mánudagur, janúar 05, 2009

gleðilegt nýtt ár!

2009.
eitt ár eftir hjá mér.
nei djók, ein voða svartsýn. annars er ég komin algjörlega á bólakaf í eitthvað handavinnukreisíness. prjónaði (ekki alltaf) í góðum fílíng 13 pör af vettlingum fyrir jólin til að gefa í jólagjafir og heklaði stóran dúk. stóran.
eftir þetta allt hef ég svo bara ekki getað hægt. næstum eins og pringles. svo er netið nú ekki að draga úr þessu hjá manni, er búin að vera að gúgla hægri vinstri og skoða síður hjá fólki, ókei konum, sem eru alltaf að prjóna og svona. virðast bara blogga til aðsegja frá hvað og hvernig þær eru að prjóna. mér finnst það næs.
og svona til að herma þá ákvað ég að pósta mynd af nýjasta dúknum og grifflum sem ég gerði.

dúkurinn er helkaður úr minni meira en ástkærri "Bestemors hækelopskrifter" úr einhverju rándýru heklugarni (held að dokkan hafi kostað 800 kall :p en ég notaði nú bara svona 1/3), en grifflurnar eru bara úr júróprís garni (sem brakar í þegar það blotnar) og gerðar uppúr mér. og eins og sést þá var ekki til alfeg nógu mikill blár. en getur maður ekki bara sagt að þetta sé hönnun? held það.

annars allt gott af Hjarðarhaganum, geðheilsan öll að koma til. sumir halda, en ég VEIT að 2009 verður frábært ár :)

sunnudagur, desember 28, 2008

gleðileg jól allir.
yay!

við jónsæti vorum hjá mömmu og átum þangað til okkur var illt. gleymdum til að mynda að fara í miðnæturmessu sem var svona eiginlega planað. annað eins tók við á jóladag, en þrátt fyrir tvær umferðir sé ég enn eftir að hafa ekki borðað meiri ís.

semsagt ekkert nýtt þessi jól.

annars er það helst að frétta að kellingin er búin að skrá sig í einhverja kennslufræði í HÍ, byrjar núna í janúar. veit ekki alfeg hvernig þetta fer fram, er bara að vona ég þurfi ekki að vera mikið nálægt öskrandi skólabörnum. og þá alls ekki mörgum í einu.

ekkert búin að æfa mig svo vikum skiptir og líður eftir því (horribile), en nú er víst hækkandi sól, sem þýðir meiri birta og léttari dagar. enda er von á pepsí max drykkjufélaga á næstunni til að binda enda á þetta víóluáfangaleysi. ó je beibíkeik.

mánudagur, desember 15, 2008

ekki hálfnuð

jæja þögnin og kommentablokkeringin á braut, enda komin tími til að nöldra. ætlar RÚV ekkert að breyta aftur fréttastefinu, eða er ég kannski ein sem er alltaf jafn hissa þegar futuresounds of the sampler stefið byrjar á undan fréttunum?
verulega óviðunandi.

annars standa jólagjafirnar í 6 (og hálfur)/16. sé fram á að svindla smá, það er ekki á neinn leggjandi að prjóna Sextán pör af vettlingum. nema um ungabörn séu að ræða og systur mínar eru víst vaxnar uppúr þeirri skilgreiningu.

svo er gaman að segja frá því að ég er í þessum töluðu orðum að senda BCU (áður UCE) snepil sem á stendur að ég ætli EKKI að vera viðstödd útskrift mína í febrúar. sami snepill myndi einnig fara ef ég ÆTLAÐI að mæta. gefur það ekki auga leið ef fólk sendir EKKI snepil að það ætli EKKI að mæta? það finnst bretum ekki. enda eru þeir fíbl. en ef ég skil bréfið rétt sem fylgdi þá verða þeir að hafa þessa staðfestingu á EKKI-mætingu til að geta sent manni prófskírteinið. og ég spyr aftur: gefur það ekki auga leið að þeir sem ekki mæta þurfi að fá skírteinin sín send? hvað ætlar skólinn annars að gera við skírteinin okkar?
vá hvað maður væri pirraður ef maður væri ekki svona þolinmóður og skilningsríkur.

jæja best að fjárfesta fingrunum á annan vett(linga)vang.

sunnudagur, desember 07, 2008

Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gjörir.

