vó.
Baldur á eftir að öskra þegar hann sér þetta hér.....
þar sem bullið nær yfirhendinni oftar en þig grunar // the blabbering blob
þriðjudagur, maí 27, 2003
svo ég minnist nú aftur á það hvað systir mín er ótrúlega mikill snillingur, þá bara verð ég að skella hér einni mynd af gellunni þar sem hún er í sundi.
Í ÖLLUM FÖTUNUM!!!
þvílík snilld. nú þarf hún ekkert að þvo í nokkra daga.
blessunin litla...
og SJÁIÐI svipinn á minni! argh hahaha!
Additionally, but infrequently, we have had difficulties with saving template data. This is usually cleared up by the following day. If you encounter this problem, please wait a few hours or until the next day and try again. Also, please check the list of documented errors to see if your specific problem is explained
hjúkk!
hjúkk!
argh!
nú skil ég ekki bloggi mitt lengur. það sem stendur í "template" er ekki það sama og það sem birtist!!
er einhver að lenda í þessu?
BLOOOOOOOOOGGER!!!!
nú skil ég ekki bloggi mitt lengur. það sem stendur í "template" er ekki það sama og það sem birtist!!
er einhver að lenda í þessu?
BLOOOOOOOOOGGER!!!!
systir mín er snillingur.
það þarf ekki að útskýra það neitt nánar.
"...hér kemur lítið ljóð um hollustuna
Alltaf skaltu borða hollt
ekki þarftu að líða sollt
Gott er að líða vel
mér verður ekki um sel."
D.H. 2003
það þarf ekki að útskýra það neitt nánar.
"...hér kemur lítið ljóð um hollustuna
Alltaf skaltu borða hollt
ekki þarftu að líða sollt
Gott er að líða vel
mér verður ekki um sel."
D.H. 2003
mánudagur, maí 26, 2003
hmmm.... fyndið.....
það kom nákvæmlega sama útskýring á nafninu Oscar....
það kom nákvæmlega sama útskýring á nafninu Oscar....
þetta er víst ekkva í tísku, að láta einhverja bandaríska ljóta síðu segja manni hvernig manneskja maður er, bara ef maður stimplar inn fyrsta nafnið sitt.
jeeeeess....
en þeir höfðu þó eitt rétt, hehe (ég var með fullan munninn af nammi þegar ég tók prófið)
Your first name of Tota makes you a quick thinker, both philosophical and creative. You appreciate music, art, and drama and, if given training, could excel in those fields. Self-consciousness may prevent you from feeling at ease in positions of impromptu expression. Desiring to be free from detail and monotony, you find it difficult to finish what you start if it does not hold your interest. You enjoy reading and the beauties of nature, experiencing peace and relaxation in outdoor activities. A very individual, independent person, you live within your own thoughts. With acquaintances and strangers, you tend to be reticent and reserved. Your friends never know whether they will find you friendly and charming or lost in introspection. When unhappy or disappointed, you can be moody and temperamental, feeling misunderstood and unappreciated. You will go out of your way to help others, and find it difficult to say "no" and mean it. Others impose on your generosity at times. You enjoy sweets and starchy foods. Over-indulgence could cause a weak back, skin conditions or arthritis later in life. The heart and lungs could also be affected at stressful times.
ef þið viljið taka þátt í vitleysunni, getið þið nálgast draslið hér...

þeir sem héldu að Eiríkur sonur hans Stefáns Ómars væri venjulegur strákur sem spilar á trompet í frístundum geta nú aldeilis bitið í gamla kartöflu. eins og sést á þessari mynd er hann í raun og veru ljóshærð stelpa og heitir Steinunn. og ekki nóg með það að hún sé stelpa, heldur er hún Rapp-stelpa í hljómsveitinni UranuZ.
you go girl.... YOU go!
guð hvað mánudagar eru ömurlegir!
ég svaf og svaf í morgun, skrópaði í sund.
svo er ég búin að drekka svona 4 lítra af kaffi og háma í mig súkkulaði kex. fyrir utan sóma samlokuna með Túnfisksalati sem ég át í hádeginu. Bjarni sem vinnur með mér kom með fullan kassa af sóma samlokum og hótaði okkur öllu illu ef þær yrðu ekki kláraðar.
reyndar á síðasta söludegi... en eftir að hafa séð Jón gleypa í sig eina ákváðum við hin að láta til skarar skríða. jessör.
við gudda budda fórum og heimsóttum óléttustu konu í heimi, hana Ráðhildi og gláptum á 60 mínútur eins og einhver væri að borga okkur fyrir. skoðuðum líka helling af myndum, meðal annars myndirnar frá því Fjóla og Ingó héldu uppá afmælið sitt á Akranesi 2001. eða var það 2002? garg, ég er með svo vont minni. en allavega þá var þetta svo drullu fyndið að við ætluðum aldrei að hætta að hlægja.... úff.
svo skoðaði ég brúðkaupsmyndirnar þeirra....
