mánudagur, október 21, 2002

hmmm
haldiði ekki að ég hafi bara fundið þennan líka áhugaverða drykkjuleik á netinu. verst að ég er eiginlega hætt að drekka.....



Stokkið spilastokk og setjið hann á mitt borðið. Einn leikmaður má draga eitt spil í einu. Snúið spilinu við og sýnið öllum spilið. Hvert spil hefur reglur sem eru:

Ás - drektu einn sopa
2 - drektu tvo
3 - drektu þrjá
4 - Spurning: Þú lítur á þann sem þér sýnist, hann/hún verður að svara spurningunni með spurningu og þannig heldur það áfram þangað til einhver klikkar. Dæmi. Hvað er að ske? Af hverju snertirðu þig? Þú þarft ekki að spyrja manneskjuna sem spurði þig. Vertu bara örugg/ur að ná augnsambandi.
5 - Gefðu fimm sopa
6 - Ég hef aldrei. Hér segir sá sem dró spilið eitthvað sem hann hefur ekki gert en sá/sú sem hefur gert það verður að drekka tvo sopa.
7 - Puttar: Sá sem dregur spilið setur einn putta á borðið og sá sem er síðastur að setja putta á borðið verður að drekka einn sopa. Sá sem dróg má gera þetta eins oft og hann vill þangað til næsta 7 kemur.
8 - : Sá sem er sjáanlega minnst fullur verður að drekka 3 sopa..
9 - Rím: Allir verða að koma með orð sem rímar við þitt. Dæmi: Gull...sull...bull..o.s.frv
10 - Sameiginlegt: Allir drekka einn sopa.
gosi - asna drykkur...Strákar drekka.
Drottning - Tíkar drykkur....Stelpur drekka.
Kóngur - Vatnsfall: Þetta getur verið mjög erfitt, Það fer eftir drikkjufélögum. Sá sem dregur spilið drekkur eins og hann getur af bjór og sá sem er á eftir honum verður að drekka eins lengi og nr.1, þriðji verður að drekka eins lengi og nr.2, og þannig gengur það áfram. Ef sá fyrsti er mikill drykkjumaður getur þetta verið mjög erfitt fyrir hina!!!!.
kúl!
ég er harley barbie :)




You are Harley Barbie! You don't asocciate with "sophisticate" barbie and never "nsync #1 fan" barbie, but you know who your friends are and you do what you want. Plus, you have a kick ass motorcycle.

tóta mjóa mætt tvíelfdari en nokkru sinni fyrr, nýkomin úr sundi og ferskri morgunstund í stofu 10, niðrí tónó.
ég er svo ótrúlega dugleg það sem af er degi að ég bara held ég sé að fara yfir um. en það er nú þegar búið að bjóða mér í kökuveislu í kvöld, svo þetta ætti að reddast.
hmoah.
helgin mín var nú reyndar hálf aðgerðalítil, var bara á fullt af einhverjum æfingum og gerði eiginlega ekkert merkilegt. nema nottla að ég keypti Pepsí BLUE sem er versti og ógeðslegasti drykkur sem ég hef á ævi minni ofan í mig látið, og þá meðtalið allt það sem maður píndi ofan í sig á unglingsárum í þeim tilgangi að verða kátur og hress.
oj.´
mér er eiginlega orðið óglatt bara af því að hugsa um það :p jesús.