þar sem bullið nær yfirhendinni oftar en þig grunar // the blabbering blob
miðvikudagur, nóvember 09, 2005
vissuðu að fyrsta landið til að veita konum kosningarrétt var Finnland og það var árið 1906?!!
þriðjudagur, nóvember 08, 2005
Tryggðatröllið og heimilisvinurinn Páll Einarsson á afmæli í dag!
ef ég ætti inneign í símanum mínum myndi ég hringja í þig palli minn og ropa eins og vitlaus væri :)
knúsknús sæti, eigðu góðan dag :)

ef ég ætti inneign í símanum mínum myndi ég hringja í þig palli minn og ropa eins og vitlaus væri :)
knúsknús sæti, eigðu góðan dag :)
mánudagur, nóvember 07, 2005
vó
við erum ekkert að djóka með magn af upptökum!
var ég búin að segja ykkur að þetta er kennarinn minn? :D
var ég búin að segja ykkur að þetta er kennarinn minn? :D
room 433 = clean
ég held að þetta herbergi hafi ekki verið hreinna síðan jónsæti kom og heiðraði mig með nærveru sinni í byrjun október. :) og ekki nóg með það, heldur þvoði ég lopasokkana sem mamma mín sendi mér.
geri aðrir betur.
hmm.... kannski ekki svo flókið :p
geri aðrir betur.
hmm.... kannski ekki svo flókið :p
ég fór fram og fékk mér ristað brauð OG horfði á Birth. hún er mjög skrýtin og ekki skerí. kannski smá samt.
og núna ætla ég uppí rúm.
og fara að sofa.
ég er samt ekki þreytt :p
og núna ætla ég uppí rúm.
og fara að sofa.
ég er samt ekki þreytt :p
ég er að hlusta...
... á Flos Campi eftir Vaughan Williams og fýla það.
ógeðslega skrýtið verk. en töff. mjög töff.
er að gera það uppvið mig hvort ég eigi að fara fram og fá mér ristað brauð eða fara bara að sofa og reyna ða vakna snemma á morgun (vakna snemma is for wimps). svo lánaði Ting mér dvd disk (Birth) en ég þori eiginlega ekki að horfa á hana af því ég held hún sé skerí. nenni samt bara alls alls ekki að fara að sofa.
-ég er ekki þreytt.... (foreldrar mínir kannast of vel við þessa setningu)
ó hvað ég á bágt

laugardagur, nóvember 05, 2005
getur einhver sagt mér AFHVERJU kærastinn minn elskulegur er EKKI online?
urgh.
hann er örugglega að hefna sín af því að ég var ekki online í gær :S
mig langar í meira súkkulaði :(
urgh.
hann er örugglega að hefna sín af því að ég var ekki online í gær :S
mig langar í meira súkkulaði :(
föstudagur, nóvember 04, 2005
tónleikarnir....
...voru svo geðveikir að ég bara hef sjaldan heyrt annað eins. Scholl er brjálæðislega góður! og svo er hann ekki með neina stæla eða neitt, gerir bara sín stykki og hneigir sig svo og brosir. og Bandið var sjúúúúúúklega gott! ég hef nú aldrei verið sérstaklega hrifin af svona barrokkhljómsveitum og þannig pælingum, en það var nú bara greinilega út af því að ég hef aldrei heyrt þetta almennilega gert. þvílíkir snillingar. og sama yfirbragðið og Scholl, ENGIR stælar eða tilgerð eða neitt. bara músík.
njammnjammm. var eiginlega búin að gleyma því hvað það er gaman að fara á skemmtilega tónleika :)
njammnjammm. var eiginlega búin að gleyma því hvað það er gaman að fara á skemmtilega tónleika :)
fimmtudagur, nóvember 03, 2005
sýra jóns
mér er illt í maganum og er svöng. samt er mér ekki illt í maganum afþví að ég er svöng og ég er ekki svöng af því að mér er illt í maganum.
merkilegt.
svo er mér kalt á hægri hendinni en ekki vinstri. held ég drífi mig bara í ræktina... eða legg mig.
eða legg mig í ræktinni.
merkilegt.
svo er mér kalt á hægri hendinni en ekki vinstri. held ég drífi mig bara í ræktina... eða legg mig.
eða legg mig í ræktinni.
ég veit ekki af hverju..
... en þessi gaur sem er fremst í röndóttu, (söngvarinn í Franz Ferdinand) minnir mig svo á Gumma kennara...
miðvikudagur, nóvember 02, 2005
ljóta tóta
ég veit bara í óskupunum ekki af hverju ég er ekki búin að drulla mér uppírúm að sofa. meiri helvítis auminginn alltaf hreint. svo er Rivku-dagur á morgun, úffúff. er auðvitað EKKI búin að æfa mig nóg, þó ég sé svo aðsegja næstum því nokkurnveginn eiginlega komin með meira sigg á puttana heldur en ég er með á rassinum af hangsi.
en þetta með nenna-ekki-að-fara-að-sofa dæmið... ég er að reyna að afsaka sjálfa mig með því að ég er að bíða eftir þurrkaranum. hinsvegar veit ég líka vel (og ætti að segja sjálfri mér það) að þessi þurrkari er löngu búin að þurrka, ég nenni bara ekki niður fjórar hæðir, út í rigningu og rok, ná í þvottinn og svo út í rigningu, upp fjórar hæðir og svo að sofa.
það er líka vesen að fara að sofa, maður þarf að bursta tennurnar og fara í náttföt... slökkva ljósið og guðminnalmáttugur taka allt draslið af rúminu svo hægt sé að komast upp í það.
þvílíkt sem á mig er lagt....
jæja on I go

