á morgun á morgun á morgun!
II: húrrahúrra! :II
er alfeg á límingunum er svo spennt. nenni ekki að æfa mig og nenni ekki að tala við neinn eða vera sósjal. fór í skólann og bara veifaði þeim sem ég þekkti og strunsaði svo aftur út. vá hvað maður getur verið óþolandi.
en það er nú best að pína sig aðeins og sarga smá... auk mr. mostbeloved, er einnig von á víólu drottningunni í bítið á morgun.
púúúú!
þar sem bullið nær yfirhendinni oftar en þig grunar // the blabbering blob
þriðjudagur, nóvember 27, 2007
sunnudagur, nóvember 25, 2007
sofandi sulta og söngvarageðvilla
var bara að vakna... held það sé eitthvað verið að vinna upp svefnleysið síðustu viku og etv. fyrirbyggja kvef. svo getur líka bara vel verið maður sé að drepast úr leti.
er t.d. bara búin að klæða mig í helminginn af þeim fötum sem ég ætti aðvera í, en ef ég fer úr náttbuxunum veit ég að mér á eftir ða verða svo kalt og ég nenni því ekki.
var líka að vona ég gæti bara verið í þeim í allan dag (var í þeim í allan gærdag og það var bara fínt), en svo kom í ljós að ég ÞARF að fara út af því það er ekki til neinn klósett pappír. eða sulta.
ég elska sultu.
reyndar væri ekkert nema sanngjarnt að söngvari íbúðarinnar keypti næsta holl af klósettpappír þar sem hún er búin að vera að snýta sér linnulaust í 2 vikur. grínlaust. ég er orðin fullviss um það að ef fólk snýtir sér of mikið, læknast það EKKI af kvefi. hef aldrei upplifað áður "fullum fetum" söngvarastress út af kvefi. auðvitað hefur maður mikla samúð... passa hljóðfærið sitt og allt það.
en vó
ég er ekki að grínast þegar ég ssegi að hún hafi ekki sleppt snýtubréfinu. það voru klósettrúllur útum alla íbúð, í öðru hverju orði (og hún tala frekar mikið) þurfti að vera pása svo hægt væri að snýta sér. hún tuggði íbúfen (eða hvað í fjandanum það er sem fólk heldur að lækni kvef) eins og dórítós flögur, mældi í sér hitann 3svar á dag. það var nefsprey og hitakrem, fáránlega mikið magn af heilsutei og svo var keyptur einhver voðalegur útbúnaður svo hún gæti nú andað að sér gufu.
hún fór ekki út í viku.
þetta er BY FAR skýrasta dæmið sem ég hef upplifað sem sannar samband andlegrar lækningar og líkamlegar. ég er handviss um að ef hún hefði sleppt því að vera móðursjúk með þessa litlu kvefpest og snýtt sér 80% minna hefði þetta verið búið á degi. kannski tvemur.
en jæja, nú fer að verða aðkallandi ég fari og kaupi klósettpappír.
leitör gæs!

föstudagur, nóvember 23, 2007
firefox í fýlu
elsku browserinn minn er leiðinlegur. allt í einu (já í alvörunni, allt í einu, ég var ekki að downloada neinu drasli) vill hann ekki birta toolsbarinn minn með bookmarks og svo er einhver MEGA púka asnalegur kantur neðst á glugganum sem ég get ekkert gert við.
búhú!
hefur einhver lent í þessu? og veit hvað á að gera?
jónsæti sem er með framhaldsmenntun í tölvunarfræði varð frá að hverfa til að næra sig áður en lausn fannst á málinu.
æj bú.
tónleikarnir gengu bara svakalega vel. fannst mér allavega. ekkert fullkomnir frekar en annað og ansi útúr tjúni, en mér fannst fílingurinn góður og allir FJÓRIR áheyrendurnir litu út fyrir aðvera ekki að deyja úr leiðindum.
sem er nokkuð gott.
jájájá.
-næsti dagur: ég náði að gera við browserinn af því að ég er klár og sniðug :) og auk þess breytti ég lúkkinu svo núna er ég með litlar kisur í staðinn fyrir leiðinlegu örvatakkana til að fara back og forward. vá hvað mér finnst ég vera gáfuð :)

