föstudagur, mars 21, 2003



nú verð ég víst að kveðja, er á leiðinni í bókmenntaritgerðir. tími dauðans. gottskálk er þó soldið kúl, alltaf að æsa alla upp. strákurinn sem situr við hliðina á mér er til dæmis alfeg á nippinu með að þola hann, mætir eiginlega aldrei. eins og hann er nú mikið hottie. strákurinn sko, ekki gotti. en fyrir þá sem eru að lesa þetta í kvöld, þá get ég með ánægju bent ykkur á að ég er líkast til að gera það sama og allir ættu alltaf að vera að gera.
góða helgi börnin mín :)
jæja, það var mikiðað þessi föstudagur kæmi. ogsvo er bara vont veður, rigning og leiðindi. ég kann nú ekki alfeg jafn mikið að meta það. hmmm... en það var svaka gaman hjá mér í gær, skrópaði í staðleysubókmenntir og fór að hitta Ellu Völu til að tala um árshátíð DAUÐANS sem verður 12. apríl. ég ætlaði líka að stela af þeim lagaskránni, en hún er bara týnd. drottinn minn dýri!
og ég sem er að fara að búa til nemendafélag. ég verð þá bara að búa til lög. hmoah-ho-ho-ho :)

fimmtudagur, mars 20, 2003



úbs... ég er víst ekki með sveigjanlega hugsun og hneigist ekki til samkynhneigðar. dem... eins og það hefði nú getað verið skemmtilegt ;)

Túlkun á niðurstöðunum
Þú hlaust 260 stig.

Flestir karlar ná stigafjölda á bilinu 0 til 180 og flestar konur 150 til 300. Heilar sem eru karlmiðaðir eru yfirleitt undir 150 stigum. Þeim mun nær núlli sem þeir eru, þeim mun afdráttarlausari karlheilar eru þar á ferðinni og testósterónmagnið að líkindum í meira lagi. Þessir einstaklingar búa yfir góðri rökvísi og skilgreiningarhæfni, eiga auðvelt með að tjá sig með orðum, eru agaðir í betra lagi og vel skipulagðir. Þeim mun nær núllinu þeir eru, þeim mun hæfari eru þeir til að gera kostnaðaráætlanir og spá fyrir um niðurstöður út frá tölfræðilegum athugunum án þess að tilfinningar hafi þar minnstu áhrif.

Niðurstöður sem hljóða upp á mínustölu benda til að heilinn sé ofur karlmiðaður. Það sýnir að mikið magn testósteróns var til staðar á fyrri þróunarstigum fóstursins. Þeim mun lægri sem stigafjöldinn er hjá konu, þeim mun meiri líkur eru á að hún hafi lesbískar tilhneigingar. Heilar sem eru kvenmiðaðir fá yfirleitt meira en 180 stig. Þeim mun hærri sem talan er, þeim mun kvenmiðaðri er heilinn og þeim mun meiri líkur á að einstaklingurinn búi yfir afgerandi sköpunargáfu, listrænum hæfileikum og sé músíkalskur. Þessir aðilar munu oftar en ekki taka ákvarðanir sem byggjast á innsæi eða hvatvísi og eru leiknir við að skilgreina vandamál með lágmarksupplýsingar í höndunum. Þeir eru og náttúraðir til að leysa vandamálin af skapandi innsæi. Þeim mun hærra yfir 180 sem stigagjöfin er hjá karli, þeim mun meiri líkur eru á því að hann sé samkynhneigður. Karlar sem eru neðan við núllið og konur sem eru yfir 300 hafa heila sem starfa með svo ólíkum hætti að þau eiga líkast til ekkert sameiginlegt annað en að búa á sömu plánetunni. Stigagjöf frá 150 til 180 ber vott um sveigjanleika í hugsun hjá báðum kynjum eða fótfestu í herbúðum beggja. Þessir einstaklingar sýna hvorki ákveðnar hneigðir til karlmiðaðrar né kvenmiðaðrar heilastarfsemi og eru venjulega sveigjanlegir í hugsun sem er vitaskuld afbragðs eiginleiki fyrir alla sem þurfa að leysa vandamál. Þeir hafa og tilhneigingu til að vingast bæði við karla og konur.

