þriðjudagur, mars 11, 2003

fyrir hann Eyfa minn
*músshí-músshí*
:)




þegar ég er orðin gömul og feit ætla ég að búa í þessu húsi og gera ekki neitt.
nema drekka bjór.
og æfa mig.
og kannski fá SUMT fólk í heimsókn.

a real life story from an icelandic farm from the Old days...



bærinn Ytri-Tunga í Kirkjubæjarklausturssókn í V-Skaptafellssýslu, árið er 1835.
húsmóðirin Steinunn er að bæta í sokka.
Steinunn: Jón minn... ég er ólétt
Jón: Ó en frábært!! þú ert yndisleg kona og ég elska þig
Steinunn: takk elsku jón. en ég var að spá í nafn...
Jón (grípur fram í): Jón. hann á að heita Jón.
Steinunn: en elskan... er það nú ekki svolítið...
Jón (grípur fram í): NEI! hann á að heita Jón!!
Steinunn: já elskan.. auðvitað.

Tunga ytri heimajörð
Jón Jónsson 36 húsbóndi
Steinunn Oddsdóttir 40 hans kona
Guðrún Jónsdóttir 17 þeirra barn
Steinunn Jónsdóttir 13 eins
Jón Jónsson 8 eins
Jón Jónsson 7 eins
Jón Jónsson 5 eins
Guðbjörg Jónsdóttir 3 eins
Jón Jónsson 1 eins
þriðjudagur til þokkalega mikið af kaffi!
úff.
ég næ varla andanum. samt eru nýju bollarnir pínkulitlir. en þetta fólk sem er með mér á skrifstofu er bara endalaust í kaffi.
"hey, klukkan er níu, förum í kaffi"
"hey, kallinn er að skúra, förum í kaffi"
"hey, mig langar í kaffi, förum í kaffi"
og þar sem ég er varla með meðvitund (hver er svossum með meðvitund FYRIR hádegi?!!) þá elti ég bara. þannig að þetta er allt saman öðru fólki að kenna hvað ég er búin aðdrekka mikið kaffi.
jess.....
svo var ég að lesa bloggið hennar iðunnar og hún er að fara til englands.
ARG
svo var Adda að kaupa sér ferð til kaupmannahafnar í sumar
ARG
ási bróðir er að fara til spánar
ARG
pabbi og systur mínar og frændfólk og amma og afi eru að fara til Ítalíu
ARG
ella vala kemst ekki á óperustúdíó Austurlands, vegna þess að hún verður í þýskalandi
AAAAARRRRGHHH

þarf ég að halda þessari upptalningu áfram? ég er að farast úr íslands-leiða. nú fer ég og sel eitthvað, svo ég komist til útlanda í sumar. hvernig getur fólk gert mér þetta? ILLMENNI!! reyndar fær eyfi litli 3 stig, fyrir að vera að koma HEIM 1. apríl. :) víííí.

mánudagur, mars 10, 2003

jessör.
haldiði ekki bara að hann Jón Viðar mega beib hafi farið fyrir hana tótu sína útí búð og keypt kaffisúkkulaði. nammi namm. og hér smjatta ég HÁSTÖFUM. ahahaha (capslock=hástafir)....
eh....
allavega. í gær var Hljómeykis æfing, bara mjög hugguleg, næstum því sóprana laus ;) og ENGIN ný þunglyndisleg lög. ótrúlegt en satt. en það sem mest má í fréttum vera, er það að í sumar á víst að setja upp "Grease" enn eitt skiptið.
og getið bara hverjir eru aðalhlutverkin!!
Birgitta Haukdal og Jón Jósep!!!
híhíhí!!!
ég er komin á rss listann :)




