þriðjudagur, september 09, 2003

stuð hjá tótunni öll kvöld
ég ábiggilega skemmtilegasta vinkona þeirra Berglindar og Huga, vegna þess að auk þess að koma í innflutningspartyið þeirra (og vera með geggjuð læti, blikka ALLA sætu strákana (líka þessa sem voru með kærusturnar með sér), koma svo daginn eftir og ná í það dót sem ég geymdi, þá fór ég líka til þeirra í gær, klukkutíma seinna en ég var búin að segjast og fékk kaffi, kakó, köku og gervirjóma.
Yeah!
maður er svo ógeðslega skemmtilegur að það hálfa væri geggjun.
annars er allt meinhægt, (fyrir utan hvað ég er ógeðslega skemmtileg) er að fara á æfingu í kvöld með Sinfóníu HljómsveIT áhugamanna og æfingin verður í Seltjarnarneskirkju (ég verð s.s. 2 tíma á leiðinni), þetta byrjar kl. 20 og er til 22.30. hvað er eiginlega málið? ekki nóg með að manni er hent uppí sveit, þá er þetta langt fram á nótt!
sem betur fer fæ ég nú far með henni Elsku Elfu minni. ég næstum því vildi óska að ég spilaði á fiðlu (NOT) svo ég gæti nú setið við hliðina á henni og verið með læti....
nýr linkur kominn, yfir til Eleonoru í Frakklandi.
yeah!

mánudagur, september 08, 2003

CWINDOWSDesktopGump.JPG
Forrest Gump!


What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla

oh well.... hann fékk að ríða undir lokin :)
Radiohead - Hail to the Thief
oooooh ég var að kaupa mér svo góðan disk!
hann er svo góður! garg!
þetta er besti diskur í heimi!
ég ætla að taka með mér vasadiskó í gröfina og hlusta á þennan disk þar. ég fékk hann reyndar á útsölu (1499), en þótt hann myndi kosta helmingi meir myndi ég samt kaupa hann.
ég er jafnvel að spá í að kaupa mér annan. svona ef ekkvað skyldi nú koma fyrir hinn.
neidjók.
það er kannski einum of...
en góður diskur maður.
sjö stjörnur af fimm
Sex without love is an empty experience, but as empty experiences go, it's a pretty good empty experience.
-Woody Allen


Jónína úr Breiðholtinu
...kom ekki í partýið hjá mér á laugardaginn og ÞAÐ ER EKKERT LÍTIÐ sem hún missti af. þetta varsvo skemmtilegt kvöld að ég brosi og brosi og brosi :D
það var svo skemmtilegt að ég get eiginlega bara ekki lýst því. svo ég ætla bara að lýsa því stuttlega hvað gerðist. eh?
byrjaði um átta leytið þegar Eyfi, Vignir og Tinna sætilíus komu í mat hjá mér. skáluðum að sjálfsögðu í OFUR sætu bleiku kampavíni og settum upp party hatta sem vignir fann inní skáp. svo átum við og átum þangað til að augun í okkur voru orðin útstæð, þá tókum við okkur til og rúlluðum yfir í sófann. þar drukkum við ógeðslega mikið af bjór og vorum flissandi og asnaleg þegar iðunn, svava og hildur brynja komu askvaðandi, fóru svo eiginlega strax aftur, en komu svo aftur.
vantaði bland sko.
eydís bætti betra oná gott með nærveru sinni og dagga uppáhalds miðju systir mín var ekki leiðinleg heldur. Bara bilaði Bjarni leiklistarnemi kom með bleik sólgleraugu og hræðilega hárgreiðslu (sem ég bjargaði á Nó Tæm, enda þokkalega öflug í hárinu). rétt fyrir endalok kom hinn Fjallmyndarlegi Hlynur og Bergþór sem var í flottum jakkafötum og urðu samferða öllum nema okkur fjarðarfólkinu í bæinn. við aftur á móti sönnuðum það fyrir almættinu að Fjórir geta ekki sofið í rúminu mínu í einu.
gott að hafa það á hreinu samt :)
Skemmtilegasta party í heimi. enda vorum við Vignir flissandi og tístandi eins og smábörn allan sunnudaginn, vorum sko memm alfeg næstum því í 48 tíma.... algjörar samlokur. :)
ég held ég verði bara að lýsa því yfir með minni þekktu hógværð að ég held skemmtilegustu partý veraldarsögunnar. Í HEIMI! :D :D :D

föstudagur, september 05, 2003

um að gera að breyta aðeins til fyrir helgina :)
vó!
við erum að tala um að þetta er KANÍNA! drottinn minn dýri....hefur ekkvað verið á flippinu með hárnæringuna þennan daginn, svo ekki sé meira sagt.




