föstudagur, febrúar 06, 2004

Jæja jæja!
nú er komið að því!
föstudags-febrúar hreingerningin á blogginu mínu. ef þið eruð með einhverjar séróskir, vinsamlegast hafið samband. ekki búast samt við því að ég taki mark á þeim ;)


haldiði að hún sé sæt þessi stelpa?
hohohoh!

já svei mér ef að myndasíðan er ekki öll að koma til. þetta á maður til, svona þegar maður er til. og er svona ofsalega kalt. til.
ó ó ég á svo bágt. loksins er ég komin með litlu njósnamyndavélina mína og búin að skella henni í samband og allt það, svo finn ég svona líka drullu sniðuga síðu sem birtir myndir fyrir mann. en þær verða að vera MINNI en 700 K! hvernig í óskupunum á þetta að heppnast hjá mér?
ég get breytt þeim yfir í jpg í paint og þá minnka þær nú töluvert, en ég næ þeim aldrei niður fyrir 10 KG nema þær líti út einsog mánaðargamall pastaréttur!
hvar eru tölvu snillingar vinir manns þegar svona agaleg mál koma upp?
svo er mér aftur orðið kalt og ég er ekki búin að borða NEITT! ég ætla að bæta sjálfri mér þessa hrikalegu vanlíðan (sem er þó ytra, fremur en innra) með því að kaupa ekkvað ógeðslega fitandi að borða og kók með! kannski líka súkkulaði.
minnst kíló.
en kíkið nú á síðuna samt sme áður, það á að vera mynd af síma á henni. held samt að hann sé dottinn út.... ó mig AUMA!

http://totaviola.textamerica.com/
farangursgjöld ofþungrahljóðfæra hljóðfæraleikara
já baráttan um gjöld á farangri hefur staðið lengi í hjörtum og hugum tónlistarmanna. einna versta hafa útúr þessu farið, sellóleikarar, kontrabassaleikarar, túbuleikarar, svo maður minnist nú ekki á þá guðsvoluðu aumingjans menn/konur sem plokka á hörpur. ég gleymi seint þeirri ferð til þýskalands þegar vinkonur mínar þær Sif og Fríða drusluðust (og ég er ekki að ýkja hérna) með svo stóra og þunga sellókassa að þeim var boðið að taka þátt í "miss heavy weight lifting contest". eða svona næstum því. sértaklega er mér minnistæð huggulega þýska lestarfreyjan (eins og flugfreyja, nema í lest) sem kom til mín, af því að hún hélt að ég talaði þýsku (sem er misskilningur og hún skipti svoaðsegja yfir í ensku) og sagði mér að selló kassarnir voru of stórir.
og við vorum hálfa leið frá Dusseldorf til Hamborgar. ég sagði nottla bara "yes they are" og hélt áfram að drekka bjórinn minn.
en ég var að slá inn einn aumingjans organista, sem hefur átt í þessum hvimleiða vanda að ferðast með ofstórt, ofþungt, ofasnalegtílaginu hljóðfæri og fengið (að því virðist) að borga það dýru gjaldi.

Isl. Journ. 11, nr. 688.
Pétur Guðjohnsen organisti sækir um lækkun á greðslu fyrir flutning á farþegafarangri með gufuskipinu til Íslands. Hinn 26. febrúar 1866. Með fylgir uppkast.

vona samt að uppkastið sé ekki ÚR pétri sjálfum...
mér líður aðeins betur núna, er ekki þreytt og soldið heitt. en ég er samt svöng.
mér er kalt og ég er svöng, mér líður illa og ég er þreytt.
mu.

