fimmtudagur, mars 17, 2005

...ert nú alfeg viss um?

þetta fékk ég sent í dag:

"Sæl og blessuð

Í tilefni þess a lögreglan handtók Ítalan Luigi Sposito 4. mars síðatliðin
fyrir að dáðst að og taka myndir af Alþingishúsinu, hefur hópur fólks
ákveðið að feta í fótspor hans á miðvikudaginn 16 mars. kl 17:30. Við
viljum vita hvort við hljótum sömu viðtökur hjá lögreglunni og hann fékk.
Hann var handtekinn og sakaður um að vera hryðjuverkamaður, vegna þess að
hann var aðum að taka myndir af þinghúsinu þegar hann var með húfu og
trefil og um að hafa teiknað eitthvað á blað. Hann var í haldi lögreglu í
11-12 klst og var þar af í yfirheyrslum í 4. klst.
Mætum fyrir framan Alþingishúsið kl 17:30 næstkomandi miðvikudag, ef til
vill með trefla og húfur takandi myndir og teiknandi á blöð......
Vinsamlegast sendið þetta bréf áfram til vina og kunningja.

Fyrir hönd mótmælenda..."

nú veit ég ekki alfeg hvað fór þarna fram, enda þekki ég Luigi ekki, en ætli fólkið sem skrifaði þetta og er að dreifa þessu útum allt geri það? er þetta vinur einhvers og veit hann af þessu/er samþykkur? svari mér nú sem geta því að mér finnst soldið vond lykt af því þegar fólk er að mótmæla fyrir hönd venjulegs fólks. ég meina, auddað er gott að mótmæla þegar einhver er vondur við minni máttar, börn eða þroskahefta eða dýr og svona... en ítala?
svo vita allir sem hafa verið á íslandi lengur en í korter, hversu undir- og illa mönnuð lögreglan er, ég bara trúi því ekki að þeir hafi mannskap í að rúnta um bæinn og stalka einhver túrista grey, bösta þau svo og yfirheyra í hálfan sólarhring. Það hlýtur að vera eitthvað meira á bak við þetta.
Og HVAÐ EF?
við erum nottla á þessum forláta lista þarna.
svo erum við líka með ítalskt mafíufyrirtæki hér á okkar snærum sem er þekkt fyrir fjársvik og skattarugl og ég veit ekki hvað.
hvað ef luigi sposita ER í alvörunni hryðjuverkamaður?
þá er nú kannski bara ágætt fyrir hann að fá kaffi og kleinur í 12 tíma meðan að löggan er að dobbúl tsjekka töskuna hans.

finnst mér.

en auðvitað megum við ekki verða eins og bandaríkin, guð hjálpi okkur þá.

þriðjudagur, mars 15, 2005


mamma náði flísinni úr löppinni á mér OG gaf mér gott að borða á "maður lifandi" þar sem ég sá Dísu víólukennara (það gerist alltaf eitthvað gott í lífi mínu þegar ég rekst svona á hana Dísu mína svona útá götu) þannig að ég er bara í brjálæðislega góðum fíling.

aumingja ég


aumingja ég er með glerbrot í hælnum og get eiginlega ekki stigið í fótinn :( ég sem ætlaði að taka líkamsræktina með trompi í enneitt skiptið og fara í hádeginu í body pump. þetta væri ekkert mál ef að helv. glerbrotið eða flísin eða hvað í andsk. þetta er, væri á fætinum á mér eða einhversstaðar svona eðlilegt, en að reyna að ná einhverju mjög litlu úr Hælnum á sér er alfeg ógeðslega erfitt. lét jónsæta gera mjög góða tilraun, vopnaðan vasaljósi og títuprjón, en ég held að hann hafi bara ýtt því lengra inn í fótinn á mér.
hvar eru eiginlega mömmur manns þegar maður þarf á þeim að halda?
í vinnunni.
ég ætti kannski að höltra mér niður á náttúrufræðistofnun...
svo reyndar keyptum við flísatöng núna áðan og ég er að mana mig upp í tilraun nr. 2 í að ná þessu úr. er bara orðin svo aum í húðinni eftir allt þetta hnoð.
aumingja ég!

sunnudagur, mars 13, 2005

bruckner bætir

stundum sýður uppúr manni. þá er Bruckner góður. hér á myndinni sést í hendina á mér, semer mjög gott vegna þess að ef að sæist í hausinn á mér mynduð þið sjá hvað ég er með ógeðslega mikla skúffu.