ég fór á Rakstur í Þjóðleikhúsinu á laugardaginn. það var mjög leiðinlegt, mæli eindregið á móti því að fólk fari. nema það sé orðið það gamalt að 1969 og þegar gaurarnir lentu á tunglinu er ennþá í fersku minni.
en ég fór með honum elsku Arnari mínum og það er nú alltaf gaman. þetta var reyndar lítill salur, svo við gátum ekki talað illa um allt fólkið í kringum okkur, en bættum okkur það upp í hléinu. hehe! maður er ekki illkvittin naðra fyrir ekki neitt.
en svo tókum við undan okkur betri fótinn og duttum ærlega í það. fundum meira að segja upp mjög svo -MJÖG SVO- háþróaðan drykkjuleik. :) eftir að hafa brölt um bæinn í smá stund fórum við svo á spotlight og haldiði ekki bara að herra Annað Sæti í barþjónakeppni íslands hafi ráðist á mig og gert á mig sogblett! drottinn minn dýri. maður hefur ekki verið með sogblett í fleiri fleiri ár. jafnvel bara aldrei.
en hann er nú lítill og sést ekki neitt. takk samt kærlega hjörtur matthías ;)
en á spotlight var nú aldeilis dansað og djammað. tónlistin þarna er orðin ekkert smáááááá æðisleg. allavega á efri hæðinni, alltaf sami skíturinn niðri, yukkie... og svei mér þá ef að tóta litla dillaði sér ekki bara soldið við seiðandi músík og rutma. svo var hann Bjarni Beib þarna líka, voðalega sætur og mikið krútt. í skyrtu. sem er nú meira en hægt er að segja um Skjöld Lúkk sem ófeiminn reif sig úr rifna netabolnum. honum hefur verið eitthvað heitt greyinu.
sussu bía....

föstudagur, mars 07, 2003





já þeir eru svo sannarlega fullir af trúarhita danirnir, enda veitir ekki af á þessum ögurtímum með heeeeeeiiiiiimska-aha bandaríkjamenn vappandi um hægri vinstri.
En vitið hvað? haldiði að ég hafi ekki bara hringt í hann eyfa minn í gær og heyrt í honum hljóðið. sem er einstaklega óvenjulega gott þessa dagana. ekkert nema gott um það að segja. jább jább jább.
ussu sussu!
ég lenti í gríðarlega miklum raunum í gær á leiðinni á æfingu. ég varð BENSÍNLAUS á miðri kringlumýrarbrautinni. eeeeeeekki gaman. svo ætlaði ég að fara á nesti-bensínstöðina þarna neðst, en þeir voru nýbúnir að loka, einn afgreiðslukarlÓGEÐið sat þó ennþó og var að gera uppgjör, svo ég bankaði á dyrnar og hann alfeg trylltist fyrir innan. fór að öskra að það væri lokað, byrjaði allur að titra og skjálfa. ég reyndi að koma honum í skilning um að ég væri b e n s í n l a u s út á miðri kringlumýrarbraut og þyrfti enga afgreiðslu, bara brúsa eða eitthvaðtil að setja benín í. en hann bara öskraði og titraði eins og geðsjúklingur. mér var bara ekki orðið sama. hvað er eiginlega að fólki? er ráðlegt að "svona" samfélagsþegnar séu í afgreiðslustöðum á fjölförnum leiðum? ég ætla alla vega ALDREI að kaupa bensín þarna. aldrei nokkurntíman.
en sem betur fer er til gott fólk í þessum heimi og þarna var að taka sér bensín maður sem bauðst til að keyra mig upp í öskuhlíð og kaupa bensín þar. svo keyrði hann mig aftur til baka, sagðist eiga heima í kópavogi, svo þetta væri hvort sem er í leiðinni.
þvílík gæðablóð!
kann ég honum bestu þakkir fyrir. hitt gerðið má steikjast í HELVÍTI!!!
eða eitthvað svoleiðis

fimmtudagur, mars 06, 2003



STUPID AMERICANS

1. Only in America......can a pizza get to your house fasterthan an ambulance.
2. Only in America......are there handicap parking places in front of a skating rink.
3. Only in America......do drugstores make the sick walk all the way to the back of the store to get their prescriptions while healthy people can buy cigarettes at the front.
4. Only in America......do people order double cheeseburgers, large fries, and a diet coke.
5. Only in America......do banks leave both doors open and then chain the pens to the counters.
6. Only in America......do we leave cars worth thousands of dollars in the driveway and put our useless junk in the garage.
7. Only in America......do we use answering machines to screen calls and then have call waiting so we won't miss a call from someone we didn't want to talk to in the first place.
8. Only in America......do we buy hot dogs in packages of ten and buns in packages of eight.
9. Only in America......do we use the word 'politics' to describe the process so well: 'Poli' in Latin meaning 'many' and 'tics' meaning 'bloodsucking creatures'.
10. Only in America......do they have drive-up ATM machines with Braille lettering.

