miðvikudagur, október 01, 2003

hörður mar æskuvinur minn og félagi, sem ég reyndar á ekki í neinu nema rafrænu sambandi við er Sjúklega Fyndinn Maður (SFM).

(tekið af blogginu hans)
Posted 10:37 by Hörður Mar
Ég gerði símaat í gær, geðveikt fyndið.

Gísli: Blessaður!
Ég: Blessaður, er Hreinn þarna?
Gísli: Ha?
Ég: Er Hreinn þarna?
Gísli: Hörður, þetta er Gísli.
Ég: Er enginn hreinn þarna?
Gísli: Nei.
Ég: Eru þá allir skítugir?


og hvað ég vildi að ég væri svona fyndin eins og hann....
oh well... ég fékk lúkkið, hann húmorinn. gangur lífsins


æj sjáiði hvað hann Hjörtur minn er Sætur! jafnvel þótt hann sé alla leið úti í Danmörku!
oooooohhhh..... aaaaaawwwww!
mig langar soldið í stafræna myndavél núna.


hey ég fann þetta voða beyglu dæmi sem sinfó áhugamanna ætlar að kaupa eftir tónleikana.
jahérna. iðunn er búin að smakka þetta og fannst það allt í læ.... þannig að ég lít björtum augum til Beyglu-framtíðar minnar.
:)

haldiði ekki bara að Hjördís ofurgella sé farin að blogga. spurning hvort hún verði duglegri við það heldur en að skrifa email? ;)
hehe.
svo skellti ég sinfó áhugamanna líka í tónlistarlinkadálkinn. þetta fer nú að verða fullmikið af linkum held ég á endanum.
æj samt....
mogginn farinn að stíla meira inn á rómantískar sálir og dramatískt fólk
sinfóníuhljómsveit áhugamanna
Fólk var svo yfir sig áhugasamt um póstinn minn um áhugamannabandið að ég bara verð að taka mig saman í andlitinu (þó fyrr hefði verið, ég veit ekki hvað í óskupunum er orðið af hægri nösinni) og blogga soldið um þá ágætu grúbbu.
það eru nefnilega

Tónleikar 5.október í Seltjarnarneskirkju kl. 17:00. Oliver Kentish stjórnar og eru verkin þessi:
Hildigunnur Rúnarsdóttir: MYRKVI
Jean Sibelius: Sinfónía nr. 7
Tchaikovsky: Rococo tilbrigðin

það er ofur-selló-gellan hún Nicole sem fer hamförum á sellóið sitt. ótrúlega góð manneskjan, eins og hún nú lítur út fyrir að vera léleg. DJÓK! ferleg tussa :p hún er að spila rococococo tilbrigðin. það hefði nú verið stemmari að fá Coco til að taka eins og eitt Drag-sjó í hléi. kannski bjóða upp á Coco puffs eða Cocos-bollur, eða jafnvel heitt coco með rjóma. mmmm rjómi.
svo spilum við Myrkva eftir hana Hildigunni, sem er mjög myrkvað verk (enda verðum við öll í svörtu). allavega eru þessi hryndæmi í byrjuninni ekkert alfeg að gera sig. eða svona.... kannski þau gera sig alfeg ef maður spilar þau öll. tsjah, nú verð ég skömmuð ;) en þetta verk er nú bara frekar kúl, enda tvö víólusóló sem bæði eru einstaklega vel skrifuð. sérstaklega þetta síðasta sem endar á uppstroki sama hvað maður gerir. ég er að spá í að plokka það bara. eða henda kannski boganum út í sal um leið og ég sleppi nótunni. þeir gera þetta stundum fótboltakallarnir... svona ef þeir skora mark eða ekkvað, rífa sig úr bolnum og henda upp í áhorfendastúku. þetta gæti ég hæglega leikið eftir, klárað sólóið með einstökum afbrigðum og hent svo boganum út í sal í sömu sveiflunni. ef vel tekst til gæti ég kannski séð til þess að Richie Pauls hætti að skrifa lélega dóma....
hmm, eða ekki.
svo er meiningin að spila Sibelius nr. 7 líka. úff. andvarp. ó-ó. æj. púha. stjah...
segi ekki orð.

