mánudagur, apríl 18, 2005

sjálfselska íslands 2005

hefði ég verið almennileg manneskja með einhverja sómatilfinningu hefði ég byrjað á því að blogga um hversu ógeheðslega gaman var hjá mér á föstudagskvöldið með öðlingunum sem ég er svo lánsöm að geta kallað vini mína. eða ég vona ég geti það ennþá... heh...
en við eyfi og dagga Litla systir fórum í partý MEGAROKK hjá iðunni þar sem súkkulaðirússínur flæddu uppúr öllum skálum (hvernig fer hún að þessu?) og sungið var og trallað. samt ekki langt framá nótt.
hjúkk.
ég hef sko orðið vitni af kústinum í loftið og var reyndar mjög skemmt, en trúi því að slíkt sé ekki gott til lengdar fyrir fólk sem býr í sama fjölbýlishúsinu.
jeah.
allavega. Sviðasultan tók hvert glimmrandi glansandi söngatriðið af öðru og hélt stöðugt lagi þrátt fyrir stanslausar tilraunir annarra gesta til að radda. ótrúlegt. í gleðina kíktu einnig þau Berglind (sem ég gaf hjálm afmælisgjöf) og Hugi og seinna meir Arnar "komiði heim til mín, ég á geðveikt mikið af áfengi", Nonni og Þórunn kærasta hans. svo bara bara tjúttað fram á rauða nótt á fokkin NAUSTINU, er búin að gleyma afhverju í andskotanum við fórum þangað. en gaman var það þó ég viðurkenni að hafa orðið örlítið meira ölvuð en fyrst var áætlað og biðst ég afsökunar á þeim tám sem ég hef traðkað á.
tærnar á jónsæti urðu tildæmis mjög flatar eftir þetta geim hjá mér og finnst mér það mjög mjög mjög miður.
en svona er nú lífið bara stundum...

:)
ég er á bömmer.
prófið mitt er eftir 2 vikur og éger með allt niðrum mig. sérstaklega óþægilegt þegar rignir svona mikið, það verður allt svo blautt og svona.
svo er ég alltaf að fá svona "murr-murr" í hjartanu. kannski held ég að ég sé að verða köttur. án þess að hafa sjálf tekið ákvörðun um það að verða að ketti. en áður en allir panikka og halda að ég sé að fá mjög hægvirkt hjarta áfall er rétt að geta þess að ég hef ekkert étið nema hamborgara og kók, súkkulaði og franskar í 2 vikur.
í þesari röð.
tóta að fitna?
nei alls ekki, grennist með hverjum deginum.

nei

fimmtudagur, apríl 14, 2005

GAAAAARRRRGH!
það er kominn sá tími ársins sem ég TRYLLIST í júróvisjón fýling. á reyndar eftir að aukast og tryllast meira og meir eftir því sem á líður apríl/maí, en það er svo sannarlega byrjað.
aaaah... eiginlega fyrsti vorboðinn minn. eða hvað segir maður þegar eitthvað gerist sem lætur mann næstum því halda að það sé ekki helvítis jökulkuldi útum allt og spáð snjókomu?
tjekkið endilega á síðunni. hún er brill.
svo fer ég svona smá saman að rakka niður alla keppendurnar.
fylgist með :D

pirruð á kellingunni #2

eg var að koma úr leikfimi og núna fór konan ennþá meira í taugarnar á mér heldur en síðast. núna var hún sko alltaf eitthvað að segja upphátt hvað þetta væri allt saman létt. svo þegar kennarinn var að spurja "tekur þetta í?!" og eitthvað svona þá var hún bara með einhvern svip og hristi hausinn.
FÁÐÉR ÞYNGRI LÓÐ TÍK!
segi ég nú bara.

en nú er það kotasælan og hrökkbrauð. jafvel ég geri vel viðmig og fái mér kalt vatnsglas með.

hó hó hó

ég

... fór áðan upp á kaffistofu og þar voru kleinur.

