| You're an Expert Kisser |
You're a kissing pro, but it's all about quality and not quantity You've perfected your kissing technique and can knock anyone's socks off And you're adaptable, giving each partner what they crave When it comes down to it, your kisses are truly unforgettable |
þar sem bullið nær yfirhendinni oftar en þig grunar // the blabbering blob
þriðjudagur, desember 13, 2005
náááákvæmlega!
sunnudagur, desember 11, 2005
VEI
ég fór útúr Birmingham í dag. við Alinka og David (uppáhalds og bestu vinir mínir hérna) hoppuðum uppí lest og brunuðum alla leið til Wolverhampton. sem er svona 10 mín fyrir utan birmingham.
tilefnið var ungversk hátíð þar í bæ. soldið svona eins og "the german marked" hérna í Birm, nema bara skemmtilegri. en það er nú af því að ungverjar eru hikstalaust mikið skemmtilegra og að mínu mati betra fólk en þjóðverjar. og þeir elda betri mat. bratwúrst og þetta dót er alfeg gott sko.... EN alvöru ungverskt Gújass (gúllass) og pylsur.... njamm. ég fengi bara vatn í munninn ef hann væri ekki fullur af einhverju nammi. svo drulluðum við okkur heim sömu leið og vorum svo þreytt að það leið næstum því yfir okkur í lestinni. soldið strange. hvernig getur maður orðið dauðþreyttur af því að vera í lest í 10 mín? allavega. svo fórum við í tesco og ég keypti 4 kíló af flórsykri, 1,5 kíló af hveiti, egg og næstum 3 lítra af mjólk. og fleira.
það verður nefnilega bökuð EIN FEIT steypukaka hér á Cambrian Hall c block, fjórða hæð til vinstri.
:D
öllum boðið.
sérstaklega þeim sem vita hvað tilefnið er ;)
jæja nú ætla ég að fara í sims í klukkutíma af því að ég var svo dugleg að klára helminginn af því sem ég þarf að skila á miðvikudaginn til að standast eitt fagið sem ég er í. húrra!

föstudagur, desember 09, 2005
1/2 grenj
ég þarfað fara að sofa núna.
N Ú N A
ekki bara vegna þess að ég er næstum því meðvitundarlaus af þreytu og illa leikin af frekar hræðilegri kvefpest sem nánar verður líst neðar, heldur líka vegna þess að ég verð að vakna snemma á morgun og æfa mig. og klára eitthvað helvítisandskotans "composition for a solo instrument". og undirbúa mig andlega fyrir stressuðu samstarfskonu mína í einu verkefni.
ég er s.s. með kvef. ljótt kvef. hósta öllum vorlitunum og hnerra þannig að undirtekur í nálægasta nágrenni og innsta húðin af lungunum fylgir með. svo er ég eins og venjulega, líka búin að missa 40% heyrn þannig að ég heyri ekki hálft annað orð sem fólk segir, ekki það ég myndi skilja það hvort sem er... aðeins 40% af heilanum virðist vera virkur og translater-hlutinn "enska-íslenska" er svo sannarlega ekki í þeim parti.
svo er hægri helmingur andlitsins fullur af égvilhelstekkivitahverjuþaðerörugglegaógeðslegt þannig að öll mekaník þar megin lekur. munnvik, eyru, nef og auga. einkar skemmtilegt fannst mér í dag að grenja eins og ég ætti lífið að leysa á hljómsveitaræfingu í dag. öðru megin.
álíka skemmtilegt fannst mér þegar hljómsveitarstjórinn fussaði eitthvað á aftasta víólupúltið út af spurningu um eitt frekar asnalegt As. eða "ei flett" eins og fíblin kalla það. ég hefði betur sagt við hann:
"því miður talaru bara jafn óskýrt og þú slærð slag, svo ég skil ekkert sem þú segir!"
en þar sem heilinn er greinilega 10 tímum á eftir áætlun (var bara að detta þetta í hug núna...) sagði ég ekki neitt, urraði bara og setti upp "þúertalgjörtfíbléghataþitg" svipinn. sem virkaði í svona sirka 25 sek. eða þangað til hægra augað fór aftur að leka.
sjæse.
en nú eru það bara ÁTTA dagar!
geriði snýtubréfin tilbúin, krakkar.... :)