en svo eru líka myndir hér af Barbarellu á músíktilraunum... ég er bæðevei MJÖG hissa á annarri hljómsveitinni sem var valin til að komast áfram, fannst hún hreint út sagt gubbuleiðinleg, fölsk og bara alsekki frumleg og þá er ég ekki að tala um hafnfirðingana.
æj úbs, en ég vitlaus.

föstudagur, mars 11, 2005

je je je

músíktilrauna dómnefndin var greinilega í einhverju rugli, dópi, fjölfötluð, norsk eða þá bara blind og heyrnarlaus því að Barbarella komst Ekki áfram. en það er bara þeirra grátur seinna meir þegar þessi hreint út sagt magnaða hljómsveit mun sölsa undir sig heimsmarkaðinum með eðalbornu gull-rokki og framúrstefnulegri sviðsframkomu.
mér fannst þetta allavega geggjað flott (svona meira að segja kaflarnir þar sem ég var ekki að spila voru O.K.) og verð fyrst til að kaupa diskinn ÞEGAR hann kemur út.
rockedy-rocking on a rock-a fun rackett in a rockatro trewl.

en ég lék nottla Príma-donnuna eins og áður (djö er ég orðin góð í þessu... þetta söngnám er greinilega að borga sig), mætti ekki í hús fyrr en hálftíma áður en við áttum að spila og var svo farin rúmu korteri eftir að við vorum búin.
"nei ég nenni sko ekki að hlusta á þessi bólugröfnu börn með of sítt hár og rifnum buxum spila sína ljótu, illa sömdu tónlist sem hvorki er vel flutt né falleg!" er eitthvað sem maður segir ekki í herbergi fullu af unglingum vopnuðum rafmagnshljóðfærum svo ég laug því bara að "dyraverðinum" að ég væri að fara að syngja í íslensku óperunni í næstu viku, nýja íslenska óperu sem bæri heitið "Næst A-viku le le" og þyrfti að fara heim að æfa mig.
svo var mér hleypt út.

fimmtudagur, mars 10, 2005

jó jó jó

in the house of the old and boring
ya just wanna snoring
and sleep all da time
with yo brain in slime

er að spá í að gerast gansta-rappari núna fyrir hádegi. var að hlusta á cypress hill svona í morgunsárið. fátt skemmtilegra en að vakna upp við þá pörupilta. það er líka svo kúl. sjett.
en talandi um kúl þá er miss tót, jor trúlí að fara að taka þátt í Músíktilraunum með Ofurbandinu Barbarellu sem er án efa besta íslenska hljómsveit okkar tíma. tsjekk þiss át... geri aðrir betur. eða helst ekki samt, er að vona að þau vinni, þá verð ég kannski geðveikt fræg.
ég meina frægari.
en endilega koma á músíktilraunir, það er svo gaman. byrjar kl. 19.00 í Tjarnarbíói og við erum fyrst á svið. húrra húrra!

þriðjudagur, mars 08, 2005


nýja peysan mín sem amma prjónaði á mig er geeeeeeeðveikt flott.

sunnudagur, mars 06, 2005

the specialist...

...með sly stallone og henni þarna gellu er að byrja á skjá einum. sharon stone heitir hún víst blessunin. brjáluð stemming svo ég segi ekki meir. ég bjó til svona rjómaosts/salsasósu ídýfu með dorrit snakkinu og erum við heimilisfólk ásamt gesti búin að freta svo mikið að það er open-flame bann í íbúðinni. en gesturinn fyrrnefndi lætur ekki búkhljóð úr einum enda nægja. ási litli bróðir er í "pössun" og hrýtur uppí sófa. ljái honum svosem ekki, við tókum nefnilega King Arthur á dvd. djöfull er það hræðilega leiðileg, langdregin og asnaleg mynd. til dæmi... af hverju í óskupunum er þessi gella endilega orðin helblá í síðasta bardaga-atriðinu? og þarf hún endilega að vera í bikiníi? er ekki sniðugara að fara í sverða- og axabardaga í einhverju Aðeins skjólbetra? og blóð er EKKI ljósbleikt á litinn og skvettist uppí loftið eins og sólberjasafi.
svo vil ég enn og aftur lýsa yfir óbeit minni á notkun permanetts í bíómyndum. þetta var mig lifandi að drepa í lord of the rings þar sem varla sást fleiri en 4 hár saman án þess að það væri búið að krulla þau og hér er sama dæmi í gangi. má fólk ekki bara vera með slétt hár í friði þó það sé úti að hlaupa öskrandi með skít og blóðslettur framan í sér?
svo er égsvo illa lesin að ég vissi ekkert um hvað þetta var, finnst alltaf eins og Lanselot sé nafn á sjampói eða body lósjóni og svo blanda ég yfirleitt skyttunum þremur (eða hvað þær voru nú margar) saman við riddara hringborðsins.