úff...
þær eru svooooo fallegar. nú verð ég alfeg brjáluð þangað til að einhver biður mig um að giftast sér...
;)
svo ákvað ég að skella inn einni mynd af henni Laufeyju Björt, sem reyndar var sofandi í gær þegar ég og GB komum í heimsókn, en hún er sætust þrátt fyrir það :)
Morgunljóð
vakna ég án þín verst
við draumanna hlátur
þeir hópast að hjarta mér
hæðast að hvernig það berst
og þrátt fyrir þrálátan grátur
hylja þeir fyrir mér sýn
svo ekkert að endingu sé ég
nema fallegu augun þín
fer ég á fætur ein
flest mér til ama verður
dagurinn einmana deyr
til einskis af draumunum gerður
vakna ég án þín verst
við draumanna hlátur
þeir hópast að hjarta mér
hæðast að hvernig það berst
og þrátt fyrir þrálátan grátur
hylja þeir fyrir mér sýn
svo ekkert að endingu sé ég
nema fallegu augun þín
fer ég á fætur ein
flest mér til ama verður
dagurinn einmana deyr
til einskis af draumunum gerður
Sunnudagur til sigurs,
mánudagur til mæðu,
þriðjudagur til þrifa,
miðvikudagur til moldar,
fimmtudagur til frægðar,
föstudagur til fjár,
laugardagur til lukku.
það held ég nú
mánudagur til mæðu,
þriðjudagur til þrifa,
miðvikudagur til moldar,
fimmtudagur til frægðar,
föstudagur til fjár,
laugardagur til lukku.
það held ég nú
fimmtudagur, maí 22, 2003
það er ennþá styttra í júróvisjón heldur en áðan þegar ég bloggaði svo að ég sá ekki annan leik í stöðunni heldur en að birta hér einn drykkjuleik sem ég fann á netinu. ef höfundurinn er fúll, þá skal ég segja fyrirgefðu... :)
Eurovision drykkjuleikurinn
(Þennan má bara leika einu sinni á ári í eurovision-partýum)
Drekka á 2 sopa ef:
· kynnarnir reyna að vera fyndnir
· kvenkyns kynnirinn skiptir um kjól
· kynnarnir eyða tíma í samtal sem enginn getur fylgst með
· einhver keppendanna er líkur einhverjum sem þú þekkir
· einhver keppendanna líkist einhverjum frægum
· minnst er á að Noregur sé ekki enn búinn fá stig
· Kýpur gefur Grikklandi 12 stig
· Noregur gefur Svíþjóð stig
Drekka á 4 sopa ef:
· söngvari lyftir handleggjunum upp fyrir haus á meðan hann syngur
· söngvari er mjög feitur
· flytjendur eru í hallærislegum fötum eða með hallærislega hárgreiðslu
· söngvari frá Austur-Evrópu er með aflitað hár
· sést í geirvörtur í gegnum fötin
· flytjandinn frá Möltu er ekki loðinn á bringunni
· önnur lönd en enskumælandi flytja á ensku
· flytjandi daðrar í myndavélina
· flytjandi er ekki frá landinu sem hann syngur fyrir
· Frakkland gefur Bretlandi ekki stig
· lagið sem fær 8 stig eða hærra er lélegt
· Bretland lendir í öðru sæti
· flytjendur eru að tala í síma á meðan stigagjöfin er
Klára á glasið ef:
· Þýskaland gefur Austurríki 1 stig
· Ísland vinnur
· Noregur gefur Svíþjóð ekki stig
· Írland vinnur
· ekki er minnst á frið, kærleika eða ást í þýska laginu

þetta hér er það MEST fyndnasta sem mér hefur verið sent lengi. þakka Öddu kærlega fyrir það.
Hmoooooaaah!!!!
: D
oooh mig hlakkar svo til á Laugardaginn þegar Eurovision byrjar....
ég ætla að syngja hástöfum (capslock)...
