þriðjudagur, janúar 24, 2006

bara róleg

að blogga ekkert svo vikum skipti. eða svona.
maður er svo kúl á þessu. og svossem lítið að segja, Birmingham er nú ekki beint Staður Slúðurs og æsifregna, sérstaklega ekki þegar maður er bara ungur óbreyttur.
eða ungur...
æj allavega þið fattið.
en hún Haniiya vinkona mín var ða gefa mér þurrkað þang frá malasíu. soldið svona eins og sölin okkar góða (sem mamma át einu sinni heilan pakka af og fékk illt í magann) nema bara alls ekki. er í svona litlum strimlum og búið að hakka hana alla svo hún bráðnar alfeg uppí manni. njammi njamm.
svo er ein með chilli í og eitthvað svo maður er alfeg hress með vatnsglasið við hliðina á sér.
allavega.
bara láta heyra í mér. verð nú að fara að taka upp á einhverju sveittu til að geta bloggað almennilega....

fimmtudagur, janúar 19, 2006

:(

ég er í brjálæðri fýlu.
einhverra hluta vegna virkar ekki dvd spilarinn á töLLunni minni. bara svona allt í einu.
gaman
svo er maður að reyna að hringja í þetta fokkin ljóta fyrirtæki sem sér um töllurnar og þá er maður bara númer 8 í röðinni! og mínútan kostar 50 kall eða eitthvað.
svín.
og þetta fer svo mikið í taugarnar á mér að ég get ekki hugsað um neitt annað og er endalaust að pirrast út af þessu. svo svaf ég til hádegis og er ekki búin að gera neitt síðan.
og ég er feit.
:(
voooooooooooooondur ljóóóóóóóóóóóóóóótur dagur.
farin í ræktina, það er svona kýlupoki þar.

þriðjudagur, janúar 17, 2006

gott hjá mér

að vera ekki farin að sofa. mjög MJÖG gott hjá mér eða hitt þó heldur.
er bara búin að vera að bíða eftir Boston Public þætti í 3 tíma. oghorfa á byrjunina sovna 4 sinnum.
harry sennet er kominn með sítt hár og svo eru 2 nýjir kennarar sem eru svona hippogkúl gaurar. algjörir lúserar. maður sér það nú strax. jájá.
þetta er sko fyrsti þáttur í seríu 3. svakalegir þættir. hélt fyrst að jónsæti væri orðinn geðveikur þegar hann fór að tala um að downloada heilu seríunum af þessu. svo er ég núna komin í sama pottinn... get varla farið að sofa, er svo spennt að sjá hvernig þetta fer, verður uppreisn eða hvað?
mun harry ná að bjarga trinu eða mun hann tapa ronnie af því hann er með post-dramatic-stress eftir árásina? verður barnið tekið af stelpunni sem átti það inná klósti og verður aumingja marla rekin?
og HVAÐ með scott guber og lauren? mér finnst nú skuggalega lítið minnst á hana hér í þessum fyrsta þætti þriðju seríu... liðu varla fimm mínútur í seríu 2 að druslan ræki ekki mjóa rassinn sinn framan í linsuna og segði eitthvað þurrprumpulegt.
81%
almost there....

mánudagur, janúar 16, 2006

room 433

komin aftur út til Birmingham.
það eina góða sem ég get sagt um það er að ég keypti "nýja" diskinn með hjálmum í fríhöfninni.
eða svona. á reyndar voðalega góða vini hérna sem komu að ná í mig út á lestarstöð og gáfu mér pizzu og næstumþví nýbakaðar smákökur :)
svo er bara að lifa vikuna af... Rivka á morgun (if you don´t practise 4 hours a day, EVERY day, you don´t come back!), skiplagt spunaverkefni á föstudaginn (mesta bull í heimi, leiðinlegt og ljótt) og svo skil á einhverju analysis verkefni næsta mánudag.
ég eyddi náttúrulega deginum.
í að vorkenna sjálfri mér yfir aðvera svona langt í burtu frá jónisæti og gerði ekki rassgat. meðal annars át ég ekki neitt nema súpu.
ó ó ó
svo er ég með varaþurrk. ófremdarástand alfeg hreint.

allir að vorkenna tótu.
og senda henni pening, get ekki borgað júró.