mánudagur, október 31, 2005
aaaahhh....
Ég hélt ég væri orðin of gömul fyrir svona, en hún spyr víst hvork´um stétt né stöðu... aldur, kyn né starfsreynslu. ég er nefnilega orðin ástfangin.
*andvarp*
Brahms píanó kvartett í A-dúr, op. 26 hefur laumað sér inní hjartað á mér og er alfeg að gera mig óða.
ástæðan að ég hélt mig of gamla var vegna þess að þegar ég var yngri var þetta alltaf að gerast, ég kolféll fyrir einhverjum verkum og gerði stundum ekkert annað heilu oghálfu næturnar.... hvernig læt ég?! heilu og hálfu mánuðina sat ég og horfði með heimskulegu unglinga-augnaráði út í loftið og fannst ég hafa fundið hina einu og sönnu hamingju.
núna er maður orðinn mikið "þroskaðri" og "vandlátari" og í stuttu máli svo uppfullur af sjálselsku og skít að maður sér (heyrir)ekki lengur það einfalda. er svo upptekin af bulli eins og borgareikninga, fara snemma að sofa, drekka 2lítra ádag af vatni, og þannig hlutum að svona gull gerast ekki lengur.
nema núna! hohoho! ég fékk óvart lánaðan Brahms disk um daginn af því ég hélt að hann væri með píanó kvintett á, en nónó miss stupid, þar var ekkert annað en 2 píanó Kvartettar. tilviljun? nei ég held sko aldeilis ekki. svo núna sit ég tímunum saman (er ennþá of upptekin við að hugsa um asnalega hluti til að leyfa mér lengri tíma) og glápi útí loftið með ennþá heimskulegri svip.
aaaaah....
sunnudagur, október 30, 2005
núna er ég búin að setja upp svona ONLINE dagatal. voðalega sniðugt, segi ekki annað. og það sniðugast við það er að þið, mínir kæru vinir, getið skellt einhverju þar inn líka (eða ættuð að geta ef þetta virkar almennilega). þannigað nú hvet ég alla til að setja afmælisdagana sína og komandi partý og fleira í þeim dúr :)
húrrahúrra!
húrrahúrra!
skoðunarkönnun
Nú er ég búin að setja upp skoðunarkönnun af því að ég er búin að vera í stökustu vandræðum með að hlusta á tónlist í tölvunni minni. annað hvort virkar dótið ekki eins og ég vil, eða það er bara asnalegt og OF merkilegt með sig.
eh...
allavega, allir að vóta
eh...
allavega, allir að vóta
laugardagur, október 29, 2005
lincoln bílar...
gaurarnir hjá lincoln bílaumboðinu á íslandi eru ekki bara bílasalar, heldur skáld.... tjekkið á þessu:
"Lincoln er handverk sem er unnið af alúð og myndar glæsileika sem á sér enga fyrirmynd. Tilfinningin er einungis þeirra sem reynt hafa. Þú ekur Lincoln og heldur þig á flugi og mjúkum skýjum. Veldu LIncoln."
síðan fyrir áhugasama

föstudagur, október 28, 2005
fékk mér dæet kók, 175 grömm af matlesers kúlum og talaði við jónsæta á skype.
þannig að ég er ekki lengur í fýlu :)
er að fara að horfa á futurama. víííí haaaaa!
þannig að ég er ekki lengur í fýlu :)
er að fara að horfa á futurama. víííí haaaaa!
fimmtudagur, október 27, 2005
um daginn stóðst ég ekki lengur freistinguna og keypti mér intense XXL, volume + length micro fibre maskara. hljómar soldið eins og nafn á klámmynd eða rosalega sterkt efni til að eyða bílalakki, en neineinei, þetta er sko maskari. strákar: svona svart til að setja á augnhárin.
þetta mikla undratæki sem ég keypti hefur verið auglýst óendanlega mikið og allar auglýsingarnar eiga það sameiginlegt að vera hroðalega hallærislegar og eiginlega bara hálf vandræðalegar. eru að reyna að ná fram einhverjum voðalegum kontröstum með því að hafa allt svart eða hvítt. eina svarta stelpu og eina hvíta. ein í röndóttum bol og hin í doppóttum. úff. en þetta keypti ég mér nú engu aðsíður og prófaði að klína þessu á mig áðan. sem var reyndar bara mjög fyndið.
fyrst setur maður sko eina umferð af hvítum maskara sem lítur út eins og jógúrt og svo bíður maður smá stund og lítur út eins og afturganga á meðan og svo setur maður svarta umferð. þetta er nú meira ferlið. en ég er bara sveimmér þá mjög sæt... eða hitt þó heldur.
lít út eins og einhver hafi kramið 2 kóngulær sitthvoru megin við nefið á mér, augnhárin á mér verða svo löng að þau rekast í augabrúnirnar á mér.
brjáluð stemming.
tók svo myndir af mér bara afþví að mér leiddist svo. :)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)