en talandi um skyttur, þá þarf ég að fara að einbeita mér að specialist... sly stallone er gjörsamlega ALFEG að meika það í þessari mynd, sí-sveittur með sólgleraugu í hvítum strigaskóm og gallabuxum. lemur og drepur ALLA vondu kallana án þess að breyta um svip, enda er hann víst með einhvern sjaldgæfan lömunarsjúkdóm í andlitinu (hafiði séð hann brosa?) svo það gæti reynst þrautinni þyngri. en er samt með svo meirt hjarta að hann tók að sér lítinn útigangs kisa.
liggur við að maður tárist.

laugardagur, mars 05, 2005

táfýla og gott tilboð á sætum frænda

enn er ég komin í makkintoss tövludrusluna, held það endi bara með því að mér finnst hún næstum því bara allt í læ. nei samt ekki. en það er nefnilega svo góð lykt af henni. ég er algjör sökker fyrir góðri lykt. sem er einmitt ástæða þess að ég sit með lappirnar eins langt frá mér og ég get, halla mér aftur og reyni að telja sjálfri mér trú um að þessi táfýla sé alls ekki af mér.
gengur illa.
við jónsæti vorum á "million dollar baby" semer fyrsta ameríska myndin sem ég sé á minni löngu og ýtarlegu ævi, þar sem aðalplottið snýst ekki um að einhver fái að sofa hjá einhverjum. eða allavega káfa á besta vini hans eða frænda einhvers. frændur eru svo sniðugir. ég á til dæmis ógeðslega sætan frænda sem er líka ríkur og fyndinn. en gæðablóð og góður við börn. á íbúð, bíl og er ekki orðinn þrítugur.
ég tek hér með við pöntunum.
ég á líka annan frænda, en hárið á honum er eins á kynfæri svo ég held að það vilji enginn káfa á honum.
en ég var víst að tala um þessa bíómynd, svona áður en ég fór að ofurselja kellingum frænda minn on-line. en lagið sem kemur síðast þegar textinn er að rúlla, hljómar svona næstum því stundum alfeg eins og "komdu komdu kiðlingur" eftir Emil Thoroddensen, eða hvað hann nú heitir maðurinn sem samdi lagið sem er alfeg eins og lagið sem kemur í lokin á milljóndollarabarninu. en það er einmitt eitt af þeim lögum sem ég hefði átt að vera að æfa mig á að syngja í kvöld, í staðinn fyrir að haga bara í bíóhúsum horfandi á amrískar myndir þar sem var ekki einu sinni neitt uppáferðarí...

fimmtudagur, mars 03, 2005

er í makkintoss tölvunni sem jónsæti fékk lánaða á safninu og hefur ekki skilað, en samt ekkert notað. algjört drasl, eitthvað sona makkintoss eða eitthvað, páverbúkk eða ég veit ekki hvað ;) samt geðveikt náðugt að vera með svona ferðatölvu, maður getur bara setið og verið með fæturnar uppi loft og eitthvað. eitthvað eitthvað. áðan tildæmis prumpaði ég, en af því að ég er með fæturnar upp í loft þá fór loftstraumurinn bara beint út í loftið sov ég þarf ekki að sitja í fýlunni. ótrúlega mikill kostur. liggur við að maður fái sér svona lappara, þó ekki væri nema bara til að geta prumpað út í loftið.
stundum langar mig geðveikt mikið til að vera aftur 18 ára og geta bara borða í nefið og hugsað í rólegheitunum um það hvað mig hugsanlega gæti langað til að gera við líf mitt. núna er ég aftur á móti orðin næstum því 25 ára og VERÐ að fara að ákveða hvað ég vil gera við líf mitt, og það sem meira er..... taka einhverjar ákvarðanir og gera einhverjar ráðstafanir í sambandi við það.
of mikið á mann lagt segi ég nú bara.
ég vildi að pabbi minn hefði verið skósmiður og kennt mér að smíða skó þegar ég var bara pínulítil þannig að núna væri ég geðveikt klár skósmiður og væri komin með fastan kúnnahóp og kannski farin að hanna mína eigin skó og stofna mitt eigið skóverkstæði og væri kannski í mikilli fjölskyldudrama því að pabbi minn vildi að ég myndi taka við fjölskyldu fyrirtækinu. en ég vildi fara mínar eigin leiðir. afi væri geðveikt gamall og svona vitringur og þrátt fyrir að hann vildi heitast að fjölskyldufyrirtækið dafnaði að eilífi, vildi hann ennþá frekar að ég yrði hamingjusöm og færi mínar eiginleiðir. þá væri ég kannski soldið eins og hann var þegar hann var ungur drengur og sá fyrsti sem þorði að koma fram með nýjungar í skómarkaðinum en enginn trúði á hann.
eða eitthvað bara...

