fimmtudagur, febrúar 19, 2004

ég er sniðugasta manneskja í heimi. þegar ég fór heiman frá mér í gærkvöld tók ég með mér 4 hluti.

lykla
meistarann og margarítu (það er bók svo það telst bara sem einn hlutur)
prjónadót (ekki spurja)
og dagbók.

núna þegar komið er hádegi og yndislegi kærastinn minn farinn ÚT aðborða með einhverjum óvirkum alkahólistum, sit ég eftir ein og umkomulaus, með enga peninga, engan síma og þar sem ég er búin að vera að skoða Burger King síður í klukkutíma, þá er þetta afar afar afar slæmt.
ó hvað ég á bágt!

Burger King opnar í Smáralind
Þá er komið að því! Fyrsti Burger King veitingastaðurinn hér á landi var opnaður í Smáralind gengt Vetrargarðinum kl.12 þann 18. febrúar s.l.
Veitingastaðurinn, sem verður rekinn í tæplega 200 fermetra rými, rýmir um fimmtíu manns í sæti og lögð verður áhersla á hraða og góða afgreiðslu þar sem fimm afgreiðslukassar verða til taks.

Að sögn Ævars Olsen, rekstrarstjóra staðarins, er það mál manna að Buerger King bjóði uppá bestu eldgrilluðu hamborgarana, sem framleiddir eru á alþjóðamarkaði. Til að koma til móts við heilsuæðið, sem gripið hefur um sig í heiminum, hefur veitingakeðjan farið út í það í auknum mæli að þróa heilsurétti, grænmetisborgara og svokallaða heilsuborgara þott þeir verði þo ekki fyrirferðarmiklir á matseðlinum hjá okkur fyrstu vikurnar (þá er hamborgarinn borinn fram án brauðsins, en á disknum verður eingöngu kjötið ásamt káli, tómat, lauk og öðru grænmeti og léttum sósum). “Þetta er það sem viðskiptavinirnir eru farnir að biðja um og þá verðum við auðvitað að fara eftir óskum þeirra” segir Ævar.


arg, hvar var ég í gær? afhverju var ég ekki að fá mér Burger King? jah, það er allavega komið á hreint hvað ég fæ mér í þynnkumat á laugardaginn :D einhver til í að koma memm-mér? (fyrir hina grandalausu, þá er kannski vert að taka það fram að Árshátið Tónlistarskólanna verður haldin á föstudagskvöldið)

AsnaLegt Skap, skárra en ekkert skap?
úff hvað ég er í aSnalegu skapi. soldið þreytt, samt ekki. leið, samt soldið glöð. löt, en samt í vinnunni... hrædd við framtíðina og ákvarðanir í sambandi við hana, en veit ég samt að hún kemur hvort eð er og það er ekkert sem ég get gert í því. En eins og venjulega þegar ég veit ekki alfeg hvar ég hef sjálfa mig og skapið í mér, þá vil ég fara uppí rúm og undir sæng. kannski einn útvarps-haus disk í græjurnar. samt ekki. þögnin er samt alltaf best. það er að segja ef maður Trúir því að til sé þögn. mig minnir að það hafi verið Stokkhásen (sorry Rikki Tónlistarsögukennari, ég man ekki hvernig maður skrifar þetta, eða hvort það var hann eða einhver annar) sem lét loka sig inni í þvílíkt hljóðeinangruðu herbergi að ekki annað var til í heiminum, en hann heyrði samt 3 hljóð.
andardráttinn sinn
hjartsláttinn
og þytinni í hans eigin taugaboðum.

spes gaur.
Hvað er hnattvæðing?
>
>
> besta dæmið sem við höfum er Díana prinsessa. Þarna höfum við breska
> prinsessu með egypskum kærasta sem á sænskan gemsa. þau lenda í
> árekstri í frönskum göngum þar sem þau eru í þýskum bíl með
> hollenskum mótor, keyrðum af belgískum bílstjóra sem er fullur af
> skosku viskíi. Þau voru elt af ítölskum paparazzi á japönsku
> mótorhjóli sem tók myndir af þeim með myndavél frá Taiwan fyrir
> tímarit frá Spáni. Sá sem tók á móti henni eftir slysið var
> rússneskur læknir og filippínskur aðstoðarmaður sem notuðust við
> meðul frá Brasilíu.
>
>
> Þessi pistill var þýddur úr ensku yfir á spænsku af manni frá
> Kólumbíu, sendur til vinar frá Venezuela sem sendi hann til nokkurra
> Mexíkana. Þaðan barst hann áfram og var þýddur yfir á íslensku af
> stúlku sem lærði spænsku í Puerto Rico. Og nú er annar Íslendingur
> sem hefur greinilega ekkert betra að gera í vinnunni að lesa
> þetta....
>
>
> Ef þetta er ekki hnattvæðing þá veit ég ekki hvað.....!!