þriðjudagur, nóvember 20, 2007
þessi gamla
nú ætti ég að vera að æfa mig. mjög svo.
en neinei, ég er svo mikið að hugsa um það hvað mig langar í súkkulaði að ég get varla hreyft mig. meira ástandið. svo er kalt og ég er svolítið þreytt. engar nýjar fréttir þar. hoho.
þyrfti líka að fara í sturtu og klippa á mér neglurnar. hvað er eiginlega málið?! maður hefur varla undan að vera á lífi það er svo mikið að gera!
jedúdda.
af öllum þessum verkefnum, held ég það sé best að leggja sig.

mánudagur, nóvember 19, 2007
GEÐVEIKT STUÐ.... og vel það
í Hollandi hjá elsku Línu minni. og fýludýrinu Quincy. :) var reyndar fáránleg að taka myndir, varð batterílaus á föstudeginum og drullaðist ekki til að kaupa ný fyrr en á sunnudegi. sem er frekar glatað. treysti á það að miss Ástgeirsdóttir skelli myndunum sínum inná netið. þær voru vægast sagt svaðalegar. keypti eiginelga bara sokkarbuxur í þessar ferð, en líka eina forláta hjólatösku og eyrnalokka. fór búð úr búð að leita mér að tónleikakjól, en komst að því ða hollendingar kaupa ekki og eru ekki í fínum fötum. bara svona jogging göllum og gallabuxum. í mesta lagi pilsum með asnalegum blómamunstri (oft með ísaumuðum pallíettum).
svo er bara að bretta upp ermarnar (eða fara í stuttermabol) og fara að æfa sig eins og tryllingur, Brahms kallinn verður tekinn í nefið á föstudaginn... eða svona.
takk enn og aftur elsku Lína, þetta var æðisleg ferð! vona svo sannarlega að Batman láti sjá sig með stuðningsfulltrúanum sínum.
Bon Jovi

miðvikudagur, nóvember 14, 2007
húrra x 6
ég er ótrúlega kát núna :)
útaf:
1) fékk víóluna í dag og hún er ÆÐI. er aðeins stærri en gamla mín, en þó ekki svo stór að ég þurfi að breyta neinu nema kannski bara aðeins í hægri hendinni í sambandi við strengjaskipti. hljómurinn er svona fimmfaldur á við gömlu tuðruna og ALLIR strengirnir svara vel... meira að segja c og g strengurinn og MEIRA AÐ SEGJA þegar ég fer ofar en á fimmtu stillingu (sem er nú reyndar algjör óþarfi)
2) mundi eftir því að ég er að fara til Hollands á morgun að heimsækja Línu og Guggý og Laufeyju
3) náði svo að segja að niðurnegla tónleika í desember heim (meira síðar)
4) fékk mér Sausages (pulsur?) í kvöldmat og þær voru mjög góðar. borðaði líka grænmeti = dugleg
5) smakkaði "EXTRA mature Cheddar" ostinn sem ég keypti á markaðinum og hann er óóóóóótrúlega góður. reyndar í það bragðmesta, en það er fílingur. smakkast soldið eins og hestalykt, sem meikar ekki sens að neinu leyti.
6) það er verið að setja upp þýska jólamarkaðinn í miðbæ Burr-(ennþá mega kalt hérna) mingham svo þegar ég kem til baka frá H-landi verður eiginlega bara komin jól og ég get fengið mér heitt jólaglögg og hvítlauksbrauð á leiðinni heim úr skólanum. JUMMÍJUMM!

