fimmtudagur, maí 19, 2005

raunasaga víóluprófsins

jájájá, haldiði ekki bara að Kjallinn sjálfur sé mættur á svæðið.
grunar mig þá að bjórinn fari að flæða.
nei það er ekki um annað að ræða.
djók.
annars er bara allt að gerast þessa dagana, hið ótrúlega fræga og títt um talaða FRAMHALDSDEILDARPRÓF mitt í víólu "spili" verður núna á laugardaginn kl. 11:00. niðrí tónó í stofu fjögur. ef Ingunn Hildur gerist það góðhjörtuð og leyfir mér, gumma og 2 prófdómurum að nota stofuna sem hún svo kyrfilega er búin að merkja sér á laugardagsmorgnum. en fyrir óbreytta liðsmenn aðdáendaklúbbs tótfríðar þá er kannski gaman (eða eitthvað) að rekja þessa prófs-sögu. kannski aðallega svo að öllum verði ljóst hve Prófanefnd er engann veginn að höndla hlutverk sitt og stöðu og ætti kannski Aðeins að slaka á meðan hlutirnir eru að þróast.
allavega.
ég sótti um að taka framhaldsdeildar próf í byrjun apríl. óskaði eftir prófdeginum 30. apríl. ekkert heyrist nema prófanefnd muldrar eitthvað um að það sé enginn prófdómari til.
þeirra mál segi ég og held áfram að æfa skalana mína.
27. apríl segir prófanefnd "nei prófið getur ekki verið 30. apríl" segir þó ekki afhverju eða hvort prófið verði yfirleitt yfirhöfuð yfirleikið.
svo ég fer bara til London í viku og læt kaupa á mig dýrar skyrtur, fer út að borða og kúka í klóstið hjá EE (sorry about that...).
Raddirnar um prófdómaraþurrðinn verða háværari og kemur í ljós að til að geta dæmt framhaldsdeildarpróf verður maður að hafa setið eitt feitt prófdómaranámskeið.
það er langt fyrir neðan virðingu allra víóluleikara að fara á námskeið þar sem ekki er boðið upp á ókeypis áfengi svo að enginn dísel-fiðluleikari hafði farið á námskeiðið. víóluleikarar láta heldur ekki fiðlu (hrollur) leikara dæma prófin sín svo strangt til tekið var enginn hæfur dómari.
mæ es!
eins og þetta sé fyrsta prófið sem er tekið í víóluleik! fullt til af góðu fólki til að dæma þetta, bara eitthvað helvítis prump hjá prófanefnd að vera svona stífir á einhverjar skítareglur sem eru svo nýjar að blekið var varla þornað. bara stælar og stífelsi ekkert annað.
hrumpf!
en jæja, loksins kom lausn í málið núna í ÞESSARI VIKU, og er á þá leið að "kvalífíkeraður" dómari sem búinn var að fara á námskeiðið dæmir, fiðluleikari, en henni til handagangs og leiðbeiningar ("nú er hún að spila á C-streng.... neinei... C - STRENG!) verður víóluleikari viðstaddur.

en ég er nú bara mest kát að fá loksins að taka andskotann, búið að vera hangandi yfir manni allt of lengi. og ég skal segja ykkur það að skalarnir mínir eru EKKI að skána. ég bara skil ekki hvernig fólk getur spilað skala. það er alfeg ga-la.
eh...
en svona af því þið vorkennið mér og viljið endilega sýna samhug í verki, þá megið leggja inná mig fúlgur fjár og helst sem fyrst.
var að fá euro reikning...

