mánudagur, nóvember 18, 2002

jæja, helgin búin og allt gjörsamlega að verða vitlaust :) vinnudjamm DAUÐANS á föstudaginn, megas er hér með ekki nefndur á nafn nokkursstaðar í fyrirtækinu og Hrafn gengur um og gefur fólki stolnar ljóðabækur.
þetta byrjaði allt saman í þvílíku tsjilli heima hjá Sigrúnu og Björgvini í Grafarvoginum (maður er n.b. klukkutíma og korter á leiðinnni þangað frá Hafnarfirði í strætó) og svo fórum við á NæstaBar. það var ótrúlega gaman, en leiðinlegt var samt að missa af henni Öddu, sem var á sama tíma á GrandRokk að hlusta á barnsföður sinn og sambýlismann syngja á tónleikum.
en það verður bara bætt upp hið snarasta.
:)

Engin ummæli: