og er búin að vera að hlusta á Whitney Houston í allt kvöld. eða svona... allavega hátt í hálftíma.
hún er ágæt greyið. svo eru Öll lögin hennar um að nú sé hún búin að fá nóg, Hann fær sko ekki að meiða/særa/svindla á henni meir.
Öll.
nú ætla ég ekkert að þykjast vera einhver frægrafólksvitringur en var ekki kallinn hennar einhver dópisti og lamdi hana í köku?
var ENGINN að hlusta á þessa texta?
nei ég segi svona. veit það bara ef einhver görlfrend of mæn færi að gefa út Heila plötu af "im not going to take it no more" eða "you made me cry" eða "played me all along" myndi maður kannski svona segja "hó hó".
eða "hey hey".
fara svo og smala í smá "homies" pakka og redda málunum.
voða auðvelt, ha?
allavega.... don´t go there girlfriend, no no no, it´s not good for you! (gert með svona smell hreyfingum, stadegörls þið vitið hvert ég er að fara)

ps - þessi plata (my love is your love) seldist í 11 milljón eintökum... vona að þetta hafi ekki allt verið kjellingar í pakkanum :S

æj já

svo er aumingja litla talvan hennar tótu sinnar á leiðinni í viðgerð svo að ég verð mjög Ó-online næstu daga. :(
aumingja aumingja aumingja ég

geisp

haldiði ekki að kellingin hafi sofið 10 tíma í nótt!
talandi um að vera endurnærður og til í tjúttið. eða svona.
veit samt ekki afhverju ég er búin að vera geispandi stanslaust síðan....

þriðjudagur, janúar 24, 2006

bara róleg

að blogga ekkert svo vikum skipti. eða svona.
maður er svo kúl á þessu. og svossem lítið að segja, Birmingham er nú ekki beint Staður Slúðurs og æsifregna, sérstaklega ekki þegar maður er bara ungur óbreyttur.
eða ungur...
æj allavega þið fattið.
en hún Haniiya vinkona mín var ða gefa mér þurrkað þang frá malasíu. soldið svona eins og sölin okkar góða (sem mamma át einu sinni heilan pakka af og fékk illt í magann) nema bara alls ekki. er í svona litlum strimlum og búið að hakka hana alla svo hún bráðnar alfeg uppí manni. njammi njamm.
svo er ein með chilli í og eitthvað svo maður er alfeg hress með vatnsglasið við hliðina á sér.
allavega.
bara láta heyra í mér. verð nú að fara að taka upp á einhverju sveittu til að geta bloggað almennilega....