þriðjudagur, maí 17, 2005

góð grein eftir Guðmund Hafsteinsson um Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskólann...
í fyrradag þegar ég var svo södd að ég gat ekki dregið andann almennilega og maginn á mér stóð svo langt útí loftið að ég gat opnað hurðir 5 metrum áður en ég kom að þeim, lofaði ég sjálfri mér að fara í stranga megrun í gær.
ég stóð ekki við það.
í dag ætlaði ég hinsvegar að taka hressilega á því og drekka bara vatn og borða ávexti.

núna er ég búin að vera vakandi í rúma 3 tíma og er nærri vitstola af hungurverkjum, samt búin að drekka tiltölulega mikið af vatni og hugsa mikið um ávexti.
sem er greinilega ekki nógu seðjandi. held þetta endi með óskupum.

sofi sofi

í nótt vaknaði ég og gat ekki sofnað þannig að núna er ég bara búin að sofa í 3 tíma. eða kannski 4. og svo er bara einn maður búinn að hringja í dag og hann heitir Einar Vilhjálmsson. sem er soldið fyndið af því að í gær vorum við að tala um frjálsíþrótta kappa og þarámeðal einar vilhjálmsson.
en af því að ég er svo vansvefta þá datt mér í hug að kannski hefði hann ekkert hringt, ég hefði bara í huganum búið það til að han hefði hringt.
svo er opin útidyrahurðin þannig að mér er orðið mjög kalt.
svo hef ég séð 2 gunnara og klukkan er ekki orðin 11.

jafntog þrettán
woooooooooooooooooooo-hoooooooooooooooooo!

meir seinna :D

fimmtudagur, maí 12, 2005

þetta gæti vel verið ég núna.

zzzzzz

dramatík á skjaló #1

éger að svara í símann og sinna öðrum skrifstofustörfum hér í afgreiðslunni á ÞÍ. ótrúlega spennandi. þið trúið því örugglega ekki hversu "on the edge" þetta starf er. áðan, t.d. kom maðurinn með póstinn og póst-stimplunarvélin STÓÐ Á SÉR! garg!
þetta var svona eins og í indjana djóns þegar hann er að rúlla sér -naumlega, undan stórum steinum, gleymir hattinum, tónlistin á fullu, allt í ryki... þið kannist við þetta. svona var þetta nákvæmlega hjá okkur, við vorum þarna tvær að toga og rífa í póst-stimplunarvélina, lítandi yfir öxl okkar með sveitt enni og sjá hvort að póstmaðurinn væri nokkuð farinn burt án þess að taka með sér 3 þykk umslög sem mjög nauðsynlegt var að koma í póst. svo var hann farinn að ganga um gólf og anda ferlega hátt. þá fór nú adrenalínið að flæða, ég segi ekki annað.
Síðan HRINGDI SÍMINN! ég legg ekki meira á ykkur. en þetta slapp þó naumlega fyrir rest og póstmaður sagði "súper" og fór burt með allan póstinn, stimplaðan og fínan.
nokkuð gott.
þá fékk maður sér nú egils kristal, hallaði sér upp að vegg og helti uppí sig úr hrímaðari flöskunni meðan svitann lak hægt niður ennið.

þriðjudagur, maí 10, 2005

áðan bað ég jónsæta um að ná í toblerone (fríhafnarnammi) inn í eldhús. svo kom hann ekkert til baka og ekkert heyrðist nema þungur andardráttur og eitthvað bull um hver sé pabbi minn.
svo ég ákvað að kíkja innum dyrnar en hafði samt varann á.
þetta var það sem blasti við...

boðskapur sögunnar: hættu að borða nammi tóta fitubolla!

rúv?

ég er að reyna að horfa ekki á sjónvarpið, það eru nefnilega eldhúsdagsumræður. svo kom hlé? og viti menn kemur ekki bara hlé og sveimérþá bara ÞRJÚ nælon lög í röð. þetta kallar maður nú að næl(on)a sér í áhorf á annars áhorfalitlu kvöldi.
jammjammjamm
í london gerði ég svo margt að ég nenni eiginlega ekki að segja frá því. vil nú samt þakka mínum ABV fyrir gistingu og grill. svona G&G. mikið skemmtilegra heldur en þetta B&B sem þeir eru alltaf að þusu um þarna í drullunni.
annars get ég því miður ekki sagt að London sé orðin mér kærari þó þetta hafi að öllu leyti verið yndisleg ferð (þrátt fyrir smá dramaköst), það er bara eitthvað þarna sem ég fýla allsallsalls ekki.
kannski er það allt þetta úrval á geisldiskum, nótum og bókum....

