miðvikudagur, júní 16, 2004


Örlög Tuma


Laugardaginn 19. júní 2004 klukkan 20:00 mun strengjakvartettinn Tumi ásamt djass-hljómsveitinni Örlög halda tónleika í Tjarnarbíó.

Tumi ætlar að spila Borodin strengjakvartett nr. 2 í D-dúr fyrir hlé og svo munu Örlögin taka völdin og spila nokkra vel valda slagara (meira að segja einn frumsaminn). í tvemur eða þremur lögum mun Tumi svo gerast svo djarfur að spila með líka. hvet alla til að mæta, kostar 1000 kall inn fyrir venjulegt fólk en 500 kall fyrir aumingja (námsmenn).

tónleikarnir eru til styrktar MS-félaginu á Íslandi en aftur á móti styrktir af Actavis.


Rokk og Ról, allir að mæta!!


...16. júní...
Posted by Hello
komin í vinnuna, var á tuma æfingu í morgun, sem byrjaði illa og svo gekk alltaf verr og verr þangað til allt í einu að allt varð frábært og svo hnökralaust að við trúðum varla eigin eyrum. svona geta hlutirnir nú verið sniðugir :)
en ég held það sé kominn tími á Plögg...

þriðjudagur, júní 15, 2004

jæja, þá er maður bara kominn í beina útsendingu frá íslandi í dag. í dag. við baldur erum hér í góðum fíling að bíða eftir ða lappað verði upp á guggý, ekki sjón að sjá hana, á ekki að sminka hérna eða hvað?
það held ég nú. við erum búin að sjá fullt af frægu fólki, veðurfréttamanninn og kallana í 70 mínútum, fréttamennina og gaurinn sem er í íslandi í dag. í dag.
stuð. jájá.
allir að horfa á ísland í dag, Í DAG, eða kvöld vegna þess að hljómsveitin Örlög mun taka eitt lag í lokin. með þeirri ágætu grúbbu spilar einmitt hinn undursamlegi strengjakvartett TUMI. þetta verður þvílíkur hitter að annað eins á varla eftir að reka uppí fjörur landsmanna.
jájá.
en nú verð ég bara að hlaupa heim í sturtu og falleg föt.... :D

mánudagur, júní 14, 2004

TTwisted
ó
TTrustworthy
AAmorous

Name / Username:


Name Acronym Generator
From Go-Quiz.com

soldið glatað...
klappstýra aldarinnar
ókei maður heldur að þetta sé djók svona fyrst.... en nei nei... it goes on and on! Eða það heldur áfram og áfram, í íslenskri þýðingu


Posted by Hello
eins og sést er ég mjög kát og brún. fórum sko í hvalaskoðun á Húsavík, sem er bæðevei ótrúlega flottur bær, og ég sólbrann. reyndar sólbrenn ég nú það snögglega að oft er nóg að spáin sé góð til að ég finni fyrir svíða í kinnum og nefi. það að vera sólbrenndur á nefinu er ógeð, var einu sinni með kvef og sólbrunnin á nefinu (hvað er málið með það?) og það var ekki skemmtilegt.
það var svo gaman á illugastöðum að ég á eiginlega erfitt með að segja frá því án þess að klökkna.
þvílík snild!
þvílíkur matur!
þvílíkt át!
þvílíkur svefn!
og þvílíkur maður!
Jón Viðar Þorsteinsson fær hér með verðlaunin "besti kærasti í heimi" fyrir bæði að borða meira og sofa heldur en ég, svo ég myndi nú ekki fá samviskubit. við tókum í kjölfarið þá ákvörðun að hætta að reyna ða komast í kjörþyngd... reyna frekar að komast í kjörþyngdir, þeas kjörþyngd tveggja manna. eða fjögurra ef við teljum okkur öll.
flókið?
ekki jafn flókið og að vakna skyndilega á mánudagsmorgni og átta sig á því að maður verður að fara í vinnu. oj bara.
ég tók reyndar eina ferska TUMA æfingu á þetta og var bara kát og hress, enda búin að steypa í mig kaffi á við alla kjörþyngdarmennina okkar jóns. plögg síðar. plöggplöggplögg

föstudagur, júní 04, 2004

tónó djamm á morgun, laugardaginn 5. júní!

verður við félagsheimili orkuveitunnar, Rafstöðvarveg í elliðaárdal. mæta 18:00 og vera reddí tú rokk!!
bið þá sem ég sendi sms velvirðingar á því að gleyma að taka fram hvenær djammið væri.
:D

mætið!
maður er bara þokkalega að passa Símann (einsog Frímann...) hérna á skjalasafninu, algjör snild. er líka búin að vera að ljósrita veðmálabækur og túnakort. allt að tryllast.
var annars áðan á æfingu með elsku Tuma mínum. úff hvað það var gaman, ég er alfeg á því að verða víóluleikari í strengjakvartett alla mína æfi, það er svo ógeðslega skemmtilegt :D :D
athöfnin í gær gekk bara ofsavel (þótt að jóni hafi fundist víólustykkið mitt leiðinlegt) og kökurnar og KAFFIÐ voru svossem enginn viðbjóður, mér fannst nú samt vanta soldið upp á stemminguna og var fljót að hlaupa heim og stúta kippu.
nei.
svo kom það uppúr dúrnum að frú Helga Guðmundsdóttir, sem sjóðurinn er skírður eftir og er í minningu um, er náskyld mér. eða svo gott sem. eða hvort það var maðurinn hennar? einhver langafi minn og jah... einhver pabbi hennar eða ble... tjah... báðar ömmur mínar útskýrðu þetta fyrir mér, amma D. kom meira að segja með mjög ýtarlegar útskýringar og rakti ættir okkar aftur í þónokkurn tíma. ég missti þráðinn hins vegar á öðrum eða þriðja lið og er því ekki til afspurnar. amma B. varð hins vegar yfir sig hrifin að hitta loksins fólk á sínum aldri (orðin nett pirruð á að umgangast okkur óþroskuðu mæðgurnar) og fannst allt í einu hugmyndin að fá sér ellismells-íbúð ekkert svo galin.
jábbjábbjább!

svo er það tónó-sumar-djamm annað kvöld! allir memm :D

miðvikudagur, júní 02, 2004

þriðjudagur, júní 01, 2004

PLÖGG-PLÖGG-PLÖGG-PLÖGG-PLÖGG (....mér líður soldið eins og trölli í blautum stígvélum)

eftir að hafa fengið 3 mismunandi dagsetningar hjá "tryllta tvíeykinu" var hin fjórða auglýst við skólaslit tónlistarskóla hafnarfjarðar að áheyrandi 400 manns, svo ég ætla að halda að hún standi.

FIMMTUDAGINN 3. JÚNÍ (daginn sem amma verður 75 ára, en það er leyndó) fæ ég styrk frá minningarsjóði Helgu Guðmundsdóttur og verður styrkveitingarathöfn í Hásölum Hafnarfirði kl. 17:00. ungfrú tótfríður harðdal mun að því tilefni spila 2. kaflann úr Marchenbilder eftir Schumann auk þess að syngja lagið Litanei eftir Schubert. svona schu-þema.
endilega mæta :) kökur og kaffi á eftir í boði tónó. vona ég allavega...
sleep
Oh no, you're always so sleepy- the Garfield who
naps the whole day long! Wake up, won't you?


What Garfield Personality do you Have?
brought to you by Quizilla

Posted by Hello
fór á KORN á sunnudagskvöldið með ása litla bróður og þórunni og bróður hennar. djöfulsins helvítis rokk og ról! algjörir snillingar verð ég að segja, það var klikkað að sjá þá á sviði! eiginlega uppáhaldshljómsveitin mín, svona svo maður sé nú væminn. en það var svo soldið mikið fyllerí, fannst það nú frekar leimó, hefði aldrei nennt að vera full á þessum tónleikum, vildi sko ekki missa af einni einustu mínútu eins og ein stelpa (sem ég reyndar veit hver er) sem lá upp við pallana hjá sviðinu útúr drukkin og allaveganna sá ekki neitt. en hún hefur kannski hlustað...
svo keyptum við systkinin okkur boli. eða ÉG keypti boli á okkur systkinin og pungaði út einum fimmara fyrir 2 stykki. keypti þó ódýrari týpuna. djöfull er maður geðveikur.
en nú er það bara Korn á fóninum 24-7, eða svo gott sem. og nýji diskurinn er svo gott sem keyptur! (bíð þó þangað til í fríhöfninni 22. júní....)

föstudagur, maí 28, 2004

Academic
You are Barbatine! You are well-read and love to
learn. You were gloomy in your youth and found
nothing you liked to taste, but you're older now,
and have an incisive sense of humour that
makes you and others smile.


Which Barbapapa Personality Are You?
brought to you by Quizilla

harðsperur
eins og sést þá er ég AFAR mygluð svo ekki sé meira sagt. fór í mesta masókistatíma sem hægt er að hugsa sér, rmp, eða rpm eða "rip my heart out". svona spinning tími. ég lenti að ég held á gölluðu hjóli, allavega var ég allantíman asnalega boginn og í keng og gat með engu móti stillt hjólið. fékk nottla illt í bakið. svo ég minnist nú ekki á Fáránlega mikla verki í vöðvunum sem eru Undir... jah.... allavega er mér mjög illt í mjög asnalegum vöðvum. ó ó og aumingja ég.
eftir það fór ég á kvartett æfingu með hinum 7-henta Tuma. afar sorglegt, en þó soldið skondið á sama hátt, sé fram á maraþonístískar intónasjón æfingar innraddanna. ég sem hélt að törnin væri á enda runnin.
talandi um törn, þá er búið að tæma Tjörnina fyrir framan tónlistarskóla hafnarfjarðar og hún er svo fokking ógeðsleg að ég hef sjaldan séð annað eins. vibbó var hún með vatni í og skrítnum, skítkenndum, grágulum "gróðri", en nú er það allt þornað, svo það er þykk, hvít skán yfir öllum steinunum... og lyktin! sjæsefokk. og ég veit ekki hvernig þeir/þær hafa hugsað sér að þrífa þetta ógeð, stein fyrir stein?
mikið er ég stundum fegin að vera ekki í vinnuskólanum.

fimmtudagur, maí 27, 2004



ég að tala í símann.
já ég er soldið að tapa mér í hello.com
en þetta er bara svo sniðugt, ég bara verð að segja það....

kysskyss Posted by Hello

jájá, þetta er s.s. postað með einhverju voðalega sniðugu dóti sem heitir hello.com.
annars finnst mér bloggið mitt vera orðið skuggalega seinvirkt eitthvað... er það bara tallan mín eða? er þetta myndadót að draga niður allan hraða? endilega látið mig nú vita.
fyrir ykkur bloggarana, þá er kannski gaman að vita að þetta hello dót er frítt og á því getur maður póstað myndum beint af harðadisknum inná bloggið. tsjekkitátmen
af hverju er asnalegt að segja "áður en varir" og manni líður eins og maður sé staddur í varasalva-auglýsingu, en aftur á móti finnst manni það ekki um "fyrr en varir"?
svo er ekkert nema eðlilegt að segja "áður fyrr"...
íslenska er ofar mínum skilningi

miðvikudagur, maí 26, 2004

því er reddað. hjúkk hjúkk. :)
er sko að fara að spila á tónleikum og píanóundirleikarinn minn verður blindfull á hestbaki (skv. áreiðanlegum heimildum) á sama tíma, svo ég þurfti að finna annan og svei mér þá.... það tókst!
húrra húrra

plögg síðar
mörg er snildin hér á þjóðskjalasafni íslands. hárlakkið og hrukkukremið sem er búið að vera í gluggakistunni á kvennaklóstinu síðan ég byrjaði (2001) er ein, húsvörðurinn sem situr á BIRGÐUM af kexi og deilir því út aðeins þegar honum hentar er önnur, en hin allranýjasta ber þó af. smá forsaga samt fyrst...
á afgreiðslunni eru tvær dyr, ein fram á gang og ein inn á skrifstofurýmið. einu sinni var afgreiðslan bara eitt borð og fólk var alltaf að labba í gegn til að fara inná rýmið, framhjá borðinu, í staðinn fyrir að fara innum dyrnar rétt hjá. þá var sett annað borð, svo að það væri BARA hægt að labba inn í afgreiðsluna og út á sama stað, hvort sem var á ganginum eða rýminu. mjög smart.
nú er búið að setja mjög svo flottan sjálfvirkan dyrastoppara á dyrnar fram á gang sem lokar og læsir hurðinni sjálfvirkt ef eldur skyldi upp koma og líka þegar er lokað á kvöldin. maður ýtir bara á takka, voða tæknó.
en málið er að takkinn er innan á. svo að í rauninni er bara hægt að loka og læsa hurðinni EINU sinni. E V E R.
þetta finnst mér snild.
þetta finnst mér líka soldið leiðinlegur póstur. gggaaaaa...
nei ég er ekki veik krakkar mínir. er bara lent í þeim mikla skít að þurfa ða vera á símanum uppi á afgreiðslu. mjög smart svo ekki sé meira sagt. var einmitt að koma af "námskeiði" hjá henni Ragnhildi minni um það hvernig maður á að ljósrita veðmálabækur, skrá afgreiðsluna og prenta þær út... og svo rúsínan í pysluendanum...(trommuþyrl) F A X A það svo. mjög spennandi allar 4 og hálfa mínútuna sem það tók. hehe. í staðinn tók ég hana á örstutt námskeið um það hvernig maður opnar ritvinnslu forritið í OpenOffice og SEIFAR það.
sem sagt mjög gefandi dagur á allan hátt, er farin út íbúð að kaupa mér áfengi svo ég lifi af daginn.

mánudagur, maí 24, 2004

þrátt fyrir að hafa verið með hita í gær og verið satt best að segja mjög veik ("stoppaðu bílinn ég þarf að....!) er ég komin í vinnuna. sem sökkar. ég er á milli verkefna, sem lýsir sér þannig að ég er búin með það sem ég var að gera og á eftir að fá það sem ég geri næst. svo að jah... alchemy anyone?
ég svaf nú reyndar til hádegis, er ekki algjör bjáni. óþolandi svona fólk sem fer í vinnuna fárveikt af því að það heldur ða það sé ómissandi og svo er það bara veikt og gerir hvort sem er ekkert gagn. puff!
en hér er ég mætt og er alfeg bara í brjáluðu stuði, svo ekki sé meira sagt. vei.

laugardagur, maí 22, 2004

við jón vorum að elda gómsætan ítalskan rétt með hakki og svona gumsi (lauk og þannig... ég setti líka hnetur á meðan jón leit undan... mjög gott, þó sumir haldi annað). aðallega var nú jón að elda samt, ég var bara trítlandi taugaveiklingslega í kringum hann, slefandi með útglennt augu eins og mjög mjög mjög svangar manneskjur láta. enda er ég mjög mjög mjög svöng manneskja. var næstum búin að hrinda útvarpinu oní pönnuna. ekki sterkur leikur það.
en núna er verið að bíða eftir að "ofninn hitni" svo það sé hægt að setja "hvítlauksbrauðið inn". hrumpf! bara stælar og ekkert annað, það er verið að reyna ða halda mér frá því mér finnst best. B O R Ð A
annars ætla ég að koma með plögg... mætið eða buxur vætið. riiiiight :)

Tónleikar tónsmíðadeildar tónlistarskólans í reykjavík verða SUNNUDAGINN 23. MAÍ Kl. 20:00 í íslensku óperunni.

endilega mæta, miss tót er með M A S S A sóló í einu verkinu svo ekki sé meira sagt. einhverjir 30 taktar og allir bara í góðum fílíng að gera ekki neitt á meðan. brjálæður stimmari, mæli með þessu.
en nú er mér nóg boðið, eða er ég eina manneskjan hérna sem finn hvítlauksbrauðslykt? :D

föstudagur, maí 21, 2004

æj ég ætlaði að vera búin að breyta þessu fyrir lifandis löngu. sorry elsku besti snjólfur minn! þú veist þetta var ekki illa meint og mér þykir Ógeðslega vænt um þig.

svo vil ég FÁ þetta bréf :@
kysskyss
ég hafði svo mikið að gera í vinnunni við að gera ekki neitt að ég gleymdi að fara á æfingu niðrí listaháskóla kl. 12. :( sorry stelpur!
héðan í frá ætla ég að gera það að reglu að skoða dagbókina mína á hverju kvöldi áður en ég fer að sofa, skrifa gróflegt plan fyrir daginn og fylgja því svo. fram í ystu æsar. YSTU segi ég!
snildsnildsnild! þessi próf segja allt og eru ekkert nema sannleikur!



Take the Dead German Composer Test!


