miðvikudagur, janúar 14, 2009

komin tími á smá blogg. komin tími til að fara úr náttbuxunum líka, en það er annað mál. er reyndar búin að vera hörkudugleg í morgun, hlustaði á "huggulegan" fyrirlestur um skráningaraðferðum í sambandi við hegðunarvandamál barna. jeminn. hvað í óskupunum er ég komin í? jæja jæja, allt nám bætir og það er aldrei að vita nema þetta eigi eftir að nýtast mér. kannski næ ég, eftir allt saman, að fá jónsæta til að setja notaðar nærbuxur annarsstaðar en á gólfið og óhreint leirtau OFANÍ vaskinn, ekki á VASKBRÚNINA (hvað ER málið með það?!?!!?) svo hringdi ég í ömmu mína. hún er sæt og best.

en þá að hannyrðum af því það er svo vinsælt :)
er búin að vera að byrja á sjali núna í þrjá daga. er búin að rekja upp og byrja að nýju of mörgum sinnum til að geta talið það (hefði ég bara verið með góða skráningaraðferð!), en þrjóskan, úbs ég meina staðfestan (þrjóska er neikvætt orð og fær nemdendur til að efast um eigið ágæti, fá í kjölfarið óbeit á námi og öllum skólastofnunum) hafði betur og er ég núna komin með 19 umferðir. yay! eiginlega búin með "grille1" sem frönskumælandinn BerglindÝr ætti nú að vita allt um hvða þýðir.

1 ummæli:

Unknown sagði...

Ég þakka sýnda tiltrú. Það er sorglegt frá því að segja að eftir tveggja mánaða frönskunám án mjög sýnilegs árangurs fór ég að efast um eigið ágæti og fékk í kjölfarið óbeit á þessari skólastofnun og frönskunámi yfir höfuð. Nú horfi ég þess vegna á flæmska og breska sjónvarpið 2,5 tíma tvö kvöld í viku í staðinn fyrir að engjast um í frönsku. Hið sanna er því að ég hef ekki hugmynd um hvað gille1 þýðir, hins vegar skil ég 19 umferðir mjög vel og mikið óskaplega held ég að þetta verði fallegt sjal. KNÚS!