| Disorder | Rating |
| Paranoid: | Low |
| Schizoid: | Low |
| Schizotypal: | Low |
| Antisocial: | Low |
| Borderline: | Low |
| Histrionic: | Low |
| Narcissistic: | Moderate |
| Avoidant: | Low |
| Dependent: | Low |
| Obsessive-Compulsive: | Low |
-- Personality Disorder Test - Take It! -- | |
þar sem bullið nær yfirhendinni oftar en þig grunar // the blabbering blob
föstudagur, janúar 23, 2004
jæja, þetta er nú kannski bara ágætt. ég veit nú samt ekki hvða narcissistic þýðir... anyone?
Einn mánuð fram yfir
Þegar ungur eiginmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti honum
með því að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er kominn einn
mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk, heimilislæknirinn okkar sagði
að hann gæti ekki fullvissað mig um fyrr en hann fengi niðurstöðu úr
rannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þess þangað til.
Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka
fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta reikning. Hann
hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra sagði hann; "Þú ert
kominn mánuð fram yfir". "Hvernig í ósköpunum veist þú það?" Spurði unga
frúin. "Nú það er allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi Orkuveitunnar"
var svarið. "Heyrðu þetta sætti ég mig sko ekki við og ég ætla að tala við
manninn minn í kvöld og hann mun örugglega hafa samband við ykkur á
morgun" sagði unga frúin og skellti hurðinni.
Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um
persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund Alfreðs
Þorsteinssonar morguninn eftir. "Heyrðu Alfreð þetta er nú algjörlega út í hött. Hvað
eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með það í skrám ykkar að
við séum kominn mánuð fram yfir, hvern andskotann að kemur ykkur það við?".
"Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum við
þetta úr skránni okkar."svaraði Alfreð. "Borga ykkur ert ekki í lagi, nú
ef ég hafna því hvað þá?" "Nú þá klippum við bara á og tökum þig úr
sambandi."
"Og hvað á þá konan mín þá að gera?"
"Nú hún verður þá bara að nota kerti." Svaraði Alfreð.

miðvikudagur, janúar 21, 2004
ég er að hlusta á tónlistina úr Tarzan teiknimyndinni sem disney gerði hér um árið. guð minn góður hvað þetta er ÓgeÐSLEGA leiðinlegt. sting sming! nennir einhver að senda mér tónlist?
þriðjudagur, janúar 20, 2004
úff púff éger með þetta hérna alfeg á heilanum. hengimann leikur með kengúru, voða sniðugt. svo koma inná millisvona "facts" geggjað amerískt, vissuð þið tildæmis að myndin "the best days of our lives" var gerð árið 1946 og leikstýrð af William Wyler? svona getur maður fræðst OG skemmt sér á sama tíma. snild og ekkert nema.
en svo er ég líka að hlusta á einhvern Alan Silvestri disk sem heitir Contact. ég held þetta sé úr myndinni contact. nema maðurinn sé með kvikmyndatónlist á heilanum... soldið töff sko. jájá
en svo er ég líka að hlusta á einhvern Alan Silvestri disk sem heitir Contact. ég held þetta sé úr myndinni contact. nema maðurinn sé með kvikmyndatónlist á heilanum... soldið töff sko. jájá
mánudagur, janúar 19, 2004
jæjajæjajæja :D þá er að skunda á skemmtilegustu æfingu vikunnar.... æfingu hins ógurlega kvartetts :D
sjáumst sæl að sinni
sjáumst sæl að sinni
æj nú langar mig heim að sofa. bleah!
af hverju af hverju eru mánudagar svona ógeðslega miklu erfiðari en allir aðrir dagar?
úff.
mig langar líka í hamborgara og kók.
og súkkulaði.
af hverju af hverju eru mánudagar svona ógeðslega miklu erfiðari en allir aðrir dagar?
úff.
mig langar líka í hamborgara og kók.
og súkkulaði.
