miðvikudagur, maí 07, 2003





Þvílík snilld sem ég er að hlusta á núna, hljómsveitin heitir Spaðar og er ég veit ekki hvaðan. drottinn minn. svona heima í stofu fílingur dauðans og textarnir eru geggjaðir.
þetta er diskurinn "skipt um peru" og þar eru ódauðleg lög eins og "kráardiskó" (
Á barnum vil ég ævi una
á eintali við vínflöskuna) og "þá fann ég þig"
(Ég leitaði um allt
um landið allt frá Gerpi að Gjögri
frá Gauk á Stöng til Ara í Ögri
uns fann ég þig.)
hversu nettur getur einn diskur verið? a must have! spaða á öll heimili!
en það var hún móðir mín sem útvegaði mér þennan disk með ólöglegum aðgerðum, sem ég ætla ekki að tíunda hér... en hverjum er ekki sama um eins og eina krimma-mömmu þegar maður getur hlustað á svona góðan geisladisk í vinnunni?
manntalið verður bara næstum því skemmtilegt nei


verið að leika sér við kisu litlu...
ég var svo aldeilis heppin að hitta hann Finnboga í sundi í morgun. reyndar kallaði hann í mig, vegna þess að ég er blind og svo gat ég eiginlega ekki sagt eitt einasta orð af viti þegar við vorum að tala saman. ooooooof snemmt.
en samt gaman að hitta fólk svona þegar maður er næstum því alsber, nývaknaður og rennblautur.
úh!
þetta var nú soldið dónó.
hmmm....