hún er nú samt soldið sæt :)
ég er í góðu skapi
kannski af því að ég fór í svo ógeðslega skemmtilegan söngtíma í morgun, eða af því að ég svitnaði svo mikið í leikfimi áðan að konan við hliðana á mér hótaði að koma í stígvélum í næsta tíma. eða kannski vegna þess að mið-nefs-uppskorninga-læknirinn hans Vigis er veikur (ábiggilega með kvef, haha!) svo að það verður að fresta aðgerðinni um viku. YEAH! þá getur vignir verið memm á morgun og verið með ótrúlega mikil læti ásamt mér og eyfa. hoho! aldrei að vita nema einhverjir fleiri blandist í hópinn. annars er nú ekki sniðugt að vera að auglýsa partý á blogginu sínu.... en ég er ekkert búin að segja hvar það verður! HAH!
svo er ég aðhlusta á píkupopp á dansk radio stöðinni "Ghetto", þeir sem ekki verða kátir af þeirra tónlist eru annaðhvort steingeldir eða fýlupúkar. hér er allt gjörsamlega löðrandi í stemmingu, verð bara að segja það...
hey! svo voru gellurnar uppi á símanum að gefa mér bakpoka sem er geggjað flottur og dökkblár. reyndar með FOKKING ljóta "Nordisk Arkiv" merkinu á. sem er fokkin ljótt. en ég skelli bara einhverju yfir það. eða hef hann úthverfan.
já eða sætti mig bara við það að bakpokinn er með ljótu merki á....
gott hjá mér.
svo gæti nottla líka verið að ég sé að tapa glórunni.
kannski líklegast...
Yeah!




fimmtudagur, september 04, 2003

nýr linkur
og ekki af verri taginu, heldur bara sá hinn sjálfur í eigin persónu, Hjörtur úr Hljómeyki!
þetta hljómar nú næstum eins og ekkvað listamannanafn, jahér :)

www.moldvarpan.blogspot.com
það er geggjað langt síðan ég hef hlustað á koRn af einhverjum mætti. en nú er sá tími minnar ævi kominn á ný.
ROKK OG RÓL!
búin að fá nóg af helvítis píkupoppinu. YEAH!
ég ætlaði að halda brjálað matarboð á laugardaginn af því að þetta er fyrsta fríhelgin hans vignis í marga mánuði, við ætluðum að djamma þvílíkt og vera með snarklikkuð læti.
svo fer fólk bara að bryðja sýklalyf eins og það fái borgað fyrir það! eins og maður geti ekki farið í nefaðgerðir alla daga, allt til enda veraldar.
hrumpf.
svo þykist hinn fjölkvæningurinn minn ætla að fara uppí sveit! ég held nú síður!
þetta kallar maður vini sína!
ég er næstum því soldið fúl, nú verð ég að halda brjálað matarboð með einhverjari annari yfirskrift og djamma tvöfalt meira og vera með snarklikkuð læti á við tvo, eða þrjá.
jah það er ekki fyrir hvern sem er.
nú ætla ég að hlaupa útí búð og kaupa mér ís með honum jóni sæta áður en að allir verða ógeðslega fúlir :p
yfir Ebró-fljótið Sökkar!

