fimmtudagur, mars 06, 2003



STUPID AMERICANS

1. Only in America......can a pizza get to your house fasterthan an ambulance.
2. Only in America......are there handicap parking places in front of a skating rink.
3. Only in America......do drugstores make the sick walk all the way to the back of the store to get their prescriptions while healthy people can buy cigarettes at the front.
4. Only in America......do people order double cheeseburgers, large fries, and a diet coke.
5. Only in America......do banks leave both doors open and then chain the pens to the counters.
6. Only in America......do we leave cars worth thousands of dollars in the driveway and put our useless junk in the garage.
7. Only in America......do we use answering machines to screen calls and then have call waiting so we won't miss a call from someone we didn't want to talk to in the first place.
8. Only in America......do we buy hot dogs in packages of ten and buns in packages of eight.
9. Only in America......do we use the word 'politics' to describe the process so well: 'Poli' in Latin meaning 'many' and 'tics' meaning 'bloodsucking creatures'.
10. Only in America......do they have drive-up ATM machines with Braille lettering.

já það er rétt. tóta mætt til lífsins á nýjan leik eftir að hafa verið heima hjá sér undir sæng í heilan dag. enda er ég með móral dauðans. hvað á það nú eiginlega að þýða að verða veikur svona rétt fyrir stigspróf?! uss.
svo voru Adda og Jón bara fúl yfir að ég skyldi mæta, sögðu að ég ætti bara að vera heima sofandi. hvernig halda þau eiginlega að það sé að vera víóluleikari? maður geti bara legið heilu dagana? ég held nú aldeilis ekki, við erum ómissandi. Algjörlega!
svo er ég að fara að spila á tónleikum á laugardaginn hjá honum Stulla Hornleikara í Salnum Kópavogi. en hann er með sítt hár og skegg. Stulli þ.e. ekki Salurinn Kópavogi. ég var einmitt að hugsa um það í gær hvað væri nú sniðugt ef að stulli myndi nú taka sig til og klippa sig og raka fyrir tónleikana. það myndi ábiggilega enginn þekkja hann, lubbinn er búinn aðvera svo lengi á honum.
en annar seru þetta mjög skemmtilegir tónleikar, endilega að mæta. það mun geðið kæta. svo eru horn svo falleg hljóðfæri, skaga hátt upp í hina yndisfríðu víólu. :)


úúú! spúkí
(ég held samt að þetta sé lygi)

Ótrúlegar staðreyndir!
Abraham Lincoln var kjörinn á þing 1846.
John F. Kennedy var kjörinn á þing 1946.

Abraham Lincoln var kjörinn forseti 1860.
John F. Kennedy var kjörinn forseti 1960.

Lincoln and Kennedy eru bæði 7stafa nöfn.

Báðar konur þeirra misstu börnin sín meðan þau bjuggu í Hvíta húsinu.

Báðir voru skotnir á Föstudegi
Báðir voru skotnir í höfuðið

Einkaritari Lincoln hét Kennedy.
Einkaritari Kennedy hét Lincoln.

Báðir voru myrtir af suðurríkjamanni.
Suðurríkjamaður tók við af þeim báðum

Báðir sem tóku við hétu Johnson.
Andrew Johnson, sem tók við af Lincoln, var fæddur1808.
Lyndon Johnson, sem tók við af Kennedy, var fæddur 1908.

John Wilkes Booth, sem myrti Lincoln, var fæddur 1839.
Lee Harvey Oswald, sem myrti Kennedy, var fæddur 1939.

Báðir morðingjarnir voru alltaf kallaðir sínum fullu nöfnum
Nöfn þeirra beggja eru 15 stafir.

Lincoln var skotinn í 'Kennedy' leikhúsinu
Kennedy var skotinn í Lincoln bifreið

Booth flúði úr leikhúsinu og fannst í vöruhúsi.
Oswald flúði úr vöruhúsinu og fannst í leikhúsi

Booth og Oswald voru báðir myrtir áður en þeir voru dæmdir.

miðvikudagur, mars 05, 2003

ég er lasin :( veit nú ekki hvað ég er að spá að æða svona á fætur og fara í vinnuna til þess eins að prenta út bókmenntafræðilegan ritdóm um smásagnasafn Helle Helle. og hvers kona nafn er það nú eiginlega?
en word er eitthvað að stríða mér og vill ekkert opna þetta. en huggulegt. ég sé bara fram á aðra yndislega ferð inní hafnarfjörð og til baka. naaaaammi namm.
og ég er lasin!
hvað er eignlega að verða um heiminn?