en eftir tónleikana verður sukk og svínerí, skemmtinefndin ætlar að kaupa Beyglur (Heeelloooo?) og maður má koma með áfengi. já takk. kostar víst 1000 kall. en hver borgar ekki 1000 kall til að geta borðað beylgur með öðrum eins ofurstjörnum eins og Páli Einarssyni jarðskjálftasjení, krúttlega bassaleikarinum sem ég veit ekki hvað heitir og Kötu Siggu ofur-fiðlufrekju? svo maður minnist nú ekki ógrátandi á herra óliver hörundsára (sem er ennþá fúll yfir að ég kallaði hann yfirfýlupúka á blogginu mínu hér um árið) og dúllurnar mínar þær Elfu, Sigrúnu, Eydísi og Svöfu.
yeah!
það er ábiggilega geðveikt gaman að vera þessi kona.... ætli hún fái mikið af rusl pósti?
guð hvað var gaman á sinfó áhugamanna æfingu. jeminn eini. ég hef bara sjaldan skemmt mér jafn konunglega.

þriðjudagur, september 30, 2003

laugardagur
eftir að hafa sinnt skyldu minni sem sálarlífsfulltrúi fjölskyldunnar og fengið að launum pizzu og kók og brauðstangir frá dominos fór ég í afmæli hjá henni siggu minni og það var ótrúlega skemmtilegt. kynntist ferlega mikið af ótrúlega frábæru fólki, t.d. Valdísi, Elínu Ösp og Kristínu. við kristín föttuðum líka að við eigum sameiginlega vin sem býr í danmörku, er sætur og skemmtilegur og heitir Hjörtur. fyndið hvað maður kynnist stundum sumu fólki allt í einu og finnst það strax ágætt, en svo kynnist maður öðru fólki bara alls ekki jafn mikið á sama tíma og finnst það´kannski leiðinlegt í þokkabót-ofanálag.
stemming samt :) við fórum svo niðrí bæ og ein ónefnd, óaldursgreind var orðin afskaplega hávær og mjög fyndin. eiginlega fyndnari en ég, svo mér fannst að mér kveðið. við fórum á Dillon ég sá allt það mesta hipp fólk bæjarins. oj bara. svo að ég stakk af til að hitta afa gamla og hann var að brjóta saman nærbuxur. en fekk mér nú fyrst pulsu með öllu nema remúlaði og kók í dós. á meðan ég var að bíða kom askvaðandi strákur sem ég þekki og heitir Haukur.
annað hvort er ég orðin ennþá meira rugluð í hausnum en ég var, eða þá að ekkvað kom fyrir hauk frá því að ég sá hann síðast, eða þá að ég hef verið töluvert mikið drukknari en ég gerði mér grein fyrir, vegna þess að hann var svo ógeðslega smámæltur! ég skildi varla orð af því sem hann sagði.
svona er nú miðbær reykjavíkur á laugardagskvöldum, krakkar mínir....
ég gæti aldrei orðið góður hundur
vegna þess að ég þoli ekki skipanir. þegar einhver segir við mig "þú átt að..." eða "þú verður að..." þá verð ég geðveikt fúl og geri hlutinn helst ekki. jafnvel þó að ég verði að gera hann og fólkið sem skipaði mér fyrir var ekkert að meina það illa, var kannski bara að benda mér á ekkvað sniðugt (hey tóta þú VERÐUR að prófa nýja ísinn á snælandi!). stundum brýt ég samt obb af oflæti mínu og geri umræddan hlut en þá geri hann illa og hroðvirknislega og verð ennþá fúlari fyrir vikið.
ég held ég sé ekki skemmtileg í umgengni.