mánudagur, nóvember 12, 2007
máááááánudagur

átti að fara á æfingu kl. 11 en henni var frestað til klukkan 19. almennilegt :) mér langar nú helst ti lað sofa þangað til. veit ekki hvaða þreyta þetta er, svaf svo aðsegja alla helgina :( en síðasta vika var reyndar algjör martröð með viðbjóðnum shereshasjeid í fararbroddi. tónleikarnir gengu nú reyndar ágætlega, þrátt fyrir allt...
svo eru allir meira og minna að fá kvef og hita og flensu allt í kringum mig. 7 9 13 ég nenni ekki að verða veik, er nefnilega að fara til HOllands á fimmtudaginn! víhí! og svo fæ ég nýju víóluna á miðvikudaginn! :D:D
ætla að byrja á því að fá hana lánaða í nokkrarar vikur til að vera alfeg viss um að mig langi að kaupa hana, en ég prófaði hana í sumar og hún var æði. og þá var ALDREI búið að spila á hana. þannig að við erum að tala um seríós opnun á hljóðfærinu á næstu mánuðum. í ha!
svo er ég að prjóna mér vettlinga af því að það er orðið ógeðslega kalt hérna í brumm-brumm. þeir verða blá-yrjóttir með hvítum röndum. og þumli. ég ætlaði að prjóna mér sokka, en það þarf að vera svo langt stroff ég gafst upp, finnst leiðinlegt að prjóna brugðið.
hóhó.
voða tala ég mikið um mig, mætti halda ég væri söngvari! :) jæja nú ætla ég að sparka í rassinn á mér og fara að æfa mig.
eða leggja mig fyrst í 10 mín.
laugardagur, nóvember 10, 2007
muuuu
éger með heimþrá :( og sv oer ég búin aðvera að éta drasl í allan dag svo mér er illt í maganum. get svossem sjálfri mér um kennt, smá tjútt í gær eftir sinfóníu tónleikana okkar. bilað stuð samt :)
svo er ég að tryllast úr kulda, sef orðið með hitapoka eins og gömlu konurnar. það er samt svoooo gott.
betra væri nú samt að vera heima í nýja rúminu með sæta hlýja manninum sínum.
oh jæjajæjajæja.... bara nokkrar vikur og þá er komið jólafrí.
púúúúú

mánudagur, nóvember 05, 2007
love it!
var að kaupa nýja Radiohead diskinn online. hann heitir "in rainbows", svaka krúttlegt :) var mjög rausnarleg og borgaði þeim 7 pund fyrir. maður má sko ráða hvað maður borgar mikið.
í alvöru sko.
hann er æði, frekar í rólegri kantinum og ekki jafn mikil tilraunastarfsemi eins og í Amnesiac. þeir eru bestir í heimi, mikil vöntun á svona tónlistarmönnum að mínu mati. gaurar sem eru ekki BARA að hugsa um að selja selja og græða græða. og nota fleiri en 4 hljóma í lögunum sínum.
svona oftast :)
það er kmoið haust hérna í birm, sem er nú kannski ekki miklar fréttir fyrir fólkið á íslandi sem er einni árstíð á undan og fagna nú betri á fullu. mér finnst haustið alltaf soldið rómantískt, allir þessir heitu litir og rigning og myrkur...
það er stórt tré fyrir utan gluggann minn sem er á fullu að rífa sig úr laufblöðunum og ég tók smá vídjó af því, þetta er næstum eins og snjókoma, laufblöð að fljúka útum allt. ef ekki væri fyrir 2 sjónvarpsloftnetssnúrur hangandi neðan úr þakinu þá væri þetta virkilega fallegt útsýni.
reyndar eitt vont við að nú sé komið haust í birm, er að nú er byrjað að rigna. og það þýðir að næsti sólardagur verður í lok júlí. allir að senda mér súkkulaði, plís. eða appelsín, vá ég er með þvílík "kreiving" í appelsín. njammm. talandi um það, það er búið að hengja upp jólaskraut í ÖLLUM búðum hér í birmingham og jólaljós í göngugötunni (reyndar ekki búið að kveikja á þeim). og ég er búin að ákveða að skrópa í síðustu vikunni í skólanum, en meira um það síðar þegar öll plön hafa verið niður negld og ákveðin. :)