"Kaži, kaži kako je
Kada se gubi sve"
þegar lagið frá Bosníu-Hersigóviníu er. enda er það úr þeim texta. kannski get ég samt sungið þetta með einhverjum öðrum lögum líka, hver veit?
svo eru Hommarnir að tryllast yfir þýska laginu, vegna þess að í viðlaginu kemur
"Let’s get happy and let’s be gay
All our troubles they will fade away"
jeremías minn, þvílík stemming :D

gott ef að þetta er ekki eitthvað sem alllir þurfa að eiga. og ekki bara þeir sem ferðast mikið. ég hefði t.d. mjög mikla þörf fyrir eitt svona þegar ég fer á æfingu á sunnudagsmorguninn kl. 10. úff...
Hljómeykis tónleikarnir í gær gengu bara soldið vel, svona þó ég segi sjálf frá. margt mjög skemmtilegt og sætt. tala nú ekki um Fjagra orða, auk eins sérhljóða, sólóið okkar Ragnheiðar í laginu "hear my prayer, o lord". en það voru einmitt orðin "hear my prayer, O lord". mjög huggulegt.
svo tók Hildigunnur Britten í rassgatið með hjálp Sigga Marteins. mjög smekklegt.
amma og mamma komu og voru áberandi fallegustu konurnar í kirkjunni.
þaðheldégnú.
svo keyrðum við Viggó'skan heim og hittum Guðný Birnu og Magga. GB var ótrúlega sæt eins og alltaf, en var þar að auki nýkomin úr klippingu. On fire! hún er nú meira hottie-ið. enda stoppuðu bílar hægri vinstri ville-vekk til að dást að dýrðinni.
jessöríbob.
vignir kom svo með mér heim og við skoðuðum heiminn upp í rúmi hjá mér yfir góðum Tropical fruit te-bolla. heims atlasinn rokkar, það held ég nú. Palli wecomealongway kíkti svo í heimsókn og náði í gelið sitt og 3 eftirlegu bjóra frá því um kosningahelgina. búið að vera hálf erfitt að koma okkur saman upp á síðkastið, hehe :)
svo styttist óðfluga í Júróvisjón, pulsupartýið er OFF :( og bráðum þarf kvartettinn að spila á listasýningu, útskriftarveislu og í giftingu.
þokkalegt rokk og ról framundan

miðvikudagur, maí 21, 2003
T.a.T.u. ROKKAR.
djöfulsins snillingar eru þetta. mikið var að einhver (eða einhverjar) kæmu og rústuðu þessari þurr-prumpu keppni. Loksins fær keppnin þá athygli og umfjöllun sem hún á skilið. þetta er málið!!
:D
djöfulsins snillingar eru þetta. mikið var að einhver (eða einhverjar) kæmu og rústuðu þessari þurr-prumpu keppni. Loksins fær keppnin þá athygli og umfjöllun sem hún á skilið. þetta er málið!!
:D
ég er að verða júróvisjón óð, mjög skemmtilegur prógress. var að skoða síðuna www.eurovision.tv sem er víst opinber síða keppninnar. þarna er ýmislegt sniðugt og skemmtilegur fróðleikur, meðal annars þessi hér um Írska söngvarann Mickey Harte.
When not singing and performing all over the country, Mickey likes to keep active. He loves swimming and cycling, even though as a child he nearly drowned when his two friends threw him into a pool knowing he could not swim.
segir þetta ekki soldið mikið um hvernig þessum manni er RAUNVERULEGA tekið í Írlandi. svo er lagið bæðevei næstum því alfeg eins og lagið sem ólsen bræðurnir unnu með hér um árið. írland, írland....

HÖFUÐSYNDIRNAR Í HÖFUÐBORGINNI.
Annar kafli
Lúðvík fann sæmilega hreinar hvítar buxur á gólfinu hjá sér og þröngan, hvítan stuttermabol. Eiginlega var þetta alltof lítinn bolur, því að ef hann hreyfði efri hluta líkamans mikið sást glitta í loðna bumbu upp úr buxunum. En Lúðvík hafði nú litlar áhyggjur af því, enda var hann sjálfur myndalegasti maðurinn á svæðinu, að hans eigin áliti. Og þar sem enginn annar var á svæðinu til að benda honum á eitthvað annað, var Lúðvík bara ánægður með sig og þennan bol. Hann fór í leðurjakka (sem var líka of lítill, þótt að hann væri nú samt stærri en bolurinn) og gekk út, og upp á efri hæðina.
"Ert þetta þú, Lútli minn?" Sagði konan á efrihæðinni og kom fram í dyrnar með rósótta svuntu og sleif í hendinni.