ég er ekki ennþá búin að lýsa yfir þeim ótrúlega bókmenntasigri sem mér hlotnaðist nú ekki fyrir skömmu, en ég náði nefnilega að klára bókina "yfir Ebró-fljótið" eftri álfrúnu gunnlaugsdóttur. er þetta lang lang lang leiðinlegasta bók sem ég hef á ævi minni neytt sjálfa mig til að þræla mig í gegnum. ég er nefnilega haldin þeim kvimleiða vana að klára þær bækur sem ég byrja á. hryllingur. þarf endilega að venja mig af þeirri vitleysu.
hún er bæði löng, leiðinleg, illa skrifuð og tilgangslaus. umfjöllunarefnið er glatað, frásögnin léleg, eitthvað helvítis kort gegnum gangandi í alla bókina, svo maður er alfeg að verða geðveikur. hverjum er ekki sama hvað hæðirnar á spáni heita? garg. aðalsögupersónan er svo DULL að ég hef aldrei kynnst öðru eins. hann er alltaf í fýlu, hefur engar skoðanir og breytist ekki á einn né neinn hátt í gegnum alla söguna. svo maður gæti í rauninni lesið síðasta kaflann strax á eftir þeim fyrsta og ekki missa af neinu. plottið er það að konan hans er dauð og hann fattar það ekki fyrr en í síðasta kaflanum.
ho! nú vona ég svo innilega að ég hafi eyðilegt bókina fyrir einhverjum. þeas, eitt góðverk enn í góðverkabanka þórunnar.
semsagt, í beinum úrdrætti... leiðinlegast bók í heimi. ég held svei mér þá að viðskiptablaðið sé skemmtilegra.

miðvikudagur, september 03, 2003

það er stemmari
... að vera búin að fara í tíma til Gumma og fá hell-hell-helling af nýjum flottum lögum og æfingum. ég ætla að vera víólu nörd til dauðadags.

þriðjudagur, september 02, 2003

ekki stíga á endurnar!

Þrjár konur lentu saman í bílslysi og dóu allar og fóru saman til himna. Þar tók Lykla-Pétur á móti þeim og sagði: Við höfum bara eina reglu hér og hún er sú að það er bannað að stíga á endurnar. síðan fengu þær að fara inn um himnahliðið og það voru endur út um allt. Það var næstum ómögulegt að stíga ekki ofan á einhverja þeirra og þó þær pössuðu sig eins vel og þær gátu fór svo að ein þeirra steig ofan á eina öndina. Um leið kom Lykla-Pétur með þann ljótasta mann sem hún hafði augum litið. Lykla-Pétur hlekkjaði þau saman og sagði: Refsing þín fyrir að stíga ofan á önd er sú að þú verður hlekkjuð við þennan þennan mann að eilífu. Daginn eftir lendir kona númer tvö í því að stíga ofan á önd og um leið birtist Lykla-Pétur með annan skelfilega ljótan mann og hlekkir þau saman með sömu ummælunum. Þriðja konan sem hafði fylgst með þessu öllu og vildi alls ekki lenda í því sama og þær, passaði sig alveg sérstaklega hvar hún steig niður. Henni tókst að þrauka mánuðum saman en einn daginn kom Lykla-Pétur með þann fallegast mann sem hún hafði séð. Löng augnhár, massaður, grannur og allur pakkinn !!! Hin heppna kona stundi: Ekki veit ég hvað ég gerði til að verðskulda að vera hlekkjuð við þig um alla eilífð. Fallegi maðurinn svaraði: Ég veit ekki um þig en ég steig á önd !!!

mánudagur, september 01, 2003

Ástin er í a-moll
jeminn eini. nú er ég að hlusta á 2. þáttinn úr píanókonsertinum hans Grieg. oh! þvílíkar gæsabólur sem hlaupa hér um allan skrokk. hvað er eiginlega AÐ? mætti halda að ég hefði verið að fá bréf frá strák í Lettlandi sem spilar betur á horn, heldur en ísland er svart í janúar og ég var þvílíkt hrifin af í fleiri, fleiri mánuði, öllum (sérstaklega mér) til mikillar gremju.

