miðvikudagur, febrúar 12, 2003



æj, krútt
nú er miðvikudagur og ég í rólegheitum minum að bíða eftir að klukkan verði það nálægt 09:34 að ég geti rölt mér niður á Hlemm og tekið strætó uppí háskóla. það eru bókmanntaritgerðir, börnin góð.
ég var einmitt að enda við að prenta út þetta líka glæ-hæ-sihi-lega eintak af umfjöllun minni um smásöguna völuspá á hebresku. ágæt smásaga svossem. en umfjöllunin... úff vá! það eru sko bókmenntir.
eða þannig sko.
svo er hárið á mér ótrúlega úfið. hvað ætli fólk haldi eiginlega?

þriðjudagur, febrúar 11, 2003



oooooh hvað slóvensku dansarnir hans Dvorák eru geggjaðir! afhverju er ég ekki búin að kaupa þennan disk fyrir langa langa löngu?
af hverju er ekki skylduhlustning á þetta í öllum framhaldsskólum landsins?
þetta er búið að gefa mér svo góða og fallega sýn á lífið og hamingjuna. ég held sveim mér þá að SVARIÐ liggi milli laglínanna í þessu yndislega svarið.
og það er í fjórum öðrum....
úffúffúff!!!
Úff!
hvað ég er búin aðkoma mér í djú-hú-pa-han skít núna!!!

"take my advise, kids" EKKI ljúga að hommum

mánudagur, febrúar 10, 2003

vó!
er þetta tilviljun?
http://www.thorahe.blogspot.com
GarG!
hvað slóvensku dansarnir hans Dvorák eru ææææææðislegir! a must hear fyrir alla.
ég semsagt tók smá geisladiska flipp í síðustu viku og keypti hátt á þriðja tug hljómdiska.
drottinn minn...

en afhverju er ég ekki búinn að kaupa mér þetta verk áður. slóvensku dansar dauðans!! þetta er þvílík snilld. margir nottla miiiiiiklar lummur, en góðir fyrir því. það sem er nefnilega soldið gaman við svona lummur, er að það eru kannski bara fyrstu 4 eða 8 taktarnir (í tvískiptri hryntegund) sem eru lummur, hitt er bara óuppgvötaður fjarsjóður á gnægtarborði alheimsins.

glimmer-glimmer

mikið afskaplega er ég fegin að þessi helgi er búin.
hinir hræðilega skuggalegu myrku músíkdagar (Mikka Mús dagar) tónleikar, voru í gær í Ými, tónlistarhúsi og svei mér þá ef að það var ekki bara sæmilega mætt; rikki sæti, þorgerður, 2 hommar, maðurinn hennar heiðrúnar, Döggurnar mínar tvær og útsendari djöfulsins. en þetta tókst allt saman sæmilega held ég barasta, þrátt fyrir að altinn hafi mæmað nokkra takta í honum Jónasi, komið vitlaust inn í Þorkatli og verið of sterkar í Jóni Norðdal. svo var þetta alltsaman tekið upp af RúVinu og verður kannski sent út um gjörvalla Evrópu, rétt eins og hvatningarræða Hitlers á sínum tíma.

iiiii... djók


fyrir þá sem ekki sáu sér fært að mæta, geta bara sjálfum sér um kennt að hafa ekki séð sér fært um að mæta.
hmmm....
eða eitthvað.

en mér finnst nú að hún Þórunn Guðmundsdóttir ætti að ÞAKKA MÉR fyrir boðsmiðann sem ég gaf henni, þó ekki sé meira sagt.
alfeg hreint ótrúlegasta fólk sem dettur ofan í íslensku tónlistar snobbgryfjuna...

iii, segi svona. annars var bara gaman, fengum kampavín eftir tónleikana og við vignir fórum í þvílíka safarí-leiðangurinn að leita að einhverju til að éta, en komumst að því að eftir klukkan ellefu er ekki neitt ætt í hafnarfirði nema á Esso.
og þangað fórum við. puuuuuuuuuulsa.......

föstudagur, febrúar 07, 2003


svo er ég að drífa mig í skólann að læra svolitla bókmenntafræði....
bið ykkur vel að lifa, börnin mín og góða helgi

Japanir borða mjög litla fitu og fá mun færri hjartaáföll
en Bandaríkjamenn og Englendingar.