Fil. 4:13

miðvikudagur, nóvember 05, 2008


ég á nýtt uppáhaldslag, Ain´t no sunshine when she´s gone með Jackson 5. bara 5-6 orð aftur og aftur ("spunakaflinn með "no-no-no noooo NOOO" er líka mega bókmenntalega djúpur) og ekki er hljómagangurinn beysinn heldur.
afhverju er það einfalda ALLTAF flottast?
ég er alvarlega að spá í að taka upp á því að spila bara lausa strengi á tónleikum.

laugardagur, nóvember 01, 2008

kreppa? kauptu málverk!

við letilufsurnar tókum okkur til og löbbuðum niður í bæ í dag. þó ALLS EKKI til að mæta á mótmælin, enda erum við fullkomnlega á móti mótmælunum. hvað er annars málið með að kenna Davíð Oddssyni um allt illt sem gerist í veröldinni? þessar ofsóknir á manninn eru orðnar svakalegar, maður þorir varla orðið að skoða moggabloggin lengur. ég fæ allavega orðið illt í magann af því.
en ég ætlaði nú ekki að vera með eitthvað pólítískt ávarp, enda afar fjarri áhugakúrvunni.
við jónsæti s.s. löbbuðum niður á Borgarbókasafn til að ég gæti fengið mér bókasafnskort. hef verið haldin fáránlegri bókakaupsáráttu sem lýsir sér helst í því að mér fannst ég verða ða kaupa þær bækur sem ég las. kenni ódýru bókaverði í Englandi algjörlega um þetta, en þar sem kiljur eru á minnst 1500 kall hér á landi og 3/4 af þeim leiðinlegar, varð bókasafnskort kærkomin tillaga mín til míns. ó je.
þar sem éger að skrá nafn mitt, heimilsfang og póstnúmer (Andrés Önd, Andabæjargötu 13, 1313) rekur jónsæti augun í svo kallað Artótek sem er staðsett þarna við afgreiðsluna á neðstu hæð.
Þar er hægt að fá leigð málverk á mjög sanngjörnu verði, og ef maður svo ákveður að kaupa slettuna, gengur það leiguverð sem maður hefur borgað beint upp í söluverðið. frekar næs.
svo við gjöruðum okkur svo vel og tókum 3 málverk á leigu. þau eru öll geggjuð, stefnum algjörlega á að eignast þau með tímanum.
svo að þegar flest fólk hamstrar haframjöl og pasta, finnst slátur allt í einu orðið herramannsmatur og segir upp áskriftinni af séð og heyrt, fara hjarðarhagshjónin og fá sér málverk.
mér finnst við kúl.

fimmtudagur, október 16, 2008

Þetta er dagurinn sem Drottinn gerði, fögnum og verum glaðir á honum.
Sálm. 118:24

sunnudagur, október 12, 2008

blööööö

vá hvað þetta er slappur sunnudagur. jónsæti fór í vinnuna og ég sef eða ét nammi.
taka til? nenni því ekki.
æfa mig? nenni því ekki.
fara í sturtu og klæða mig. nenni því ekki.
oj.
meira aðsegja latasta sköpunarverk jarðarinnar, óskar köttur, fór út í smá göngutúr. jahérna hér....