þriðjudagur, apríl 12, 2005

ég þarf að fara í klippingu. ég var kannski að spá í að herma eftir Halldóru og fara á Gel. eða í gel? fá mér gel? nei það er annað. allavega, eða þá eitthvað annað sem heitir eitthvað emm eitthvað, man ekki hvað það var. en svo væri nottla best að komast á Þessa klippustofu hér. verst ég veit bara ekki hvar í andskotanum hún er....

ýmislegt í fréttum

ég þurfti að vera á skrifstofunni í hádeginu í dag svo ég komst ekki í leikfimi. mamma hringdi í mig eftir tímann grátandi og sagði að þau hefðu eiginlega bara gert armbeygur. ég hló.
svo klægjar mig í puttann og ég er að spá í að fara í sund eftir vinnu.
Jónsæti vill hafa american style í kvöldmat. mér finnst það einhvernvegin ekki ríma við sundferðina mína.
svo var ég bæta inn linki á hann gunna sem er í útlöndum. svo ætla ég líka að linka yfir á annan gunna sem vill ALLS EKKI láta kalla sig gunna og nýverið keypti hann sér hatt.
sagnfræðingur.
síðan var ég að klára að skrifa svona C.V. og það er ógeðslega glatað. samt soldið fyndið. tók það t.d. skýrt fram að ég hefði verið leiðarinn í víóludeild óperustúdíó austurlands árið 2002 þegar cosi fan tutte var sett upp.
en það árið vorum við einmitt TVÆR sem sáum í þessari umræddu deild.
smart.
sagði líka að ég hefði verið leiðarinn í víóludeild kammersveit tónlistarskóla hafnarfjarðar frá árinu 2000 (sem er nokkurnvegin satt) en tók það ekki fram að ég hef eiginlega bara mætt á svona þriðju til fjórðu hverju æfingu og í 80% tilvika hef ég ennþá verið ölvuð. laugardagsmorgnaæfingar bjóða bara uppá þetta, verð að segja það.
jónsæti er byrjaður í nýju vinnunni. það er leiðinlegt. :( en ég stal útvarpinu hans svo að núna get éghlustað á bullið á x-inu allan daginn, ekki bara þegar ég er útí bíl. svo er líka Rondó alfeg að gera sig. töff rás, verð bara að hrósa henni þó slíkt sé nú ólíkt mér.
tónleikar í kvöld í salnum með herra hættum að blogga, vælu vaff og árnaheimi.

ég er búin að kaupa miða.... en þú?

föstudagur, apríl 08, 2005

ég er fræg

loksins kom að því að ég varð almennilega fræg!!!


Sígildir vilja líka vera frægir


ég sem var einmitt að fara að skrifa hérna þvílíkan pistil um það að maður gæti alfeg skrifað hvað sem er á bloggið sitt af því að það læsi það hvort sem er ekki nokkur sála. hohoho! nú fyrst fer ég að hreyta í fólk svo um muni!

hmoooaaaah ho ho ho ho!!!