Frakkar borða mikla fitu og fá mun færri hjartaáföll
en Bandaríkjamenn og Englendingar.

Japanir drekka mjög lítið af rauðvíni og fá mun færri hjartaáföll en
Bandaríkjamenn og Englendingar.

Ítalir drekka mjög mikið af rauðvíni og fá mun færri hjartaáföll en
Bandaríkjamenn og Englendingar.

Þjóðverjar þamba bjór og háma í sig pylsur og fitu og þeir
fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.

Niðurstaða:
Borðaðu og drekktu allt sem þig langar í.
Forðastu að tala ENSKU.
ég veit nú ekki hvort allir vita það, en allir ættu að vita það, en systir mín húnDagbjört er snillingur. ég veit nú ekkert hvort að ég megi sýna ykkur þetta, en sjáiði bara hvað hún skrifar um kærasta...
"Ég held að talvan mín viti það að ég er á lausu. Það eru alltaf að poppa upp einhverjar auglýsingar "Best Date Ever" eða "Do You Need A Date" og ég nottlega svo JÁ!!! mér vantar deit. En ég get ekkert bara svarað þessu og látið senda mér eitt stykki kynþokkafullan ameríkana. Það er örugglega dýrt og svo þarf ég örugglega að borga rosa mikin skatt af honum...."

þvílík sniiiiiiilld!

fimmtudagur, febrúar 06, 2003

aaaaaaaaaaah!
komin með gleraugun á nefið. mjög mjög gott. svo er ég líka komin með þvílíka ljóta kvefið, beint í hálsinn, hósta upp allskonar skrítnum hlutum. lyklakippum, tómum áldósum og ósamstæðum sokkum. mjög undarlegt. en hey! haldiði bara ekki að ég sé komin með helvítis íslendingabókina! þvílík snilld. eins og ég hafði nú lítinn áhuga á þessu. og svei mér þá ef að allir sem ég er búin að fletta upp séu skyldir mér. meira að segja Maggi sæti er skyldur mér í níunda lið. þetta er ótrúlegt!!
svo plokkaði ég öll hárin af annari löppinni í gær. meikaði ekki meira :p þetta er svo vont. úff. ætli það verði hægt í framtíðinni að rekja hárvaxtargen í íslendingabók? þá gæti ég nú aldeilis skammast og rifist.
eða ekki......
en hey!! allir að mæta á Hljómeykis tónleikana í Ými á sunnudaginn kl. 20:00.
blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en fólk beðið um að láta allan bjór renna tafarlaust til bágstaddra að Hringbraut 45, neðri hæð. herbergið sem er fyrst til hægri....

þriðjudagur, febrúar 04, 2003


í dag er það tóta skrítna sem mætti í vinnuna. meira að segja Hrafn hætti að píra augun í smá stund og glápti framan í mig með undrunarsvip. ég er nefnilega gleraugnalaus. og það er nú ekki alltaf. enda eru linsur ekki mjög hentugar í mín skökku og ljótu augu. ég sé ekki nógu vel og mig svimar. gott hjá mér samt.
en málið er að í gær jugguðust gleraugun mín í sundur á hægri hjörinni. vitaskuld hljóp ég (svo gott sem blindandi) niður í Verslunarmiðstöðina F j ö r ð og bað fólkið í gleraugnabúðinni um að gera við gleraugun mín grátandi. þeas, ég var grátandi, en þau flissuðu bara að mér. enda gátu þau ekki kvartað, öll með brillurnar á nefunum... þau verða tilbúin eftir hádegi.
gleraugun mín, þeas, ekki nefin á fólkinu í gleraugnabúðinni.

mánudagur, febrúar 03, 2003

myndir þú vilja heita Hugbót Ólafsdóttir?
af hverju virkar tölvan mín bara þegar ég er að reyna að sína einhverjum að hún virki ekki?
þetta er nú eitthvað "strange", eins og þeir segja í útlöndunum... en viti menn. núna vill hún virkar og því gott að nota tækifærið og skrifa heil ósköp.
samt ekki.
en nú er það offisjalt, börnin góð. ég er að pipra. eftir þessa miklu helgi er mér það ljóst í eitt skipti fyrir öll að mín bíður ekki glæstur karlmaður á vöðvastæltum hvítum hesti bak við næsta horn. mín bíður að sama skapi ekki löðrandi sveittur afríkubúi í smekkbuxum með frekjuskarð... og ekki vel stæður kúabóndi á austfjörðum, né heldur skeggjaður togaraeigandi á vestfjörðum.
þannig að nú er að borga upp skuldir og koma sér til útlanda eins fljótt og auðið er. finna sér fallegt hús í suður-frakklandi og fara að brugga rauðvín.
mmmmm... rauðvín.