fimmtudagur, október 09, 2008

vá það er svo lítið að gera í vinnunni mér er skapi næst að leggja mig. reyndar eru bara flestir stólarnir hérna frekar óþægilegir svo það myndi nú ekki hjálpa mikið.
annars er von á skemmtilegum atburðum í dag :)

föstudagur, október 03, 2008

eins og barnsrass


þörf skítavinna var unnin núna fyrir hádegi. tók mig til og setti háreyðingarkrem á skankana. frá tám og uppúr. svo að segja.
enda baðið stíflað eftir því.
leiðbeiningarnar sem fylgja taka það fram að efnið má alls ekki vera lengur á en 6 mínútur. veit þetta fólk hvað það tekur langan tíma að setja sovna krem á álíka kjötflykki og ég nota til að ferðast milli staða? það tekur svo sannarlega lengur en 6 mínútur...
en illu er best aflokið og er ég eiginlega hálf fúl að það skuli vera snjór, annars gæti ég farið út í sandölum og stuttum kjól, svona til að sýna afraksturinn.
AFRAKSTURINN!
fyndin ég.
annars er allt með kyrrum kjörum, settum íbúðina á sölu, en hverhefðitrúaðþví lítil viðbrögð :) en við erum sem betur fer ekki í neinni klemmu svo þetta er bara cool as ice. Óskar er by the way í fýlu af því ég nenni ekki að labba með honum niður. hann heldur því fram að hann vilji fara út. ég aftur á móti, annað en hann, hef minni til síðasta veturs og veit vel að honum finnst ekkert gaman í snjó, það er bæði kalt og blautt og algjörlega óhentugt til svefns.

mánudagur, september 22, 2008

loks

er ég farin að geta gengið, setið, legið og beygt mig. fékk svona líka hroðalega magakveisu á fimmtudag og ákvað að nota helgina í ákaflega huggulega legu/setu. ógeð.
það ætti að banna fólki aðverða svona veikt.
reyndar var mér hjúkrað af miklum móð, borið í mig vatn og... uh vatn. hélt engu niðri og hafði enga matarlyst svona framan af. lenti svo í því (örugglega fyrsta og síðasta skipti) að vera svo að segja neydd í að drekka Gammel Dansk. það slær á, trúið mér.
en svona til að móðursjúkir lesendur rói sig, þá var þetta ekkert alvarlegt, bara "magakvef" eins og læknirinn sagði (ákvað að skella mér til áður óheimsótts heimilislæknis í verstu rokunum). sumir æla og sumir fá hita og sumir bara liggja og emja eins og ég. gerist.
hrumpf.
ekki það ég hafi verið fúl að þetta væri nú ekki eitthvað gríðarlega mikil veiki, en mér fannst þetta heldur þunn útskýring á svona miklum verkjum. en núna þegar þetta er eiginlega allt búið lítur dæmið mikið betur út og sé fram á að arka hress og kát til vinnu í fyrramálið.
svo er bara að vinna upp allt það sem helgin átti að fara í. skemmtilega hresst að vera búin að plana heila helgi í æfingar, þrif og framkvæmdir og þurfa svo bara algjörlega að ýta þeim á undan sér. en á maður ekki bara að vera þakklátur fyrir að komast yfir þetta? held það :)

annars allt í góðum gír á Hjöddanum, ég meira aðsegja skellti mér á flug til London í nóvember. fékk það á svona líka góðum prís, 18000 kall. af því voru bæði flugin (út og heim) um 7000 en hitt skattar og gjöld. næs?

en mikið er Beethoven píanókonsert nr. 5 annars fallegur. mmmm....

miðvikudagur, september 17, 2008

galdrakisi

kemur nær og nær.... en HREYFIR SIG ALDREI!
samt geðveikt hissa.
þetta er jafn fyndið í þriðja skiptið, ég get svo svarið fyrir það.

þriðjudagur, september 16, 2008

týnt en ekki tapað

matreiðslubókin mín (sem er bleik á lit) týnist aldrei. nema koreri áður en sá sem ætlar að nota hana þarf að fletta einhverju upp.
þetta endurtók hún af miklum móð hérna áðan og leitaði ég horna á milli í allri íbúðinni. athugaði meira aðsegja hilluna undir vaskinum á klósettinu, svona til að ítreka hversu vandlega var leitað.
svo var hún auðvitað uppí hillu með hinum matreiðslubókunum, með sakleysissvipinn.
það sem var einkar skemmtileg var svo að komast að því að þessi tiltekna uppskrift var svo þegar allt kom til alls bara ekki í bókinni.
jahérna svona er nú margt manni til skemmtunar gert.
eða þannig.
en jæja, mér er ekki til setunnar (z) boðið að skella mér útí búð. á von á nokkrum hefðardömum í kvöldverð á morgun svo það er eins gott að vera vel birgur.