fimmtudagur, apríl 07, 2005

bögg blogg

það er ein kona með mér í leikfimi sem er óþolandi.
eða þeas, MÉR finnst hún óþolandi.
ég erbúin að vera að mæta í þessa tíma 2svar í viku svo mánuðum skiptir en það er fyrst núna sem þessi kona er orðin óþolandi.
ætli fólk sem með svona þröskuld á því hversu lengi það getur haldið í sér "veraleiðinlegheitum"? alfeg bara hnnnnee-hhhnneeee (svona halda í sér hljóð) og svo BúMMM ég er leiðinleg og verð að vera óþolandi næstu 50 mínúturnar.
ég er viss um að þetta er svona kona sem er alltaf bara heima að naglalakka sig og horfa á neighbours (með allri virðingu fyrir þeim sem horfa á þá þætti) og finnst hún vera geðveikt mikið að "míngla" og "fara út" með því að mæta í leikfimi 2svar í viku.
En eins og flestar kellingar vita sem fara í leikfimi, þá er maður oftast á sama staðnum.... ekkert endilega viljandi, bara svona óvart og svo er það bara þannig. þessi ungfrú óþolandi plantaði sér nottla beint fyrir framan kennarann og er alltaf að segja eitthvað voða sniðugt og svo hátt að allir heyra. um daginn talaði hún í 5 mínútur um það hvernig hún hefði fyrst aldrei getað gert armbeygur á tánum en svo bara fór hún í tíma hjá henni Daisy (eðawhatthefuck) og hún sagði sko bara "hey prófaðu að gera á tánum" en ungfrú óþolandi bara "nei ég sko get ekki á tánum, hef sko aldrei getað það" og þá bara daisy "prófaðu!" og hún bara "ókei" og þá bara GAT hún gert armbeygjur á tánum.
þetta er alfeg sniðug saga til að setja í jólakort eða skrifa á svona gulan post-it límmiða ef manni leiðist í vinnunni eða ef maður er geðsjúklingur á hlemmi að tala við sjálfan sig, en að vera að öskra þetta yfir heilan sal af sveittu fólki í body pump, finnst mér soldið annað...
svo er miss óþolandi alfeg búin að troða sér á tvær vinkonur sem standa bak við hana og er (að mér sýnist)að gera þær brjálaðar, alltaf eitthvað að snúa sér við og bleble tala tala, hef samt ekkert að segja, tala tala bleble. og þær eitthvað jájá, við erum kurteisar, drullaðu þér samt burt óþolandi kelling og svona. þið kannist við þetta.
svo sló nú kjaftshöggi á rjómann í mykjuskánni þegar konan kom með gamalt pils í tímann í hádeginu áðan.
bara sýna hvað hún hafði nú grennst mikið. sem var svona kíló. og btw ljótast pils VERALDARSÖGUNNAR. svo getiði ímyndað ykkur hvað hún gat talað óþolandi mikið um hverng hún var nú aldeilis búin að taka matarræðið í gegn, þó hún sé nú súkkulaði SJÚKLINGUR og bleble talitali. nei annars ekki vera að ímynda ykkur þetta, ég var að því og þurfti næstum því að kúka á mig úr pirringi.

afhverju er sumt fólk ekki bara heima hjá sér með naglalakk og neighbours ultimate special turbo big size DvD collection, uncut og lætur svona smásmugulegt og pirrings-gjarnt fólk eins og mig, sem vill vera í leikfimi án þess að heyra annað fólk tala, í friði?

...jah, maður spyr sig (copyright:Björk)

óperan plögg #1

ég er að fara að syngja ofur-hlutverkið Fiordiligi í samnefndri óperu næsta mánudag.
eða allavega ætti óperan að heita Fiordiligi, það snýst ALLT um mig í þessari óperu. en það er nú kannski af því að ég hef fitnað svo síðustu daga að ég er búin að skapa mér mitt eigið himinhvolf. djók. eða kannski ætti hún að heita "Fiordiligi and friends", gæti verið svona rómantísk gamanmynd... eða grínmynd, "Fiordiligi fer á kostum"... eða horror útgáfan, "fiordiligi fær æðiskast", eða action myndin "fiordiligi flæmir burt ljóta menn".
eða þannig, bara nokkrar tillögur.
en ég verð víst að vera almennileg (þó það sé nú bara fyrir kellingar og homma) og tilkynna að óperan heitir "cosi fan tutte" og verður sýnd næsta mánudag kl. 1900 í hásölum hafnarfirði. frítt inn.