þriðjudagur, febrúar 03, 2004

mér er mál að pissa og svo er ég að fara á æfingu í tónskóla Sigursveins sem ég nenni ekki að fara á. hún er samt mjög mikilvæg og það verða allir að mæta. herra hljómsveitarstjóri er eitthvað að verða stressaður, tónleikar á sunnudaginn og svona. ég persónulega held að þetta verði bara fínir tónleikar, jafnvel þó að ég skrópi núna á eftir, en maður verður víst að lúta höfði og hlýða. eða mæta öllu heldur. ég get þó glatt sjálfa mig með því að með því að mæta á æfinguna inní sigursveini, er ég að skrópa á æfingu í tónó hafnarfirði og þar er líka einhver svakalegur fundur um framtíð kammersveitarinnar og bladýbldaí. ég þori að veðja að nú verð ég sett í allskonar skítavinnu, bara af því að ég mætti ekki á þennan fund. verð skipuð nótnavörður og rótari, manneskjan sem hringir í alla ef að æfingartíminn breytist, eða þá konan sem hellir upp á kaffi í hléi og gengur frá eftir æfingar... brrr *hrollur*
svo er ég næstum því(samtekki) soldið stressuð, því að ég er nefnilega að fara í hljónfræðipróf á morgun og í staðinn fyrir að læra í vinnunni núna í dag eins og ég ætlaði að gera, þá Vann ég í vinnunni í dag, sem er vitaskuld mjög mjög heimskulegt. en maður verður að láta sig hafa það, svona í þetta skiptið. það held ég nú. en nú er best að klára það sem fyrst var nefnt, en minnst um talað...
hey víkingur sturtaði á mig! hohohoho! snild :D

http://www.totaviola.blogspot.com/2004_01_01_totaviola_archive.html#107547014930487511
afhverju afhverju afhverju klúðrast stundum templatið mitt í hakk og hverfur?
afhverju afhverju afhverju er ég með 2 bannera efst þegar ALLIR aðrir eru bara með einn?
er ég ekkvað spes eða hatar herra internet mig?
stelpur eru sniðugari en strákar
nei reyndar eru stelpur ekkert sniðugari en strákar, bara ÖÐRUVÍSI sniðugar en strákar. ég hef aldrei fílað þetta stelpur vs. stráka stríð sem hefur verið í gangi frá því hér um daginn. strákar eru ekkert betri en þeir eru heldur ekkert verri en stelpur, við erum bara mismunandi. guði sé lof.
en allavega, þegar ég var í mogun að labba í rólegheitunum mínum niður í tónlistarskóla hlupu 2 stelpur framhjá mér á mjög miklum hraða. þó hraðinn hafi verið gífurlegur tókst mér samt að heyra aðra þeirra segja:
"hey við verðum að flýta okkur!"
þá sagði hin: "við sjáumst samt ekkert ef við förum þessa leið...",
"flýtum okkur samt" sagði þá þessi fyrri og meira sá ég þær ekki því þær hurfu (á ógurlega hraðanum) bak við næsta hús. ég var vitaskuld ekki almennilega vöknuð þar sem þetta var mjög svo árla morguns (um 10) svo ég gat með engu móti fest hugann við samtal stúlknanna, né uppgvötað hvað þessi skrýtna orðahrina ætti að þýða. á það nefnilega til að vera heiladauð til hádegis. en svo kem ég neðar í götuna og sé þær stöllur standa við gaflinn á íþróttahúsinu við strandgötu og eru að öskra á nokkra stráka sem voru að koma úr hinni áttinni.
"sko! þessi leið er miklu fljótlegri!"
"við höfðum rétt fyrir okkur, ekki þið!"
"HE HE!"
ég heyrði ekkert hvað strákgreyin muldruðu þessu til foráttu, en mér fannst þetta mjög sniðugt. það er nottla ekki furða að stelpurnar hafi orðið á undan, þar sem þær HLUPU alla leiðina. ég var mest hissa á hvað þær gátu öskrað hátt um afrek sín, ég hefði verið móð í hálfan annan tíma eftir svona sprett. en þetta fannst mér mjög Sniðugt og datt í hug að deila með ykkur. en sé nú eiginelga soldið eftir því þar sem þetta er alls ekki jafn sniðugt núna eins og mér fannst það í morgun. oh well....

