fimmtudagur, apríl 03, 2003

hér er eyfi í beinni útsendingu, er í símanum sko....
hmmm...
litla tenór greyið er að fara að syngja á tónleikum, allir að mæta. :)

miðvikudagur, apríl 02, 2003

jæja, gestabókin komin aftur þar sem hún á að vera. fattaði allt í einu að gestabókin var bara ekki lengur þar sem hún á að vera. en nú er hún þar sem hún á að vera.



The Cat's Diary
DAY 752-My captors continue to taunt me with bizarre little dangling objects. They dine lavishly on fresh meat, while I am forced to eat dry cereal. The only thing that keeps me going is the hope of escape, and the mild satisfaction I get from ruining the occasional piece of furniture. Tomorrow I may eat another houseplant.

DAY 761-Today my attempt to kill my captors by weaving around their feet while they were walking almost succeeded, must try
this at the top of the stairs. In an attempt to disgust and repulse these vile oppressors, I once again induced myself to vomit on their favorite chair...must try this on their bed.

DAY 762-Slept all day so that I could annoy my captors with sleep depriving, incessant pleas for food at ungodly hours of the night.

DAY 765-Decapitated a mouse and brought them the headless body, in attempt to make them aware of what I am capable of, and to try to strike fear into their hearts. They only cooed and condescended about what a good little cat I was...Hmmm must try this with their baby...
húhú hú!!
þetta er geggjuð síða!! mæli eindregið með leiknum "feed the model" :)

æj haldiði ekki bara að hjartagullið hann Eyjólfur sé komin á klakann. músshí músshí. og meira að segja búinn að fá te hjá henni tótu sinni. er það nú ekki aldeilis... :) enda er ég svo þreytt að ég næ varla að halda uppi augunum. rétt svo náði að vera með meðvitund í bókmenntaritgerðatímanum með því að skrifa henni Tinni sætu minni bréf. það er svona þegar fólk talar og talar langt fram á nótt og fer svo að gramsa í dótinu inní herberginu manns. :)
en það var bara lovlí.
jessöríbob.

mánudagur, mars 31, 2003

já, tímminn líður, trúðu mér! það eiginlega segja með sanni að tíminn líði hratt, á gerfihnattaöld.
en hann eyfi minn er að koma heim á morgun :) :) :)
mikið verður það nú gaman.
jafnvel að ég stoppi við í 10-11 á leiðinni heim og kaupi mér svitalyktaeyði, svona í tilefni þessa merkisviðburðar.
og te ;)
vó, þetta er fríkí, kassi A og kassi B eru eins á litinn!
sjett. maður fer að hugsa sig tvisvar um áður en maður heldur sig trúa sínum eigin augum! uuu.... já!

ertu með ljótt andlit?
Hómer Simpson rúlar!
afhverju er hann ekki forseti bandaríkjanna? það væri þá allavega hægt að hlægja að honum...

sagt af Hómer:
Don't let Krusty's death get you down, boy. People die all the time. Just like that. Why, you could wake up dead tomorrow. Well, good night.
sjáiði bara! ekkert skil ég í því að ég skuli ennþá vera "single". þetta próf segir allt um mig...

-Perfect- You're the perfect girlfriend. Which
means you're rare or that you cheated :P You're
the kind of chick that can hang out with your
boyfriend's friends and be silly. You don't
care about presents or about going to fancy
placed. Hell, just hang out. You're just happy
being around your boyfriend.


What Kind of Girlfriend Are You?
brought to you by Quizilla
þetta var nú meiri helgin. hélt framhjá vigni á föstudagskvöldið og horfði á vídeó með mömmu. við vignir erum í svona vídeó/nammi sambandi... hittumst og glápum við hvert tækifæri. en svo spilaði ég spilaði á tónleikum á laugardaginn í Seltjarnarneskirkju með samstarfi tónlistarskóla hafnarfjarðar og tónskóla sigursveins og tókst svona líka ágætislega. við spiluðum 4 verk... stravinskí forleik þar sem flauturnar drulluðu á sig, jónleifs þar sem allir 4 þættirnir eru Nákvæmlega eins, soldið glatað og mjög leiðinlegt spilunarlega séð, svo kom Elfa Rún og spilaði Saint-Sains rondo eins og ekkert væri og eins og hljómsveitin væri ekki að kúka á sig. úff hvað hún er góð. og falleg. og í Geggjuðum kjól! þegar ég er orðin viðbjóðslega góður víóluleikari þá ætla ég að fá mér svona flottan kjól ;) en sigursveinn var nú soldið aftarlega á merinni hvað S-S varðar, gaf til dæmis ekki inn í einn taktinn, mjög smart. En við enduðum tónleikana á Schubert no. 3 sinfóníu sem er með einstaklega ósmekklegan víólupart, en í heildina ágætis verk. endaði þó ekki með tilkomumiklum endahljómi eins og stóð í efnisskránni, enda er hann óliver hress með afdæmum.
afdæmum?
allavega. en það sem meira var, var að hún Guggý geðveika hélt party heima hjá sér eftir tónleikana og VÁ hvað var ógeðslega drullu vængefið gaman!! garg. reyndar koma Gunni fýlufés og tók hana sif frá okkur, en annars var þetta þvílíkt rokk. drukkum eins og hálfvitar og hlóum af okkur rassgatið. eða svona. og þvílíka húsið. enda var það víst í innliti/útliti.... TVEMUR ÞÁTTUM. brjálaður hiti í gólfinu og pláss fyrir sjö manns í baðkarinu. svona næstum því. en það eina er að það er í mosfellsbæ, svo við þurftum að láta einhvern keyra okkur. þökkum magnúsi baldurs-pabba fyrir vel unnin störf í þeirri deildinni. hann tuðaði nú reyndar soldið, en það var nú bara hressilegt.
svo kom eydís sætasta og gaf mér teyjur!!! ótrúlega góð og sæt og skemmtileg og mikil dúlla! en teyjurnar eru allaleið frá Danmörku! það mættu nú fleiri taka hana sér til fyrirmyndar og gefa mér fallegt dót. :)
en við örkuðum í bæinn uppúr miðnætti, með leigubíl dauðans og héldum áfram að þamba eins og fyllibyttur, ég stakk af í 20 mín og fór að kyssa hann arnar minn sem var að vinna á Ara í Ögri. ég held að það mætti fara að breyta þessu nafni í Arnar í Ögri, hann er alltaf að vinna, greyskannið... :( en það var nú samt ofsalega gaman að hitta hann og svei mér þá ef að Hrabbó skan af skjaló var ekki úti í horni með einhverjum nörda vinum sínum. reyndar eru þessar 20 mín soldið í móðu, en þar sem ég eyðilagði ekkert og týndi ekki neinu, þá er mér nokkuð sama.
en þynkan maður! úff.
svona fer þegar maður stoppar ekki á hlölla áður en maður fer heim til sín.... guð refsar mannni daginn eftir með hausverki og ótrúlegri leti. ég nennti ekki einu sinni út í búð að kaupa mér kók. og þá er nú djúpt grafið eftir árinni....