sunnudagur, nóvember 04, 2007
geðveik þoka
ég er svona að spá hvort ég eigi nú ekki að fara út í búð og kannski kaupa brauð eða eitthvað að borða, á nefnilega ekkert almennilegt að borða. svona þannig.
ég er nefnilega ekkert búin að fara út í allan dag, það er alltaf soldið sækó. var að spá í að fara og kaupa mér hamborgara í stutta stund, en er eiginleg alfeg hætt við það núna.
skemmtilegar pælingar.
annars er svo klikkuð þoka ég er alls ekki viss um hvort ég rati heiman frá mér og útí búð, kannski væri ráð að binda band í hurðarhúninn og taka svo hnykilinn með mér.

laugardagur, nóvember 03, 2007
muuuuu
ég er með heimþrá og það er leiðinlegt. át næstum heila pizzu og er komin með magapínu. oj oj.
en ég fór aftur ámóti í ikea áðan og það var hrottalegt. tók bilað langan tíma þar sem það er útí rassgati. en núna get sagt með stolti að í fína herbergið mitt eru komnar gardínur og teppi og ruslatunna!
veiveivei :)
keypti líka lampa sem leit út fyrir að vera sætur, en svo þegar komin er pera og ég kveiki þá er þetta bara flóðlýsingargripur... alls ekki sætt.
oh well... win some, lose some eins og maðurinn sagði

miðvikudagur, október 31, 2007
iiiiinternetið
ó já!
hversu ég hef saknað þess. er s.s. eiginelga búin að vera stanslaust online síðan BT Broadband Hub var stungið í samband. talaði t.d. við megabeibið Eydísi í klukkutíma í gær... hefði eflaust getað haldið áfram töluvert lengur en við ákváðum að vera almennilegar og fara að sofa um miðnættið, svo talaði ég líka við jónsæta, fann tryggingar fyrir (kannski/vonandi/sjáumtil) nýju víóluna, minidisk spilara sem mig langar að kaupa mér, millifærði, downloadaði nokkrum 24 þáttum (aaaaah Jack Bauer) og núna erég meira að segja að blogga!
gæti varla verið betra.
húrra húrra!

mánudagur, október 29, 2007
LOKSINS LOKSINS LOKSINS
ER miss tótfríður komin með internetið heim til sín!
tók mjög mikið á og er ég þess vegna næstum því með tremma (annað hvort það eða 3 kaffibollar).
þannig að nú veðrur bráðum fjör :D

föstudagur, október 19, 2007
nýjustu fréttir
hæ hó druslurnar mínar, allt svossem gott að frétta. var að hringa í helvandskdjö hálfvitana hjá BT sem ætluðu að senda mér internet draslið. það var semsagt sent heim til okkar 4. október (!) en þar sem enginn var heima fóru þeir bara. ÁN ÞESS AÐ SKILJA EFTIR MIÐA. miða með t.d. upplýsingum um að einhver hefði komið til að afhenda pakkann, eða t.d. með símanúmeri fyrir okkur að hringja í, eða t.d. nafninu á fyrirtækinu sem stendur í því.
já neinei.
svo ég var svo lánsöm að mega eyða 3 klukkutímum (!) í morgun við símann, hringjandi í hinn og þennan. aðallega þennan, þeas BT hálfvita og fíbl. þeir gátu loksins druslast til að gefa mér númerið á sendingaþjónustunnni og þegar ég talaði við þá voru þeir svo indælir að tilkynna mér, að fyrst það væri liðnir meira en 5 dagar frá því þeir reyndu að skila til okkar pakkanum með internetinu, þurftu þeir að senda hann aftur til BT og það eina í stöðunni fyrir mig væri að panta internet pakkann AFTUR! og svo var þetta allt BT að kenna af því að þeir létu ekki símanúmerið mitt fylgja með pöntuninni og svo var ekki hægt að skilja eftir miða vegna þess að stigagangurinn var læstur. HVAÐ MEÐ BRÉFALÚGUNA?!?!?!
EN ALLAVEGA, ég var svo lánsöm að mega panta internet pakkann minn aftur, þurfti reyndar 5 símtöl til (tók svona 40 mín vegna þess að það var alltaf verið að setja mig á bið... er komin með varanlegt óþol af Eine Kleini Nactmusik) vegna þess að þeir voru alltaf að skella á mig (alfeg óvart var mér nú samt sagt).
eftir þessa dramatísku reynslu sparkaði ég í vegg, lamdi símanum í hulstrið, blótaði mjög mikið og henti blýanti útum gluggann.
en nýjustu fréttir eru að sendingin á að koma til okkar "næstu daga" og druslurnar hjá "home delivery" eru með símanúmerið mitt og ÉG er með símanúmerið þeirra, svo þeir munu fá símtöl frá mér á nokkra tíma fresti þangað til helv internet pakkinnn er kominn inn um dyrnar á Hagley Court.
svo var hljómsveitin að byrja og schehcchcerezdhade er leiðinlegasta, ljótasta, verst skrifaðasta verk í öllum heiminum. pirr-levelið er að nálgast hættu stig svo ég er að spá í að fara bara heim núna að leggja mig. eða borða eitthvað.
eða búa til pakkasprengjur.
:)

