miðvikudagur, janúar 22, 2003



ég lenti í því leiðinda-atviki um daginn að hjá mér sprakk pera. þar sem ég er bæði lítil, varnarlaus og ákaflega léleg í öllu svona sem strákar gera, þá hringdi ég vitaskuld samstundis á viðgerðarmann... nema hvað? og viti menn, ég hef varla sleppt símtólinu þegar hringt er á útidyrabjölluna. ég stekk á fætur, hleyp til dyra og hleypi manninum inn. þetta er þá bara kolsvartur maður og í einkennisbúningi.
"er biluð hjá yður pera?" segir hann með kontrabassaröddu og glottir.
"ég er yfirmaður perusviðs, og var sagt að þetta væri sérstakt útkall. eruð þér ekki ungfrú tóta? okkar uppáhaldsviðskiptavinur?"
ég held ég láti þessa skýringarmynd fylgja með, og sleppi því þar með að hafa um þetta of mörg orð...
sætusætusætusætusætu!!!!














þriðjudagur, janúar 21, 2003



mitt fyrsta verk þennan mjög svo kalda þriðjudag er að skrifa litla lofræðu um vin minn og velunnara Sör Óliver Kentish. og það er nú ekki út af því að í mig var hreytt í gær, eða það að einhver hafi sett upp yfirfýlupokasvipinn sinn, já neinei! það er einfaldlega út af því að þessi maður, þetta MIKILMENNI á það án efa meir og betur skilið en flestir sem ég þekki að um hann sé farið hlýjum orðum. flestir? ég held mér sé óhætt að segja ALLIR sem ég þekki. þvílíkur öðlingur...
ég held það hafi verið einn fagran haustdag árið 1992 þegar ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að kynnast 'Oliver fyrst, og mun það vera á hinni allra fyrstu kammersveitaræfingu sem haldin var í nafni tónlistaskóla hafnarfjarðar. og þær áttu nú eftir að verða fleiri, betri, lengri, meira krefjandi og gefandi með tímanum. og nú, 11 árum (eh-hemm!) er kammersveitin svo sannarlega komin á hátind ferils síns með rúmlega 20 þáttakendur, og FJÓRAR gerðir af hljóðfærum, geri aðrir gott betur. og ekki er að spyrja að "Manninum" sjálfum, mætir hress og kátur korter fyrir allar æfingar, stillir upp og hitar kaffi, bakar dúnmjúkar og sætar smákökur, skreytir salinn lítillega, kannski með nýtíndum blómum (innan úr reykjavíkinni) eða fallegum postulínsstyttum, sem við vitum að hann á svo margar, allt til þass vel fari um okkur aumu, óbreyttu hljóðfæraleikarana og síðan býður hann alla velkomna með bros á vör. á vör? allt andlitið uppljómast af gleði yfir gæðum þessa heims og sá sem ekki kynnist óliver á einhvern hátt sem FYRST, ætti að fara hugsa sinn gang, því hver dagur í návist hans er geymd perla í nægtarbrunni alviskunnar.

föstudagur, janúar 17, 2003

hann afi minn á afmæli í dag!!
til hamingju afi stenni minn með afmælið.



fyrir þá sem ekki þekkja til er gott og gaman að taka það fram að fjölskyldan borðar alltaf saman þorra mat í tilefni af þessu og þess vegna valdi ég þessa huggulegu mynd :)
jæja, kominn enn einn föstudagurinn og eins og síðasta föstudag, er ég ennþá í vinnunni. ég veit nú eiginlega ekki hvað þetta á að þýða hjá mér.og núna get ég ekki einu sinni verið að afsaka mig með einhverjum "það verður að klára þetta fyrir mánudaginn" eða "best að læra heima" afsökunum, ég er bara búin að vera að hanga í einhverjum ljótum tölvuleik allan tímann... drottinn minn dýri. og hann er ekki einu sinni mjög skemmtilegur!
það á ekki af mér að ganga, frekar en fyrri daginn.

fimmtudagur, janúar 16, 2003

æj... þarf ég nokkuð að segja. *andvarp*


úff!
maður er bara sveittur við að læra hérna uppá skjaló. það er svona þegar feður manns gefa manni ekki fartölvu, prentara, brennara, módem og dvd-drif. ;)
annars er bókmenntafræðin bara að rokka. þvílíkar stórstjörnur með mér í tíma. bróðir hans atla og ég veit ekki hvað og hvað.... jeremías

þriðjudagur, janúar 14, 2003

http://www.batman.is/leikur.php?id=8
ein mynd fyrir hana sif ;)


úff.
nú er ég búin að hlusta á Bruckner no. 9 sinfóníu ÞRISVAR SINNUM í dag. og er orðin svo ótrúlega blá á litinn að ég veit bara ekki hvað ég á af mér að gera. þetta er fallegasta og yndislegasta sinfónía í heimi. eða svona allavega, ein af þeim. þvílík snilld. enda tileinkaði Bruckner þessa sinfóníu Guði, hvorki meira né minna. og guði fannst hún svo falleg að hann tók Bruckner til sín áður en hann náði að klára hana. alfeg eins og hann tók Bela Bartók, áður en hann náði að klára víólukonsertinn sinn og svona. hann veit sínu viti, kallinn á efri hæðinni, sveimér þá ;p
djöfls bull er þetta í mér, eins gott að enginn les þetta blogg!
annars nenni ég ekki að slá inn manntalið lengur, ég gæti gubbað ef það kemur enn einn Filippus í skráinni sem heitir skv. frumritinu Philipus og hvað er málið með að skíra öll börn Jón?! þetta er alfeg fallegt nafn og allt.... en úff. á einum bænum voru 5 stykki!!
give it up rangárvallasýsla!
svo var Eyfa-leysið allt í einu að kikka inn. og þetta með kárahnjúka. og það að ég þarf að hringja í Gumma NÚNA!!! fyrir þá sem ekki vita þá er ég skíthrædd við síma, hringi helst ekki eitt né neitt. úff. svo hitti ég Bob á msn og við fórum að tala um ástina. það á ekki af mér að ganga hér í dag? hvað verður eiginlega næst?
ég hef nú ekki gefið mig út fyrir að vera mjög pólítísk, og ég veit ekki mikið. eiginlega ekki neitt. en sjáiði bara þessar myndir. hvenig í óskupunum getur eitthvað verið þess virði að fórna þessu?