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

of stuttur sólarhringur
ég er að fara í víólutíma eftir 45 mínútur og er svo að fara að spila á tónleikum kl. 6 í kvöld. ég veit ekki hvort verður meira stórslys. ég þarf mjög nauðsynlega að lengja sólarhringinn hjá mér... hvernig get ég haft tíma til að æfa mig ef ég hef ekki tíma til að æfa mig?
hrumpf!
en þetta hlýtur að reddast eins og annað. vona það allavega. annars var ég að byrja í einhverju strengjadraslsviðbjóð inní LHÍ undir stjórn Gunnars Kvaran. æfing í kvöld kl. 8. ætli hann biðji mig um að fara ef ég mæti geðveikt full á þessa æfingu? annars eru verkin svo auðveld fyrir víóluna að mér er skapi næst að hætta bara. auður agla, bjarni frímann og þessi þýska sem ég man ekki hvað heitir, en ekki súsanna samt, geta alfeg gert þetta bara 3. pæling...
svo skrópaði ég á kvartett æfingu í gær alfeg óvart og er ennþá með geggjaðan móral :( erum sko að fara að spila á ráðstefnu á laugardaginn (sem allir tónlistarnemar ættu að mæta á... segi meir um hana síðar) og þurftum soldið að æfa. en ég var bara útúr kú og löngukomin heim í hafnarfjörð. var meira að segja sofandi. skammiskamm. en svona er þegar maður er slappur og slenaður eftir helgina. skandall og ekkert nema. ég vona að þær fyrirgefi mér um síðir. reyndar er halldóra að fara til London, svo hún ætti nú ekki að eiga í erfiðleikum með að dreifa huganum, hehe :) talandi um london, þá hringdi litli prinsinn minn í mig á sunnudaginn og talaði heil ósköp. það var yndislegt, nú vantar bara að hann sendi mér EMAIL með DAGSETNINGUM sem fyrst og ég get haldið áfram að vera hamingjusamasta manneskja í heimi. er sko að lesa Brian Tracy bók sem heitir Hámarksárangur. hehe! algjör snild.

mánudagur, febrúar 16, 2004

gott fólk gott fólk. ég gleymdi símanum mínum heima hjá jóni í morgun. þannig að það verður erfitt að ná í mig í dag.... heyrðið það :@
Hin fróma
takk fyrir að koma með nóturnar mínar um daginn og spjallið á laugardaginn. svei mér þá ef að heildarmyndin er ekki smá saman að fókuserast í rólegheitunum. :)


hún er mögnuð, meiriháttar
matróna englanna,
gagnast hinum utangáttar
gull á meðal manna.

roðagyllt er rennireið
og rauður hennar sófi.
Getur gaulað töfraseið
glaðvær frammúr hófi.

enga fýlu finna má
fari hún undir þaki
ótrúlegt að ekki sjá
englavængi á baki

mér er skelfingilega kalt. ég fór aftur í lopapeysuna hans Jóns og fékk mér heittheittheitt kaffi. ragnhildur á símanum heldurða ég sé að verða veik :( og það er nú ekkvað sem ég nenni alls alls alls ekki.



Benni Wilkinsson töffari kominn með heimasíðu... mjög töff. mér finnst nú reyndar vanta soldið undirsíðu sem fjallar eingöngu um mótorhjóla-akstur stjórnandans. svo minnist hann ekkert á hvað er gaman að vinna með mér. hvað í óskup á það nú að þýða?
á þessar mynd finnst mér hann vera óhugnanlega líkur Ólafi pabba hans Víkings sem er snillingur. Ólafur þeas, víkingur er miklu meira krútt heldur en hann er snillingur. hoho -skot- hoho ;)
annars var ég nú í partý á laugardaginn í næsta húsi við Kjartansgötungana, var á tímabili að spá í að kíkja í heimsókn á nýja eldhúsið, en þorði svo ekki. og var líka orðin sótsvört á litinn. hressandi þessi hommaparty :) fór svo á ballið í iðnó. að ég held. en það var rosalega gaman og ég hitti fulltfulltfullt af sætum og skemmtilegum strákum. verð nú bara að minnast á hann Hjört minn sem ég er ekki búin að sjá svo lengi. mikið var gaman að sjá hann. *aaaah*
Fríða Björk komin inn í hinn harða heim bloggsins. en hún hefur nú krafta í kögglum stúlkukindin sú. :D