þriðjudagur, janúar 10, 2006

rúv rokkar

var að hlusta á mjög skemmtilegt viðtal við par sem flutti úr reykjavík og til akureyris. töluðu svo vel um bæinn og allt þaðan að manni varð næstum bumbult. svo eftir miklar lofræður og mæringar þá grátbað útvarpsmaðurinn þau um að segja nú allavega eitt neikvætt um akureyri.
þá kom í ljós að þau fara bara Mjög oft til Reykjavíkur og það er svo ofsalega dýrt.

æj mér fannst þetta soldið fyndið. kannski er þetta svona "had to be there"....

laugardagur, janúar 07, 2006

heima hjá sér

eftir að hafa ekki vaknað snemma til að æfa sig og fara í sund, sit ég hér við mín ástkæru fartölvu og er í rólegheitunum að rippa alla diskana mína yfir á harðadiskinn.
já ég veit það er ljótt af mér, en þar sem flest öll tónskáldin eru dauð (Hindemith, Brahms og Enesco) þá er ég ekki með stöðugt samviksubit yfir að svipta tónskáldið lifibrauði sínu. talandi lifibrauð, þá held ég íslensk tónskáld eigi aldeilis eftir að japla langt fram eftir, vegna þess á snemma í næstu viku ætla ég að fara í tónastöðina og kaupa mér 2 nótnabækur með íslenskum sönglögum.
tótan er s.s. farin að öskra á ný, er harðákveðin í því að taka Birmið með stormi nú þegar ég fer aftur út. þessir "söngnemendur" eiga eftir að kúka í buxurnar þegar þeir heyra ALVÖRU íslenska tónlist. jább.
og svo getur Enginn sett Neitt út á framburðinn minn.

afhverju ætli orðin framburður og frumburður séu svona lík?

jæja. farin í partý :)

föstudagur, janúar 06, 2006

kiknað í hnjánum

fór í gær og heimsótti fríðasta karlmann kópavogs. hafði reyndar ekki séð hann áður og brá því heldur en ekki í brún þegar þessi tröllmyndarlegi strákur tók á móti mér með því að spræna útí loftið með miklum tilbrigðum.
já hann Geir Hannes kann nú sitt fag.
þvílíkur sjarmör. oooooh ég fæ fiðring í hnjánum bara að hugsa um hann :)

fimmtudagur, janúar 05, 2006

jæjaaaaa
komið nýtt ár og svona.
allt að verða brjálað.

er að setja inn myndir :)

hjehehehe

laugardagur, desember 31, 2005

jæja

nú verður tóta að fara að drífa sig af stað og fá gott að borða hjá pabba sínum :)

gleðilegt nýtt ár öllsömul :*

síðasti dagurinn

jamm jamm jamm!
kominn síðasti dagur ársins enná ný og fólkið í síldinni farið að grípa frammí hvort fyrir öðru. hvernig getur maður haft virðingu fyrir þessu þjóðkjörna (eða eitthvað) fólki þegar það sjálft getur svo ekki einu sinni talað saman án þess að öskra hvort á annað og ekki einu sinni hlustað á ræður andstæðinga sinna til enda?
jæja pólítíska ræðan mín búin í bili...
nú er Garðarinnn að syngja fjarlægðina. hmmm. jæja það er víst best að segja ekki of mikið.
en nú er "morgunmaturinn" minn kominn á borðið :)

föstudagur, desember 23, 2005

Þorláksmessa

og brjáluð stemming. kemst reyndar ekki á gmailið mitt...
hmmm
en nú er það sund og svo egg og beikon í hádegismat. hehehe

mánudagur, desember 19, 2005

ég er...