miðvikudagur, mars 26, 2003

vá hvað mig langar í þennan bol!!
ekki það að ég vilji deyja, þetta er bara svo nett uppsetning. hehe!




það er eins gott að vera viðbúin ef að stríð skellur á. verst að það er ekki búið að þýða þetta yfir á arabísku...www.ready.gov.
svo var einhver voða fyndinn og bjó til sínar eigin útskýringar. http://www.confguide.com/cboard.mpl?article=15441
var að koma úr fyrsta háskólaprófinu mínu áðan. mjög intressant. ég veit eiginlega alls ekki hvernig mér gekk í þessu prófi, það var eitthvað svo skrítið. hvernig á maður eiginlega að útskýra ritstuld? og það er ekki eins og maður geti nefnt einhver dæmi bara eins og ekkert sé... ekki er ég einhver ritstuldalögga.
en það snjóaði á prófið mitt svo að Gottskálk hlýtur nú að gefa mér einhver stig.
af því að þeir sem eru með útsnjóuð próf fá alltaf aukastig?
gott hjá mér að vera svona vitlaus. en svo tók ég strætó uppá skjaló og er bara hress, nýbúin að troða oní mig flatkökum með hvítlauksosti. garg, hvað það er gott. éger komin með þvílíka æðið fyrir hvítlauk. eins gott að maður sé ekki í þeirri aðstöðu að vera umkringdur huggulegum hálfberum köllum allan daginn...

þriðjudagur, mars 25, 2003

aaah... haldiði ekki bara að ég sé farin að hlusta á gömlu góðu strákana í Deftones. þvílík snilld! þess konar hljómsveit sem maður getur hlustað á aftur og aftur og aftur. ég er að hlusta á nýjasta diskinn, white pony. ég hélt einu sinni að textinn í fyrsta laginu væri geggjað flottur og innihaldsríkur. þar til ég las hann. þá kom í ljós að þetta er algjört bull, en ef maður heyrir bara eitt og eitt orð eins og ensku-óvitinn ég, þá er hann töff. ég ætti eiginlega að þróa þessa "mis"heyrn mína aðeins, svo að ég heyri alltaf eitt og eitt orð, sem myndi afleiða það að ég heyrði bara alltaf fólk tala vel um mig. og þá yrði ég alltaf kát...
skemmtileg pæling sko.

gothic
very fucked.


what fucked version of hello kittie are you?
brought to you by Quizilla

er ekki bara farið að snjóa eins og ég veit ekki hvað.
soldið skrítin stemming, minnir óþyrmilega á hversu mikið maður vildi að það væri snjór um jólin... þetta er eiginlega soldið eins og ef að hommi fær að gista uppí rúmi hjá manni. maður veit að ekkert á eftir að gerast og maður er alfeg sáttur við það, samt er voða þægilegt að hafa einhvern hjá sér og minnir mann kannski soldið á huggulega stundir. EF maður hefur átt huggulega stundir uppí rúmi, þeas...
úff hvað maður hugsar mikið í strætó á svona ókristilegum tíma. hvað er eiginlega málið að taka strætó kl. 8:06?!! er ég gengin af vitinu? jeeeeessör....

mánudagur, mars 24, 2003

jahérna hér!
nú er búið að vera á tali uppí tónó í klukkutíma! annað hvort er Helgi farinn að stunda símavændi, eða eitthvað er að....
híhíhí!!
þetta er ógeðslega sniðugt!
http://www.lebonze.co.uk/stuff/move.htm
jess, ég er krullubína!!
hmmm.
passið ykkur samt á þessari síðu, það eru ekkert nema myndir af alsberum köllum með tippin útum allt
passið ykkur?
hehe
:)
grace
You Are Grace!
You’re Grace! Poor, lovable, mixed-up, love-starved, frizzy-haired Grace.

"Will, my love for you is like this scar -- ugly but permanent."


Who Are You On Will and Grace? Take This Quiz To Know!