bleah.

svo keypti ég mér 6 pör af röndóttum sokkum og skó.

that will be pound twenty sir

ég var í london alla síðustu viku og skemmti mér KONUNGLEGA. eiginlega það konunglega að vísakortið mitt á eftir að fagna langt fram á sumar. heh...
en núna á ég líka ALVÖRU tweed jakka og sjálfsævisögu Boy George. hún heitir "take it like a man"
:)

fimmtudagur, apríl 28, 2005

what the?

áðan var ég að hlusta á útvarpið í bílnum.
sem er nú ekki í frásögur færandi þannig séð. nema það að ofur leiðinlegt lag kom og ég skipi um stöð.
sem er heldur ekki í frásögur færandi. voðalega er ég lengi að koma mér að efninu, og ekki batnar það með langar leiðinlegar setningar sem segja ekki neitt.
eh...
allavega!
ég var þarna í rólegheitum mínum og skipti yfir á einhvern mann sem var "miðill" í beinni útsendingu. allt sem hann sagði var bull. tildæmis spurði hann konuna sem greinilega var í yngri kantinum, hvort hún væri eitthvað með hugann við utanlandsferðir. hvaða íslendingur í lok maí er ekki með hugann við utanlandsferðir ég spyr? svo var hann með allskonar asnalegar staðhæfingar sem áttu "akkúrat" svo vel við allt í lífi hennar að hún átti bara ekki eitt einasta orð. hvernig getur fólk eiginlega trúað svona bulli?
ég er ekkert að afneita öllum miðlum og fjarskiptafrömuðum milli þessa heims og hinna... en vó. í beinni útsendingu á útvarpsstöð gegnum síma?
ætli amma gamla geti ekki með einhverju móti fundið AÐEINS skárri leið tilað segja afkomendum sínum hvar týndu bíllyklarnir eru?
besta setningin (og sú eina sem ég man orðrétt -tilviljun?) var samt:

"og hérna kemur eitthvað gamalt. eitthvað gamalt úr fortíðinni."

hvernig getur það sem kemur úr fortíðinni verið annað en gamalt? æj ble. en nú er ég farinn að setja krem á putann á mér. ég klippti nefnilega oní kviku og það var allt í læ fyrst en núna er það ógeðslega vont.
guðný birna ætla að vera svo góð að gefa mér far inní hafnarfjörð OG lána mér minidisk spilarann sinn.
nú mun endanlega koma í ljós hvort það sé:

a) minidisk spilarinn minn sem er bilaður
b) míkrófónninn minn sem er bilaður
c) hausinn á mér er ennþá meira bilaður en ég gerði mér grein fyrir og ég kann ekkert á helvítis tækið.

túrílú!




Your Inner European is Italian!









Passionate and colorful.

You show the world what culture really is.


áðan fór ég upp á efri hæð til að fara að ljósrita sem mér finnst svo æðislegt og af því að eg er so tillitssöm setti ég gsm símann minn á silent en það hringdi hvort semer ekki neinn svo ég veit ekki hvað ég var að ómaka mig.
en allavega. það var fundur við hliðina á ljósritunarvélinni svo ég ákvað að koma bara seinna, fór samt inná kaffistofu og fékk mér kaffi. þar var húsvörðurinn í leðurvestinu sínu (nó vorrís, hann var líka í hinum fötunum sínum) og í svona meters-radíus í kringum hann var þykkt ský af rakspíra. sem er svossem barakúl. en hann var að setja kex í körfu. út af fundinum? hugsaði ég með mér en hló svo og skellti mér á lær, nei hér á bæ er sko ekki verið að bera kex í fólk nema það sé mjög merkilegt eða komið í heimsókn frá einhverjum öðrum vinnustöðum. við almenningurinn fáum sko ekki kex.
svo labba ég aftur niður og í stiganum mæti ég týpu (a.k.a. sagnfræðingi) og kexið fekk tilgang.