...komin heim komin heim komin heim komin heim!
:)

biðst afsökunar á því að hafa ekki svarað í símann minn á sunnudaginn.... var.... eh... hérna... upptekin :D
hehehe

föstudagur, desember 16, 2005

svei mér þá

ég kom öllu í töskuna mína. eða svona næstum... þarf að taka litinn bakpoka líka. vona það sé í læ :S
en ég vona að fólki sé ekkert of illa við að fá krumpaðar jólagjafir :)

húrra húrra húúúúrraaaa!

heim á morgun, heim á morgun!
heim á morgun.
heim.
á morgun.
:D
búin að pakka öllum jólagjöfunum og ákveða hvaða föt ég ætla að taka með mér heim og meira að segja búin að þvo eina þvottavél. en nú er ég líka stopp. ekki sjens í helvíti að ég komu öllu þessu í töskuna mína og svo er mér óglatt af því að ég er bara búin að borða óhollan mat í allan dag. svo er ég líka á smá bömmer af því að ég keypti mér ferðatölvutösku og hún er of lítil :( búhúúúúú.
en ég kem heim á morgun :D:D:D

ekki meira?!

You are 76% Naughty

"Ohhh your a bad bad person! You are very naughty! To be honest, your our kind of person;) Other people may not appreciate your naughtyness but we think that being naughty can be fun, keep up the good work;)"

fimmtudagur, desember 15, 2005

afhverju

má ekki senda unni birnu missworld heillaóskir í nafni íslensku þjóðarinnar?
ímyndum okkur að einhver gaur hefði unnið misteruniverse. eða mister world fitness. er það þá allt í einu orðið ok?
ég er mjög fylgjandi jafnrétti... get eiginlega ekki ímyndað mér heiminn án þess, enda hef ég aldrei fundið fyrir öðru. en guðminnalmáttugur er ekki samt hægt að senda kveðju til gellunar án þess að fólk mótmæli?
ég elska ekkert halldór ásgrímsson, en hann er KOSINN lýðræðislega til að fara með mál ÞJÓÐARINNAR... er þá ekki bara soldið eðlilegt að leyfa honum að gera það?

jah...

ég er náttúrúlega búin að vera erlendis lengi... (3 mánuði) kannski er ég eitthvað að mis.

miðvikudagur, desember 14, 2005

nú verð ég hreinlega að fara að sofa.... Rivkudagur á morgun og ég ekkert búin að æfa mig. það er búið að vera eitthvað svo mikið að gera, afmæli og svona. aumingja ég.
en svona til að vera almennileg, þá kláraði ég skilaverkefnin fyrir morgundaginn. meira bullið.
en sama er mér. kom ekki til að læra að gera grafísk skor eða semja sóló verk fyrir víólur.
fjórir dagar fjórir dagar fjórir dagar.

fjórir dagar.

:)

þriðjudagur, desember 13, 2005

búin að...

... setja inn myndir frá því áðan í afmælisveislunni minni.
skoðið þær og GRenjið.
yfir að hafa ekki verið með :)


amli amli AAAAAAAAAaaamli

ó guð hvað ég átti gott afmæli!
jammsí jamms!
allir sendu mér skeyti eða hringdu eða bara hugsuðu til mín (eða ekki) fá knúsa og kossar beint yfir atlantshafið frá mér. úff!
ég bakaði steypuköku og það er ÖLLUM ljóst afhverju hún er kölluð þessu hræðilega nafni. í boðinu voru átta manns og það var varla hálf kaka borðuð. púff!
enda er það ræktin á morgun feitast. sveimér þá ef maður þyrfti bara ekki að fara tvisar. ó hó hó.
Haniyya vinkona mín bjó til karríkjúkling uppúr malasískri uppskrift. vægast sagt mjög gott. V Æ G A S T.
svo bjó alinka til sætar karftöflur og Ian frá tælandi bjó til hrísgrjónabúning með mangó og kanil. af því að mangó er uppáhaldsávöxturinn minn. vá hvað fólk var gott við mig :) húff púff. alfeg æðislegt.
svo er það bara þriðjudagur á morgun börnin mín.... vitum öll hvað það þýðir.

FJÓRIR DAGAR Í HEIMKOMU!!!

náááákvæmlega!

You're an Expert Kisser

You're a kissing pro, but it's all about quality and not quantity
You've perfected your kissing technique and can knock anyone's socks off
And you're adaptable, giving each partner what they crave
When it comes down to it, your kisses are truly unforgettable