miðvikudagur, desember 07, 2005
bara 10 dagar!!!
kem heim rétt bráðum krakkar mínir. um að gera að panta tíma sem fyrst. ég mun hafa mikið að gera við að borða nammi og knúsa sætastrákinn.
svo þarf ég að æfa mig einsog skrattinn væri á hælum mér. sem er eiginlega satt af því að Rivka sagði okkur öllum með geðveika hreiminum sínum (áherslur ritaðar með stórum staf til leiðbeiningar):
"if you don´t pRactise EVery day, then DO not come bAck to thiS Class!"
eða eitthvað svoleiðis.
en ég er mjög alvarlega farin að telja dagana eins og sjá má á þessari mynd. Mamma mín elskulegust í heimi sendi mér nefnilega dagatalskerti sem hún hafði keypt í rúmfatalagerinum góða heima. en þar 17. des er greinilega meira tilhlökkunarefni en sjálfur tuttugastiogfjórði skar hún botninn af.
hún er svo Sniðug!
þriðjudagur, desember 06, 2005
Christopher O´Riley
man ekki hvort ég hafi áður talað um Christpher O´Riley, hlýtur samt að vera fyrst að þetta er í annað skipti semég er gjörsamlega dolfallin yfir þessum snillingi.
hann er s.s. klassískt menntaður píanóleikari og voða klár, búin að gefa út diska með fullt af svona gaura verkum... Stravinsky, Faure og ég veit ekki hvað og hvað. hann er meira að segja með hotshot heimasíðu www.christpheroriley.com sem einhverra hluta vegna opnast bara hjá mér sem pínulítil. sem ernú alfeg kúl, ef hægt væri að lesa textann. en það sem kom mér innáþað að dýrkogdá O´Riley (svona af því öllu jöfnu er ég ekkert að tryllast yfir pjanóleik, hvað þá ef viðkomandi útheldur síðu með litlu letri) var það að hann útsetur lög eftir Radiohead fyrir píanó. og þetta er ekkert úmstja úmsja alberti bassi með laglínu, enda Radiohead síður en svo þannig band.... hann tekur þetta "nett" alvarlega og er með þvílíka tækni-stælana og læti til að ná sem flestu af Radiohead sándinu. sem er bæðevei Fimm manna grúbba með ljótum söngvara.
ALLAVEGA, meir um það neðar.
ég var, sem kunnugt er orðið, í London um helgina og álpaðist inní Virgin Megastore á Oxford street. eitthvað sem ég var búin að hátíðlega lofa sjálfri mér að gera aldrei aftur eftir alls ekki vægt kreditkorta áfall síðastliðinn maí. en inn fer ég og rek augun svona líka harkalega í einn rekkann þar sem mjög látlaus diskur stendur sakleysislega undir nafninu Christopher O´Riley.
what the hell?
segi ég við sjálfa mig og gríp gripinn glóðvolgan. að mér Óspurðri og Óafvitandi var chrissie (eins og við mega-fönin köllum hann) búinn að gefa út Nýjan disk!
ég hikaði ekki hálfa stund og keypti hann með það sama (komið úr dönsku og þýðir strax).
svo er ég núna tárvot með kertaljós og tebolla að hlusta á hann spila.
þetta er bara svo vel gert. og radiohead er best í heimi.
mér finnst þetta æði. hann nær einhvernveginn að gera Radiohead að klassískri tónlist... soldið skrýtið að segja þetta þar sem Radiohead er hvort sem er klassísk tónlist og skilgreiningin á klassískri tónlist fellur víst ekki undir gaura sem gefa út verk sem heita "Paranoid Android", "2+2=5" (gæti nú reyndar verið eitthvað eftir svona égerfyndiðtónskáld fíbl) eða "Fake Plastic Trees".
sama er mér og ef fólk ætlar að vera með eitthvað H-menntað bull og stæla um það að klassískur píanóleikur geti ekki verið töff á veraldlegum popp verkum, þá er ég mætt í sturtuklefann með höndina á krananum.
svona samlíking sko af því ég mun sturta á fólk...
hmm.
æj allavega.
O´Riley You Rock!
laugardagur, desember 03, 2005
talandi um snilld...
... þá er nú eins gott að minnast á það að miss Deggie McCool er þokkalotion í heimsókn og það er svo mikið stuð hjá okkur. SVO mikið.
vona samt ég sé ekki búin að eyðileggja minniskortið hans pabba míns og minniskortalesarann í tölvunni minni :S kemur í ljós. hehe
london á morgun í afmæli :D
set myndir inn bráðlega, fylgist með (speent)

mánudagur, nóvember 28, 2005
í dag var góður dagur :D
1) ég fékk pakka frá Jónisæta með fyrstu seríunn af Dallas! (góðir tímar framundan)
2) ég fékk pakka frá Berglindi með geisladisk sem á var ALLIR Queen diskunum hennar! eða allavega mjög margir. mjjjjjög góðir tímar framundan!! Berglind fær hérmeð góðavinkonustimpil vikunnar, ef ekki mánaðarins bara :)
3) ég vaknaði fyrir hádegi og fór í ræktina
4) ég drakk 2 lítra af vatni í dag (nýtt átak #1)
5) ég æfði mig í 4 tíma (nýtt átak #2)
6) ég fékk mér ekkert súkkulaði eða gosdrykk af neinu tagi (nýtt átak #3)
7) það snjóaði :)
enda er ég uppgefin. púff.