Paul Hindemith should be notable by the fact that his primary instrument was the viola, but it is notable that he made an effort to write a concerto or sonata for every instrument in the orchestra. And, of course, there are the six viola sonatas...Anyhow, in addition to being a composer, Hindemith was fascinated by trains. He had extensive model train setups, and he felt he composed so well while aboard that he once scheduled a train ride from Connecticut to Texas in order to solve composer's block--but he solved the problem early and got off in New York City. Hindemith's manuscripts are interesting in that there are often doodles in the margins, which should do something to counter the image that his later work is always strictly academic.
A few key works: Symphonische Metamorphoses nach Themen von Carl Maria von Weber, Ludus Tonalis, Der Schwanendreher, Trauermusik
ó hó hó hvað ég hlakka til í sumar. :)
ég get hér með lýst því yfir að ég, miss tótfríður Harðdal Löwe af Hringbraut, er að fara á Dartington summer school í englandi dagana 14. ágúst til hins 28. til þess brúks fékk ég styrk frá minningarsjóði Helgu Guðmundsdóttur, a.k.a. tónlistarskóla hafnarfjarðar. kann ég þeim bestu þakkir. fyrir áhugasama má geta þess að styrkveitingarathöfnin verður föstudaginn 4. júní klukkan 17:00 í hásölum og er öllum boðið. mér var meira að segja lofað kökum og kaffi. spurning hvað gje og há standa við mikið af gefnum loforðum í því sambandi.
ég er semsagt í þessum töluðu að redda hinum ýmsu málum, redda mér ódýrri gistingu fyrri vikuna og svo þarf nú að fara að huga að því að panta flugfar... vona bara að júró frændi þoli þetta álag sem á hann er sett. var nefnilega að kaupa far til Kaupmannahafnar 22. júní þar sem ég mun hoppa (kát og hress) uppí lest til malmö þar sem nokkrir vel valdir íslendingar munu spila rassinn úr buxunum á öðrum norðurlandabúum í Orkester Norden.
og það er ekki bara á erlendum vígstöðum sem tótfríður mun gera góða hluti, heldur stefnir allt í Geggjaða tónleika þann 19. júní. mun strengjakvartettinn Tumi sjá um a.m.k. 40 mín af góðri músík í Tjarnarbíó.
að öllum líkindum.
en fyrst er það nú hádegismatur á skjalasafninu, ég segi ekki annað!

föstudagur, maí 14, 2004

guðríði hent í klósettið
O ho ho ho ho!!!!
prófið mitt er EKKERT nema algjör snild, er búin að vera hér flissandi langt fram eftir degi á meðan niðurstöðum rignir inn. er að spá í að nota upplýsingarnar í eitt gott feitt powerpoint show í áramótapartýinu mínu seinna á árinu ;) nei ég djóka nú með það.
annars rak ég augun í hina ljótu bók sem var hér vinstra megin og heitir "reisubók Guðríðar Símonardóttur", en hana kláraði ég um daginn. nú verður hún rökkuð í spað.
Reisubók Guðríðar er sú ALVERSTA bók sem ég hef á æfi minni lesið. oft hef ég þó lesið leiðinlegar bækur og ritefni, bendi fólki á áfangana Franska 403, 503 og 603, Fjarðarpóstinn og svo hef ég vitaskuld ÞURFT að lesa mestmegnið af íslensku stjórnardeildinni. hún Steinunn slær öll met. ég get bara gjörsamlega ekki gert mér í hugarlund hvernig henni Tókst að láta hverja einustu málsgrein enda á einhverju væmnu, sem án efa hefur komið augunum fram í augntóftirnar á henni sjálfri, en.... jah þar sem bók He****** er næstum því 700 blaðsíður, er maður nokkuð fljótur að æla í fötu tvisvar til þrisvar sinnum í kafla. maður myndi nú kannski kyngja ef að bókin væri með skemmtilegri persónusköpun, vel væri farið með heimildir, þetta er nottla sjúklega spennandi viðfangsefni (Tyrkjaránið), en NEI, maður HATAR guðríði símonardóttur, hún er alltaf grenjandi, sofandi hjá hinum og þessum "vegna þess að hún hafði verið karlmannslaus svo lengi", á milli þess sem hún lýsir umhverfinu ásvo hrottalega væminn og leiðinlegan hátt að maður nennir hreinlega ekki að lesa það. svo er nú líka hægt að pæla, ef þessi guðríður væri fornmóðir mín að einhverju tagi,gæti ég nú hreinlega farið í meinyrðamál. það liggja engar sannanir fyrir því að hún hafi verið að gera þessa hluti sem steinunn finnur upp og það að láta konu frá 17. öld hugsa og framkvæma eins og gröð diskópía úr vesturbænum finnst mér ekkert annað en klám.
hundrað hauskúpur, EKKI lesa þessa bók! N E V E R!!!

fimmtudagur, maí 13, 2004

í dag er ég hálfveik, hálfhress. í svona 50/50 prósentum. í gær var ég 70/30 prósent og mætti ekki í aukafögin mín fallegu, hljómfræði og tónheyrn. þótt ég hafi gert hálft hljómfræðidæmi meðan ég bruddi sólhatt og c vítamín, ætlaði aldeilis að skella mér í þessa tíma og vera hressog kát á kvartettæfingu um kvöldið. en ég rétt náði að skríða að símanum, boða mig veika og deyja uppi í rúmi. mætti reyndar á kvartettæfinguna og var hvorki hress né kát. sem þó lagaðist eftir að hafa spilað í rúman klukkutíma. Strengjakvartettinn Tumi rokkar svo feitt að þið gætuð aldrei trúað því að óséðu og heyrðu. svo kíktum við á vegamót og ég fékk mér brauðkörfu og vatnsglas. svo fékk Guggý vinkona mín sér súpu og fékk alfeg eins brauðkörfu með. þá var mér nú enginn hlátur í hug, fyrr en ég tók eftir því ða ég hafði fengið hvítlaukssmjör en hún ekki! HAHA! svo voru fegurðardrottingar á næsta borði að plana útilegu, það fannst mér fyndið. hélt að svona fegurðardrottningar færu ekki í útilegu. en það er nú bara af því að ég er með svo ótrúlega mikla og hræðilega fordóma útí fallegt fólk, sérstaklega konur.
vond er ég.
en svo er ég núna búin að gata lokaverkefnið hans afa gamla og fæ í staðinn hamborgara franskar og kók :D sem ég á fyllilega skilið fyrir að vera sona næstum því veik.

svo tók ég hrottalega fyndið og skemmtilegt próf áðan, check it out!

mánudagur, maí 10, 2004

nýjasta myndbandið sem ríkisstjórn Kenya lét gera til að efla straum ferðamanna.
eða svona...
hæ hó, þessi er hress
sætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisæti
sætisætisætisætisæti
sætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisæti
sætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisætisæti
þetta er voðalega sætt.
Dámar dissað
það er bara komið nýtt lúkk á blogger.com. jahérna hér. nú dámar mér.
dámar?
hvað er málið með það?
það er ekki eins og dámur sé eitthvða orð sem maður notar, það er algjörlega ekki skylt neinu orði og allavega það er ekki nafnorð...
"já góðan daginn, ég ætla að fá hjá þér einn dám, áttu nokkuð bláa? allir dámarnir heima eru bara búnir, krakkarnir eru vitlausir í þetta!"
Dámar er samt næstum því eins og Dagmar sem er nú með asnalegri nöfnum hér á skerinu, kannski hafa a og g dregist saman á einhvern furðulegan hátt og í framtíðinni munum við hitta fyrir mjög ólukkulegar konur að nafni Dámar.
"sæl ég er guðrún Dámar jónsdóttir og ég er ólukkuleg"
svo getur verið það líka verið karlmansnafn eins og Bjartmar. nema bara Dámar.
"sæl ég heiti Dámar Jónsson og er mjög ólukkulegur."
en það er spurning um hvort að dámar sé komið af sama orði og hámar, svona eins og "hann hámar í sig"... kannski það sé d af því að maturinn er DÁsamlegur. "já ég bara Dámaði þetta í mig, þetta var svo gott". orðasambandið nú dámar mér er samt notað yfir það þegar maður er hissa. þarafleiðir að dámar ætti að þýða undrun. þarafleiðir ætti maður að geta notað Dámar í fulltaf öðrum orðum, eins og t.d.
"þetta var nú dámarlegt hvernig bjórinn kláraðist, og ekki nema hálftími búinn af eurovision!"
"oh hvað eurovision er nú dámarsamleg keppni!"
hmmm... en dámar er samt asnalegt orð og fær hér með 2 hauskúpur.

föstudagur, maí 07, 2004

klámvæðing hvað?

Budde, Schou & Co. sækja um einkarétt á Íslandi fyrir fryrirtækið Jacob Lützen & Sønne fyrir bolluvél (Bollemaskine). Hinn 19. mars 1902. Með fylgja uppköst, kvittun, teikning af vélinni, umboð og bréf til íslensku stjórnardeilarinnar frá Budde Schou & Co. og landshöfðingja.
úff ég veit ég er hrottalega leiðinleg, illgjörn og væmin en ég bara VARÐ að linka á þessa mynd (ég er með tárin í augunum hérna!), þvílíkar dúllusmonsur geta þeir verið! garg! á skalanum 1 til 10 í sætt-legheitum þá er þessi mynd milljón. milljón segi ég! *snökt*
mér finnst ég sjálf vera soldið fyndin og það angrar mig því ég hef alltaf haldið mjög mikið upp á málsháttinn "heimskur hlær að sjálfs síns fyndni". sérstaklega stundum. en nú hef ég staðið mig sjálfa að því að vera að flissa uppúr þurru trekk í trekk, (TREKK? ómæ, nú verð ég að fara að taka upp að nýju þáttinn "íslenska rökkuð niður") í allan dag, yfir mjög lélegum brandara sem ég sagði í tónheyrn síðasta miðvikudag. ég ætla að taka það fram að nöfnum hefur verið breytt til að vernda einkalíf og æru samnemenda minna og kennara.

