fimmtudagur, desember 19, 2002

ég var á labbi. sem er nottla ekki í frásögur færandi, nema fyrir það að ég rakst á mjög undarlegan dreng. hann var mjög aumingjalegur og fór eitthvað að tala við mig, og af öllum tungumálum, á ENSKU!
ég reyndi nottla að vera almennileg og spjallaði soldið lengi við hann. var þetta mjög furðulegur drengur og var alltaf að spurja um einhverja hluti sem ég skildi eiginlega ekki.
"where is the goverment of iceland, the magical department?"
"can you tell me how to say a magic in icelandic?"
"im very hungry"
já það eru kannski ekki margir sem vita það, en Harry Potter er fæddur árið 1980. þeas, líffræðilega, samkvæmt bók nr. 3. þannig að í dag er hann 22 ára.
veskú.


miðvikudagur, desember 18, 2002

við Arnfríður erum ótrúlega sniðugar og fyndnar. í dag, eftir að Hraf fór til að syngja fyrir alþjóð á niðursuðujólamessunni í hallgrímskirkju, þá brutumst við inn í herbergið hans, vopnaðar bleikum pappírsjólatrjám og rauðum jólasveina tuskukalli.
hohoho!
hann á nefnilega afmæli á morgun og hann hatar jólaskraut. mjög mikið.
en innst inni er hann jólabarn, við erum vissar um það. jamm og jájá. til hamingju með afmælið á morgun hrabbó. :)
nýr leikur kominn.
golf leikur.
ekki það ég hafi gaman að golfi eða slíku. en þetta er víst í ættinni svo maður verður að sína lit. svo ætla ég að biðja pabba vinsamlegast um að ekki vera að fara á fleiri dónalinka út frá síðunni minni.





miðvikudagur til mæðu.
ég held nú samt ekki að sá sem bjó til þennan málshátt hafi gert sér grein fyrir HVE mikil mæða er stundum á mann lagt á miðvikudögum. í dag þurfti ég að vakna, tiltölulega snemma, þ.e. fyrir hádegi, sem er ekkert nema verkfæri djöfulsins (allt sem er fyrir hádegi) og svo er ég að fara í hljómfræðitíma á eftir og hef ekkert lært heima.
sem er mjög leiðinlegt, vegna þess að það er voðalega gaman í hljómfræði.
en allavega....
Eyjólfur Eyjólfsson tenór, gerði sér lítið fyrir og vippaði sér til Spánar í gær, og sendi henni tótu sinni fallegt email af hótelinu. hann er svoddan krútturassgat.svo getið þið skoðað spænsku heimasíðuna, þar sem tónleikarnir sem hann er að fara að syngja á eru kynntir á lýtalausri spænsku, með því að ýta hér
eru setningarnar mínar ekki soldið illa uppbyggðar?
allavega....
svo fékk ég afmælis og jóla email frá honum Lutz vini mínum sem er þýskur. mjög mjög mjög fyndið. enda er maðurinn snargeggjaður. og í verkfræðinámi. úff.
:)

þriðjudagur, desember 17, 2002

það eru ekki margir sem þekkja Barónessu Börberrí. kannski bara einn.... og jah, sá á eftir að hlægja af þessari síðu
Burberry.com
þetta þurfa allir að kíkja á.

litlir sætir kettlingar
ég var að skoða síðuna hennar Fúlhildar og þar stal ég þessum líka skemmtilega link.... þetta er einhver gamall
www.afigamli.blogspot.com að blogga. ég held nú samt þetta sé kannski ekkert endilega allt satt, en hverjum er ekki sama um það?
hún Fúlhildur verður ábigglega voðalega fúl.
en jah....
hverjum er ekki drullusama?
ho ho ho ho ho (jóla ho-ho)


vona samt að Fúlhildur verði ekki svona fúl...


þriðjudagur til þrautar sagði mjög vitur maður. ég held hann hafi samt ekki gert sér fyllilega grein fyrir HVERSU miklar þrautur eru stundum lagðar á mann á þriðjudögum.
ég er að fara á eftir að kaupa jólaföt á hann Ásbjörn bróður minn.
hljómar vel?
jah.... NEI!!!
og svo var ég eins og áður, búin að lofa mér annað, þannig að hún elsku sæta skemmtilega yndislega himnaríkisljósið hún Þórunn mín, verður víst að vera svo umburðarlynd, að hitta mig í kvöld, frekar en klukkan fjögur. mamma setti upp aðalfýlusvipinn og beitti ögn af þöglumeðferðinni, svo ég gat ekki annað en lofað öllu fögru. svo var ég að fatta að ég gleymdi símanum mínum heima :(
ekki það að ég sé símasjúklingur, ég þarf bara að tala við hana Þórunni mína og afsaka mig í bak og fyrir. úff. eg er ekki búin að hitta hana síðan fyrir langa löngu.
ég held ábiggilega að ég sé versta vinkona hennar, alltaf að beila á öllu :(
en hún fær geggjaða jólagjöf :)