mánudagur, febrúar 02, 2004

messiaen allur
tónleikarnir í gær voru bara drullufínir, jájájá. náttkjóla-kórinn gerði stormandi lukku og heyrði ég engann tala illa um okkar fagra svoaðsegja fullkomna franska söng. líka eins gott. :@ eftir tónleikana hitti ég herra hroka, sem sagði "er æfing næsta sunnudag?" við mig, án þess að brosa, heilsa eða vera með almennilegt við mót, aftur á móti sagði hann "hæ, takk alfeg ÆÐISLEGA fyrir sönginn" við stelpuna við hliðina á mér. hann er kominn enn ofar á bik-svarta listann sem verður lesinn upp á eftir moldun minni þegar ég verð jörðuð. passið ykkur því allverulega!
en svo ég gleymi mér nú ekki í illgirninni (eins og oft vill gerast) er kannski ágætt að rifja upp þessa tónleika, þó ég nenni því ekki. sem er skemmtilegt tilviljun því ég nennti heldur ekki að hlusta á fyrra verkið, sem var á tónleikunum. það var eftir Hauk Tómasson og hrokagikknum fannst það hræðilegt verk, sem gerir það að verkum að ég er mjög fúl yfir að hafa ekki hlustað á það, verkið hlýtur að hafa verið frábært. ókeiókei, hætt. á meðan haukur var "spilaður" var ég bara uppi á lofti í úlpunni minni (samt að deyja úr kulda) og spilaði "alien scum" í símanum mínum. náði samt ekki metinu :( hallveig var reyndar með skemmtiatriði, sagði sögur og gramsaði í töskum, týndi eyrnalokkum (eða eyðilagði þá) og var öll hin hressasta. talandi um hressleika, þá annars verð ég nú bara aðsegja það kammersveitinni til sóma, að ég hef aldrei á ævinni (sem er nú frekar að lengjast frekar en hitt) fengið jafn veglegar hressingar í hléi. auðvitað var sjóðheitt kaffi tilbúið frá fyrstu mínútu, einnig heitt vatn og svo líka kalt vatn. sem er smart. svo fengum við einusinni kleinur, einu sinni skrýtnar sænskar bollur og matarkex. einu sinni fengum við líka melónur, TVÆR gerðir. svo voru danskar getekkimyglaðenerusamtgóðarábragðið sandkökur á boðstólunum og yfirleitt var alltafboðið upp á svona piparmyntu súkkulaði kex sem henni Eydísi minni finnast vera algjört lostæti. takk fyrir það kammersveit.
svo bauð franska sendiráðið upp á freyðivín eftir tónleikana, ogviti menn. það var drulluvont! en kammersveitin linnti ekki á liði sínu (eða það) og bauð upp á fyrirtaks nóa-konfekt, sem eins og allir vita, getur ekki klikkað.
ég hitti Víking eftir tónleikana og honum fannst bara mjög gaman, kom mér þó á óvart, spurði mig nefnilega hvort ég hefði verið að syngja með.
-nei víkingur, ég fer í ljótan hvítan kjól og held á kórpartinum af verkinu, alltaf þegar ég fer á tónleika!
en hann er ungur svo ég gef honum sjens. ég lenti líka í því skemmtilega atviki að dansunnandinn ógurlegi, Ólafur faðir hans hótaði mér því, að hefna sín hrikalega. ég býst við matarboði mjög bráðlega. en ég bara verða að segja það að ég kann ótrúlega vel að meta fólk sem hótar öðru fólki. það er ekki með neitt hálfkák og faraábakviðfólk eða aumingjahátt og smjaður. gengur hreint og beint (sé það sæmilega ódrukkið) til verks og bara hótar manni.
snild.
Architecture
You are Architecture.
You are the most functional art form and rarely do
anything without some practical purpose.
Although you are capable of easilly outstaging
the other arts, you usually prefer to go
unnoticed.