GUNNhildur: jæja nú ætlum við að taka próf í hljómstöðu.
FReydís: SJETT! ég vissi að við myndum fara í próf í því! ég fann þetta á mér!
ég: jæja... en ertu nokkuð með fimmeyring á þér?
stýrimenn rokka
stundum hefég (og sumir aðrir) pælt í Stigsprófakerfinu frábæra sem lýðst við marga tónlistarskóla. margt vont er sagt um þau og annað gott. sumum finnst þau frábær og sumir hata þau. sumir hafa bara als ekkert álit á hlutnum og finnst hann eitthvað sem enginn hefur not fyrir.
sjálf er ég nokkuð fylgjandi þessu síðastanefnda, en það er nú bara ábyggilega afþví að ég hef tekið svo fá stigspróf og er búin að gleyma adrenalín kikkinu sem fylgir því að spila fallega tónlist fyrir eina manneskju sem situr fyrir fram blað og penna. eins og það sé hægt að lýsa getu fólks í orðum! úff. en allavega.
stundum hef ég líka hugsað út í það hvernig í ósköpunum þetta hafi allt saman byrjað. hver var það sem sagði fyrstur manna "hey, látum alla tónlistarnemendur spila próf og köllum það stig!" ? hvaðan höfðu þeir fordæmið?
nú kemur sér vel aldeilis vel að vera að vinna á sagnfræðingasetri, þar sem ég hef fundið svarið (allavega þetta sagnfræðilega) við spurningunni. íslenska stjórnardeildin lýgur ekki krakkar mínir. svo saaaaaaaaaannarlega ekki.

Matthías Þórðarson stýrimaður sækir um að fá styrk til að taka 2. stig í stýrimananaskólanum í Bogö. Hinn 15. desember 1880. Með fylgja uppköst.
þær aumu sálir sem ekki hafa kynnt sér víóluna til hlýtar og vottað henni verðskuldaða virðingu sína, skulu gera slíkt hið sama undir eins eða að öðrum kosti fara af síðunni.

nei annars er ég nú bara í rólegheitunum, ef slíkt skyldi kallast, að hluta á Bach viola da gamba sónötu númer 3 með ungfrú Kim Kashaskskansksa eða hvað hún nú heitir blessunin. þvílík endemis snilld. úff. maður fær hérna hrolla hægri vinstri. enda mjög hallærislegt að fá bara hroll öðrumegin. en þetta fyrrnefnda verk er einmitt eitt af þeim sem ég ætla að massa á tónleikum næsta vor. ætla að hafa tímann fyrir mér að æfa þetta. frekar mikið torf. eða svona.... allavega er fyrsti kaflinn nógu mikill hausverkur enn sem komið er. en nú ætla ég að fara og fá mér ISIC kort. kannski spurning um að skella á sig smá MASKARA áður en maður lætur smella? og hey, eru ekki linsur málið? tjútt og tjull.
hó hó hó.
ég er svo svöng að mér er óglatt, spurning um að fara og stela einhverju úr ísskápnum uppi. heheh! annars er nú líka bara stemming að svelta til hádegis og kaupa sér þá eitthvað viðbjóðslegt. en nei nei, ég þarf að Útrétta í hádeginu :( fá mér ISIC kort og svona. djöfull er maður orðinn merkilegur með sig eitthvað... farinn að sníkja sér afslætti í útlöndum og ég veit ekki hvað og hvað. svo er nú líka óhollt að borða viðbjóðslegan mat og þar sem ég ætla mér að verða grennsta manneskja í heimi á árinu, gengur ekki að vera að troða í sig einhverjum óhugnaði. þótt maður sé búinn að fá sér isic kort.
hún Guðný sellóstelpa var reyndar að segja mér svo hrottalegar afsláttarsögur frá útlöndum í sambandi við ISIC, svo ég ætla fyrst manna að ná mér í svoleiðis. einhverjar píur fengu alfeg brjálaðan afslátt á einhverja óperu sýningu og ég veit ekki hvað og hvað. manni munar nú um minna.
svo þarfég að hringja út um kvippinn og kvappinn vegna þess að mér var hent í einhverja framkvæmdanefnd. ég veit nú ekki hvaða stórhuga datt það í hug (jú reyndar). en getiði bara hvað? mér kvíður ekki fyrir og ætla bara að vippa mér í það um leið og ég hef bostonpublicað þessum pósti. kannski er símafælnin mín að fjara út og deyja. ekki slæmt það. eiginlega bara mjög mjög gott. aftur á móti er þetta hungur mitt Afar Afskaplega slæmt, held ég láti ránsferðina ganga fyrir í þessari miklu röð aðgerða. *dæs*
svo er GRAAAAAAAAND eyjólfur ða koma seintseint í kvöld :) jahérna hér, það vantar bara að það sé sólskin og gott veður. bíddu við?! það ER sólskin og gott veður. tralla lalla :D:D

mánudagur, maí 03, 2004

herra Hörður Mar megaheili bað hina brilljant Lafði tótfríði um hjálp í dönsku.
lítið mál. eða Lidt mål eins og þeir segja... samtalið fer hér:

Hörður Mar says:
á að segja godt?
Hörður Mar says:
eða gjerne?
tótfríður harðdal says:
godt
tótfríður harðdal says:
gjerne er svo asnalegt
tótfríður harðdal says:
rímar líka við Bjerne
Hörður Mar says:
Bjerne er ekki einu sinni orð, Þórunn.
tótfríður harðdal says:
víst er Bjerne orð, Hörður Mar
Hörður Mar says:
nei, það er bara bullnafn eins og Biggus Dickus
tótfríður harðdal says:
nauts!
tótfríður harðdal says:
Bjerne eins og í Bjerne-Buerne
Hörður Mar says:
Bjørne-banditterne
Hörður Mar says:
þú hefur örugglega aldrei komið til Danmerkur
tótfríður harðdal says:
hehehehhehe
Raschendes - Zeitmass wild - Tonsch?nheit ist Nebensache
?etta er m?li? krakkar m?nir
finst engum hérna í bloggheiminum aðgerðin "post and publish" minna sig á "boston public"?
nei bara....
tóta?
það að vakna hálf átta er eitthvað sem tótan á erfitt með, enda mjög morgunsvæf og "fylgin sér" í svefni. tókst nú samt að fremja þetta mikla illvirki á sjálfri mér og er mætt til vinnu. þar bíður mín hin geysilega skemmtilega vinna við að finna netföng yfirmanna í heilbrigðisgeiranum. þetta var ég reyndar var búin að gera, nema einn af mínum elskulegu samstarfsmönnum fór í tölvuna mína meðan ég var fjarverandi og slökkti á forritinu sem ég var að vinna í.
seifaði hann?
ó nei.
(ég er B (best) og hann er A(asni))
A: "bíddu, af hverju spurði talvan mig ekki hvort ég ætti að seifa áður en ég slökkti?"
B: "afhverju varstu að slökkva á forritinu?"
A: þögn
B: "þú lokaðir ekki neinu öðru forriti!"
A: þögn
B: "ætlaru ekki einu sinni að segja fyrirgefðu?"
A: þögn
(B tekur upp stól og brýtur hann á haus A, hoppar svo öskrandi ofan á líflausum líkama A)

reyndar er bara fyrsta setningin sönn, en hitt er svona eitt af mörgum leikritum sem ég er búin að halda fyrir sjálfa mig í hausnum á mér yfir helgina. öll innihalda þau atriði þar sem B öskrar og A verður fyrir ofbeldi af einhverju tagi. í mörgum þeirra eru stórtæk vopn.
nei, reyndar er ég ekki alfeg svona leiðinleg, hefnigjörn, sár, reið og langrækin... JÚ!
en af þessu hörmulega atviki er ég búin að læra nokkra hluti og í kjölfarið taka ákvarðanir.
1) ég búin að læsa tölvunni minni á þann hátt að eftir 10 mín í engri vinnslu lokast hún og maður þarf Password til að opna hana 2) það er ekki hægt að treysta samstarfsfólki þínu í vinnunni og 3) herra B er fíbl, ber enga virðingu fyrir öðru fólki og vinnu þess, hvað þá umráðasvæði annarra og gögnum. svo má hann Sjálfur hringja í þau númer sem þurrkuðust út.

föstudagur, apríl 30, 2004

þetta hérna er án efa ljótasta heimasíða sem ég hef farið inná á æfi minni. myndi gefa henni sjens ef vefsíðuhönnuðurinn væri lítið barn, eða máski óharðnaður unglingur með bólur, nemandi við Listaháskóla Íslands á nýmiðlabraut.... en þessi síða er bara óafsakanleg framkoma af hálfu fullorðinni manneskju.
afsakið.
þessi dagur er að verða svona Bögg-dagur, geri ekki annað en að tala illa um fólk og fyrnindi. ussu sussu!
Herra Diskó?
í vinnunni síðust daga hef ég verið sett í það brjálæðislega skemmtielga verkefni að finna netföng hjá öllum stofnunum, heilsugæslum eða heimilum í heilbrigðisgeiranum. auk þess að finna út hver sé forstöðumaður á hvaða staða. símafælnin mín hefur án efa batnað til muna, þar sem éger búin að hringja linnulaust í fólk útum kvippinn og kvappinn, svei mér þá ef að sumir hafi bara ekki verið almennilegir og á öllumstöðum hef ég fengið afdráttarlaus og skýr svör. svona næstum alls staðar allavega. en svo kom að því að finna forstöðumann tóbaksvarnarráðs og netfang hans. eftir að hafa skoðaða mjög reyklausar og skemmtilega subbulegar síður komst ég að því að kallinn sjálfur, herra Þorgrímur Þráinsson væri maðurinn sem mig vantaði. en hvergi var gefið upp netfang eða neitt sem ég hefði getað nýtt mér svo ég settist þolinmóð fyrir framan Google.com. og komst að ýmsu um Þorgrím eftir að hafa lesið hrottalegt viðtal við hann á Gras.is (sem gæti verið vefur bústjórnendaskólans, en er það ekki)

*Áttu gælunafn? Þoggi, Toggi, Pombi, Sveitó, Diskó, Stro, Dreinsson, Brainsson, Frímann flugkappi o.fl.
(hvað er málið með "Pompi" og jah.... "Brainsson"?)

