fimmtudagur, febrúar 27, 2003


hann ási minn á afmæli í dag!!!
orðinn 11 ára.
oooooh dúllu-lúllu-rassgata rófa.
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ÁSI BRÓÐIR
:)

miðvikudagur, febrúar 26, 2003

hoe gaat het?

ben jij dat
Hvað er eiginlega málið með Haloscan?
afhverju virkar það ekki?
garg!
skíta net
kominn miðvikudagur.
hver hefði trúað þessu?
og mér tókst með miklum tilþrifum að skrifa ritdóm um bíómyndina Stellu í framboði ÁN þess að hafa séð hana. úbbs.... vona að Gottskálk sé ekki tölvunörd og lesi blogg hjá fólki.
en þetta er nú aðallega honum Arnari að þakka, sem er sætastur og skemmtilegastur :)
takk eeeeeeeeelskan

mánudagur, febrúar 24, 2003

http://www.dcn.davis.ca.us/~brandi/LeBrun/
æj þettaer ljótt
:p
úff
þvílík mistök
jæja....
ég er búin að breyta templatinu enn eitt skiptið
en þetta er varanlegt....
held ég :p
og muniði eftir í gamla daga þegar maður setti upp svona dálka, 5 sæta stráka, 5 tegundir af farartæki, 5 liti o. s. frv. svo reiknaði maður þetta út af ótrúlegri nákvæmni og "Volla" framtíðin blasti við manni. ég reyndar man ekkert eftir hvernig þessir mögnuðu útreikningar gerðust, en svo datt ég inn á þetta á netinu. mjjjög smart.
og samkvæmt þessu þá verður framtíð mín þannig.....

You will drive a röndótt sportbíll.
You will marry Eyfi and have 5 kids.
You will be a söngvari in Grikkland.

ekki slæmt ha? :p þannig að eyfi minn, sorrí elskan... verður að hætta við kynhneigð þína, spámaðurinn mikli hefur talað.
www.playmash.com
jeij!!
bloggerið var bilað í morgun sko :(
en nú er það í læ!!
jeij!
en það sem er ekki í læ er það að ég virðist hafa gleymt að stimpla mig út á fimmtudaginn síðasta. ég sem MUNDI eftir því. þettaer eitthvað skrítið dæmi, held ég.....
voða strange eins og segir í ljóðinu

fimmtudagur, febrúar 20, 2003

http://www.bbc.co.uk/comedy/theoffice/
þetta eru fyndnustu þættir í heimi. ég öskraði af hlátri í gær.
Gott fólk, gott fólk!
og hin fíblin sem eru að skoða síðuna.... það er búið að gera við Haloscan commenta-dótið
ég endurtek....
það er búið að Gera Við Haloscan!!!
þið vitið hvað þið eigið að gera...
þetta er mjög skemmtilegt :) sérstaklega ef maður er með hátalara...

Semdu þína eigin Bush-ræðu!

þriðjudagur, febrúar 18, 2003




úff hvað manntalið er hörmungilega leiðinlegt. úff. hvað er málið með allar þessa Zetzelíur? var tölvuleikurinn Zelda nýkominn á markað?
svo er jón farinn heim með einhvejrum Kjartani. hvurs lags nafn er nú það? greinilega uppspunnið, þetta er án efa einhver hrikalegur skattfjársvikamaður. hann var líka þess legur, ég sá það strax.
en annrars er það skemmtilega frá að segja að Eyfi litli kom á msn-ið áðan. þó bara í stutta stund, og gat alls ekki bögglað útúr sér einu einasta orði af viti. en maður getur nú svossem ekki ætlast til of mikils.
og svo er ELFA BJÖRK gamla góða, komin aftur í kammersveitina! húrrra fyrir því!!!



Húrra!!!!


svo er hún svona líka áhugasöm, að fréttir herma að tríóið ódauðlega, Sif, Elfa og Óli Kobbi ætli að fara að gigga á ný. kannski þau troði upp í SEÓl.... (borgin í kóreu....)
æj
ég er ekkert fyndin.
:p
en ég er mjög úrræðagóð, enda tókst mér í gær að losna úr leiðinlegasta verkefni sem ég hef á ævi minni látið plata mig út í, með svo snilldarlegum hætti að annað eins hefur varla upp komið um aldur og æfi. "um aldurogæfi, um aldurogæfi, um aldur og æ-hæ-fi....." ef einhver kannast við Davíðsálminn hans Þorkels.
jessörí bob.
Bob er alltaf hress, eins og venjulega, var rétt í þessu að segja mér að ég væri góður auglýsingastjóri fyrir tannkrem. guð má vita hvenig honum datt það í hug.
ooooh ég er svo dugleg!!
ef glöggir starfsmenn ríkisendurskoðunar kíkja á hið ótrúlega skilvirka Tímon.is, viðverukerfi þjóðskjalasafnsins, geta þeir séð, sér til mikillar gleði að ég var í vinnunni frá því 8 í gær morgun, þar til 9 núna í mogun.
25 tímar....
ekki slæmt
ég gleymdi að stimpla mig út, hehe