FRÍTT INN

svo erum við meira að segja svo hrottalega fræg að við birtumst í FJARÐARPÓSTINUM í morgun. jafnvel hinn *hóstofmetnihóst* frægi Söngskóli Reykjavíkur getur ekki státað sig af auglýsingu á þeim kalíber. hó hó hó!

til hamingju með afmælið

megas litli er 60 ára í dag.
af því tilefni ætla ég að segja "til hamingju með afmælið" við alla sem ég hitti í dag, svona eins og það sé stórhátið.

ó hvað ég er sniðug

fimmtudagur, mars 31, 2005

ég var að bæta inná link hér til vinstri undir flokknum "fullorðins" og það eru draugasögur. hohoho!
þessi hér finnst mér áberandi mest spúkí. en bara útaf því að hún er svo asnaleg að hún hlýtur eiginlega að vera sönn.

úúúúú...
jájájájá ég er sökker.
var að koma mér upp enneinni myndasíðu.
en ég held að þessi verði bara ok. :)

http://www.flickr.com/photos/tota121280/

miðvikudagur, mars 30, 2005

strengjaleikarinn sem fann upp afsakanir fyrir að æfa sig ekki nóg

ég er komin með ný hár í bogann minn!!

það er ótrúlega mikil skemmtun og gleði sem fylgir. nú get ég eiginlega ekki notað neitt sem afsökun fyrir lélegan tón og slæma bogatækni.

og þó... ég þyrfti að fara að kaupa mér nýja strengi.

þriðjudagur, mars 29, 2005

lín

ég var að skoða úthlutunar reglur LÍN (ekki spurja afhverju, gefiði mér bara pening) og þar rakst ég á þessa ótrúlega smekklegu setningu

2.4.4. Einkanám.
Einkanám, t.d. í söng eða tónlist telst til náms á grunnháskólastigi.

þannig að skv. Lánasjóðnum er söngur ekki tónlist heldur er þetta tvennt ólíkt. enda standa söngvarar nú tæpt á því að vera tónlistarmenn að mínu mat. nei djók! (held að 90% lesenda þessa bloggs séu í söngnámi eða eitthvað þaðanaf verra svo það er eins gott að halda sig á mottunni)

sunnudagur, mars 27, 2005

gleðilega páska!

kominn sunnudagur og ég búin að lesa einn málshátt. reyndar var það úr litlu eggi sem Vilborg systir mín sætust átti og var vel búin að japla á, þrátt fyrir miklar bænir mínar um að fá bita. og málshátturinn var "sá fær hnekki sem stundar hrekki" eða eitthvað svoleiðis.
samt gaf hún mér ekki brjóstsykurinn sem var inní egginu, eða karamelluna, eða bara venjulegan bita. hefði sætt mig við einn útslefaðan meira að segja. held að börn nútildags séu ónæm fyrir yfirskilvitlegum skilaboðum. allavega þegar kemur að súkkulaði.
en allaveganna...

gleðilega páska!


þriðjudagur, mars 22, 2005

Jón er horfinn! ég er búin að sitja og bíða eftir honum í hálftíma en ég hef ekkert séð hann síðan áðan.
hrumpf.
en ég rakst á lista yfir hluti sem maður getur notað kók í... eða notað kók á?
æj allavega langar mig ógeðselga mikið í kók og þessi list var nú bara til að æsa það uppí mér.