föstudagur, febrúar 13, 2004

ég er að skrifa ritgerð um Rebeccu Clarke, sem var bæði góður víóluleikari og tónskáld. Svo maður minnist nú ekki á þá brjáluðu ísbrjóta í sögu tónlistarKvenna sem hún framdi. fyrsta konan til að vinna fyrstu verðlaun í Mendelson skólastyrk tónskáldakeppninni og ein af fystu konunum til að vera hleypt í the Queen´s Hall Orchestra. svo var hún ekkert nema Magnað tónskáld. en þegar ég var að krúsa á netinu í góðum fíling hér áðan rakst ég á þessa líka sniðugu setningu. ekkvað hefur nú prófarkalesturinn farið á milli steina hjá greyinu.... nema nottla sá sem skrifaði þetta sé svona ofsalega trúaður á spíritúlistíska tónsmíðar í gegnum miðla... maður veit nottla aldrei.

Rebecca fell in love again and married James Friskin. Their marriage was a happy one, and she did not compose much until after her death in 1979.
já það er rétt.... mér finnst gaman að borða. mjög gaman. það gaman að ég skráði mig á póstlista www.dining.is svo ég gæti nú kannski hugsanlega einhverntíman í framtíðinni kannski farið FRÍTT út að borða og boðið einhverjum sætum memmér.
haldiðaðsé fínt?
Purrrsell
það er eitthvað ógurlega sterkt á milli mín og Henry Purcell. sérstaklega uppörvandi og gaman svona í ljósi þess að hann dó 1695 í London. skelfingaróskup er ég alltaf óheppin með karlmenn. verst líka hvað hann er ljótur líka... *andvarp* en ég er s.s. að hlusta á hina yndisfríðu aríu "O Let me Weep" úr "The Fairy Queen" sem er svona dragsjó stutt-ópera um óhamingjusamar konur og skógarálfa. skildist mér allavega á librettóinu. en ég er nú ekkert rosalega klók í að skilja líbrettó, svona þegar maður hugsar út í það, svo þessi ópera er ábyggilega um ekkvað allt annað. en mér væri slétt sama þótt textinn væri tekinn aftan af finnskri hárnæringsdollu, lagið er yndislegt þrátt fyrir það. og ef það skyldi nú svo ólíklega vilja til að þarna úti sé atvinnulaus óbó-leikari sem vill gleðja hana tótu sína óendalega mikið, þá gæti velverið að ég kaupi mér þessar nótur og flytji herlegheitin fyrir fólk og fyrnindi. jafnvel bara á grafarbakkanum. væri það ekki góður endir á annars fáránlega tilgangslausri æfi? syngja eitt fallegt lag og skutla sér svo bara beint oní pósthólfið sitt? moka takk!
nei nú er ég farin að bulla allverulega. svona fer þegar maður hlustar á einhvern vesalings kellingargarm vorkenna sjálfum sér í 7 mínútna lagi, aftur og aftur á tóman maga....


O let me weep, for ever weep,
My Eyes no more shall welcome Sleep;
I'll hide me from the sight of Day,
And sigh, and sigh my Soul away.
He's gone, he's gone, his loss deplore;
And I shall never see him more.
ég er soldið þreytt. stemming í því samt. er að hlusta á "habla con elle" sem er diskur úr myndinni "habla con elle". sniðugt hjá þeim að nota bara sama nafn á diskinn og var á myndinni, þá er maður ekkert að ruglast. alfeg stórheppilegt.
það er töffarinn Alberto Iglesias sem samdi tónlistina. hann er nú örugglega ekkert skyldur þessum fæðingarbletta-feðgum vegna þess að þessi tónlist er alfeg barasta drulluflott. segi nú bara það. sérstaklega einn strengjakvartett sem er fyrir miðjum disk, heitir El Almante Menguante... mæli með honum fyrir strengja-aðdáendur, sérstaklega töff sellópartur. jammjammjamm.