Endastöðin - Síðasta æviár Tolstojs
Jay Parini
ég er löngu búin með þessa druslu, þvílík leti í mér að vera ekki búin að afskrifa hana, hér fyrir alþjóð. svona er maður. en síðasta æviár Toljstoljs var svossem allt í læ. svoldið langdregin (sérstakalega þegar maður VISSI að hann myndi hvort sem er drepast í síðasta kaflanum) og oft mjög heimspekileg. sem er kúl, tolstoj var nottla heimspekingur og mjög klár. en ég veit nú ekki hversu mikið af þessari sögu er satt... hvað höfundurinn byggir mikið á alvöru heimildum og svona. í sögunni er nefnilega ekki einn sögumaður, heldur nokkrir og svo koma inná milli bréf frá tolstoj til vina sinna. t.d. er einn sögumaður konan hans, dóttir, læknirinn hans og einhver einkaritari, svo besti vinur hans og einhver gaur sem var allt í heimsókn. þetta er soldið skemmtilegt, en því miður soldið sundurlaust líka.
en ágætis skemmtun fyrir þá sem hafa gaman að heimspeki.
2 drullukökur af 5
mánudagur
jæja, mánudagur blánudagur. mér tókst með mikilli snilld að sofa yfir mig og vakna ekki fyrr en kl. 10. einstaklega hentugt þar sem ég á eftir að gera milljón hluti og vikan komandi er svo að segja öll orðin uppbókuð. HVAR, Ó HVAR er hægt að verða sér útum 30 klukkutíma sólarhring?
en jæja, svossem ekkert allt slæmt um daginn að segja, fór í sund og svo að segja kolsvört ljósabekkja kona með ljósar strípur og uþb 3% fitumagn, talaði við mig og fannst ég dugleg að synda svona mikið. hún hefur samt ábyggilega bara verið öfundsjúk, það má á mér sjá hve góðan mat ég hef verið að gúffa í mig síðustu daga. mmmm.... matur.

föstudagur, janúar 16, 2004
vei vei vei!! ég er komin með mína eigin heimasíðu og þar ætla ég að setja myndir :D:D:D:D þvílík snild. það er reyndar bara komin ein, og henni er misskunarlaust stolið af henni Fjólu sætubusku (takk elskan) en ein er betri en ekki nein, eins og segir í ljóðinu. kíkiði endilega á snilldina og fylgist svo vel með. jafnvel að fallega góða myndavélin sem faðir minn elskulegur gaf mér, komi nú að góðum notum :)
www.totaviola.topcities.com
www.totaviola.topcities.com
úff púff, kuldi, puldi
mer er svo kalt á puttunum að ég næ varla að teygja þá upp í þriðju takkaröð! hvað er málið með hitastigið ? þessari herbergiskytru? aumingjans Jón litli pottaplanta. svo ákvað ég í miklu æðiskasti í gær að fara að drekka 2 lítra af vatni á dag (það ku vera svo gasalega gott fyrir mann), þannig að ég er hérna með ííííískalt og svalandi vatn við hliðina ámér. hálfan líter. og hann helst bara kaldur, ótrúlegt ekki satt. kannski bara kraftaverk? það liggur við að ég þurfi að byrja á því að brjóta gat á íshelluna áður en ég get drukkið. þ.e.a.s. ef ég hefði nú hugsanlega einhverja lyst á því að ná hitastigi líkama míns niður fyrir 30 gráður.
er ekki vonandi í tísku að vera með bláan varalit?

vantar ykkur að kaupa HURÐ?
drottinn minn dýri, það sem ekki er til á þessu interneti!
drottinn minn dýri, það sem ekki er til á þessu interneti!
þriðjudagur, janúar 13, 2004
ég var að laga bloggið hennar Guðnýju Birnu, kíkiði á það.
svo reyndar hikstaði bara blogger og vildi ekkert birta allt sem ég var búin að gera. kannski er á honum svona siðferðiseftirlits-sía. maður veit ekki. hehe.
svo reyndar hikstaði bara blogger og vildi ekkert birta allt sem ég var búin að gera. kannski er á honum svona siðferðiseftirlits-sía. maður veit ekki. hehe.
stundum koma íslensku stafirnir mínir ekki inn þegar ég pósta. hvað í óskupunum á það nú eiginlega að þýða? :@
núna komu þeir til dæmis....
núna komu þeir til dæmis....
mánudagur, janúar 12, 2004
ég veit nú ekki alfeg hver þessi maður er, en hann er nú full sveittur fyrir minn smekk...