þriðjudagur, mars 04, 2003

nú er ég að vinna í hádegishléinu mínu. mjög skemmtilegt eða þannig, allir bara uppi að borða. háma í sig girnilegan hádegismat og drekka ííííííískalt kók með. MUUUUUUU. en neinei, tóta litla innsláttardýr er bara niðri að deyja úr fýlu yfir Hálssókn í Suður-Múlasýslu (hvað er málið með hálsinn, by the way?). ekki einu sinni sérlegir aðstoðarmenn mínir, Kiefer Sutherland og "mysterious jungle-man" virðast ætla að kæta geð mitt. en hinir fyrrnefndu eru menn sem við Adda hengdum hér á vegginn til að geta horft á og talað við karlmenn af viti.
jungle maðurinn er líka án efa á Góóóóóóóóóóðum stað, inní herbergi hins títtnefnda Undramunds, enda er það í verkahring barónessunnar að útvega mönnunum sínum fáklædda karlmenn.
þetta er voðalega ruglingslegt Blogg. en þar sem EKKERT er hægt að gera við því, sökum bilunar í blogger.com , verð ég víst að bíta í súrt epli eða eitthvað. sem minnir mig á það að ég er með bland í poka í bakpokanum mínum :) þetta hádegi virðist allt vera að koma til :)
víííí
og núna er ekki einu sinni hægt að laga linkana!!
drottinn minn dýri. tek það fram að linkurinn yfir á Telmu er vitlaus. þetta er ótrúlegt!
hvað er að gerast við heiminn?
ooooooooooh!
bloggið er ennþá bilað hjá mér!
hvað er eiginlega að?
talaðu við mig Blogger, TALAÐU!!!
Mýa sótti um að losna af aumingjalistanum. hmmm. ég ætla að hugsa málið. hafa svolitla spennu í þessu sko, hehe

mánudagur, mars 03, 2003

allir að kíkja á nýjasta bloggarann, Teeeeeeeeeeeeeeelmu!!!
:)
jú gó görl

Blogger Hrogger :(
hann vill ekki ennþá gera það fyrir mig sem ég vil. djísús!!
en það sem er skemmtilegt við daginn í dag er að við fengum BOLLA í vinnunni :) hver og einn fékk bolla með nafninu sínu og skjaldarmerki íslands, allt í heiðbláum og fallegum lit.
GEGGJAÐ!!!
sumum finnst þeir vera of litlir, en ég er ofboðslega ósammála því. þeir eru bara krúttlegir svona sætir, híhí!!!
og annað sem er skemmtilegt við daginn er að það er bollukaffi! þá held ég nú að gott sé að hver sé með sinn bolla!
boLLur og boLLi... tilviljun?
nóbb mæ lord, feit (fate)
tærnar á Ingólfi :) (as in Ingólfur hennar Fjólu)


ég biðst innilegrar afsökunar á þessum ljóta tóma kassa hér fyrir neðan. blogger dauðans!
það er sko ekki hægt að edita lengur bloggið mitt, bara allra annarra...
úff, hvað er vandlifað í þessum heimi. ég er einmitt á leiðinni í bankann í hádeginu til að borga Euro reikninginn minn :(
ég var við það að gefast upp á þessu öllu saman og stinga af til sólarlanda, en til allrar hamingju hringdi hann arnar minn elskulegi með ógurlegt hryllingsvandamál sem ég gat leyst!! :) þannig að líf mitt hefur fengið tilgang að nýju
hvað gerir maður við hækkaðan 6ta tón í d-moll?