föstudagur, nóvember 25, 2005
hún er beib.
og nýji diskurinn er æði. samt "SOLDIÐ" kunnuglegur ef þið vitið hvað ég meina. en það er nú örugglega erfitt að vera frumlegur nú til dags....

miðvikudagur, nóvember 23, 2005
jæja
komin heim og ekkert alfeg jafn pirruð og áðan. eiginlega bara hálf asnalega og skammast mín fyrir að hafa verið svona pirruð. stundum ræð ég bara ekkert við geðsveiflurnar mínar. en það er víst einkennið á sveiflum... annars væru þetta meira svona rúnaðar hæðir með túnfíflum og hvítum fiðrildum og væru kallaðir geðhólar.
eða eitthvað, eða ekki.
hrumpf.
en svona til öryggis er ég búin að halda mig í góðri fjarlægð frá fólki í allt kvöld og er t.d. núna að borða pizzu inní herberginu mínu en ekki frammi og keypti mér dæet kók og súkkulaði á leiðinni heim.
njamm.
svo ætla ég að horfa á shrek 2. aftur :)

nú er ég ekki búin að gera neitt í hálftíma og er ennþá pirruð. og mjög svöng.
ætla að fara og æfa mig. veit samt að ég fæ örugglega ekkert útúrþví og miklar líkur á ég kýli vegg eða lemji boganum mínum í eitthvað.
úff hvað ég á bágt að vera svona mikill pirrupúki.

pirruð
éger svo ógeðslega pirruð að ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér, er búin að prófa að labba í hringi í herberginu mínu og hvessa augunum á mismunandi hluti.
þori ekki einu sinni fram í eldhús að fá mér að borða af því að ég er viss um að ég hitti einhvern af sambýlingunum og hreyti einhverju í þau eða þá að ég læt viðkomandi fara í taugarnar á mér og verð ennþá pirraðari.
og það asnalegasta er að ég veit ekkert af hverju ég er svona pirruð... er það bara.
grrrr!
andskotinn.

sunnudagur, nóvember 20, 2005
ég kem heim eftir 27 daga :)
get ekki beðið. ætla að fara og fá mér puslu um leið og ég kem af vellinum.
njammnjamm.

föstudagur, nóvember 18, 2005
robin hood er ennþá kúl
úhúhú þvílíkt nostalgíu kast (everything I do, I do it for yooooooou). það er samt ótrúlegt hvað er langt síðan, en samt ekki, æj ég veit ekki... en þessi mynd er síðan (haldið ykkur fast) 1991!
allavega. kevin costner er með sítt að aftan og í asnalegustu fötum í heimi og þessi belja sem hann byrjar svo með var með gerfilegasta hár sem ég hef á ævi minni séð. leit meira út einsog uppraknaður sófi heldur en hár. ú hú hú. myndin er líka yfirfull af svona brjálæðislega hallærislegum ræðum sem fær fólk til að algjörlega breyta um lífsskoðun og hætta lífi sínu og limum fyrir frelsi, hugrekki, sjálfstæði o.fl. í þeim dúr, allt fyrir mann í sokkabuxum.
og svo eru allir svo illa skítugir í framan að það var næstum hlægilegt, síðan hvenær varð fólk jafnmikið skítugt í framan, með sama lit og sömu áferð?
vondi kallinn var samt nettastur... minnti mig rosalega á Snape. og viti menn, þetta er sami leikari. klár hún tóta (nei).
eníveis...
yndisleg mynd og stendur alfeg fyrir sínu :) grínlaust. og já, ég klappaði þegar Sean Connery kom. of course.
:)
fimmtudagur, nóvember 17, 2005
njammnjamm
ég bjó mér til svo góðan pastarétt að ég get varla staðið í lappirnar. úff.
held að parmesan osturinn hafi ekki skemmt fyrir, hvað þá allur hvítlaukurinn. nú held ég bara að ég verði að leggja mig í smá stund áður en að ég fer að æfa mig.
maður getur ekki æft sig svona saddur. og svo myndi herbergið líka anga eins og hvítlauksverksmiðja....