mánudagur, febrúar 09, 2004

jesús minn almáttugur! ég bara trúi því ekki uppá mig að vera ekki búin að gera link yfir á hann ÁSGEIR dansaradrottningu, kisulóru og keikó-killer! er það nú afrek eða hitt þó heldur! megi ég vera andstutt í marga daga til að líða fyrir þetta.
skammi skamm!

sorry ásgeir minn.
Kona nokkur var að versla í Bónus-verslun í hverfinu. Hún var búin að setja 3 lítra af létt mjólk í körfuna ásamt
1 eggjabakka með 10 eggjum, 1/2 lítra af appelsínusafa, 1 höfuð kínakál, kaffipakka og bréfi af beikoni.
Ölvaður maður fyrir aftan hana í röðinni fylgdist með þegar hún raðaði þessum hlutum á færibandið við kassann.
Þegar kassadaman tók til að lesa strikamerkin inn sagði drukkni maðurinn hæglátlega: "Þú ert örugglega
einhleyp "! Konunni gramdist þessi ummæli drukkna mannsins en jafnframt fannst henni athugasemdin skondin
þar sem það var vissulega rétt, hún var einhleyp. Hún virti fyrir sér þessa sex hluti á bandinu og furðaði sig á
hvernig í ósköpunum hann gæti komið með svona fullyrðingu af þessum ósköp venjulegu innkaupum.
Forvitnin varð henni um megn svo hún sagði: " Þetta er vissulega hárrétt hjá þér. Hvernig í ósköpunum
geturðu séð það??" . . .
og drukkni maðurinn svaraði:

" Af því að þú ert ljót!"
er þetta djók?!
M&M

ég var að spila á tónleikum í gær. annar performansinn Minn á Myrkum Músíkdögum.
af hverju skýra þeir þetta bara ekki "Trallað með tótu" eða "tóta syngur og spilar fyrir lýðinn"? óþolandi svona yfirskin, íslensk nútíma tónlistarhátíð mæ es. þetta er bara fólk með mig á heilanum og dettur ekkert annað í hug en að halda tónlistarhátíð svo það fái að sjá mig og heyra.
já.
en ég nenni aldrei að blogga um það sem ég er að gera nema það sé ómerkilegt. eða særandi eða krossfestandi á einhvern hátt fyrir annað fólk, svo ég nenni ekkert um tónleikana að segja. en Egill lét taka þessa mynd á tónleikunum og með mikilli þolinmæði, góðri sjón og bjartsýni má sjá útúr henni fallega hljómsveit, 2 píanó, stjórnanda og hálfan haus á einhverri kellingu. éger feita klessan alfeg fyrir miðju. en svona fyrst ég er nú byrjuð að tala um Egil verð ég bara að segja að píanókonsertinn sem hann samdi og við spiluðum í gær (og myndin er af honum) var alfeg einstaklega huggulegt verk. kannski ekkert endilega það margslúngnasta sem ég hef spilað (kannski ekki furða, við erum að tala um Miss Löve hérna, she´s been around) en ofsalega fallegur og ég er endalaust að fá stef úr honun á heilann. jafnvel bara aftur og aftur. og það er als ekki leiðinlegt.
got me?
anyways... annað sem er á heilanum á mér eru þessi 3 ritgerðarverkefni. er ég að djóka með að sækja um í Bandarískum háskóla?

1) Evaluate a significant volunteer or community service that has special meaning to you.
2) Discuss an issue of personal, national, or international concern and its importance to you.
3) Write about a person in a position of leadership who has had a significant influence on you and describe that influence.

sofa
verð á áfengi á íslandi
donald mcdonalds

?
já ég viðurkenni að föstudags hreingerningin sem ég hótaði hér á föstudaginn var ekki gerð á föstudaginn. en hún er aftur á móti komin á gott skrið núna. :D
Þessir Fimmufélagar unnu boðsmiða fyrir tvo á myndina The Haunted Mansion:

María Ben Erlingsdóttir, Í grunnskóla
Pálmi Gunnarsson, Kópavogur
Vignir Freyr Helgason, Iðnskólinn í Hafnarfirði
Aron Rúnarsson, Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Linda Gústafsdóttir, Í grunnskóla

Þú getur séð hverjir unnu síðast á www.fimman.is

gott er að maður þekkir ekki einn af þessum!! verst hvað þetta er Hrottalega Leiðinleg Mynd (HLM). en til hamingju samt, herra vinningshafi :D