föstudagur, október 05, 2007
ekki ennþá komin með internetið heim (garg) en að öðru leyti allt í gúddí... get farið í sims og hlustað á tónlist.
í skólanum er eitthvað hljómsveitardrasl byrjað, helmingurinn af prógramminu ágætt, Sibelius 7 og svo eitthvað nútíma ploink ploink (sem er bara ok). hinn helmingurinn er kúkur í poka sem ætti að útrýma sem allra allra ALLRA fyrst. veit ekki alfeg hvernig ég á að lifa það af að spila þetta verk aftur. erum hér að tala um hryllingsverkið Scheheresade eftir Rimsky-Korsakov. væmið getur alfeg verið ok stundum en vó róum okkur á 40 mín sinfónísku verki. úff.
Rivka kemur í hæstu viku, búin að vera túring í Canada og sjett. hún er svo mikil gella. stuðstuð.
en núna ætla ég að skunda mér niður í markað og kaupa Stilton og Cheddar, egg og grænmeti. er búin að lofa mér sjálfri því að kaupa aldrei aftur neitt í Tesco sem ég gæti hugsanlega keypt á markaðinum. markaðurinn rokkar en tesco er eh.... sokkar?
allavega.

þriðjudagur, september 25, 2007
enn á lífi (og í góðum gír)
já há nú er allt að komast í sæmilega lifanlegt form hér í Birminghamminu, er komin með tvöfalt rúm og fataskáp, búin að setja upp bókahilluna mína og nokkurnvegin raða í hana. svo er ég líka búin að redda okkur landlínu og vonandi verður komið internet í gullmolann (íbúðina) minn í þessari viku, eða þá snemma í næstu.
púff!
fór í tíma í vikunni og spilaði alfeg næstum því 3 takta, s.s. gekk bara mjög vel :) svo hélt ég tónleika síðasta föstudag og þeir gengu líka bara mjög vel, tók þá meira að segja upp, gæti vel verið maður skelli þeim ONLINE þegar blessaða geimskipið (borðtalvan mín) er komin uppúr kassanum sínum og nettengd.
húrra húrra.
langaði nú bara ða segja hæ hæ og hóhó...