Veftilvísun: http://edda.is/karlkona







ooooooohhh! hann jón viðar er svo mikilll snillingur! og svo er hann svo sætur og skemmtilegur.
:)
ég var sko að fá nýtt lyklaborð og nýja mús. þvílíkur muuuunur. aaaaaaahhh....
svo er músin með svona rauðu ljósi undir, voða speisað. nammi namm. svo var ég að fá email frá honum eyfa mínum. rússínurassgatið mitt, algjörlega að standa sig þarna úti í skítugu borginni, það ættu margir fleiri að taka hann til fyrirmyndar og senda mér email, svona þegar heim er komið af djamminu. það er svo skemmtilegt...
af hverju rignir alltaf þegar ég þarf að labba ferlega mikið?

miðvikudagur, mars 19, 2003

nú er ég búin að vera að passa símann uppi á 3ju hæð frá því klukkan þrjú. svei mér þá ef ég er ekki bara búin að vera ansi dugleg.
ég er búin að skella á 2, ljúga að einni konu og láta Jón Torfason hlaupa fram og til baka. en hann fílar það nú bara.
svo er ég búin að bæta metið mitt í mindsweeper!
það er aldeilis afköstin hér á bæ, það verð ég að segja.
svo fann ég þessa líka ótrúlega nettu síðu, sem er að selja stuttermaboli. ég er í sannleika sagt að spá í að fá mér nokkra :)





þessi fallegi póstur er tileinkaður sætasta hárgreiðslumanni sem ég þekki, en það er hann Hafþór Benónýsson. hann á nefnilega AFMÆLI í dag!!!!
orðinn 24 ára strákurinn og braggast vona líka vel. til hamingju krúsíbúllingurinn minn.
;)
ÁTTA KOMMA SEX
er falleg tala
:)

laugardagur, mars 15, 2003

WOOOOOW!!!
Þetta er flottasta síða í heimi!
garg-hahah!!! :D
sniiiiiilllld



"There is nothing more beautiful
Than a Christian black man.
Long and lean with deep brown eyes,
Wavy hair or dreds
With Jesus on his mind."






ég er að stelast til að blogga smá, er heima hjá Vigni sætasta í heimi og búin að éta svo hrottalega mikið af heimatilbúnum pizzum að ég næ varla andanum. úff! bumba-rumba.
æj, þetta átti aðvera bumble-rumble...
garg.
eg er ótrúlega þreytt eitthvað. maður verður svo þreyttur af því að æfa sig svona mikið. en fyrir þá sem ekki vita, þá er ég að fara í stigspróf á þriðjudaginn (blóm og kransar afþakkaðir) svo ég er gjörsamlega að æfa mig myrkranna á milli. svona er þetta nú....
vignir ætlar á djammið með palla og inga birni. mig langar nú soldið með, en nei-nei, maður verður að neita sér um ýmislegt á þessum ögurstundum. en baldur, fríða, sif og eydís eru búin aðlofa að taka næstu helgi í rass***** og liggja í áfengi, eiturlyfjum og svörtum aðkeyptum gleðimönnum.. hehe! eða svona eitthvað kannski í áttina :p
jessör :)
en endilega óskið mér nú góðs gengis, ég er sattbestaðsegja svolítið stressuð fyrir þessi óskup, hef ekki tekið stigspróf í fjölda ára. jah! ekki síðan á síðustu öld!!!
það er nú meira en margir geta montað sig af.
eða eitthvað.

föstudagur, mars 14, 2003

óska ykkur góðrar helgrar...
uh...
góðra helga?
góður helgi?
gróðrur hrelfrugr?
garg

góða helgi

fimmtudagur, mars 13, 2003

ég legg það nú ekki í vana minn að taka fólk í einelti hér á þessu bloggi, en nú sé ég mér ekki annað fært en að taka hann BJARNA SNÆBJÖRNSSON ærlega fyrir.
hver heldur hann eiginlega að hann sé?
villir á sér heimildir svo áratugum skiptir, er bara alltaf vingjarnlegur og næs. verður ekkert fúll þótt maður troði sér óboðinn í party hjá honum, spjallar við mann í strætó og ég veit ekki hvað og hvað. svo birtist þetta bara í mogganum. svo í fréttabréfinu. svo að lokum í FJARÐARPÓSTINUM. nú verður leiknum að linna kæri Bjarni.... svona geturu ekki haldið áfram til eilífðar.