þriðjudagur, mars 01, 2005

draumafólksfýla

mig dreymdi í nótt að ég væri að syngja í óperu, samt bara svona nemendauppfærslu og ég steingleymdi öllum textanum. þannig að ég bað um að óperan yrði stoppuð og hætt yrði við sýningu.
sem var gert.
en samt var þetta frumsýning, þannig að frumsýningarpartýið var mjög skrítið og allir frekar leiðinlegir við mig. ég var líka geðveikt leið, en staðráðin í að gera betur á þarnæstu sýningu. það voru nefnilega 2 í hverju hlutverki svo ég myndi ekki syngja á næstu sýningu, þá gæti ég líka séð sýninguna sem HIN söngkonan var í (sem mig minnir að hafi verið Erla Dóra) og gert betur.
mjög asnalegt.
held þetta sé samt af því að ég skrópaði vísvitandi á æfingu síðasta laugardag, en það var þó ekki illa gert, ég vissi nefnilega ekki af henni nema með 2 tíma fyrirvara og var búin að plana daginn í annað... er það þá nokkuð voða mikið og alvarlegt skróp?

en það sem er líka fyndið, er að jónisæta dreymdi sömu nótt að söngkennarinn minn, þó ekki endilega sá sami og ER í alvörunni söngkennarinn minn, væri að redda mér fullt af styrkjum og tækifærum til að verða geðveikt mikið númer en í staðinn væri hann að vanrækja alla aðra nemendur sína.

þannig að almenningur í TVEIMUR draumheimum er í fýlu útí hana tótu ykkar eins og stendur. geri aðrir betur segi ég nú bara!

sunnudagur, febrúar 27, 2005

Bestasti bróðir minn

ási bróðir minn er 13 ára í dag.

sem er mjög fyndið. kysskysskyss!

föstudagur, febrúar 25, 2005



mér finnst þetta mjög mjög mjög fyndið. svona temmilega artí (sbr. þvottasnúrurnar) en samt algjört rugl.
fríða björk sæta á afmæli í dag!
húrrahúrra, orðin....vó.... 22 ára!

kysskyss

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

tóta er á leiðinni í blóðbankann

þannig að ef að þið sjáið mig á eftir og finnst ég vera eins og rúsína í framan eða segjum kannski blaðra sem búið er að hleypa úr öllu lofti, þá vitiði að blóðbankinn er farinn að stækka skammtana...

Portishead að eilífu

ég er núna að hlusta á Portishead, life in NYC sem er ekki eins góður og ég hefði viljað að hann væri. þau eru þarna með sinfóníuhljómsveit og læti, samt eiginlega ekkert gert við hana... strengirnir spila bara partinn sem áður var syntisæsaður o.s.frv. en allt portishead er gott portishead svo ég er í raun ekki að kvarta. enda kvarta ég sjaldan. ég er eiginlega ekki svona kvart-týpa, ef þið skiljið.
en það sem gefur þessum disk stórt kikk er einn áhorfandinn í salnum. mjög sjaldan sem svoleiðis fólk gerir það gott á nútíma-upptökum, en þetta er svakalega sjarmerandi við gamlar upptökur.
ég á tildæmis disk þar sem David Oistrakh (hneigi höfuð mitt í lotningu) er að spila einhvern voða fallegan mozart konsert (þeas ef fólk vill endilega lýsa fiðlu-mozart-konsertum sem e-u fallegu á annað borð) og í miðri Þriggja-vasaklúta kadensunni hóstar einhver. og það er ekkert eitthvað *hóst-hóst*, heldur rífur maðurinn af fullum krafti í lungun á sér og nærri því kippir úr þeim nokkrum lítrum með einu hressu HRRRRRUUUUHHHH-HHUUUUHHH! svo er örugglega pottþétt mál að þetta er einhver í hljómsveitinni vegna þess að hann er bókað með míkrafóninn alfeg upp í kokinu á sér.
nema þettasé einhver klikkað raddsterkur útí sal.
en vó, róleg á útúrsnúningum! á portishead upptökunni með ónýttu sinfóníuhljómsveitinni sem ég er að hlusta á, er einn í salnum sem er gjörsamlega alfeg að drepast úr ánægju að sjá og heyra sitt uppáhaldsband. eðaég vona það allavega, því á eftir öllum lögum öskrar gaurinn alfeg eins og brjálæðingur. soldið eins og það sé verið að stinga hann í bakið með rýting. smá svona innlifun. nottla bandaríkjamaður (þetta er jú í NYC) og er alfeg un-shy eins og það kallast.
líka svona þegar lagið er rétt að byrja, svona aðeins byrjað og fólk að fatta hvaða lag er að koma, þá er okkar maður mættur:
"AAAAAAAARRRRRRGHH!"
ég skora á alla sem eiga diskinn (já svafa, ég er að tala um þig!) og hlusta eftir herra hresspunkturkom. sérstaklega er þetta áberandi í lagi númer 10 og 13.