Alternatív notkun kóladrykkja:
*Hellist yfir stungu eftir marglyttur - losar þig við sviðann strax!
*Látið ljósmynd liggja í gosinu (í bakka t.d.) og hún lítur út fyrir að vera gömul.
*Til að losa tyggjó úr hári, hellið yfir lokkinn með tuggunni og hún losnar.
*Til að ná mosa af stáli, t.d. sláttuvél eða garðhúsgögnum.
*Sem hreinsilögur fyrir brons
*Sem hreinsiefni til að ná myglu úr fúgum milli flísa
*Ljótur olíublettur á bílaplaninu? Helltu kók yfir! (Löggan í sumum ríkjum BNA keyrir um með stórar flöskur í skottinu til að hreinsa upp blóð af vegunum....)
*Sem rottubani: Rottum finnst kók gott og drekka mikið af því og hratt. Því miður geta rottur ekki ropað
*Til að ná ryði af krómi nuddið kóki með álpappír yfir blettinn
*Til að halda niðurföllum stíflufríum er gott að hella einni dós niður á mánuði
nýr linkur á bloggara, Kristján Hans sem er víst í slóvakíu? eða eitthvað. hann er allavega krútt. bloggar reyndar á svo geðveikt góðri ensku að ég á bara erfitt með að skilja sumt af því... en það er nú bara... eh... krúttlegt :p
HVAÐ finnst ykkur um þetta?

:)

föstudagur, mars 18, 2005

ég var að borða hraun

Tinna mín elskuleg var að kvetja mig til þess að blogga um hádegistónleikana sem við fórum á síðasta miðvikudag. ég hugsaði málið í stutta stund og ákvað svo að skella mér bara í það. leiðinlegt skítverk, en einhver verður að gera það. ójá.
ég hef aldrei þolað Ragnheiði Gröndal.
veit samt ekki útaf hverju og finnst þaðsoldið leiðinlegt. Þessvegna fór ég með sérstaklega opnum huga á þessa tónleika. ég átti meira aðsegja mjög ýtarlegt samtal við samvisku mína, svokallað samviskusamtal sem var einhvernvegin svona:

ég: oj ragnheiður gröndal! ég þoli hana ekki! þetta verða leiðinlegir tónleikar!
samviskan (s): ekki þessa stæla, tónleikarnir eru ekki byrjaðir svo að það er ljót ta segja svona. kannski verða þetta skemmtilegustu tónleikar lífs þíns og þú missir af þeim af því að þú verður með hundshaus.
ég: ég er ekkert með hundshaus!
s: víst. og afhverju er þér svona illa við aumingja ragnheiði? hún hefur ekkert gert þér.
ég: hún er barnaleg.
s: hún er líka bara barn.
ég: hún er alltaf í grænum fötum.
s: það er ekki góð ástæða til að vera illa við fólk.
ég: júvíst
s: nei
ég: jújújújújú!
s: neineineineineineinei!
ég: jújújú í óendalegt, bannað að breyta!
s: grrrrr!
ég: ókei ókei, ég skal vera góð en þá má ég fá hraun á föstudaginn ef mér finnst leiðinlegt.
s: allt í læ.

svo voru þetta bara hundleiðinlegir tónleikar, allt einhvernvegin svo asnalegt. píanóið var órafmagnað og þegar tónleikarnir byrjuðu var það bara kúl, svo kom gítarinn inn og maður bara "oj rafmagnsgítar!" en svo var það allt í læ eftir smá stund af því að hann var svo gegt góður, en svo byrjaði litla barnið og maður bara "sjett, hver kveikti á útvarpinu?" af því að allt í einu kom bara þvílíkt glataða pínulítill-lélegurmagnari hljóð sem skemmdi allt.
svo syngur hún nú soldið mikið á lofti (sem er oft töff, en stundum samt ekki) ogþað lá við að maður fengi bara hellur það var svo mikið vindhljóð.
svo fannst mér píanókonan slá svo fast á nóturnar að það var bara eins og þetta væri allt stakkató.
kannski átti það bara að vera þannig.
en lögin voru flest öll bara mjög flott. eitt ljóðið var meira segja svo ógeðslega flott að ég ætlaði svo sannarlega ða muna nafnið á konunni sem samdi það og sjá hvort ég fyndi hana á netinu.

en ég gleymdi því.

og svo ég summi þetta allt upp þá verð ég að segja að kaffibollinn og kleinan rándýra sem ég fékk mér fyrir tónleikana í fríðu föruneyti tinnunnar var algjör hápunktur hádegisins.
svo kallað H-H.