föstudagur, febrúar 22, 2008

útlitsbreyting og djúpnæring

ég er búin að taka ákvörðun um að breyta útlitinu á þessu bloggi, það fer í taugarnar á mér allt í einu (ekki nema 4 ár síðan ég html-aði það).
hins vegar mun örugglega líða mjög mjög langur tími þar til heimurinn sjálfur fær að sjá þessar ljúfu breytingar.
talandi um ljúft, þá verð ég bara gjörsamlega að skella mér í auglýsinga-radda gírinn og segja ykkur frá djúpnæringu sem ég keypti frá Aussiehair. ef þið eruð sjónvarpssjúklingar eða bara fædd eftir 1960 þá sjáið þið án efa fyrir ykkur (og heyrið hroðalegu tónlistina líka) svona hárauglýsingar... ó je.
en ég s.s. keypti svona lítið bréf af djúpnæringu og skellti í mig áðan. liðinn u.þ.b. hálftími síðan ég þvoði hann úr en ég get eiginlega ekki hægt að þefa af hárinu á mér og hrista það framan í spegil.
permanettið góða sem ég fékk mér um jólin er m.a.s. búið að láta AÐEINS bera á sér, eftir 2 mánaða fjarveru og fallegi rauði bjarminn sem kemur stundum á hausinn á mér (ömmu-arfleið í báðar ættir) virðist fíla þetta. semsagt tryllt stemming. tónleikar í kvöld hjá hljómsveitinni sem mér tókst að segja mig úr, brahms 4, rómeó og júlía og eitthvað álíka. hljómsveitarstjórinn ætlar víst að láta alla strengina (nema sellóin ha ha) standa meðan þau spila sinfóníuna. gott hjá honum segi ég nú bara.
ég verð allavega á fremsta bekk með hárið, get þá allavega þefað af því ef mér fer að leiðast.



miðvikudagur, febrúar 20, 2008

madam queen viola hringdi í mig í gær og sagðist ekki ætla að kenna í dag. væri eitthvað slöpp og ble ble.
svo ég ákvað að vera ekkert að stilla neinar verkjaraklukkur. sofa bara út svona einu sinni og hafa það náðugt. svaf þar af leiðandi í næstum 11 tíma.
ó je!
svo lufsast ég á fætur og fæ mér "morgunmat". og getiði hvað?
jú alfeg rétt, ég er algjörlega uppgefin og held ég verði bara að leggja mig smá áður en ég byrja að æfa mig. ég á allt gott skilið.

þriðjudagur, febrúar 19, 2008

Aksjón heimafyrir

Hagley Road þar sem ég bý, er greinilega aðalpleisið, samkvæmt nákvæmum athugunum mínum síðustu tvo daga. í gærkvöldi kom annar svía-sækóinn inn til mín og spurði hvort ég hefði ekki heyrt ópin. óp smóp segi ég og ranghvolfi augunum, gerði fastlega ráð fyrir því að þessi sambýliskona mín væri búin að finna nýja hlið á sálrænum kvillum sínum og þyrfti að deila þeim með mér. aldeilis ekki. gjörsamlega beint fyrir utan gluggann hjá okkur (sem betur fer erum við á 3ju hæð) lá maður og ofan á honum 2 lögreglumenn. seinna komu svo tveir löggubílar með ljósum og látum. svaka stuð (nema fyrir bófann).
varla voru liðnar nema nokkrar mínútur þegar mikill bumbusláttur byrjar. ég opna gluggann og glápi niður eftir götunni... og alfeg eins og mig grunaði (uh... nei) þá var hvítur, loðinn dreki að dansa fyrir utan kínverska veitingarstaðinn sem er rétt hjá. kringum þennan ekkiíþettaskiptið eldspúandi og dansandi dreka voru svo (geri ég ráð fyrir) asískir menn með bumbur að gera bomm-bomm. þessu fylgdi svo einhverskonar lúðrablástur sem hljómaði nokkurn veginn svona:
"HJEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEE"
það hefði verið hægt að segja þessi dreka bissness hefði verið útaf kínverska nýja árinu. en það var í síðustu viku, svo ég veit ekki hvað í óskupunum lá fyrir þessum austurlensku nágrönnum mínum. kannski var svona hrikalega gott tilboð á hrísgrjónum?
maður veit ekki.
svo í dag skall á enn ein fyrirferðin þegar lítill rauður bíll klessukeyrði á gangstéttarsúludæmi á nákvæmlega sama stað og bófinn var gómaður (eins gott það var daginn áður búið að vippa honum inní löggubíl og í burtu). ég var nú bara að æfa mig í rólegheitum (vona innilega það hafi nú ekki verið 5. kafli hindemith sónötu sem olli þessum árekstri) þegar skrans og beygluhljóð berast til mín.
ég lít út og þegar ég sá að enginn var meiddur (stelpurnar stigu allar útúr bílnum óhultar, þó ein hafi reyndar verið grenjandi) tók ég mynd. ég veit ekki hvað sjúkrabíllinn var að ómaka sig við að mæta og hversvegna í óskupunum hann þurfti endilega að parkera rassgatinu á sér út á miðja götu, en svona er þetta stundum.
næst þegar ég leit út var bíllinn farinn og allar stelpurnar, en í staðinn kominn rauðbrún möl.
þetta er kannski svona eitthvað breskt... að merkja alla árekstursstaði með rauðri möl, öðrum til varnaðar?

sunnudagur, febrúar 17, 2008

það held ég nú

ekkert smá mikið afrek að vakna í morgun, fór alfeg á fætur þið vitið... fyrir 10!
fór svo í kirkjuna mína í Smelly Park, stuðstuðstuð á þeim bænum. ákvað svo að stoppa í tesco á leiðinni heim. endaði á því að kaupa köku-uppskrifta bók og hráefni í eina köku.
sem ég var að enda að taka úr ofninum og hún er hundvond :( en sem betur fer keypti ég líka green & black hvítt (litróf.is) súkkulaði sem ég er að kjamsa mér á. mér tókst líka að missa bæði skurðarbrettin okkar úr Ikea bak við eldhúseininguna þar sem vaskurinn er. einmitt sú eldhúseining sem er BOLTUÐ við styrktarveggi í húsinu. eða því sem næst. svo jah.... ný skurðarbretti á næstunni.
hitamælirinn frá yahoo.co.uk segir mér að það sé 7 stiga hiti úti og 40% raki. eh... LYGI! það er svo ógeðslega kalt og rakt ég tel mig nauðbeygða til að fara aðeins undir sæng og lesa.
eða hugsa.
með lokuð augun.

:)

mánudagur, febrúar 11, 2008

ég er farin að horfa á Californication þættina með david duchovny (eða hvernig svo sem í rassgatinu hann stafsetur nafnið á sér) og finnst þeir skemtilegir. ekki MJÖG, en þeir fara EKKI í taugarnar á mér, sem er kúl. kiera knightley eða hvað sem þarna beinabera kústskaftið heitir sem lék í sjóræningjamyndinni er ekki í henni, heldur ekki meril streep eða julia roberts.
aftur á móti er fullt af berrössuðum kellingum og sköllótti kallinn sem lék í boston legal. skrítið.
en allavega, david duchofnei leikur mann sem heitir Hank og er rithöfundur.
svo núna langar MÉR að vera rithöfundur og tel mig fullkomna til þess.

ég er líka búin að vera að hlusta á píkupopp.
svo núna er ég þess fullviss að ÉG gæti vel verið fræg söngkona.

smá mikilmennskubrjálæði? :p
kannski er þetta mótvægi við sænsku sækópattana sem ég bý með. þær kúka í vitlausum litatón og eru í depressjón næstu vikuna yfir því. eru svo harðar á því að þær geti EKKI NEITT af því þær eru svo glataðar.

bíðiði bara þangað til ég verð orðin syngjandi rithöfundur, þá fyrst sökkva þær djúpt í depressjón! hohohohoh! HHAHAHAHA! HMOOOOAAAAAH HOOOO HOOO HOOOO!

ok ekki meira kaffi núna.

tjekk it át!

allt í stuðinu, ákvað að nætta að vera í fýlu. fór líka í ræktina. þaðer svo sannarlega bölmóðs-bani. jáhá há há! svo er ég líka að reyna að skrifa alltaf niður hvað ég er að éta svo ég (skv. kenningunni) farið yfir listann og reynt að læra af honum, minnka skammtana afþví sem er óhollt o.s.frv. þið kannist við þetta.
en ég lendi bara yfirleitt í því að skrá ekki niður þá daga sem ég borða óhollt.
dear me.
svo keypti ég "the independent" um daginn. það er sko dagblað og með því fylgdi lítill bæklingur um einhvejra heimspekinga. bara svona uppá djókið. ég skil nú varla nema aðra hvora setningu það eru svo mörg lööööööng orð sem enda á -ism og -tion og þannig. púff. fór samt aðhugsa pínu heimspekilega.
sko... ef maður gæti valið, myndi maður vilja lifa í framtíðinni? þið vitið.... verið með ALLT á hreinu sem gerist í núinu. VITA hvenær er gott að segja nei eða já og afhverju. sleppa því að kynnast fólki sem maður VEIT á ekki eftir að skipta mann máli 3 mánuðum seinna og þannig. verið alltaf með svona fáránlegan "ég veit" svip þegar fólk er að tala við mann og þannig.
geta kannski leiðbeint fólki sem þarf á hjálp og halda og þannig... æj þetta er of flókið, ég verð sybbin af hugsa um þetta.
ég hef bara alltaf verið á þeirri skoðun, og það ferkar hörð á henni, að ALLT sem maður gerir, segir (og segir ekki) og lendir í, skipti máli. það sé ástæða fyrir hverri einustu drulluklessu sem maður labbar oní og þessvegna sé ég voðalega lítið eftir einu né neinu sem ég hef gert, þó ég hafi nú *hóst* kannski oft fulla ástæðu til.
en svo allt í einu fer ég að hugsa pínulítið, sem hefur nú yfirleitt ekki góðar afleiðingar og þá heldur þessi kenning mín kannski ekki öllu vatninu sem í henni er. hvað ef maður labbar oní drulluklessur stanslaust allt sitt líf?
hvað ef maður lendir í sömu aðstöðunni tvisvar en nær SAMT að klúðra því?
á maður þá bara að segja ókeibeibí og bíða spenntur eftir þriðja skiptinu?
og hvað ef maður lendir í sömu aðstöðunni oft, bregst í hvert skiptið við á miðsmunandi hátt en nær SAMT að klúðra því.
í öll skiptin?

vá þessi bæklingur er á leiðina í tunnuna, alfeg búinn að rugla í hausnum á mér.

djöfull langar mig í ben&jerrys ís með smákökudeigi. njamm.

sunnudagur, febrúar 10, 2008

abi

í staðinn fyrir að fara að sofa klukkan hálf tólf eins og hefði nú verið sniðugt ákvað ég að fá mér hálfan líter af dæet kóki.
það var ekki rétt ákvörðun.
ég er í fýlu og langar heim. bara allt of mikið að gera til að geta "skroppið" heim yfir helgi eða eitthvað.
prump prump.
fýla fýla.
stundum, nei eiginlega alltaf, eru fjarsambönd asnaleg og leiðinleg.

laugardagur, febrúar 09, 2008

jessör

Brahms gekk bara vel. eða svona. kannski ekkert illa, en heldur ekki mjög vel. en þá er bara meira pláss fyrir áframhaldandi árangur, ekki satt?
en svo voru barrokk tónleikar í gær, föstudag. fyrir þá sem ekki vita, en eru mjög áhugasamir, þá er ég öllum að óvörum (og sérstaklega mér sjálfri) orðin aðal Barrokk víóluleikarinn í skólanum. held það sé nú aðallega vegna þess að ég get nokkurnvegin haldið á kassaskrímslinu og hata það ekki út af lífinu að spila á það. barrokk og gömul hljóðfæri eru nú bara allt í læ stundum. en vó hvað var gott þegar tónleikarnir voru búnir. púff!
voru sko búnar að vera massífar æfingar í heila viku og ekkert verið að slá af á tónleikadaginn, æfðum næstum 4 tíma, svo voru tónleikar um kvöldið.
en þetta tókst voða vel, held ég bara, fluttum Messías eftir Handel. jólatónlist segja sumir, jújú, en líka páskatónlist segja aðrir. svo það er kannski bara við hæfi að spila þetta mitt á milli?
en jújú, stuð stuð stuð.
breksa píkupopps-tímabilið virðist ekkert vera í rénum, hlusta hér stanslaust á Leonu Lewis og er farin að syngja með. jahérna...
hey já svo er ég að fara að spila á mánudaginn í forkeppni fyrir konsert-keppnina í skólanum (sá sem vinnur fær s.s. að spila með hljómsveit skólans í lok árs) og leggst það bara vel í mig, FYRIR utan að ég er ekki búin að finna píanista.
hoho!
já það er laugardagur í dag, svo sannarlega. og hvða ætli ég sé búin að spurja marga?

SEX STYKKI!
úff púff. spurning umað mæta bara með geisladisk og taka karókí spil á þetta?
hlýtur að reddast.
:)

annars er ég bara kát og hress, er meira aðsegja að spá í að fá mér ís á eftir. það sást nefnilega til sólar í dag hér í birmingham rigningarviðbjóðsútnára og það var ekki drulluskítskalt.

spurning... ætti að ég að breyta um útlit á blogginu?

L8ER

þriðjudagur, febrúar 05, 2008

ábending til sjóndaufs matargerðarfólks

það er ekki gott (né gaman) að taka úr sér linsur eftir að hafa skorið niður chilli.

það er hins vegar vel vatnslosandi fyrir efri helming andlits.

mánudagur, febrúar 04, 2008

snap out of it bitch!

stundum eru hlutirnir skrítnir. ég er við það að falla á tíma við það að undirbúa Brammsa litla fyrir miðvikudagstónleika en það eina sem mér tekst að gera er að drekka te, lesa blogg og hlusta á breskt píkupopp. og jú ég reyndar límdi Bruch píanópartinn minn.
vandinn virðist að einhverju leyti snúast um fyrrnefnt píkupopp, en þar grenja misgóðar breskar söngkonur um ástina á misgóðan hátt. og gáfulegan. samt sem áður er ég í kjölfarið komin með massa-heimþrá og finnst ég algjörlega ein og yfirgefin. sem er nú bull í meira lagi, hér er allt morandi í fólki.
eða svona.
svo var ég með stæla við kvartettinn minn. samt mjög þarfa stæla og ég baðst seinna afsökunar og útskýrði mál mitt. ég er bara alls ekki til í að vera með kvartettæfingar sem snúast bara um það að blaðra um ekki neitt og spila í gegnum verk. ég vil æfa eins og manneskja, svo er vel hægt að blaðra eftirá. fékk nú samt smá sammara, bretar taka svona yfirlýsingum illa... það er ekki í þeirra kúltúr að bara segja hlutina eins og þeir eru. allt fer fram einhvernveginn án þess að orða það beint út.
óþolandi drasl.
oh jæja.... 5 mánuðir eftir. :)

miðvikudagur, janúar 30, 2008

ekkert bloggað lengi

en það er nú bara stundum svoleiðis. maður er nú samt ekki dauður úr öllum æðum, spilaði t.d. í hóptíma áðan. gekk svona la-la. ekki alfeg jafn la-la og ég vildi sjálf, en í áttina. fékk svo hörkugóð komment og spilaði svo aftur smá. og þá var það la-la betra.
úff.
víólukvartettinn sem aldrei æfir sig (já við erum ekta) hittist í kvöld og át og talaði illa um aðra strengjaleikara. ég gaf öllum "magic beans" sem er örugglega það tilgangslausasta drasl sem ég hef nokkurntíman gefið nokkrum, ef frá eru taldir inniskórnir sem ég gaf jónisæta einu sinni í jólagjöf og voru 3 nr of litlir.
en það var stuð að hitta fólk sem ekki er sænskt og býr með mér. svo hjólaði ég bara heim. maður er svo hress.
byrjuð í GIMMINU fyrir þá sem ekki hafa fengið veður af því. nú er EnnEittSkiptið stefnt á mjónu-lúkkið og allt sett á fullt. það er nú samt rosalega gott að sprikla svona.... ég á næstum því ekki jafn erfitt með að fara á fætur á morgnana og borða voðalega hollan og góðan mat eiginlega alltaf. erfiðast finnst mér samt að hafa hætt að drekka Dæet Kók. sikk?
oh jæja, ég er þá ekki heróínfíkill. enda væru auka fitufellingar þá líkast til minnstu áhyggjuefnin mín.
þvílíkt blaður, ég trúi því ekki ég sé að fara að posta þessu.
oh well, best að gera vont verra og taka af mér mynd :)
xxx (þetta segja bretar í staðinn fyrir koss og knús)

sunnudagur, janúar 20, 2008

blogg í vikulok *dæs*

mér finnst bloggið mitt leiðinlegt. en ég ætla nú samt ekki að gerast blogg beiler eins og svo margir. enda ekkert ég sem les bloggið mitt oftast, haha!
er að gubba úr þreytu, samt lagði ég mig. áttu aðvera 20 mínútur en urðu 2 tímar. búbbs! og þetta sem átti aðvera stóri-langi-ítarlegi æfingardagurinn minn.
en eins og viskustykkið Þórunn Guðmundsdóttir sagði, þá er ekki til leti, aðeins er líkaminn þreyttur og þarfnast hvíldar.
ble.
svo er nú líka allt í lagi að láta reyna á rifþolin í nágrönnunum og æfa til 9 í kvöld. þau hafa ekki kvartað hingað til. og hvað er huggulegra á sunnudagskvöldi en nokkrir klukkutímar af ljúfu víóluspili?
tala nú ekki um hindemith sóló sónötu.

jæjajæja *dæs*

fimmtudagur, janúar 10, 2008

ævintýra-tóta fer í labb

ó já.
eftir að hafa fengið mér kaffi með Yael og átt mjög ítarlegar umræður um lífið og tilgang þess ákvað ég að leggja land undir hjólið mitt og kíkja á líkamsræktarstöð sem (ég hélt) er ofar í götunni minni. hagley road 460. ég bý í 207 og það er ekkert það langt frá hagley rd 1 svo eftir slump-útreikninga gerði ég ráð fyrir því þetta væri nú ekki mjög langt í burtu.
little did i know.
fyrst byrjaði nú fallegi brúnskellótti-blái fákurinn minn á því að hleypa úr sér öllu lofti að aftanverðu. tóta-tilbúin-að-takast-á-við-allt var vitaskuld með hjóladekkja pumpu á sér og ætlaði heldur betur að redda málunum. sem tókst ekki. gatið var greinilega það risastórt að blessuð slím-slangan náði ekki fylla uppí það eins og á að gerast og hefur verið ða gerast síðasta hálfa árið eða svo. ég tek þá þá (lélegu) ákvörðun að rölta með hjólið í fyrrumnefnda líkamsræktarstöð, þar sem hún gat nú ekki verið langt undan, ég var búi nað vera að hjóla í nokkrar mínútur.
little did i know aftur.
Ég er fullviss um að það sé hægt að labba eftir Hagley Road til enda veraldar. eða þangað til maður hnígur niður af máttleysi. eða maður er skotinn niður af glæpaklíkum.
þessi blessuð gata er nefnilega eins og lógaritmi, því hærra sem þú ferð, því lengra er á milli númera (var ekki lógaritmi þannig? stæ 503, je). þannig að ef maður er 15 mín að labba frá nr.1 til 207, þá er maður 30 mín að labba frá 207 til 414 og frá 414 til líkamræktarstöðvarinnar er heil eilífið.
ekki nóg með að langt sé á milli húsa, heldur vantar sum hús líka. og sum hús eru á staðnu en með neglt fyrir glugga og dyr.... frekar spúkí.

en ég lét mig hafa það (duglega-tóta) og komst loks á leiðarenda. rétt svo leit inn um dyrnar og ákvað að þetta væri ekki staður fyrir mig. ekkert nema biksvartir sveittir karlar að PUMPA lóðum (með miklum tilþrifum í látbragði og hljóðum) eða skokka á brettum og það hringlaði svo svakalega í blinga-blinginu að það var eins og maðru væri staddur við mynt-teljaravélina í Landsbankanum.
þannig að við flatadekk röltum okkur bara í rólegheitunum aftur heim.
þvílík stemming.
p-anna (og mamma mín) myndi nú líklega benda á að allt þetta labb væri svo sannarlega góð líkamsræktaræfing og það að springa dekk um kvöld í rólegheitunum er miklu skárra en að springa "snemma" morguns þegar maður er orðinn og seinn í skólann.
ég er aftur á móti bara orðin svöng og pirruð og var því miður að ráma í það að eina hjólabúðin sem ég veit um í birmingham er í smelly park þar sem ég bjó í fyrra.
hinumegin í bænum.

oh jæja jæja

þriðjudagur, janúar 08, 2008

komin út aftur

og það er EKKI gaman. eiginlega bara hundleiðinlegt og svo er rigning og ég á ekkert að borða. og svo virðiðst msn ekki virka allt í einu :(
glatað drasl.

sunnudagur, desember 30, 2007

bubbu rubbu rubbu ruuu

speis takkinn á töllunni er bilaðurog það er að gera mig brjálaða. stuð.
éger ekkibúin að æfa mig fráþví ég kom frá færeyjum, sem er nú frekar heimskulegt af mér. reyndar skal ég viðurkenna að ég er komin með sammara.
annars er það helst í fréttum að svalirnar okkar eru orðnar að sundlaug og "göngum yfir brúna" er á bloggsíðu pálma gunnarssonar. allt að verða vitlaust.