já það er rétt. tóta mætt til lífsins á nýjan leik eftir að hafa verið heima hjá sér undir sæng í heilan dag. enda er ég með móral dauðans. hvað á það nú eiginlega að þýða að verða veikur svona rétt fyrir stigspróf?! uss.
svo voru Adda og Jón bara fúl yfir að ég skyldi mæta, sögðu að ég ætti bara að vera heima sofandi. hvernig halda þau eiginlega að það sé að vera víóluleikari? maður geti bara legið heilu dagana? ég held nú aldeilis ekki, við erum ómissandi. Algjörlega!
svo er ég að fara að spila á tónleikum á laugardaginn hjá honum Stulla Hornleikara í Salnum Kópavogi. en hann er með sítt hár og skegg. Stulli þ.e. ekki Salurinn Kópavogi. ég var einmitt að hugsa um það í gær hvað væri nú sniðugt ef að stulli myndi nú taka sig til og klippa sig og raka fyrir tónleikana. það myndi ábiggilega enginn þekkja hann, lubbinn er búinn aðvera svo lengi á honum.
en annar seru þetta mjög skemmtilegir tónleikar, endilega að mæta. það mun geðið kæta. svo eru horn svo falleg hljóðfæri, skaga hátt upp í hina yndisfríðu víólu. :)


úúú! spúkí
(ég held samt að þetta sé lygi)

Ótrúlegar staðreyndir!
Abraham Lincoln var kjörinn á þing 1846.
John F. Kennedy var kjörinn á þing 1946.

Abraham Lincoln var kjörinn forseti 1860.
John F. Kennedy var kjörinn forseti 1960.

Lincoln and Kennedy eru bæði 7stafa nöfn.

Báðar konur þeirra misstu börnin sín meðan þau bjuggu í Hvíta húsinu.

Báðir voru skotnir á Föstudegi
Báðir voru skotnir í höfuðið

Einkaritari Lincoln hét Kennedy.
Einkaritari Kennedy hét Lincoln.

Báðir voru myrtir af suðurríkjamanni.
Suðurríkjamaður tók við af þeim báðum

Báðir sem tóku við hétu Johnson.
Andrew Johnson, sem tók við af Lincoln, var fæddur1808.
Lyndon Johnson, sem tók við af Kennedy, var fæddur 1908.

John Wilkes Booth, sem myrti Lincoln, var fæddur 1839.
Lee Harvey Oswald, sem myrti Kennedy, var fæddur 1939.

Báðir morðingjarnir voru alltaf kallaðir sínum fullu nöfnum
Nöfn þeirra beggja eru 15 stafir.

Lincoln var skotinn í 'Kennedy' leikhúsinu
Kennedy var skotinn í Lincoln bifreið

Booth flúði úr leikhúsinu og fannst í vöruhúsi.
Oswald flúði úr vöruhúsinu og fannst í leikhúsi

Booth og Oswald voru báðir myrtir áður en þeir voru dæmdir.

miðvikudagur, mars 05, 2003

ég er lasin :( veit nú ekki hvað ég er að spá að æða svona á fætur og fara í vinnuna til þess eins að prenta út bókmenntafræðilegan ritdóm um smásagnasafn Helle Helle. og hvers kona nafn er það nú eiginlega?
en word er eitthvað að stríða mér og vill ekkert opna þetta. en huggulegt. ég sé bara fram á aðra yndislega ferð inní hafnarfjörð og til baka. naaaaammi namm.
og ég er lasin!
hvað er eignlega að verða um heiminn?