*Þú vaknar um miðja nótt og það er að kvikna í húsinu þínu. Hvaða eina hlut tekurðu með þér út? Þegar fjölskyldan væri ,,seif” myndi ég grípa tölvuna því þar eru allar þær brilljand hugmyndir sem eiga eftir að blómstra á hvítu tjaldi, leiksviði, pappír og víða á næstu 15 árum.
(Brilljant? var mig að dreyma ógleðstilfinninguna sem fylgdi því að lesa "bak við bláu augun" "tár bros og takkaskól" og hvað þær nú hétu? drottinn minn)

*Eru feitar konur kynæsandi? Veltur á augnaráðinu, klæðaburði, hreyfingum, framkomu, karisma, fingrafimi og hvort þær kunna köngulóarbragðið!
(karisma?)

og svo komu leiðinlegar fótboltaspurningar (sjá hér)sem ég skildi ekki. hverjum er svossem heldur ekki sama um hverjir verða íslandsmeistarar í fokking FÓTBOLTA!? en allaveganna. svo fann ég emailið hans loksins inn á einhverjum rithöfundavef og jah.... Ó MÆ FOKKING GOD, jah sumir eru alla vega ekki í sjálfsálitskreppu. sjáið hvort þið finnið það....


ég, ungfrú beilari á Dartingtonpunkturkomm er farin í hádegismat. ég ætla að fara í nóatún og kaupa mér eitthvað AFAR kaloríusnautt svo ég geti étið og drukkið óhollustu í allt kvöld með mínum ástkæra litla sæta besta bróður Ásbirni.
kær kveðja, tóta pössunarpía?
>>Tveir giftir sitja á barnum og eru að spjalla saman. "Ég skil
>>ekkert í þessu, í hvert skiptið sem ég fer heim af barnum þá slekk
>>ég á aðalljósunum á bílnum og læt hann renna hljóðlega inn í
>>innkeyrsluna. Ég passa að skella ekki hurðinni og læðist á sokkunum
>>upp stigann, fer úr fötunum áður en ég kem inní svefnherbergi og
>>leggst varlega í rúmið. Samt æpir konan mín á mig að ég eigi ekki
>>að koma svona seint heim því ég veki hana alltaf!" "Iss" segir
>>hinn. "Þú ert að gera þetta alveg vitlaust. Þegar ég fer Heim þá
>>stilli ég á háu ljósin þegar ég kem inn götuna og skransa inn í
>>bílastæðið og flauta. Ég skelli hurðinni og hleyp upp stigann,
>>hossa mér uppí rúm, slæ hana á rassinn og segi HVER ER GRAÐUR?"
>>"Einhvern veginn þá þykist hún alltaf vera sofandi."
égverð nú bara að segja ykkur frá því hvað nýjasta skoðunarkönnunun í Fimmunni er hrottalega sniðug. ef þetta er ekki spurning sem vert er að spyrja þjóðina að, þá veit ég ekki hvað!

Hversu oft ferð þú á náðhúsið á degi hverjum?

og

ert þú einn þeirra sem tekur með þér lesefni á náðhúsið?

já maður þarf allaveganna ekki að Ljúga í þessari könnun um hvort maður hafi séð eða lesið einhverjar rosalegar

mánudagur, apríl 26, 2004

er uppi að passa símann. úff. er svooooooooo léleg í því, lýg bara að fólki og veit ekkert hvað ég á að gera. stemming samt. fékk mér kringlu með rjómahvítlauksosti í hádegismat og ANGA af hvítlauk. nammi namm :)

sunnudagur, apríl 25, 2004

stundum langar mig til að flytja inn á afa gamla, hætta ruglinu, fara í íslensku í háskólanum og gerast heimavinnandi húsmóðir eftir að hafa gotið nokkrum börnum. stundum langar mig hins vegar til að kaupa mér nýjan fallraven bakpoka, 20 pör af nærbuxum og sauma 4 tæ-buxur, selja allt sem ég á og ferðast. ekki taka með mér síma og bara skrifa bréf til útvaldra einstaklinga heima á skerinu.
stundum langar mig þetta bæði í einu.
stundum langar mig hvorugt.
ég held það geri mig þunglynda að sofa til tvö og ég ætla að hætta því.
ef þið hafði einhverntíman efast um það hver sé latasta manneskja í heimi, þá getið þið tekið efann ykkar og hent honum út í rusl með ónýta kaffikorknum eftir morgunkaffið. ef þið drekkið kaffi þeas. vegna þess að ÉG er latasta manneskja í heimi og ef þið gætuð séð mig núna myndi ásjóna mín ýta undir þessa vitneskju. var nefnilega að vakna. og klukkan er ða verða TVÖ!
segi nú ekki að ég hafi ekki rumskað, svona klukkan 10, 11, 12 og um eitt leytið, en ég fór sko ekki á fætur. glætan! lá bara og ákvað að sofa.
þannig að ég fór ekki í sund. ég æfði mig ekki á víóluna. ég æfði ekki fjögurhundruð ný lög sem ég fékk í síðasta söngtíma. ég skrifaði ekki email til vina minna í útlöndum, hvað þá sendibréf. ég fór ekki í göngutúr og ég dreif mig ekki í að skrifa betlunarbréf til Dartington fólksins.
held reyndar ég sé að koxa á því dæmi.
en núna er ég með svo mikið samviskubit að mér er næstum því óglatt. svo er ég mjög mjög svöng.
það besta er samt að ég get ekki kent neinum um! ég fór ekki seint að sofa, ég gerði ekki mjög mikið um helgina og ég var eiginlega ekki þreytt svona þegar klukkan var 10, 11, 12 og að verða eitt. bara NENNTI ekki á fætur.
im a jerk

föstudagur, apríl 23, 2004

var að skella upp nýjum dálki á linkana mína sem heitir "já takk" og þar mun ég setja linka yfir á hluti og dót sem mig langar í. svona "já takk listi", mjög hentugt þegar þið fáið hjá ykkur óseðjandi löngun til að gefa mér eitthvað fallegt. :) allt gert fyrir ykkur, dúllurnar mínar, smúss smússí
það held ég nú

What stupid celebrity are you destined to kill? by daydreamer8852
Name
Birthdate
You killed
With a
OnJanuary 23, 2018
Created with the ORIGINAL MemeGen!

You are a travelmap
If your friends need help, they come to you. You
may feel a bit lost yourself at times but as
soon as there is someone in need you are there
to guide them through the trouble.


What useful object do you resemble?
brought to you by Quizilla
SígaunaBarónnin
ekki veit ég hvað herra Strauss (ekki þessi kúlaði sem heitir Richard, heldur hinn) var að spá þegar hann skellti saman í óperuna Sígaunabaróninn. því ef það eru einhverjar tvær gerðir að tónlist sem EKKI eiga neitt sameiginlegt, þá er það sígaunatónlist og vínarvalsar.
en samt virðist þetta virka. ótrúlegt.
éger s.s. að spila í óperunni Sígaunabaróninum, sem Listaháskóli Íslands er að setja upp. plögg hérna neðar. Gunnsteinn þaðeroflítiðskinnutanumhausinnámér Ólafsson þykist veifa priki þar fyrir framan hljómsveit sem samanstendur af strengjakvartett og kontrabassa, flautu, óbói, 2 klarínettum og 2 hornum. svo maður gleymi nú ekki SNILLINGNUM á slagverkinu. það sem mér finnst mjöööööög merkilegt við þessi ósköp er það, að í fyrrnefndri hljómsveit eru aðeins TVEIR nemendur úr Listaháskólanum. hinir eru allir úr tónó rkv, nema auminginn ég úr hafnarfirði og svo hann Víðir megakrútt úr kópavogi. hvað er málið með það? eru tónlistarnemendur lhí of Góðir eða hafa of Mikið að Gera til að geta tekið þátt í uppfærslum í eigin skóla? höfum við þá eitthvað minna gera? tek sem dæmi að hún Svafa mín var í stigsprófi í dag, frumsýningardag og Berglind flautusnillingur er að halda tónleika næsta þriðjudag. eða er það kannski ekki alfeg nógu töff fyrir einleikarasnillinga framtíðarinnar að spila í svona nemendasýningu?
nú er ég ekki að segja neitt ljótt, bara velta þessu fyrir mér án þess að nefna nöfn eða gefa neitt til kynna, enda veit ég ekki nema EINA hlið á þessu máli og það er mín hlið. og við vitum nú öll hvernig mínar hliðar eru. úff.
en allavega, plögg plögg!