fimmtudagur, janúar 30, 2003

fimmtudagurfimmtudagur!!
og viti menn, haldiði ekki bara að hún Ella Vala vinkona mín sé að fara að prumpa í lúður með Sinfóníuhljómsveit Íslands, nú í kvöld. jeremías minn.
það er nú samt ekki nærri því jafn merkilegt og það að ég (og hljómeyki) vorum í M Ó S A Í K á þriðjudaginn. drullumikilvægt og geggjað flott.
ussu sussu suss!

þriðjudagur, janúar 28, 2003



jæja.
komin í tölvuna hennar öddu á nýjan leik. mér er farið að líða eins og síðasta sumar þegar ég var alltaf að stelast í tölvuna hennar . eða þegar ég var að stelast í tölvuna hennar rikke. jeremías. þetta er allsvakalegt ástand.
hmmm.
samt ekki jafn slæmt ástand og var á mér sunnudagsmorgun. úff. hræðileg þessi hommadjömm, skammskamm Arnar Þór og Hafþór! og ég sem átti að mæta á æfingu kl. 11 inni tónó rvk. ég var bara ekki í neinu ástandi til að opna augun, hvað þá að keyra inní reykjavík, og hvað þá að spila fyrir kennarann hans Stulla!
svo á ég ábiggilega ekki eftir ða segja fyrirgefðu, vegna þess að ég er svo mikill nagli, en mér þykir þetta nú samt rosalega leiðinlegt. muuuu
núna virkar bara lyklaborðið hjá mér, en ekki hin frábæra þráðlausa mús.
það er þó skömminni skárra heldur en í gær þegar bara hin þráðlausa mús virkaði, en ekki lyklaborðið. sérstaklega þegar maður pælir í því að ég er að vinna hérna við innslátt.
mjög hressandi og fer einstaklega vel í skapið á mér, svona þegar hlutir virka ekki eins og þeir eiga að gera.
það má taka það fram að ég fór heim í gær á hádegi, svo ég myndi ekki myrða einhvern eða eyðileggja neitt.
en eins og flestir vita, þá er ég þolinmóðasta manneskja í heimi.

fimmtudagur, janúar 23, 2003

oh
ég er komin með ógeð af þessu templati á blogginu mínu.
oj.
ég ætla að fá mér nýtt.
einhverjar hugmyndir?
þetta er nú eitthvað sem allir hafnfirðingar ættu að hafa á takteinum á hvers kyns samkomum og samræðustöðum...
jemen



Alls komu 365.561 gestur í sundlaugar Hafnarfjarðar árið 2001. Þar af komu 289.133 í Suðurbæjarlaug og 76.220 í Sundhöllina.
Aðsókn í laugarnar hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum en til samanburðar má geta þess að árið 1999 komu 299.952, árið 2000 komu 318.827, árið 2001 351.808 manns alls í laugarnar tvær.
Af þessum tölum má sjá að gestum í sundlaugunum fjölgaði um 13.753 gesti á milli ára eða um 4%. Miðað við aðsóknartölur þá kom hver Hafnfirðingur 17 sinnum í sund á árinu.

sjá Hafnarfjörður.is
Mikill dyrdardagur thvi eg fekk bref fra honum eyfa mínum. Reyndi ad finna stad sem eg gat verid i einrumi og kom mer thvi vel fyrir undir rauðu, hlýju sænginni minni og naut brefsins med tilheyrandi hlaturskostum. :)
kannski að einhverjir þekki stílinn, en ég skal viðurkenna að ég breytti honum smá. stílnum, þeas, ekki stráknum.
eða ég vona ekki :/
annars tekst manni nú ýmislegt. tildæmis kom Jón Viðar (mega-beib) með súkkulaði handa mér áðan. fyrir nokkru síðan hefði hann ekki gert það.
hoho