miðvikudagur, september 12, 2007
ÉG NÁÐI PRÓFINU!!!!!!
og fæ íbúðina afhenta á föstudaginn.
aaah hvað góðar fréttir geta stundum verið góðar :)

laugardagur, september 08, 2007
ho ho ho
ég er búin að stilla lyklaborðið á þessari ljótu skólatölvu þannig að það er íslenskt lyklaborð!
hversu evil er það? heimsku bretar, þeir eiga aldrei eftir að fatta að neðst í hægrahorninu stendur "IS" en ekki "EN". og glætan að einhver kunni að breyta þessu! aaaah hvað er gott að gera svona illskuverk inná milli.
afsaka innilega allt þetta þunglyndi síðustu daga, hef lítið látið heyra í mér, og þá aðallega til að láta vorkenna mér. en svona er þetta bara stundum, það er erfiðara en það sýnist að búa hvergi. ég er nú reyndar kominn uppí herbergi heima hjá vinkonu minni, sem tæmdist óvart þegar ein sambýliskona hennar lenti undir strætó (bara djók, hún fór heim til sín til svíþjóðar í 2 vikur), þannig að nú fæ ég að sofa í rúmi og get lokað að mér þegar ég tek stæðstu "AUMINGJA ÉÉÉÉG!" köstin mín. það er bara fínt. jájá, svo fæ ég að nota þvottavélina þeirra þannig að ég á líka hrein nærföt.
s.s. allt í gúddí!
Skemmtilegustu fréttirnar eru þó að mín eigin (ásamt reyndar 2 öðrum) íbúð er í sjónmáli, fundum eina alfeg geðveikt flotta í gær sem er reyndar soldið dýr, en af því hún er svo geðveikt flott ákváðum við að týma(tíma?) því. en afþví að eiginlega allt í heimi hefur gengið á afturfótunum síðustu 2 vikur ætla ég ekki að segja neitt meira, eða vera neitt súper glöð yfir íbúðinni fyrr en við erum búnar að skrifa undir ALLA pappíra og komnar með lykla og farnar að panta flutningabíl.
jessör.
ekkert heyrst af prófinu. þannig að það er ennþá smá sjens að fá panikk köst og "ég er ömurlegur hljóðfæraleikari" sjálfsvorkunar dýfur.
:)
keep you posted, eins og þeir segja hér í þessu fáránlega leiðinlega landi.
aaadjuu

fimmtudagur, september 06, 2007
profid buid, gekk mjog mjog mjog illa og er alfeg ad kuka i buxurnar eg se fallin aftur. veit alls ekki hvad gerist ta, fae nottla ekki lan og ble ef eg tarf ad taka arid aftur.
aej aej.
svo er eg ekki heldur buin ad finna ibud og tad gengur haegt og illa.
svo tyndi eg simanum minum.
eina jakvaeda er ad tad er sol i birm og eg keypti mer harry potter 7.
nuna mega allir vorkenna mer soldid :)

mánudagur, september 03, 2007
prof a morgun :s
klukkan 15:00, 14:00 a islenskum tima. vinsamlegast hugsid vel til min, eda ta illa til yfirmanns strengjadeildar.
er s.s. komin til birmingham og hef tad nokkud gott bara. er reyndar faranlega stressud, sem gerist yfirleitt aldrei (verd aldrei stressud, sofna bara ef tad er of mikid alag) svo eg veit eiginlega ekkert hvad eg a ad gera vid mig sjalfa. er reynar med stodugan hausverk og stundum flokurt. en tad getur lika verid af tvi eg nenni ekki (og eiginlega get ekki) eldad mer neitt, svo eg er buin ad lifa a ristudu braudi og sukkuladi i viku.
en profid er a morgun svo tetta astand er vid tad ad terminate-ast.
i ofanalag a tessa dramatisku sogu, erum vid EKKI bunar ad finna ibud. skodudum 4 ibudir i dag. 1 var oged, 2 voru dyrar og langt i burtu (en GEGGJADAR) og tegar vid vorum komnar med pennann i hendina ad skrifa undir samninga af teirri fjordu kom i ljos ad tad var nu tegar buid ad leigja hana ut.
faranlega mikil oheppni i gangi.
en vid hofum ekki gefid upp alla von, enda half leidinlegt ad vera husnaedislausar.... svona i alvoru. puffpuff.
en nu aetla eg i sturtu og bursta tennurnar.
VEI!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)