ég var líka á Hljómeykis kóræfingu í gær og var það vel. oj. ég þoli ekki frasann "var það vel", ég skil ekkert í mér að nota hann. uss! en ég fékk hláturskast tvisvar, einu sinni yfir
"hæ, ég heiti Eiki. jú, það er rétt... ég er í Hljómeyki" og svo
Stefán Arason (með nælonsokk yfir hausnum): hvar kan jeg finde en photokopie-makine?
en þetta finnst engum fyndið nema kannski þeim sem til þekkja. samt hló ég nú mest.
gó Hljómeyki
við erum einmitt að syngja þunglyndislegt prógramm AGAIN. þetta fer nú soldið að missa marks finnst mér... fólk fer í alvörunni að halda að við séum öll þunglyndissjúklingar, sem hugsum ekki um neitt annað en dauðann.
DAUÐANN!!!
mánudagar mæðunnar.
mamma og ási eru "veik" heima, sofandi eins og þorskar, en ég.... drottning duglegleikans druslaðist á fætur og fór í vinnuna. þó ekki með bros á vör. og hvað er eiginlega að blogger? núna birstast postarnir mínir allt í einu ekki fyrir neðan þar sem maður skrifar.
mjöööööög athyglisvert, svo ég segi ekki meir.
vignir var eitthvað móðgaður að ég skyldi ekki minnast á Evil Dead maraþonið sem við héldum á föstudaginn, svo það er gott að gera það núna, enda var mjög "grúví" stemming við viðtækin mili 21:00 og 1:00. ótrúlegt að við skyldum geta náð að sjá þrjár myndir.... ég get ekki ennþá reiknað þetta rétt. en allavega.
dýrð sé drottni.

laugardagur, mars 01, 2003

verðlaunin fyrir mestu leti í heimi fær....
ég!
fyrir að hafa hangið á netinu heima hjá pabba í rúman klukkutíma og gert ekki RASSGAT!
nú er ég farin niðrí tónó að æfa mig. þó fyrr hefði verið.
skamm skamm!!
jæja, núna er ég upp á stuðlabergi að þamba kafið hans pabba míns. :) dagga systir á leiðinni í afmæli, búin að mála sig eins og gleðikona.
gaman að því.
ég var á æfingu kl. 3 inní tónó rvk og barasta nennti ekki heim til mín, enda miklar líkur á því að mamma sé í þvílíku skapinu, eftir að hafa verið með ömmu í búðum í allan dag. úff. talandi um þolraunir.....
en ég var líka að fatta það að ég byrja næstum alla pósta á "jæja", ætli það sé eitthvað merki um að ég sé klikkuð eða eitthvað svoleiðis?
hmmm....
aldrei að vita :p

Maður dagsins (eða maður gærdagsins): Eyjólfur Eyjólfsson

:) :)

föstudagur, febrúar 28, 2003

jæja, nú er ég búin að hanga hér á skjaló í rúman klukkutíma og hanga á netinu, EKKI Á LAUNUM, bæ ðe vei, maðurer nú ekki algjörlega ótíndur glæpamaður.
en svona rétt fyrir helgina tel ég rétt að óska ykkur góðrar helgar.
góðs helgis
góð helgu
gjoooonjeðjaaaoooo hejjlleeeeoooojjjslllgeeee
eða eitthvað. farin að tapa niður íslenskunni, enda ekki seinna vænna!
:)
AAAAAAAARG!!!
sjáið bara hvað þettaer ógeðslega FLOTT síða!!
þetta verður held ég barasta ekki mikið flottara en þetta :D
annars er það að frétta að ég fékk mjög góðan mat í gær og var allt kvöldið í GTA vice city, heh. fyrr um daginn var ég einmitt að ákveða dag fyrir stigsprófið mitt. 18. marz. blómar og kransar afþakkaðir.
úff.
jæja jæja?
blogger eitthvað að.....

fimmtudagur, febrúar 27, 2003

jæja, jæja.
nú er bloggið mitt orðið ALFEG eins og ég vil hafa það. þökk sé EKKI blogger sjálfum. jón hjálpaði mér eiginlega ekki neitt heldur, þannig að það er í rauninni bara ég sem er frábær.
ekkert nýtt í þeim fréttum.
áðan var ég í kringlunni að kaupa afmælisgjöf handa ása bróður og keypti svolítið ógeðslega fyndið. að mér finnst. en ég ætla nú ekkert að segja strax hvað það er.... kannski er hann á netinu eða eitthvað svoleiðis. maður veit aldrei. og svo verður LambLæri í kvöldmatinn. Naaaaaaaaaaaaaaaammi naaaaaaaaammi namm namm!!
garg, hvað ég hlakka til :D

hann ási minn á afmæli í dag!!!
orðinn 11 ára.
oooooh dúllu-lúllu-rassgata rófa.
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ÁSI BRÓÐIR
:)