mótmælum! þetta má ekki gerast!!!!!

mánudagur, janúar 13, 2003


jæja. þá er hann farinn enn á ný, litla ljósið í lífi mínu hann Eyjólfur. og himnarnir gráta, alfeg eins og í september þegar hann fór líka.
en hann kemur nú í apríl, og ég get loksins farið að skrifa venjuleg bréf aftur. það er eiginlega bara alfeg hræðilegt hvað við erum búin að hittast mikið þennan tíma sem hann er búin að vera "í námi erlendis".
en svei mér þá ef að þetta (segja bless á útidyraþröskuldinum) var ekki bara aðeins auðveldara heldur en síðast. grenjaði svo að segja ekki neitt og sagði bara mu í hálfan dag. gó tóta! :)

föstudagur, janúar 10, 2003

fimmtudagur, janúar 09, 2003



viljiði í GUÐANNA bænum lesa þetta strákar. ekki seinna en í gær!

G-bletturinn – er í raun bakhliðin á vefnum sem liggur utan um þvagrásina. Líffræðinnar vegna er einungis hægt að komast vel að honum gegnum leggöngin. Ef 1-2 fingur eru settir inn í leggöngin og þreifað upp á við, þ.e. að framhlið konunnar, er oftast hægt að finna svæði á leggangaveggnum sem hefur aðeins öðruvísi áferð en restin af leggöngunum. Vefurinn þarna er dálítið þéttari og jafnvel aðeins gáróttur.
Kyn.is


úff úff, ég er að ljósrita, ljósrita og ljósrita.
ekki er það nú gaman. en það sem er gaman er að á eftir verður svona yfirlestur á leikritinu "undir hamrinum", eftir einhverja konu. en það er nýja leikritið sem Hugleikur ætlar að setja upp. hmmm.
ég er nú ekki alfeg til í að eyða mínum dýrmæta tíma í að þykjast vera leikari, en það er mjög gaman að vera í hljómsveitinni....
kannski maður skellir sér í það. ég ætla allavega að mæta á þennan fund....
mér finnst það nú soldið gott hjá mér.

þriðjudagur, janúar 07, 2003

Loksins loksins!!
er ég komin á netið og viðurkenndur Skjalaskrárritari með meiru.
jesús hvað þetta er FALLEGT. ég vildi þakka Jón Viðari "forritari, tölvuumsjón", en hann þykist ekkert eiga í þessu og bendir í óðagot á Benedikt "sérfræðingur".
en mér er sama.
þetta er mjög mjög mjög gott framtak og fleiri síður ættu að taka upp á því að nefna mig neðst á öllum listum hjá sér.
http://www.archives.is/index.php?node=149
jahérna!
nú slóst kötturinn utan í skálina með mykjunni, ég er farin að skrifa niður asnaleg nöfn úr Manntalinu 1835. gef svo út metsölubókina
"Ó MÆ GOD!!!!!
hvað voru foreldrarnir að pæla? nokkur nöfn úr manntalinu 1835."
þetta verður bók á hverju heimili

1) Eyvindarmúlasókn í Rangárvallasýslu
Neríður Andrésdóttir

2)Steinasókn í Rangárvallasýslu
Evlalía Niculásdóttir

3)Steinasókn í Rangárvallasýslu
Emerentíana Magnúsdóttir

4)Eyvindarhólasókn í Rangárvallasýslu
bræðurnir Jón Guðmundsson 12 ára
og Jón Guðmundsson 14 ára

5)Krosssókn í Rangárvallasýslu
Kaprasíus Johnsson

6)Oddasókn í Rangárvallasýslu
Hjeronýmus Oddsson

7)Stóruvallasókn í Rangárvallasýslu
Melkjör Eggertsson og
Eggþóra Eggertsdóttir



(mér fannst myndin ljót, þið getið séð hana hér)





Your New Year's Resolution Should Be: Take Up Yoga!


Now when your lover's too tired to fuck,

You'll have something to lick and suck.



What's *Your* New Year's Resolution?

More Great Quizzes from Quiz Diva

úff hvað maður er þunglyndur, svona þegar búið er að taka niður blessaða jólatréið og allar ljósaseríurnar í stofunni. ég snerti nú reyndar ekki á mínu jólaskrauti fyrr en um miðjan mars, svona til að halda í hefðina... en hún mamma! jahérna hér. sú var ekki feimin við að skutla trénu út um svaladyrnar og jólaskrautinu inn í geymslu.
og öllum til mikillar undrunar fundust piparkökur í poka.
þær voru étnar.
allar.
mikið er profiler annars leiðinlegur þáttur. reyndar eru allir þættirnir á skjá einum voðalega leiðinlegir. samt var ég ógeðslega fúl þegar dagskráin var búin kl. 00:30, er þetta hægt?!