sjá hina haldbæra sönnun hér!













jessör, nósör, haldiði ekki bara að hún Lára Sigríður sé farinn að blogga, og með svona líka ótrúlegum látum....
bjór er góður fyrir ljótar konur


viftur eru ekki góðar fyrir ketti

þriðjudagur, mars 11, 2003

fyrir hann Eyfa minn
*músshí-músshí*
:)




þegar ég er orðin gömul og feit ætla ég að búa í þessu húsi og gera ekki neitt.
nema drekka bjór.
og æfa mig.
og kannski fá SUMT fólk í heimsókn.

a real life story from an icelandic farm from the Old days...



bærinn Ytri-Tunga í Kirkjubæjarklausturssókn í V-Skaptafellssýslu, árið er 1835.
húsmóðirin Steinunn er að bæta í sokka.
Steinunn: Jón minn... ég er ólétt
Jón: Ó en frábært!! þú ert yndisleg kona og ég elska þig
Steinunn: takk elsku jón. en ég var að spá í nafn...
Jón (grípur fram í): Jón. hann á að heita Jón.
Steinunn: en elskan... er það nú ekki svolítið...
Jón (grípur fram í): NEI! hann á að heita Jón!!
Steinunn: já elskan.. auðvitað.

Tunga ytri heimajörð
Jón Jónsson 36 húsbóndi
Steinunn Oddsdóttir 40 hans kona
Guðrún Jónsdóttir 17 þeirra barn
Steinunn Jónsdóttir 13 eins
Jón Jónsson 8 eins
Jón Jónsson 7 eins
Jón Jónsson 5 eins
Guðbjörg Jónsdóttir 3 eins
Jón Jónsson 1 eins
þriðjudagur til þokkalega mikið af kaffi!
úff.
ég næ varla andanum. samt eru nýju bollarnir pínkulitlir. en þetta fólk sem er með mér á skrifstofu er bara endalaust í kaffi.
"hey, klukkan er níu, förum í kaffi"
"hey, kallinn er að skúra, förum í kaffi"
"hey, mig langar í kaffi, förum í kaffi"
og þar sem ég er varla með meðvitund (hver er svossum með meðvitund FYRIR hádegi?!!) þá elti ég bara. þannig að þetta er allt saman öðru fólki að kenna hvað ég er búin aðdrekka mikið kaffi.
jess.....
svo var ég að lesa bloggið hennar iðunnar og hún er að fara til englands.
ARG
svo var Adda að kaupa sér ferð til kaupmannahafnar í sumar
ARG
ási bróðir er að fara til spánar
ARG
pabbi og systur mínar og frændfólk og amma og afi eru að fara til Ítalíu
ARG
ella vala kemst ekki á óperustúdíó Austurlands, vegna þess að hún verður í þýskalandi
AAAAARRRRGHHH

þarf ég að halda þessari upptalningu áfram? ég er að farast úr íslands-leiða. nú fer ég og sel eitthvað, svo ég komist til útlanda í sumar. hvernig getur fólk gert mér þetta? ILLMENNI!! reyndar fær eyfi litli 3 stig, fyrir að vera að koma HEIM 1. apríl. :) víííí.

mánudagur, mars 10, 2003

jessör.
haldiði ekki bara að hann Jón Viðar mega beib hafi farið fyrir hana tótu sína útí búð og keypt kaffisúkkulaði. nammi namm. og hér smjatta ég HÁSTÖFUM. ahahaha (capslock=hástafir)....
eh....
allavega. í gær var Hljómeykis æfing, bara mjög hugguleg, næstum því sóprana laus ;) og ENGIN ný þunglyndisleg lög. ótrúlegt en satt. en það sem mest má í fréttum vera, er það að í sumar á víst að setja upp "Grease" enn eitt skiptið.
og getið bara hverjir eru aðalhlutverkin!!
Birgitta Haukdal og Jón Jósep!!!
híhíhí!!!
ég er komin á rss listann :)