fimmtudagur, september 11, 2008



aumingja litli sæti dekraði Óskar Köttur þarf að fara til læknis á morgun... þarf að taka úr honum tönn. aaaauuuumingja liiiiitli. enda verður hann extra mikið dekraður það sem eftir er dags.
ég er í fríi, náði með miklum og ströngum (eða svona) samningaviðræðum að fá akkúrat þær vaktir á kaffihúsinu sem ég vil, er s.s. að vinna mánudag til fimmtudag 8-13 og svo frí rest. yay! þannig að nú get allir skellt þessu inní annars bussí stundatöflurnar sínar og mætt í rjúkandi kaffi uppí salt.
er að plana London ferð líka... þarf að drífa mig í tíma til mrs. Golani og svo verða sýnist mér hörku víólutónleikar 30. nóvember sem ég mun spila á, en meira plögg um það seinna. svo það er allt í gúddí hér á bæ... meira að segja búið að mála baðið.

mánudagur, september 01, 2008

já sææll

já fínt.
eins og venjulega þegar ég finn fyrir vott af stressi (sem gerist sirka einu sinni á 10 árum) þá hreinlega missi ég meðvitund og er þar af leiðandi búin að sofa í næstum allan dag. erum að tala um DAGINN sem átti þvílíkt að nota til sveittra æfinga og hreinsa upp ALLA óhreina staði í nokkrum huggulegum verkum sem þarf að spila á miðvikudaginn fyrir flokk fólks.
oh jæja.
ég reyndar fór í ræktina í morgun með madam Rosenkjær, svo ég get ekki verið algjörlega óánægð. svo vaskaði ég líka upp.
og tók til í stofunni.

átökunarfælni?
ó je.

annað í fréttum er að ég fitnaði svo mikið á spáni að ég kemst bara í náttfötin mín. þannig að það er bannað að halda að ég sé geðveik ef þið sjáið mig útá götu í skrítinni múnderingu. :)

mánudagur, ágúst 25, 2008

ég þarf að vera ða æfa mig. puhurufuspilið er á miðvikudaginn eftir viku. en ég er bara sybbin og hálf bumbult. stuð.
annars er allt við það sama á Hjarðarhaganum, reyndar klíndi einhver tyggjói á handriðið svo við erum að spá í að flytja. nei djók, en samt ógeðslega pirrandi. svo finnst mér skrítið að það sé að koma september og ég er ekki með nein nám fyrirhuguð, soldið fegin líka :) já úff svo er þvílík afmælisveilsu-vika, bæði fimmtugs og sjötugs. eins gott maður á háa hæla.
eða svona.
ég fór ekki útúr húsi á menningarnótt frekar en hin 2 árin sem ég hef verið á klakanum í ágúst, finnst það ógurlegt. allt of mikið að hlutum til að sjá og heyra og líka allt of mikið af fólki. og svo er mikil umferð. soldið neikvæð :) en reyndar sáum við skötuhjúin efri helminginn af flugeldasýningunni útúm svalirnar og það var bara ágætt. drifum okkur svo inn að horfa á Dallas.

kveðjur, þreytta-þreytt

sunnudagur, ágúst 17, 2008

komin heim frá spáin!
og GETIÐI HVAÐ?
kjellingin komin með vott af TANI! ekki að djóka. hélt þetta væri sæentiffíkallí vonlaust dæmi. svona kemur maður manni sjálfum á óvart.
je.
L8R

sunnudagur, júlí 27, 2008


kettir eru til margs nytsamlegir. í gær notuðum við t.d. óskar sem músamottu. hann fílaði það vel og malaði hástöfum, var örugglega ánægður með að fá loksins verðskuldaða athygli.
kannski gott að taka það fram að það var hann sjálfur sem plantaði sér þarna fyrir framan lyklaborðið, oftast lætur hann nú samt vaða beint ofaná það... :)