mánudagur, febrúar 17, 2003

heimsku bandaríkjamenn

Gary og Erika voru að klæða sig eftir einn snöggan í aftursætinu.
>>"Ég biðst afsökunar," sagði Gary. "Ef ég hefði vitað að þú værir
>>hrein mey þá hefði ég gefið mér meiri tíma." "Það er ekki allt eins
>>og það verður best á kosið," svaraði hún, "ef ég hefði vitað að þú
>>hefðir meiri tíma þá hefði ég farið úr nærbuxunum."
GARG hvað ég er mikill snillingur!
nú í þessum töluðu orðum er exel vinur minn að seifa Rangárvalla og Árnessýslu í manntalinu 1835.
miklum áfanga hefur verið náð.
nú er rétt svo helmingurinn eftir...
hehe :(
hey....
Sigurður
Eyjólfur
Snorri
Engilbert
Björn
Nicolaus
Guðrún
Guðrún
Guðrún
Ingvöldur
komiði að borða!!

djöfull hlýtur það að vera gaman að eiga 10 börn. og skíra 3 það sama!!


What Was Your PastLife?

úff já, laugardagur dauðans. fór í mjög skemmtilegt partý heima hjá Palla darling, en gerði þá meginskyssu að fara svo niðrí bæ. það er svo leiðinleeeeeeeeeeeeegt að fara niðrí bæ. leiðinlegt leiðinlegt leiðinlegt.
leiðinlegt
en takk samt kælegaÁsgeir krúttíbolla fyrir að smygla okkur, mjög laumulega, inn á 22. það var sveimmér þá einn af betri stöðum kvöldsins. ég vissi bara hreinlega ekki að það væri 3ja hæð á þessum stað. drottinn minn. og þar er ENGIN tónlist, svo maður getur í alvörunni TALAÐ við fólk. annað en hægt er að segja um suma staði.
hvað er eiginlega málið með skemmtistaði á höfuðborgarsvæðinu? af hverju getur maður hvergi talað við vini sína, án þess að Öskra á þá? auðvitað er gaman að dansa við góða tónlist og allt það... en vó. fyrr má nú vera. það grófasta sem ég hef lent í, er þegar ég álpaðist í einhverri vitleysu inná Prikið og á efri hæðinni þar, er gjörsamlega ekki hægt að hreyfa sig, vegna þess að þar eru borð og stólar. svo fólk geti nú sitið í rólegheitum?
já NEI NEI.
aldrei hef ég verið á stað þar sem græjurnar hafa verið jafn hátt stilltar. bara aldrei. svo við sátum þarna, vinkonurnar og hommarnir, við eitt borð og gláptum oní bjórana okkar. eða horfðumst í augu og reyndum að lesa hugsanir hvors annars. ég fór á barinn og bað um bjór, en barþjóninum fannst ég segja pulsa með öllu nema remúlaði.
svona næstum.
þannig að ef þið rekið skemmtistað og eruð að lesa þetta... í guðanna bænum reyniði aðeins að lækka í græjunum.
og svo fór ég á kvartett æfingu fyrir fiðluballið í MR. aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaargh!!!
meir um það síðar.

föstudagur, febrúar 14, 2003


föstudagur til fjár. eða kannski til þess að kaupa sér bók í bóksölu stúdenta.
hmm.
eitthvað var þessi setning illa uppsett og skrítin. en mér er svossem sama. krúttið hann eyfi lét mig hringja í sig á miðvikudagskvöldið og talaði heil óskup :) garg hvað var gaman að heyra í honum. og garg hvað það er leiðinlegt að fá það við og við framan í sig að hann er í útlöndum. en það góða með því vonda, eins og einhver hefði átt að segja.
í bókmenntaritgerðum í dag, kom maður og hélt fyrirlestur um bókmenntagagnrýni í dagblöðum.
það var mjöööööög leiðinlegt og kallinn var með svo stóran haus að ég skildi engan veginn hvernig hann gat haldið jafnvægi. hann hlýtur ða vera með blý í skónum eða eitthvað. kannski þessi síða sé eitthvað sem hann ætti að kynna sér....
voða er ég vond.
en hey! sama er mér.
Hmoah-ho-ho-ho-ho!!!
en talandi illa um hausinn á fólki þá bara verð ég benda fólki á alfeg hreint Sjúklega fyndna mynd upp í háskóla. á ganginum á fyrstu hæðinni í aðalbyggingunni eru ljósmyndir af gömlum kennurum eða einhverjum gaurum, og vinstra megin við hurðina að stofu 1 er mynd af kalli.
og hann er með svo stórt EYRA að ég þarf að loka augunum meðan ég labba inní stofuna til að Öskra ekki úr hlátri. en háskólanemar eiga ekki að öskra úr hlátri yfir gömlum kennurum.
það sæmir ekki...