You are going to marry Ashton Kutcher. He is kind
and sweet, but pulls a lot of pranks (and
probably quite a few on you too!!)and can
always make you laugh.
Congrats!!
Which male celebrity are you going to marry? (10 results that have pics!)
brought to you by Quizilla

númer VII
Tinna mín elskuleg er frábær. hún býr núna í Esbjerg í danmörku, sem ég hélt að væri úthverfi af Kaupmannahöfn :S svona getur maður verið mikið kjánaprik. í sumar áttum við tinna þvílíkar gæðastundir saman að annað eins er varla hægt að ímynda sér. einu sinni fórum við líka saman á sinfóníuhtónleika í ógeðslega fínum fötum. það var geðveikt gaman, svo vorum við svo hrottalega fínar með okkur að ekkert annað en hótel saga dugði fyrir eftirtónleika-drykkinn okkar. svo endaði þetta nottla í all-svaðalegu djammi. ég var einmitt í fermingarkjólnum hennar döggu systur (ég er ennþá með hann heima elskan mín ;) og var skíthrædd um að klína einhverju í hann vegna þess að hann var (og ER!) svo geðveikt hvítur. stemmari. við og við reyni ég að gera við bloggið hennar tinnu ef það lítur skringilega út og einu sinni var ég eiginlega næstum því búin að eyðileggja það alfeg, en svo náði ég að redda mér. hjúkk :) Toggi var með mér í hellisskútabandinu ógurlega í leikritunu Kolrassa Krókríðandi. þar spilaði hann á forláta fagott sem hann keypti sér á netinu. Toggi er einna nettasti gaur sem ég þekki og er hljómsveitin hans, "ljótu hálfvitarnir" næstum því uppáhalds hljómsveitin mín. Toggi er líka(heldégalfegörugglega) formaður Hugleiks á þessu fagra misseri og sinnir því (heldégalfegörugglega) af mikilli alúð og nærgætni. einu sinni var ég búin að gleyma hvað systir hans heitir, en svo mundi ég það. Vignir
minn er uppáhaldsbestaskinnið mitt og á hans hefði síðasta ár verið ó hu mu Hu le Hegt! honum fannst ég brjáluð að skrifa þennan annál vegna þess að það er svo mikð? verk. það var rétt hjá honum :) en það er samt líka búið að vera gaman, svo þetta kemur út á jöfnu. eðasvogottsem. þegar ég átti afmæli bakaði ég köku heima hjá honum til að fara með í vinnuna daginn eftir. við bjuggum til Hrottalega grænt krem og skreyttum hana með haribo-spældum eggjum. þetta taldi ég vera nóg til að enginn hér á skjaló myndi voga sér að éta hana (þau geta verið svo snobbuð) en viti menn! hún var étin upp til agna og ég hundskaðist bara heim með tóman bakka. svona geta hlutirnir verið merkilegir. á síðasta ári fórum við Vignir líka saman í skálholt með hljómeyki og það var held ég skemmtilegasta kór-æfinga-búða-ferð sem ég hef farið í. takk elsku elsku vignir fyrir árið. Villi er hress trompetleikari við nám í osló og er held ég að tryllast úr stemmingu. við vorum saman að spila í óperunni á egilsstöðum fyrir ári og fórum m.a. í einn sveittan badmintonleik. sem ég vann. Víkingur er eiginlega síðastur þar sem neðsti linkurinn er algjört djönk og víólumafían svossem ekkert ein manneskja, eða hópur fólks, meira svona atferlismottó og lífsmunstur. en talandi um Víking þá verður maður nottla að segja ða hann er við nám í Juilliard skólanum í New York og lemur þar á hljómborð öllum stundum. það er hans hæðsti draumur að komast í alvöru diskó hljómsveit og hefur hann tekið öll námskeið juilliard í "funky sounds" og "rythms to moonwalk after". svo spilar hann víst líka á píanó. síðast þegar ég sá víking var hann að fara í brúðkaup (ekki sitt eigið þó) og var í hvítum rúllukragabol. þetta fannst mér koma mjög smart út og á hann hrós skilið. slíkur bolur myndi þó, að öllu jöfnu, fara mér einstaklega illa. svona er lífið óútreiknanlegt krakkar mínir. jájájá.
og nú er annállinn BÚINN! ég á ekki til eitt aukatekið (enda eins gott, nóg langt er þetta búið að vera) orð.