What form of art are you?
brought to you by Quizilla

föstudagur, janúar 30, 2004

maður verður nú að vera eins og hinir, ha? ég minnkaði samt mitt kort, þá er það ekki eins áberandi hvað ég farið á BUTT fáa staði.


create your own visited country map
or write about it on the open travel guide

ókeiókeiókei, þetta er stolið af síðunni hennar elsku bestu Tinnu minnar, en þetta er bara svo nett að ég gat ekki annað.

The following scene took place on a BA flight between Johannesburg and London.

A white woman, about 50 years old, was seated next to a black man.
Obviouslydisturbed by this, she called the air Hostess.
"Madam, what is the matter"?, the hostess asked.
"You obviously do not see it then"?, she responded.
"You placed me next to a black man. I do not agree to sit next to
someone from such a repugnant group. Give me an alternative seat".
"Be calm please", the hostess replied.
"Almost all the places on this flight are taken. I will go to see if
another place is available".

The Hostess went away and then came back a few minutes later.
"Madam,just as I thought, there are no other available seats in the
economy class. I spoke to the captain and he informed me that there is also no
seat in the business class. All the same, we still have one place in the
first class"
Before the woman could say anything, the hostess continued.
"It is not usual for our company to permit someone from the economy
class tosit in the first class However, given the circumstances, the captain
feels that it would be scandalous to make someone sit next to someone sooooo disgusting".
She turned to the black guy, and said. "Therefore, Sir, if you would
like to, please take your hand luggage because a seat awaits you in the first class".

At the moment, the other passengers who were shocked by what they had
just witnessed stood up and applauded.

This is a true story which is not usually told. If you are against
racism, please send this message to all your friends, please do not delete it
without sending it to at least one person.

var að skella inn nýjum link, yfir á Weebl and Bob sem er án efa eitt það allra fyndnasta á netinu. það finnst allavega mér. og Agli.

Germs (nýjasti þátturinn)
smá svona föstudags glenserí.... ef ykkur finnst þetta ekki fyndið getiði hoppað um!
viðreynsla 1

viðreynsla 2

viðreynsla 3

viðreynsla 4
ákvörðun tótunnar í gærdag var...
það var semsagt minn ástkæri bankareikningur í íslandsbanka og frændi hans europay island punkturis sem tók hina ógnvænlegu sinfónísku ákvörðun fyrir mig í gær. ég var heima og æfði mig á fallegu, góðu, yndislegu víóluna mína, en fór ekki á stórsnildarlega tónleikana í til Háskammarhúsnæðinu við Hagatorg. :( hann pekki pakkata (eða hvað þessi finnska drusla heitir nú) verður víst að njóta nærveru minnar seinna meir. en ég æfði æfingar 12, 25 og 33 í campanioli bókinni minni og geri aðrir betur, þær eru bara ansi snúnar! svo æfði ég líka soldið í "vopnaða manninum" sem hljómsveitin í tónskóla sigursveins er að æfa af kappi þessa daganna. -tónleikar 8. feb, allir að mæta - en það verk er einmitt alfeg einstaklega.... jah.... sérstakt verk. parturinn sem ég æfði er einradda laglína með sellóunum, svo ég var nú ekkert að missa mig. enda óþarfi þar sem laglínan er einradda með sellóunum.
eh...?
allavega.



ég er að hlusta á diskinn "the greatest hits" með madonnu og svei mér þá ef maður er ekki bara farinn að dilla sér í mjöðmunum. bara aðeins samt! maður er nottla í vinnunni! en þarna er hver smellurinn á fætur öðrum, mætti eiginlega halda að hún hafi bara tekið öll bestu lögin sín síðustu ára og smellt saman á einn disk!
eh...
;)
svo fann ég þessa fögru síðu og HÚN er nú ekkvað fyrir uppáhalds elsku besta madonnusykurinn minn ;) (k)
www.madonnashots.com
það held ég nú. hér er bloggið hjá Jamie Lynn, litlu systur hennar Britney Spears. ekki aað það sé skemmtilegt...