föstudagur, september 26, 2003

jæja, farin að hitta Palla sæta á kaffihúsi.
bæjó spæjó og góða helgi ljósin mín litlu, knúsogkossar
þetta:
Horner
The Place Where Dreams Come True
from Field of Dreams
Original Motion Picture Soundtrack
er ekki leiðinlegt lag... svakalega dúllulegt meira að segja. *awwwwwww*
"God made the body for a reason, and we were meant to exploit it."
-Andreas Serrano
nammi namm ég er aftur byrjuð að hlusta á beethoven.com og það er bara endalaust mikil snilld. nú er ég t.d. að hlusta á tunglskins sónötuna eftir Beethoven, útsetta fyrir klassískan gítar. geggjað töff!
sinfó rokkar
bloggið mitt er orðið hálf leiðinlegt, ég bara verð að segja það. en annað sem ekki er leiðinlegt eru tónleikarnir sem ég fór á í gær með honum Víkingi í háskólabíó. fór með döggu sætustu systur (sem loksins leysti frá skjóðunni) en við lentum reyndar í því að vera í VERSTU sætum alheimsins. 10 bekkur hægra megin. við vorum sem sagt með fiðlu helv. gargið beint í andlitið og sáum ekkert nema rassana á sellóleikurunum. sem er nú reyndar ekkert svo slæmt, by the way... en við lentum líka í því að lenda við hliðina á ónefndum fiðluleikara og hún lyktaði svo skelfingi illa að mér var orðið hálf óglatt þarna í byrjun. svo var reyndar fyrsta stykkið líka alfeg hræðilega leiðinlegt. en þetta var allt saman hin fínasta skemmtun, hittum Svöfu sætu og litlu systur hennar sem heitir Oddný, ég sá glitta í Siggu mína með Rögnvald afa sinn uppá arminn inná milli dragt-klæddra, hárspreys-gellna, en kunni ekki alfeg við það að öskra á skvísuna. hefði samt verið nett.... dagga systir sá fullt af sætum strákum, ég er sem betur er hætt að pæla í þessháttar rugli.
Guð já!
svo hitti ég hana Guju í stiganum, það var soldið fyndið. vegna þess að við þekkjumst eiginlega ekki rassgat, þó samkvæmt öllum líkindum ÆTTUM við að gera það. soldið kjánalegt, ég veit... en svona er þetta. við vorum sko saman í 2 áföngum í bókó hér um árið og svo er hún líka í tónó og.... hmmm. já. þekkjum fellega mikið af sama fólkinu og svona. hún les bloggið mitt (og er ábiggilega að roðna núna, hehe!) og ég hennar, en allavega. hún heilsaði mér (ekki sjens ég hefði þorað því fyrr en á fjórða glasi) og hótaði að hitta mig á kaffi húsi.
mér líst nú bara vel á það :)
Mikið andskoti er ég mikill Hössler þessa daganna, Hmoah!

fimmtudagur, september 25, 2003

maður að spila lög og tala frönsku.
yeah!
allir að mæta á
sinfó-tónleika í kvöld. víkingur heiðar stefaníu-bróðir erað fara að spila Jón Norðdal píanókonsertinn, sem er bæ ðe vei ógeðslega skemmtilegur og sniðugur. konsertinn. víkingur er reyndar ágætur líka. ég hef spilað hann sko. konsertinn, ekki víking. reyndar spilaði ég nú bara víólupartinn og feikaði helminginn, en það bíttar nú engu, það er hugurinn sem skiptir máli. ég var einmitt orðin svo hrifin af þessum konsert að ég var hundfúl á tónleikunum vegna þess að ég vissi að þetta væri í síðasta skiptið sem ég myndi heyra hann í langan tíma.
en nú er stundin komin!

hér er svo "komplet" dagskráin, ég vona bara að það verði ekki uppselt... það er búið að auglýsa þetta svo mergjað mikið.


Tónleikar í Háskólabíó fimmtudaginn 25. september 2003, kl. 19.30

Hljómsveitarstjóri: Olari Elst
Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson

Magnus Lindberg: Feria (1997)

Jón Nordal: Konsert fyrir píanó og hljómsveit (1956)

HLÉ

Sergej Prokofíev: Píanókonsert nr. 1 í Des-dúr (1911)
Allegro brioso – Andante – Allegro scherzando

Erkki-Sven Tüür: Sinfónía nr. 3 (1997)
Contextus I
Contextus II


hmmm... erkki sven túúr? eins gott að bæta ekki nokkrum stöfum inní þetta...
> It can buy a House...............But not a Home
>
> It can buy a Bed..................But not Sleep
>
> It can buy a Clock................But not Time
>
> It can buy you a Book......But not knowledge
>
> It can buy you a Position....But not Respect
>
> It can buy you Medicine.......But not Health
>
> It can buy you Blood............But not Life
>
> It can buy you Sex..............But not Love
>
> So, you see, money isn't everything.
>
> And it often causes pain and suffering.
>
> I tell you all this because I am your Friend,
>
> and as your Friend I want to take away
>
> your pain and suffering..............
>
>
> So send me all your money..........
>
> And I will suffer for you.

þriðjudagur, september 23, 2003

hehehe, þetta er geðveikt fyndið :)
ég var geðveikt dugleg að æfa mig í gær og í morgun. svo að ég á allt gott skilið.
taki það til sín sem eiga það...