Tinna mín elskuleg er frábær. hún býr núna í Esbjerg í danmörku, sem ég hélt að væri úthverfi af Kaupmannahöfn :S svona getur maður verið mikið kjánaprik. í sumar áttum við tinna þvílíkar gæðastundir saman að annað eins er varla hægt að ímynda sér. einu sinni fórum við líka saman á sinfóníuhtónleika í ógeðslega fínum fötum. það var geðveikt gaman, svo vorum við svo hrottalega fínar með okkur að ekkert annað en hótel saga dugði fyrir eftirtónleika-drykkinn okkar. svo endaði þetta nottla í all-svaðalegu djammi. ég var einmitt í fermingarkjólnum hennar döggu systur (ég er ennþá með hann heima elskan mín ;) og var skíthrædd um að klína einhverju í hann vegna þess að hann var (og ER!) svo geðveikt hvítur. stemmari. við og við reyni ég að gera við bloggið hennar tinnu ef það lítur skringilega út og einu sinni var ég eiginlega næstum því búin að eyðileggja það alfeg, en svo náði ég að redda mér. hjúkk :) Toggi var með mér í hellisskútabandinu ógurlega í leikritunu Kolrassa Krókríðandi. þar spilaði hann á forláta fagott sem hann keypti sér á netinu. Toggi er einna nettasti gaur sem ég þekki og er hljómsveitin hans, "ljótu hálfvitarnir" næstum því uppáhalds hljómsveitin mín. Toggi er líka(heldégalfegörugglega) formaður Hugleiks á þessu fagra misseri og sinnir því (heldégalfegörugglega) af mikilli alúð og nærgætni. einu sinni var ég búin að gleyma hvað systir hans heitir, en svo mundi ég það. Vignir
og nú er annállinn BÚINN! ég á ekki til eitt aukatekið (enda eins gott, nóg langt er þetta búið að vera) orð.
góðar stundir
laugardagur, janúar 10, 2004
ekki annáll VI (af sjöhundruð :@)
Lára Sigríður Haraldsdóttir er hörkudjammari og ég held ég geti næstum því sagt að á síðasta ári hitti ég hana ekkert. :( við vorum saman í kórnum hér í den og það var bara hörkustuð, svo vorum við líka einusinni saman í líffræðitíma og vorum yfirleitt að rölta um á hamrinum, gerandi einhverjar asnalegar athuganir. stuð. Leifur er pínulítill og þolir ekki að vera kallaður sætur, samkvæmt "100 atriði um mig" listanum sem hann birti um daginn á blogginu sínu. skemmtilegur listi, hósthóst. þegar ég fer að róta í hausnum á mér og leitandi að Leif sé ég fyrir mér atvik á laugarveginum þar sem ég kallaði á hann og veifaði honum þvert yfir götuna og hann á móti. innilegri held ég nú ekki að okkar samskipti hafi verið :( puh, það er nú meira hvað maður getur verið í ósambandi. en jæja. Mýa
krúsídúlla varð tvítug á síðasta ári og ég trauð mér í afmælisveisluna ásamt honum Vigni sætabusku (sem um verður rætt síðar) og þekkti engann. mjög skemmtó. skemmtilegast var þó þegar ég fór inní eldhús og heilsa innilega og kyssi strák sem var viss um að væri Ástþór vinur minn, en fattaði svo síðar að þetta var bróðir hennar mýu. sem ég þekki ekki neitt. snild. en hann er nú myndarlegur, svo þetta var ekki allt til spillis. hóhóhó :) mýa á kött (eða ketti) og síðast þegar ég sá hana var hún í ógeðslega flottum bláum bol sem mig langar í. útúrkú. Hellubrautar- Palli
er sá einna mest yndislegasti. hann hamstrar líka áfengi, á alltaf til allavega 2 eða 3 tegundir af bjór, svo maður minnist nú ekki einu sinni á sterkavíns úrvalið. ekkert smá nettur :) einu sinni vorum við palli í fred flinstones nintendo leik og vorum búin að vinna einhver milljón borð þegar pabbi hans kemur inn og skipar okkur að fara út að leika okkur. það var sko sumar. og svo ýtir hann á on/off takkann á tölvunni en heldur honum inni svo það slökknar ekki. palli tjúllaðist nottla en svona til að redda málunum teipuðum við takkann fastann og héldum áfram langt fram eftir degi. stundum vorum við líka í batmanleik útí garði og þar var lítil, frekar ljótur svartur kofi og hann var batman hellirinn okkar. ég var alltaf robin. hehe. við palli eigum (einkaréttsmálin eru í vinnslu) uppskriftina af ótrúlega speisaða kokteilnum vodka-gin. en í honum er einmitt vodka og gin. snorri er bassi og lífræðingur. eða svo gott sem. við kynntumst svona óvart í gegnum stefaníu vinkonu mína og tobbu. og tinnu. skondið mjög. við fórum á árinu á kaffibarinn og fengum okkur bjór og nachos. namminamm. báðum meira að segja um auka sósu. snild snild snild. sunna
sveins er í danmörku í þessum töluð orðum að líta eftir ungum drengjum. segi ekki orð meira um það, hehe ég held ég geti með sönnu sagt ða hún er sá allra gall harðasti hansen-isti sem uppi hefur verið á þessari öld (grímkell og co. tilheyra þá þeirri sem kláraðist hér fyrir 4 árum). við kynntumst í kórnum eins og svo oft vill verða og svei mér þá ef það var ekki bara hörkustemming. við fórum til bandaríkjanna og Sunna keypti sér fullt fullt fullt af ótrúlega asnalegum bolum sem allir áttu það sameiginlegt að vera úr plasti og þannig hannaðir að maður vissi ekkert hvernig þeir áttu að snúa. ó hó geðslega fyndið. telma er stundum kölluð litla frænka, en ég veit alls ekki afhverju af því tæknilega séð erum við ekkert rosalega skyldar. samt nottla soldið, Nikulás Sigurðson, 1772- 1832, var nefnilega afi langömmu afa míns en afi langafa afa hennar Telmu (áttundi liður). annað sem er merkilegt er það að konan hans Nikulásar, Kristín, fæddist 1779 og er ekki ennþá dáin. allavega ef maður tekur mark á íslendingabók. jájájá. Telma er í söngskólanum í reykjavík og við höfum yfirleitt hisst svona 2-3 á mánuði í strætó. nú er ég einmitt nýbúin að kaupa mér grænakortið svo ég get farið að bíða spennt eftir að hitta telmu á næstu vikum.
...pása...
Lára Sigríður Haraldsdóttir er hörkudjammari og ég held ég geti næstum því sagt að á síðasta ári hitti ég hana ekkert. :( við vorum saman í kórnum hér í den og það var bara hörkustuð, svo vorum við líka einusinni saman í líffræðitíma og vorum yfirleitt að rölta um á hamrinum, gerandi einhverjar asnalegar athuganir. stuð. Leifur er pínulítill og þolir ekki að vera kallaður sætur, samkvæmt "100 atriði um mig" listanum sem hann birti um daginn á blogginu sínu. skemmtilegur listi, hósthóst. þegar ég fer að róta í hausnum á mér og leitandi að Leif sé ég fyrir mér atvik á laugarveginum þar sem ég kallaði á hann og veifaði honum þvert yfir götuna og hann á móti. innilegri held ég nú ekki að okkar samskipti hafi verið :( puh, það er nú meira hvað maður getur verið í ósambandi. en jæja. Mýa
...pása...
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)