föstudagur, desember 21, 2007

get ekki sofnað... sem er frekar púkó þar sem ég er búin að lofa mér í alls konar rugl á morgun, þ.a.m. að keyra jónsæta í vinnuna. snemma.
hlýtur að reddast.
annað sem hlýtur að reddast er kaup á jólagjöfum, er bara búin að kaupa eina. en ég er búin að pakka henni inn líka, svo það er aukastig.
þriðja sem verður að reddast er jóladagur.

reyndar er svefnleysið alls ekki afkvæmi jóla-kvíða eins og fólk gæti haldið af lestri þessa póst (tala nú ekki um ef það horfir á kastljós líka), baraþetta venjulega.... sykur-ofát.

oh jæja, tilraun númer þriðji klukkutíminn

miðvikudagur, desember 19, 2007

ísland best í heimi

ógeðslega gamall frasi og ofnotaður, en að er nú svossem hægt að segja það sama með "gleðileg jól" og "til hamingju með afmælið" þannig að ég nota þetta baaaara.
er sem sagt komin heim og aldeilis búin að fá að knúsa fólkið mitt, held jafnvel að augun í systrum mínum séu orðin aðeins útstæðari en áður.
fyndin fyndin.
svo er bara þétt dagskrá til Jóla og önnur þéttari til 8. janúar þegar ég á flug út (er strax komin með kvíðahnút og þunglyndi yfir að þurfa að fara). en eins og jóla-glögg-ir (haha aftur fyndin hérna) lesendur vita þá er nú samt alltaf hægt að plata kellinguna í hitting. tala nú ekki um ef viðkomandi lumar á einhverju góðgæti :)
er með gamla góða númerið mitt 868 4317 og svo á ég heima á Hjarðarhaga 64 ef þið eigið leið framhjá í góða veðrinu.
kysskyss
lovjú ol

t

miðvikudagur, desember 12, 2007

ammlisbadn!

jajaja!
kellingin ordin 18 ara aftur. tvilik lukka ad verda ekki 27 i dag eins og margir jafnaldrar minir hafa lent i a arinu.
annars er tad helst i frettum ad eg er a leid til faroe islands lika i dag. var komin halfa leid (koben) i gaer en ta var fluginu aflyst vegna vedurs. tannig eg atti nadasama nott a donsku hoteli. to ekki einsomul, tvi bestiheimi Svafa helt mer vakandi langt frameftir og er i tessum toludu ordum ad notfæra ser morgunmatinn sem eg missti af :)
en nu er tjekk inn og svo eftir orfaar minutur er tad Vågur og mr. Eyjolfsson.

kossar!

föstudagur, desember 07, 2007

er búin að vera í ruglinu þessa viku, nenni bókstaflega ekki að gera RASSGAT. enda svossem ferlega asnalegt að GERA rassgat, svoan þar sem maður er með eitt innbyggt. asnalegt orðtak. allavega. eftir að hafa ekki nennt að æfa mig, ekki nennt að taka til, skrifa ritgerð, tala við fólk, hætt borða mat sem ekki er nammi og drukkið að meðaltali hálfan líter af dæet kók á klukkutíma ákvað ég að vaska upp (það gerir það heldur eiginlega enginn annar).
braut glas og næstum skar af mér hægri þumalinn. fríkaði aðeins út og hringdi í 24 tíma hjúkkusíma (sá sko ofaní kjöt) en þar sem ég lýsti skurðinum sem beinum, hreinum, órauðum og óblæðandi, sagði hún mér bara að vera róleg og hafa engar áhyggjur. sem ég hafði nú samt í smá stund, en eftir að hafa horft á nokkra Heroes þætti uppgvötaði ég að það er fólk þarna úti í hinum ímyndaða heimi sem hefur það mikið verr en ég svo ég róaðist. sárið var líka aðeins byrjað að gróa.
og finn lítið sem ekkert fyrir því í dag. keypti líka töfraplástur sem virðist virka mjög vel. keypti líka svona "gervihúð" í spreybrúsa en þori ekki að nota hana.
keypti líka vinegums en það er búið af því ég át það.
en bíðum við... hvað eru margir dagar í Færeyjar?
jú það er nefnilega alfeg rétt... það eru bara 3. :D:D