"Hættu að kalla mig þetta!"
"Ég held ég megi nú kalla þig það sem ég vil, enda á ég þig! Komdu nú og kysstu mig!" Konan kom aðsvífandi með sleifina og faðmaði hann að sér.
"MAMMA!!! Það kemur deig í jakkann!!"
"Oh, þú ert orðinn svo stór, strákurinn minn!" Hún kleip í kinnina á honum og togaði hana til. "Gútsí-gútsí-gúllí-gúll!"
"Maaaamma! Hættu!! Ég þarf að fara, ég er komin með verkefni."
Konan sleppti kinninni og þurrkaði tár úr öðru auganu á sér.
"Oh, ég er svo stolt af honum Lúðla mínum, orðinn spæjari og ég veit ekki hvað og hvað." Lúðvík dustaði deig af jakkanum og kíkti í spegil hvort að hárið væri ekki ábyggilega í lagi.
"Má ég fá bílinn?"
"Já, en þú verður að fara og kaupa hveiti... ég var að klára það. Svo vantar líka mjólk og egg og ég held að allir banan..." Hljóðið í mömmu Lúðvíks dó smá saman út á meðan og hún labbaði inn í eldhúsið og fór að bogra yfir ísskápnum. Lúðvík notaði tækifærið á meðan til að öskra "BLESS-BLESS" og stökkva út.
Einkaspæjarinn og ofurhetjan Lúðvík byrjaði nú samt á því að skokka léttum skrefum 4 hæðum ofar og banka á hurðina þar. Ósköp venjuleg meðalkona kom í dyrnar. Lúðvík hékk á dyrakarminum og reyndi að segja einhvað, en var of móður. Konan leit á hann ósköp venjulega, snéri sér svo við og kallaði...
"Jón minn! Hann Lúðvík er kominn að hitta þig. Þú kannski bendir honum á að það er búið að gera við lyftuna?" Eftir skamma stund kom ósköp venjulegur drengur, sem var eiginlega venjulegri en mamma sín.
"Hæ Lúðvík, sagði mamma þér að það er búið að gera við lyftuna?" Lúðvík setti upp vandlætissvipinn og þurrkaði svita af enninu.
"Ég þarfnast hjálpar þinnar, minn kæri vinur Jón... ég er komin með verkefni. Og það ekki lítið... MANNSRÁN!"
Jón varð ögn spenntur, en svo örvæntingarfullur.
"Ekki þarf maður eitthvað að klifra? þú veist hvað ég er lofthræddur... "
"auðvitað ekki maður! náðu í myndavélina þína, við þurfum að taka myndir af klæentinum... þannig hefur maður nú böffað margan krimmann... " Jón leit á Lúðvík eins og hann skildi bara alls ekkert hvað hann væri að meina.
"ég skil bara alls ekkert hvað þú ert að meina." sagði hann svo aumingjalega en fór samt og náði í myndavélina.
"farðu nú varlega jón og ekkert klifur! þú manst hvernig fór fyrir pabba þínum!" kallaði venjulega konan á eftir jóni þegar þeir lokuðu á eftir sér.
"bíddu... dó pabbi þinn ekki af því að hann fékk hjartaáfall?" spurði Lúðvík.
"jú. Ímyndaðu þér ef hann hefði nú verið að klifra!" sagði Jón alvarlega og hristi höfuðið.
þeir voru komnir inn í bílinn. þetta var gamall tveggjasæta renault með geymsluskotti og lyktaði allur af steikingarlykt, frá þeim tíma þegar mamma lúðvíks bakaði kleinur og seldi í búðir. allt í einu hljóðaði lúðvík upp yfir sig.
"Ó MÆ GOD!!!" jón hrökk við og leit hræðslulega á vin sinn.
"Hvað er það lúðvík? Hvað gerðist?!"
"Svaraðu mér Lúðvík Lárusson!!! Lúðvík, SVARAÐU MÉR!!"
hvað var það sem olli því að Lúðvík hljóðaði?
mun jón fá svar við spurningunum?
til hvers er myndavélin?
ætli lúðvík muni eftir að kaupa hveitið?
man einhver eftir að gefa fiskunum?
hvað sagði veggurinn við hinn vegginn?
kannski allt þetta og e. t. v. fleira í næsta þætti af…..
HÖFUÐSYNDIRNAR Í HÖFUÐBORGINNI
ef þú ert pervert og vilt endilega lesa um Lúðvík í vitlausri röð, þá er hægt að finna fyrsta kaflann hér...
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)