miðvikudagur, nóvember 16, 2005
Megas...
...er snillingur.
ég skil ekki hvernig fólk getur ekki þolað Megas og sagt hann sé skrítinn. er þetta fólk búið að skoða textana sem hann skrifar? ókei hann er soldið spes, en jeminn hvað það er töff. Rivka segir að vont fólk geti ekki gert góða músík og ég held það hljóti að virka hina áttina líka.
ég er semsagt búin að skipta Brahms píanókvintettinum fallega út fyrir Megas og Loftmynd. uppáhaldslagið mitt er "Björt ljós, borgarljós".
þegar ég er orðin stór og feit og geðveikt klár ætla ég að útsetja þetta fyrir rödd, strengjakvartett, 2 kontrabassa og fagott.
eða eitthvað.
Björt ljós, borgarljós
þið blekktuð mig einsog alla fyrr og síðar
váljós villuljós
ég verð í þessum sporum dagshríðar
ég hata þig borg einsog hjartað í brjósti mér
því hendurnar þínar banvænu eru svo blíðar

þriðjudagur, nóvember 15, 2005
jæja þeir halda áfram með þennan "við ætlum að drepa þig úr kulda" djók og þess vegna fór ég skellihlægjandi að sofa í sokkum, lopasokkum, Þykkum buxum, náttkjól og lopabol. með sjal. og ofninn á fullu.
dreymdi svo allskonar skrítið en var samt kalt þegar ég vaknaði.
en nú er það miðdagslúrinn.
:)
jah, ekki vil ég verða veik!

mánudagur, nóvember 14, 2005
ákvarðanir, ákvarðanir....
langar:
* horfa á robin hood
* horfa á southpark
* horfa á dallas
þarf:
* fara á klósettið
* fara að sofa
vill
* fá mér te
... aumingja ég
* horfa á robin hood
* horfa á southpark
* horfa á dallas
þarf:
* fara á klósettið
* fara að sofa
vill
* fá mér te
... aumingja ég
kuldi og kraftaverk
það er búið að vera svo kalt í dag ég hef nú bara sjaldan vitað annað eins. heima á íslandi er ég nú yfirleitt í heitari kantinum... en hér er ég bara alfeg við frostmark.
og svo er nú ekki beinlínis verið að hjálpa manni.
var í 2ja klukkutíma tónlistarsögu í dag og þeir voru með loftkælinguna á fullu! aha en fyndið hugsaði ég eftir hálftíma, setti á mig vettlinga og beið spennt eftir því að einhver grínarinn myndi koma stökkvandi innum dyrnar og segja að þetta væri bara grín og nú myndi loftHITARINN fara af stað.
já neinei.
eftir 2 tíma var nokkrum kóreyskum píanóleikurum skutlað uppá trillur og ýtt frosnum fram á meðan við hin skiptumst á að nota hárblásara til að losa okkur uppúr stólunum og skafa frosthrímið af gleraugunum.
EKKI NÓG með það.
ungfrú frost og funi skellti sér í ræktina til að reyna að fá einhvern smá hita í sig og var rétt svo búin með 15 mín af hörkuerfiðum BLT tíma þegar bíb bíb fer ekki bara brunavarnakerfið í gang. og bretar eru ekkert að djóka með brunavarnir, það var bara slökkt á græjunum og öllum skipað út.
var ég búinað segja ykkur að það var ógeðslega kalt?
og ég var ógeðslega sveitt?
allavega. svo vorum við nokkrar orðnar fjólubláar í framan svo að einhver gaur sagði okkur að við mættum alfeg fara og ná kápurnar okkar. ég lét ekki segja mér það tvisvar og náði í allt dótið mitt og hljóp heim.
var svo í sturtunni í klukkutíma. var næstum farin að finna brunalykt af bakinu á mér hafði vatnið svo heitt.
hey já og kraftaverkið var að tebollinn var hreinn og fínn og voða sakleysislegur á svipinn á þvottagrindinni við eldhúsvaskinn þegar ég var á leiðinni út kl. 1900.

ég bara gjörsamlega skil þetta ekki... ég finn ekki bollann minn!
hvernig er hægt að týna tebolla í 5 fermetra herbergi? og nei hann er ekki fram í eldhúsi heldur.
ég er svo aldeilis bit...

laugardagur, nóvember 12, 2005
tesco tesco tesco
fór í Stóru tesco búðina áðan með Alinku og keypti fullt af dæet kóki og nammi :) svo keypti ég líka þrjár dvd myndir.
fight club
ocean´s eleven
og robin hood.
fyrstu 2 hef ég ekki séð en brad pitt er í þeim báðum. hann er nú samt ekki mín týpa. oh well. en robin hood var uppáhaldsmyndin mín þegar ég var lítil, veit ekki hvað ég sá hana oft. var nefnilega yfir mig ástfangin af Kevin Costner. :) those were the days.....

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)