held að GB verði ánægð með þetta :)







American Cities That Best Fit You:



65% Honolulu

60% Chicago

60% New York City

60% Philadelphia

60% San Francisco


nútíð & framtíð

í morgun komst ég að því að:

*ég fer til London ekki á morgun heldur hinn
*ég fæ í magann af létt AB-mjólk
*kærastinn minn er hrokafullur
*föt verða ekki minna krumpuð af því að liggja undir öðrum fötum
*það er gott að sofa

í dag ætlar ég að:

*monta mig
*kúka geðveikt mikið
*skamma jónsæta
*strauja
*leggja mig -oft

svo er ég að fara að spila yfir mitt ómótstæðilega framhaldsdeildarpróf í kvöld kl. 7 í stofu 4 í tónlistarskóla hafnarfjarðar. blóm og kransar afþakkaðir.

eydís var að senda mér brandara.

hann er svona

"Tvær vinkonur fóru saman út á djammið og fóru heldur óvarlega í
kokteilana á Thorvaldsen. Pissfullar og flissandi á leiðinni heim í
vesturbæinn þurftu þær báðar að pissa og ákváðu að klifra inn í
kirkjugarð og skvetta úr henni þar á bakvið einn legsteininn. Sú fyrsta
var ekki með neitt til að þurrka sér á svo hún fór úr naríunum, þurrkaði
sér og henti þeim svo. Vinkona hennar var í spari undirfatagallanum og
tímdi ekki að þurrka sér á djásninu og var það heppin að það var borði
á kransi einum sem hún náði sér í og þurrkaði sér með. Næsta dag hittast
mennirnir þeirra í boltanum og annar
segir: Þær eru rosalegar þessar kjéddlingar okkar. Anna kom heim í gær
nærbuxnalaus - þetta verður að hætta. Þá sagði hinn: Það er nú ekkert.
Ragnheiður kom heim með samúðarkort á milli rasskinnanna sem á stóð


"Frá öllum í Sorpu - við munum aldrei gleyma þér".

þriðjudagur, apríl 26, 2005

grátur og gnístan

það er kominn nýr maður í sætið hans jónsæta! :( nú er ég að sjálfsögðu að tala um sætið hans hér í vinnunni, hann er löngu búinn að fylla svo vel upp í sætið sitt "í hjarta mér" (sagt með óperudrama rödd) að hann á aldrei eftir að komast uppúr því.
en þessi nýi strákur er kominn og er voða almennilegur, kynnti sig og ég veit ekki hvað og hvað.
en ég er búin að GLEYMA því hvað hann heitir! ég meina, þetta var klukkan NÍU ímorgun, ég var svo sannarlega ekki búin að ræsa upp skammtíma (hvað þá langtíma) minnið og nú fær það sko aldeilis að bitna á mér.
nú verð ég bara að "play it clever" og reyna svo að hlera það einhversstaðar hvað fólk kallar hann.
eða bara kalla hann Bubba.
fyrir þá sem búa undir steinum má kannski auglýsa það hér að fyrstu helgina í júní verður víólu ráðstefna í reykjavík. herra bashmet og garth knox eru að fara að trylla lýðinn. eða allavega víóluleikara. brjálæðir spilarar. húff.
svo ætlar bara glimmer-stjarnan sjálf herra B. að vera með masterklass. og þar sem ég er Gildur Virkur þáttakandi í mótinu öllu fæ ég frítt á það, get meira að segja kannski tekið þátt.
veit samt ekki alfeg.
hvað spilar maður á masterklass fyrir besta víóluleikara heims? mér finnst þetta soldið skerí. spurning um að spila bara góða mamma eða kópavogur hopp stopp...