Óperustúdíó Listaháskóla Íslands og Íslensku óperunnar sýnir gamanóperuna Sígaunabaróninn eftir Johann Strauss yngri í styttri gerð 23., 24. og 25. apríl í Íslensku óperunni (beint á móti NæstaBar, við hliðina á Sólón. svo að blauta fólkið mitt rati nú hehe ;)

Sýningarnar hefjast kl. 20.00.

Aðgangur ókeypis


ó k e y p i s ! !
ég er svo heiladauð mér dettur eiginlega ekkert í hug að segja nema það að ég er staðráðin í því að fá mér eitthvað viðbjóðslega óhollt og ógeðslegt í hádegismat. kók og súkkulaði. hamborgara og franskar.
nammi.
pulsu með öllu nema remúlaði og bananastangir.

mánudagur, apríl 19, 2004

hey, nú eru liðnir rúmir FIMM tímar síðan ég benti lesendum þessa bloggs á skó sem mig langar afar mikið í. og þeir eru ekki enn komnir í hús! hvað á þetta að þýða? hvurs lags eiginlega heimsendingar þjónusta er þetta?
ussu sussu!
ég er þreytt og mér er illt í bakinu.
það er komið hádegi og strangt til tekið ætti eg að vera uppi í kaffistofu að borða hádegismat.
hmmm.
spurning um að drífa sig?
vinkona mín fór til útlanda í janúar. ég las þetta á netinu hennar áðan
"Samt er nú planað að fara í hike um helgina og kannski campa þar eina nótt, annars verðum við bara með svona spontant ákveðna helgi. "
getur einhver giskað á hvaða land krúttið fór til? :) :)
mig langar ÓGEÐSLEGA MIKIÐ í þessa skó!!! gaaaaaaaarg!
maaaaatuuuurrr....
ég át svo mikið um helgina að éger með brjálaðan móral, held jafnvel ég endurtaki Skyr-Vikuna sem átti að gera svo góða hluti síðustu viku. uh... eða ekki. held einmitt að þar hafi kúin fengið hnífinn í bakið. ef maður er of mikið að passa sig að éta ekki neitt nema hollustu springur maður bara á limminu og dettur svo feitt í það næst þegar maður kaupir nammi að það er ekki lagi líkt. nema þá helst sælgætissöngnum.
já maður.
en áfram heldur Bond áhorfunin, og nú er maður kominn inná mr. Roger Moore. ekki svo slæmur sá.

on her majesty´s secret service
bond: George Lazenby (nákvæmlega! hver í andskotanum er það?!)
vondikall: spectra og vinur okkar Ernst Stavro Blofeld
handbendlið: man ekki
kellingar: 3, og ekki æla.... hann GIFTIST einni þeirra! garg! en hún er sem betur fer drepin í honnímúnferðinni
popp-pása: svona korteri eftir að myndin byrjar áttar maður sig á því að hún er Ömurleg og allan tímann eftir það er maður að reyna að finna sér eitthvað að gera til að sofna ekki
lokaatriði: bond giftir sig og vondur kall drepur konuna hans og bond er grenjandi að segja einhverri löggu að þetta verði allt í læ, hún sé bara að hvíla sig og BLAH BLAH BLAH (maður ælir)

diamonds are forever
Bond: sean connery (guði sé lof!)
vondikall: Ernst beibí Blofeld og núna búið að gera lýta-aðgerðir á einhverjum milljóner svo það eru eiginlega TVEIR nr.1! mjög smart
handbendli vonda mannsins: Dr. Metz, leysigeisla sérfræðingu, svo eru líka mjög skrýtnir tveir gaurar sem heita Mr. Kidd og Mr. Wint. láta næstum því eins og þeir séu þroskaheftir, en þaðer nú bara stemmari. svo leiðast þeir í einu atriðinu.... á víst að vera einhver gay undirtónn
kellingar: 3 (nema hvað)
lokaatriði: Bond og gellan eru á skemmtiferðarskipi og drepa Mr. Kidd og Mr. Wint.

sunnudagur, apríl 18, 2004

hafiði pælt í hvað "Enter sandman" með metallicu hefur týnt/misst/mistúlkað merkinguna sína eftir að michael jackson keypti sér Never-land og fór að misnota börn þar?
kokka-tóta?
já ég er hér með "offissjallí" orðin gömul ráðsett kona. var rétt í þessu að henda fólki út sem ég bauð í mat. og vitiði barasta hvað! ég eldaði! við erum að tala um ungfrú ristaðbrauð með osti og kakó, sem aldrei hefur eldað neitt á ævinni, bjó til kjúklingabringur, sósu og kartöflur. og desert dauðans. er eiginlega of södd til að geta bloggað, svo er darlingjohn frammi að vaska upp. en honum er nær að eiga ekki eldhús með tvemur vöskum, þá hefði ég nú hjálpað til. hehe :) en krúttin sem komu til okkar skatnahjúnna voru þau Dagbjört, Eyjólfur og Páll. eðal bloggarar, allir saman. svei mér þá :) en jæja.... best að leggjast niður og reyna að melta eitthvað af þessu....

föstudagur, apríl 16, 2004

prentarinn er með ælupest
eg hef komist að mjög merkilegri niðurstöðu, en hún er sú að þetta sem nú er skrifað birtist í raunveruleikanum hér á blogginu mínu. talvan mín hér á skjaló vill aftur á móti bara helst ekki sýna mér mína eigin síðu!
það er eitthvað undarlegt að gerast hér með tölvukerfið... áðan ætlaði ég t.d. að prenta út eina uppskrift (af bökuðum bönunum í karmellusósu.... mmmmmm) en í staðinn tók blessaður prentarinn, án efa í samvinnu við tölvuna, og prentaði út ALLAR uppskriftir á Nóatúnsvefnum. þ.e. áðuren að ég náði að stoppa hann. mjög smart. ég þurfti að hundskast upp og ná í annan pakka af prentpappír. ussu sussu suss.
ég spyr mig sjálfa "HVAR er tölvunarfræðingurinn?"
svo verð ég nottla að svara mér sjálfri, því ég veit að hann er í skólanum... svona er nú það krakkar mínir.
afhverju kemur ekkert? ég skil þetta bara alls alls ekki! grrrrr!!
í sárabætur sko
hvðaer málið?
postarnir mínir sjást ekki á blogginu mínu! ég er mjög miður mín út af þessu og nú ætla ég úti nóatún og kaupa mér kex.
OH ég er svo GÁÁÁÁÁÁÁÁÁFUÐ!!!
sem mælist nú aðallega í því að skuli í alvörunni taka gáfnapróf á netinu, hehe :)

Congratulations, tóta!
Your IQ score is 127

This number is based on a scientific formula that compares how many questions you answered correctly on the Classic IQ Test relative to others.

Your Intellectual Type is Visual Mathematician. This means you are gifted at spotting patterns — both in pictures and in numbers. These talents combined with your overall high intelligence make you good at understanding the big picture, which is why people trust your instincts and turn to you for direction — especially in the workplace. And that's just some of what we know about you from your test results.
dem!
ég ætlaði að fara á sinfó tónleikana sem voru í GÆR! djöfull er maður heimskulegur stundum :( svo ég minnist nú ekki á það hvað ég er svöng! ussu sussu! "BARA skyr" dæetinn var glataður, virkaði eiginlega ekki nema fyrstu 4 tímana á hverjum degi. og þar sem ég ef yfirleitt ekki komin til meðvitundar fyrr en svona 2 tímum eftir að ég vakna, þá var þetta ekki nema tveggja tíma þrautaganga... en reyndar náði ég nú að halda mér í "hollu og góðu" deildinni, borðaði bara banana og jógúrt og hrökkbrauð og svona viðbjóð. þangað til í gær að ég fékk mér túnfisksamloku og svo bakaði mamma SÚKKULAÐIKÖKU! argh! og ekki nóg með að kakan væri hrottalega góð, heldur var kremið sjálft að himnum ofan komið. og það var svo þunnt að mamma greyið neyddist til að hafa skál á borðinu með afganginum af því. æj æj! en leiðó, þá lenti maður í þeirri hræðilega leiðinlegu aðstöðu ða geta hreinlega Mokað kremi ofan á sneiðina sína ef hún yrði eitthvað fátækleg.
ussu sussu.
en við mægður vorum (nema hvað) að fagna því að truntan hún Mary var rekin úr Batchelor, eins gott, djöfull var hún leiðinleg. ég var að fatta að ég þoli ekki Dramatískar konur. gott hjá mér þá að vera að horfa á Batchelor. eníveis, þá fór ég inná www.abc.com og ætlaði að finna mynd af honum Bob darling, en rakst þá bara í staðinn á hver var næsta batchelorette og hvern hún valdi (ljótur). en það var nú bara gellan hún Meredith og þess vegna er mynd af henni hérna. djöfull er hún falleg! úff. Bob bjáni. :)