reykjavík-hveragerði-stokkseyri

árborg liggur nú við fætur mína. spilaði í gær á stórkostlegum tónleikum á Stykkishólmi í því mæta húsi Hólmaröst. eða eitthvað svoleiðis, man aldrei nöfn sem ekki enda á enni (n). eins og tildæmis Jón og Þórunn.
þar spiluðu líka 3 lúðrasveitir.
ég hef bara eitt að segja við lúðrasveit selfoss.... nei best að sleppa því, fólk gæti farið að segja ég væri vond og leiðinleg, árásargjörn, feit og illa til höfð. maður lendir sko í ýmsu ef maður er með kjaft útí lúðrasveitir, svo mikið hef ég lært á ævinni. en ég fékk, einna fyrst allra að sjá nýja húsið þeirra Gumma og Gretu í Hveragerði. það er geðveikt og mér var boðið í party.
sem verður haldið þegar gummi er búin að:
mála öll loftin... Aftur
smíða eldhúsinnréttingu
setja nýtt gólf á sólstofuna
taka einhvern pall úr loftinu
kaupa sófasett
taka uppúr kössum og
hreinsa heitapottinn
ég bíð engu að síður mjööööög spennt eftir þessu partýi aldarinnar.
annars kom mér á óvart hvað Hveragerði erí rauninni bara næs pleis og miklumiklu nær reykjavík en maður ímyndaði sér.
aftur á móti er Selfoss það ljóstasta bæli sem ég hef komið í/ekið gegnum á ævinni og vil helst aldrei koma þangað aftur. en ég fór í kaupfélagið, sem heitir núna Nóatún og keypti geðveikt flotta límmiða sem ég ætla að setja á umslög til fólks.
ef ég færi nú í einhverri brjálsemi að skrifa bréf.

en nú er ég farin uppá efri hæð að ná mér í kaffi og sódavatn.

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

éger að bíða eftir að miss Greta Guðnadóttir nái í mig í vinnuna svo ég geti fengið far með henni til.... (trommuþyrl) Stykkishólms. en þar mun ég og víólan eiga mikinn stórleik með úrvalaliði suðurlenskra strengjaleikara.
vá hvað ég hlakka til þegar þetta er búið. úff púff.

en svo á hún Vilborg sæta litla systir mín afmæli í dag! orðin (OMG) 8 ára!
óska ég henni til hamingju með það, en hún er stödd erlendis á afmælisdaginn.

samt sæt :) mússímússímúss

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

ég nenni ekki að fara niður í kjallara og ná í fleiri kassa til að slá inn. ég nenni ekki að standa upp og fara eitthvert. ég nenni ekki að lesa blogg hjá öðru fólki og ég nenni ekki að fara í leikfimi á eftir.
þetta eru samt allt hlutir sem ég á eftir ða gera á eftir.
eftir.
maður getur skapað sér innsláttar-speis með því að skrifa bara ftr í staðinn fyrir eftir. hljómar alfeg eins.

gott hjá þér að prófa, ho hoho

föstudagur, febrúar 18, 2005

jæja þá er litla krúttið ykkar (ÉG) búin að fá útborgað fyrir janúar mánuð. mjútsjó jojande eins og einhver hefði getað sagt.
þá er bara að drífa sig af stað og eyða óskupunum.
hohohohoho!

góða helgi :)