um daginn, gott ef ekki bara í gær, spurði geðgt fallegur strákur mig hvort ég hlakkaði ekki til að nú væri að koma vetur og myrkur. ég svaraði : "jú auðvitað, þá get ég farið að kveikja á kertum, vorkenna mér og vera þunglynd í friði frá þessu helvítis pakki sem er alltaf að troðast upp á mig yfir sumartímann."
en svo fór ég að hugsa (eins og maðurinn í 10-11 auglýsingunni) og fattaði að eiginlega líður manni betur á veturnar, VEGNA þess að maður getur verið í fýlu í friði og þarf ekkert að vera alltaf í góðu skapi. en af hverju ÞARF maður að vera í góðu skapi af því það er gott veður?
af hverju eru íslendingar svona Ógeðslega uppteknir af sambandi veðurs og lundarfari?
það er eins og maður MEGI vera í fýlu inni hjá sér ef það er myrkur. æj bleah. þetta er skrítið blogg.
en ég er alfeg kominn með þetta fyrirsagnakerfi. það rokkar.
söngkonu-bloggá föstudaginn fór ég í fyrsta söngtímann minn. það var aldeilis skemmtilegt svo ég öndersteitmenti þetta nú aðeins. kom mér einstaklega á óvart hvað ég er með hryllilega ljóta og áheyrnarslæma rödd. úff. en hún hefur þá ekkvað að gera manneskjan í þessum tímum! ekki er maður að borga fúlgur fjár fyrir að vera fullkominn og gera ekkert.
jeeeeess. :)
en áfram hélt menningin á föstudeginum, skundaði til Guðnýjar Birnu með eitt stykki óperu í hendinni og rauðvín í hinni. en óperan mun vera hin franska, H-rómantíska Lakmé. ferlega falleg. við fórum líka og keyptum osta og kex og grænar ólífur með steinum (mmmmmm). svo var hlustað þangað til Guðný sofnaði, en ég hélt ótrauð áfram, enda er þetta uppáhaldsóperan mín. sniff sniff og snökt snökt.
hún endar svo sorglega, blessunin. svona er maður orðin mikil söngdrottning, ekki nóg með að maður sé að æpa þetta fram og til baka, heldur er maður með þetta í eyrunum hálfandaginn líka. jeremías minn, hvar endar þetta eiginlega?
talandi um fólk sem hefur lokið söngnámi sínu, þá sá ég Hildigunni áðan og hún var á hlaupabretti.

sumir blogga alltaf með svona fyrirsögn. ég veit ekki hvort ég fýla það. kemur í ljós.
en HVAR er hann Jón minn?

föstudagur, ágúst 29, 2003

góða helgi ljósin mín
ég var OFUR-Hommahækja í gær, fór með fjölkvænishópnum mínum (inniheldur ljósálfana Eyfa, Hjört og Vigni) bæði á samtökin og á café cozy. svaðalegt fjör. samtökin voru kannski örlítið svaðalegri, enda leðurhommafélagið allt í heild sinni (svo að segja) á staðnum.
en áður en ég fór út í að þræða homma bari reykjavíkur fór ég í afmælisveislu heima hjá henni ömmu minni. og í enn eitt skiptið rann það upp fyrir mér hve mikið afskaplega á ég sæta og skemmtilega fjölskyldu. Vilborg litla systir er að Farast úr ofvirkni, enda nýbyrjuð í skóla. hún tekur skólatöskuna sína með sér hvert sem hún fer og sýndi mér bæði pennaveskin sín, vatnsflöskuna og sundpokann allavega þrisvar, söng, hló, öskraði og hljóp um húsið með Batman á hælunum. Batman er s.s. Sverrir litli frændi minn sem er bæði sætur og smámæltur og finnst ekkert skemmtilegra en að rífa sig úr sem flestum fötum á sem skemmstum tíma. svo er Batman búningurinn hans með magavöðvum framan á, ekkert smá töff.
Hin LITLA systir mín var ekki aaaaalfeg jafn áhugasöm um nýja skólann sem hún var að byrja í, og var eiginlega sofandi vel framan af matarboðinu og talaði svo illa um skipulag skólans hinn helminginn.
svona næstum.
svo sagði afi krummafótsbrandara og sigrún brandara um meyjarhaft í kaþólskri stelpu, amma komst næstum því á ættfræðings-skrið þegar við fórum að tala um ekkvað fólk útí bæ og svei mér þá ef að Kiddi frændi skutlaði bara ekki frá sér nokkrum góðum skotum, aldrei þessu vant :) þetta var allt saman ákaflega hressilegt og ekki minnkuðu hressilegheitin þegar Eyfi og Vignir komu askvaðandi og drukku kaffi við mikinn fögnuð viðstaddra.
mega tsjill á vesturvanginum, rokkon!

fimmtudagur, ágúst 28, 2003





hún DagbjörT amma mín á afmæli í dag er orðin 65 ára. til hamingju með afmælið elsku amma mín!
*koss og knús*