þriðjudagur, apríl 13, 2004

svöng, syfjuð, sól, sund og nýr linkur
éger mjög svöng, samt soldið svona óglatt líka. ég ætla sko bara að borða skyr út alla þessa viku, sama hvað hver segir! ef ég ætla ekki að enda með því að girða undirhökuna ofan í buxnastrenginn og rasskinnunum oní sokkana þá þýðir ekkert annað en að borða bara skyr. og ekkert helvítis kjaftæði um að maður verði að fá næringu og blablaBLA! sýnist ykkur ég vera að deyja úr vannæringu?!
eníveis.
so er komin sól sem ýtir undir það að mig langar ALLS ekkert til að halda áfram að slá inn andskotans stjórnardeildina, fer nú samt að vera búin með helvítið. sólin gerir það líka að verkum að mig langar hrottalega mikið í sund og fá freknur (og/eða sortuæxli) á nefið. elskujónminn ætlaði með mér í sund í hádeginu, en hann er svo ofsalega upptekinn í skólanum sínum að hann er ekki enn komin.
umingjans litla skinnið mitt. reyndar hringdi ég í hann áðan og mér heyrðist einhver segja á bak við hann "nei með barbíkjúsósu!" sem þýðir annaðhvort það að fólkið sem er með honum í lokaverkefninu er endanlega búið að snappa á því, eðahann fór og fékk sér Subbu-mat. :@ sá verður tekinn í karphúsið!
talandi um að taka í karphús, þá var ég að skella inn nýjum link yfir á miss Helgu Þóru fiðlusnilling. hún er djöfulli nett, ég verð nú bara að segja það... reyndar langar mig að segja ýmislegt fleira, og jafnvel bera saman sval-leika Helgu og ýmsra annara stúlkna á hennar reki, en það er víst ekki heillavænlegt.
fjúttí fjú.
pixies rúúúúúúúla. vill einhver bjóða mér á tónleikana?
Bond, elsku Bond
jújú, mikið rétt, hinir hressu "bond-fever" sjúklingar íslands (var að frétta af tvei-mur hrottalega sýktum einstaklingum í Danmörkunni) létu sitt ekki eftir liggja, heldur horfðu með mikilli aðdáun á næstu 2 Bond myndir í röðinni. erum við farin að ókyrrast allverulega, því nú tekur að síga í seinni hluta herra connery.

Thunderball
Bond: sean connery
vondikall: spectra, með herra Largo, eða No. 2 fremstan í fararbroddi (hann er með lepp)
handbendli vonda kalls: fyrst í stað er hún kærasta Largos, en jah.... Bond er nú ekki lengi að "tala" hana til.
kellingar: 3
popp-pása: 20 mínútna bardaga atriði milli kafara í rauðu (bond og co.) og kafara í svörtu (spectra).
lokaatriði: sérlega flott lokaatriði þar sem Bond og hin stinna stúlka eru í gúmmíbát útá rúmsjó, bond blæs upp risastóra helíumblöðru sem er í laginu eins og risastór rauð píla. hann festir blöðruna vel í beltið sitt, grípur um gelluna og í sama mund flýgur flutningavél hennar hátignar framhjá með risastóran griparm framhjá. hún flýgur undir rauðu píluna og kippir parinu upp í loft. svo smellir Bond nottla einum blautum á kvensuna þegar þau eru á fleygiferð um háloftin.
kíkið á auglýsingu fyrir myndina sem var gefinn út 1965! snild snild SNILD!

you only live twice
bond: s.c.
vondikall: spectra, No. 1 sýnir meira aðsegja á sér fésið!
handbendli: Mr. Osato og ritarinn hans Helga Brandt
kellingar: 3
lokaatriði: bond og gellan eru úti á sjó í gúmmíbát.



alsherjarBondsíða
Friða hin fríða er alltaf að senda mér svo skemmtilega brandara...

Jónas var staddur á veitingahúsi í Borginni og var að fá sér að borða þar. Hann fór að ræða við þjóninn sem þjónaði honum og trúði honum fyrir því að hann væri með alveg ótrúlegt lyktarskyn. Hann gæti þekkt hvaða lykt sem væri, hversu lítið sem væri af henni. Þjónninn dró þessa staðhæfingu í efa, svo Jónas bauð honum að prófa sig. Þjónninn fór þá inn í eldhús, tók hreinan disk og veifaði honum í góða stund yfir einum pottinum. Síðan fór hann með hann inn og rétti Jónasi. Jónas þefaði vel af diskinum og sagði svo "Lambakjöt með dilli og örlítilli mintu!"
Þjónninn varð forviða, en vildi prófa aftur. Nú veifaði hann diskinum yfir öðrum potti og rétti síðan Jónasi. "Blandað grænmeti!" sagði Jónas. Nú ákvað þjónninn að gera eitthvað verulega erfitt, svo hann brá diski undir pils stúlkunnar sem var að vaska upp og fór svo með hann til Jónasar. Jónas þefaði af diskinum, hleypti brúnum af undrun og þefaði aftur. Í þriðja sinn þefaði hann vel og lengi en sagði svo
"Er Magnfríður Jónatansdóttir frá Merkigili að vinna hérna?"
pissuleikur. mjög skemmtilegur :)

sunnudagur, apríl 11, 2004

hristur, ekki hrærður
við jón huggulegi erum í Bond, James Bond maraþoni. eða svona langhlaupi með hléum... erum búin að horfa á fyrstu 3 myndir á síðustu 2 vikum. pjúra snild. sean connery er svo mikið beib að maður skilur það gjörsamlega af hverju gellurnar falla niður í kringum hann eins og flugur sem lenda í skordýraeitursúða. eitt hefur þó komið okkur "skemmtilega" á óvart, en það er að fjöldi kvenmanna sem bondarinn flekar hefur í þessum 3 myndum verið sá sami. er þetta pæling, eða bara tilviljun? hver er tilgangur þrítölunnar í kvennamálum james bond?
je.
þar sem ég hef ekkert að gera ákvað ég að smella niður smá summary....

Dr. No
Bond: sean connery
vondi kall: dr. no og Spektra
handbendli vonda kallsins: jarðfræðingurinn prof. Dent
gellur: 3
lokaatriði: bond og gellan í árabát í togi aftan í strandgæslunni. bond sker á línuna. (töffari)

From Russia with love
Bond: sean connery
vondi kall: spektra
handbendli vonda kallsins: ógeðslega leiðinleg gribba sem hét Rosa Klebb og ljóshærður þjóðverji.
lokaatriði: turtildúfurnar eru á gondóla í feneyjum og meðan þau eru að kela hendir bond filmubút út í vatnið sem vondi kallinn hafði tekið af þeim.

Goldfinger
Bond: sean connery
vondi kall: goldfinger
handbendlið: oddjob, kóreukall sem gat brutt golfkúlu með lúkunum einum saman og hent hattinum sínum í fólk svo það dó
gellur: 3, var reyndar komin með þá 4ðu í sigtið en hún var drepin
lokaatriði: bond og gellan stökkva úr flugvél í fallhlíf fara að kela þegar þau eru lent og bond bannar henni að veifa til þyrlunnar sem er að leita að þeim.

já maður! svo er bara að koma sér vel fyrir og horfa á næstu... jah... næstu 18 myndir :)
Gleeeeeeeeeeeeeeeeðilega páska elsku dúllurnar! :)

miðvikudagur, apríl 07, 2004

argh.
farin heim a? sofa.
?reeeeeyyyyyyyttt
ef einhver er ekki búinn að heyra 2. kaflann í strengjakvartett nr. 4 op. 130 eftir Beethoven, þá tel ég það samfélagslegu skylda mín að benda fólki á að hlusta á þann heilagleika sem ALLRA ALLRA FYRST. þvílík snild. og Finnbogi, í kafla númer 3 kemur Adele Ide (eða hvað hún hét nú þessi þýska drusla) stefið svo fyrir að það er eiginlega orðið vandræðalegt :)
Líflæknirinn allur