þriðjudagur, mars 04, 2003

nú er ég að vinna í hádegishléinu mínu. mjög skemmtilegt eða þannig, allir bara uppi að borða. háma í sig girnilegan hádegismat og drekka ííííííískalt kók með. MUUUUUUU. en neinei, tóta litla innsláttardýr er bara niðri að deyja úr fýlu yfir Hálssókn í Suður-Múlasýslu (hvað er málið með hálsinn, by the way?). ekki einu sinni sérlegir aðstoðarmenn mínir, Kiefer Sutherland og "mysterious jungle-man" virðast ætla að kæta geð mitt. en hinir fyrrnefndu eru menn sem við Adda hengdum hér á vegginn til að geta horft á og talað við karlmenn af viti.
jungle maðurinn er líka án efa á Góóóóóóóóóóðum stað, inní herbergi hins títtnefnda Undramunds, enda er það í verkahring barónessunnar að útvega mönnunum sínum fáklædda karlmenn.
þetta er voðalega ruglingslegt Blogg. en þar sem EKKERT er hægt að gera við því, sökum bilunar í blogger.com , verð ég víst að bíta í súrt epli eða eitthvað. sem minnir mig á það að ég er með bland í poka í bakpokanum mínum :) þetta hádegi virðist allt vera að koma til :)
víííí
og núna er ekki einu sinni hægt að laga linkana!!
drottinn minn dýri. tek það fram að linkurinn yfir á Telmu er vitlaus. þetta er ótrúlegt!
hvað er að gerast við heiminn?
ooooooooooh!
bloggið er ennþá bilað hjá mér!
hvað er eiginlega að?
talaðu við mig Blogger, TALAÐU!!!
Mýa sótti um að losna af aumingjalistanum. hmmm. ég ætla að hugsa málið. hafa svolitla spennu í þessu sko, hehe

mánudagur, mars 03, 2003

allir að kíkja á nýjasta bloggarann, Teeeeeeeeeeeeeeelmu!!!
:)
jú gó görl

Blogger Hrogger :(
hann vill ekki ennþá gera það fyrir mig sem ég vil. djísús!!
en það sem er skemmtilegt við daginn í dag er að við fengum BOLLA í vinnunni :) hver og einn fékk bolla með nafninu sínu og skjaldarmerki íslands, allt í heiðbláum og fallegum lit.
GEGGJAÐ!!!
sumum finnst þeir vera of litlir, en ég er ofboðslega ósammála því. þeir eru bara krúttlegir svona sætir, híhí!!!
og annað sem er skemmtilegt við daginn er að það er bollukaffi! þá held ég nú að gott sé að hver sé með sinn bolla!
boLLur og boLLi... tilviljun?
nóbb mæ lord, feit (fate)
tærnar á Ingólfi :) (as in Ingólfur hennar Fjólu)


ég biðst innilegrar afsökunar á þessum ljóta tóma kassa hér fyrir neðan. blogger dauðans!
það er sko ekki hægt að edita lengur bloggið mitt, bara allra annarra...
úff, hvað er vandlifað í þessum heimi. ég er einmitt á leiðinni í bankann í hádeginu til að borga Euro reikninginn minn :(
ég var við það að gefast upp á þessu öllu saman og stinga af til sólarlanda, en til allrar hamingju hringdi hann arnar minn elskulegi með ógurlegt hryllingsvandamál sem ég gat leyst!! :) þannig að líf mitt hefur fengið tilgang að nýju
hvað gerir maður við hækkaðan 6ta tón í d-moll?


ég var líka á Hljómeykis kóræfingu í gær og var það vel. oj. ég þoli ekki frasann "var það vel", ég skil ekkert í mér að nota hann. uss! en ég fékk hláturskast tvisvar, einu sinni yfir
"hæ, ég heiti Eiki. jú, það er rétt... ég er í Hljómeyki" og svo
Stefán Arason (með nælonsokk yfir hausnum): hvar kan jeg finde en photokopie-makine?
en þetta finnst engum fyndið nema kannski þeim sem til þekkja. samt hló ég nú mest.
gó Hljómeyki
við erum einmitt að syngja þunglyndislegt prógramm AGAIN. þetta fer nú soldið að missa marks finnst mér... fólk fer í alvörunni að halda að við séum öll þunglyndissjúklingar, sem hugsum ekki um neitt annað en dauðann.
DAUÐANN!!!