ég var að klára Líflækninn eftir hinn huggulega Per Olov Enquist nú á dögunum. ansi skemmtileg bókin sú, mæli eindregið með henni, sérstaklega ef fólk hefur áhuga á konungsfjölskyldum á 18. öld. soldið fyndið að lesa þessa bók um hvernig danska hirðin var að drukkna úr vellystingum og spillingu, á meðan éger að slá inn íslensku stjórnardeildina frá sama tíma. íslendingar eru að biðja um einkennisbúning á lögregluMANNINN í reykjavík og fleira í þeim dúr, læknisáhöld á vestfirði og svona. skemmtó...
en bókin góða fjallar um lækninn Struensee sem var líflæknir hins H-geðveika danakonungs Kristjáns sjöunda. struensee var líka upplýsingarmaður og vildi gera góða hluti, en var svo á endingu drepinn fyrir landráð. ég er ekki að gefa upp endann, þetta stendur á kiljunni. en allavega... 3 kórónur af 5.

svo byrjaði ég strax í kjölfarið á nýrri bók af EKKI verri endanum. "da vinci lykillinn" eftir hann þarna gaur.
úff maður! þvílík spenna! las meira en 30 kafla, bara í gær! OG váhá, hvað það á eftir að gera bíómynd eftir þessari bók, maður sér gjörsamlega atriðin fyrir sér, ljóslifandi.
eða svo gott sem.

mánudagur, apríl 05, 2004

Mad World (Gary Jules)

All around me are familiar faces
Worn out places
Worn out faces
Bright and early for the daily races
Going no where
Going no where
Their tears are filling up their glasses
No expression
No expression
Hide my head I wanna drown my sorrow
No tomorrow
No tomorrow
And I find I kind of funny
I find it kind of sad
The dreams in which I’m dying are the best I’ve ever had
I find it hard to tell you
I find it hard to take
When people run in circles its a very very
Mad world
Mad world
Children waiting for the day they feel good
Happy birthday
Happy birthday
And I feel the way that every child should
Sit and listen
Sit and listen
Went to school and I was very nervous
No one knew me
No one new me
Hello teacher tell me what’s my lesson
Look right through me
Look right through me
And I find I kind of funny
I find it kind of sad
The dreams in which I’m dying are the best I’ve ever had
I find it hard to tell you
I find it hard to take
When people run in circles its a very very
Mad world
Mad world
Enlarging your world
Mad world


þetta er svo flott lag! gargh! afhverju nær alltaf það ofureinfalda svona hrottalega beint inní hjartað á mér?
í gær fékk ég mér svona lítið Rolo egg útí í 10-11.
það var ógeðslega gott, mæli með því að ALLIR fari út í búð núna og kaupi sér Rolo Egg. mér/mig/ég langar einmitt óhugnanlega mikið í svoleiðis núna...
jæja.... þeir voru ekki lengi að laga þetta blessaðir blogger mennirnir.
úff.
en smá prufa...

ég heiti tóta
Error
We apologize for the inconvenience, but we are unable to process your request at this time. Our engineers have been notified of this problem and will work to resolve it.

snilld.
nýr linkur og sólskin
bætti inn á linkana herr Kristján Orra bassaleikara. hneysa að hann skuli ekki hafa verið löngu komin inn. maðurinn er nottululega snillingur. svo kallar hann mig "dauða". svona fólk á alltaf hrós skilið.
ég fór í göngutúr með jóni mínum í hádeginu og það var hvorki logn né hlýtt, samt var sól! ótrúlegt hvað maður verður alltaf hissa þegar maður áttar sig á því að sól erekkiþaðsamaog hiti...
það er komið hádegi.
ég á aldrei eftir að verða eins og fólk vill að ég sé.
er það slæmt?
ég man ekki hver var að segja mér frá þessari auglýsingu, en hér er hún og hún er algjör snilli! ef þið geyspið EKKI eftir að hafa horft á þetta, þá eruð þið þvílíkir harðhausar....
skelfing er að sjá þig, tóta mín!
núna á ég að vera að slá inn íslensku stjórnardeildina, en ég kláraði þá 3 kassa sem ég var með og þar sem hin ógurlega rammgerða skjalageymsla í kjallaranum sem geymir hin 700 eintökin af títtnefndu safni, var læst áðan, kemst ég ekki að ná í fleiri kassa. ég er nú aldeilis yfir mig miður mín yfir því. eða svona þannig. ætlaði reyndar að hanga bara í rólegheitunum á kaffistofunni, en þegar 3 manneskjur voru búnar að minnast á það hvað ég liti illa út, ákvað ég að fara aftur niður. svo var einn samstarfsmaður minn að ferma dóttur sína í gær svo það er allt morandi í mæjónesi á kaffistofunni.
ég var nærri búin að æla. hafiði pælt í því hvað er Vond lykt af mæjónesi?
pælið í því.
fullt tungl í kvöld krakkar mínir.
úff úff :o

föstudagur, apríl 02, 2004

jæja jæja!
góða helgi gullin mín!
mín verður það :D:D:D
tóta að týna tölunum...
ég er að "rippa" alla Beethoven strengjakvartettana mína inná tölvuna, mér og þeim sem kunna að spila tónlist í gegnum tölvurnar sínar hér á skjaló (ekki margir), til góðs og ákvað að raða þeim í röð, svona af því að ég er nú svo skipulögð. byrjaði nottla á því að setja allan kvartett No. 1 í eina möppu. svo gerði ég það sama við kvartett no. 2 o. s. frv. þið fattið þetta.
en svo allt í einu fattaði ég að það voru komnir tveir sem voru nr. 1, 2 og 3, en bara einn af 4, 5 og 6.
aftur á móti voru til þó nokkrir sem voru bara alls ekki númer neitt, heldur höfðu svokölluð ópusnúmer. sem er svona tímaröðun tónskálda á verkum sínum fyrir þá sem ekki tóku tónlistarsöguáfanga eitt til sex hjá monsjör Tóta í hafnarfirði og vita þar af leiðandi minna en við sem tókum þá.
en eftir að hafa borðað súkkulaði (næring heilans), ljósritað auglýsingu fyrir Strengjakvartettinn Tuma og slegið inn heilan helling af íslensku stjórnardeildinni, uppgvötaði ég að maður á bara alls ekki að raða strengjakvartettum eftir númerum, heldur ópusnúmerunum geðþekku. með þetta að leiðarljósi bjó ég til möppu sem heitir Op. 18 og í henni eru kvartettar no.1, no.2, no.3, no.4, no. 5 og no. 6. í möppu op. 131 er hins vega Bara kvartett op. 131. án númers.
jáhá.
þetta finnst ábyggilega fáum áhugaverður póstur. en það er nú bara svona með lífið. það er ekkert rosalega gott í að velja fyrir mann fyrirfram sem manni finnst skemmtilegt að lesa. jáhá. en núna geta allir starfsmenn þjóðskjalasafns íslands hlustað á strengjakvartetta beethovens án mikilla málalenginga.
smeeeaaaldsenfeld
aaaaaaaargggghh!
afhverju virkar prentarinn ekki?!
djöfull HATA ég tölvur!!!
ggrrrrrrrrr :@
Strengjakvartettinn Tumi
ég gerði ekkert aprílgabb, enda mjög hugprúð og almennileg að öllu jöfnu. fyrir utan það að ég er venjulega það gjörsamlega út á þekju að ég veit sjaldnast hvaða dagur er, hvað þá hver dagsetningin er. en aftur á móti fór ég á kaffihús með vinkonum mínum kl. 9 um morguninn, sem er að vissu leyti hálfgert djók. tala nú ekki um þar sem við eyddum nærri því öllum miðvikudeginum saman. en þetta var þarfur fundur, því vinkonurnar voru hvorki meira né minna en 75 % kvartettsins ógurlega sem fann grúfið sitt. við ákváðum í mikilli sameiningu (á meðan Halldóra fór á klóstið -hehe) að endurskíra þennan fjagra-mæðra og sextán strengja hóp, og var nafnið TUMI fyrir valinu. útskýringar yfir nafngiftinni eru þónokkrar og sýnist sitt hverjum.

en ég auglýsi hér með að Strengjakvartettinn Tumi spilar fyrir fólk og fyrnindi við hverskonar tækifæri og viðhafnir, gegn vægu gjaldi. djöst kol mæ næm end æll bí ðer. eða svo gott sem.
ég var að skipta um mynd á desktoppinu mínu. áður fyrr var þar sérlega sæt og hugguleg mynd af mér þegar ég var 4ja ára, standandi við stól heima hjá ömmu binnu með bros á vör. til seinni tíma hefur mér fundist þetta svolítið sjálfhverft, svo ég skellti inn mynd af fagurgrænni pöddu sem einhver kom með uppá Náttúrufræðistofnun síðasta sumar. fyrir þá sem eru illa upplýstir er rétt að geta þess að móðir mín elskuleg vinnur þar. ég er ekki vildarvinur stofnunarinnar sem fæ sendar nýjustu myndatökurnar af öllum pöddum sem inn koma. ;)

fimmtudagur, apríl 01, 2004

oh éger svo mikið intellektúal!!
skrifaði svona líka gagngeran og góðan ritdóm um Paradísareplin, og herlegheitin voru bara birt! jeminn eini.
sjá hér
í morgun áttaði ég mig á því hversu mikilvægt það sé að taka með sér linsubox hvert sem maður fer.