mánudagur, desember 16, 2002

allir að kíkja á nýja leikinn sem ég var að segja inn. hann heitir sober santa og maður á að drekka kampavín og borða kökur. mjög uppbyggjandi leikur fyrir alla fjölskylduna.
kærar þakkir fyrir framlag sitt fær Jón Viðar, megabeib, sem er í svo ótrúlega góðum skóla, að hann þarf ekkert að sofa!
úff.
komin heim í hitann. þetta er nú meira ástandið. En jú, sveimér þá. það var drulluandskoti gaman úti í London. ég fékk meira að segja Lax í matinn þegar ég átti afmæli, sem snilldarkokkurinn Eyjólfur hristi framan úr hendinni, jafnvel þó hann ætti ekki sýrðan rjóma. geri aðrir betur.
en já.
ég fór líka á tónleika "by candlelight" sem var svo eiginlega ekkert "by candlelight" vegna þess að "candlelightin" voru rafmögnuð, mjög lummó. en hljómsveitin var öll í miðaldarbúningum með kollur og það var ótrúlega flott að sjá það. sérstaklega víólurnar nottla.... bera allstaðar af. jamm og jájá þaðheldég nú.
svo fór ég líka á tónleika með Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur, sem er æææææðisleg, ekki bara geggjuð söngkona, heldur er hún líka ógeðslega sæt og svo kenndi hún mér á lestarkerfið. eða svona. sagði mér allavega hvað Tjúb stöðin heitir í Hackney. Tjúb stöð er semsagt svona prófessjónal orð yfir neðanjarðarlestarkerfið. hehe :) en já... tónleikarnir sem Guðrún var að syngja, komu einmitt á forsíðu moggans á sunnudaginn. mér finnst nú soldið leiðinlegt af þeim að minnast ekkert á hvað ég var dugleg á þessum tónleikum. klappaði á réttum stöðum, hló að sögumanninum (þó ég skildi ekkert í sögurþræðinum (sem er víst bara eðlilegt, maður á víst ekkert að skilja hann) þar sem allir hétu einhverjum nöfnum sem byrjuðu á A og enduðu á s) og drakk bara einn bjór í hléinu.
fyrir utan að ég rataði alfeg ein á þetta john smith square, svona næstum því án þess að fá smá hjálp.
húrra fyrir tótu. jeij!

þriðjudagur, desember 10, 2002

hallo hallo elsku kruttin min.
atla bara ad senda nokkrar linur til ad syna ad eg er i goooooodum gir her i skitugustu borg i heimi. allt i guddi filing :)
er ad fara a harry potter a eftir i barbicaninun. bobbarinn sko. je man.
sjamst

miðvikudagur, desember 04, 2002

jæja.
nú er komið að því.
eða á morgun verður komið að því öllu heldur. ég fer héðan úr Lavaburping icerock og til hins hræðilega Lon-Don. ég held ég sé ekki að ljúga neinu þegar ég segi að mér hlakki alfeg ótrúlega mikið til. jafnvel bara það mikið að ég tolli eiginlega ekkert hér í vinnunni og er eiginlega bara aðspá í að stinga af og fara heim. ég var líka búin að lofa að heimasækja ömmu og svo á ég eftir að redda mér fari út á flugvöll...
eh..
einhver laus á morgun, fimmtudag um klukkan tvö?
allaveganna.
bless bless kæru landar! :)









Big Ben bíður spenntur að sjá hana tótu sína.... sjáiði bara hvað hann brosir mikið
eins og stóð í emailinu.... eitthvað internatsjónal :)

http://www.ratedtoons.com/flash/Interorgasm.swf


þriðjudagur, desember 03, 2002

jáhá. ég var að koma frá Tannsa í gúddí fíling, eða þannig, og er smátt og smátt aðfá tilfinningu í tunguna. þannig að ef þetta sýnist vera eitthvað linmælt blogg, þá vitiði hér með ástæðuna.
úff.
en maður fer ekki til útlanda með skemmda tönn er það?
reyndar var þetta fjandans drullu skíta dýrt, en þar sem tannlæknirinn inn, hún Ásta, er gæðablóð, þá mátti ég borga helminginn núna og helminginn á næsta kortatímabili. mjög gott.
svo fór ég í Kringluna og kyssti hann Hjört Matthías, sem er bæðevei ennþá ótrúlega sætur og skemmtilegur. hann gaf mér líka mjög gott sírópskaffi sem heitir "Rumba Reykjavík" ef mig misminnir ekki. en fyrir fávita, þá er kannski gott að taka fram að hanner að vinna á/í/hjá/við/með Kaffitár, kaffihúsinu sem er undir rúllustiganum.



þetta er hann Hjörtur sæti

mánudagur, desember 02, 2002

ég held ég verð bara að segja það að hún Ragnhildur Thorlacius er mega-beib og svaka-skutla. enda bauð hún uppá geggjað góðar flatkökur í kaffinu. með HANGIKJÖTI. geri aðrir betur. :)




ég sláði orðinu "gella" inná Google.com og þetta er það sem kom fyrst...
æj jæja.
svona er þetta nú bara
úff.
haldiði ekki bara að ég hafi farið og gefið soldið Blóð áðan. ég og Jón Viðar örkuðum þangað eftir miklum krókaleiðum sem hann valdi og gáfum blóð. eða þeas, hann gaf blóð, ég fór bara í svona prufu vegna þess að ég hef aldrei gefið áður. jamm.
svo átum við ógeðslega mikið af brauð og ég borðaði alla súpuna þótt hún væri drullu ógeðslega vond, en Jón skildi hana eftir.
svo heldur hann því fram að Ránargatan sé vestur í bæ.

fimmtudagur, nóvember 28, 2002

eg fór áðan í Tónastöðina. dauðans. að kaupa strengi í fallegu góðu víóluna mína.
afgreiðslumaðurinn kannaðist ekkert við að hafa undir höndum Barber víólupartinn og sagðist fyrir löngu vera búinn að hringja í e-n og láta e-n fá hann.
LYGI!
og svo var rok á mig :(
svo er ég svöng og var að senda Arnari sæta skemmtilega góða og fallega sms, en hann svarar ekki :(
mu-mu-mu!!!

miðvikudagur, nóvember 27, 2002

jæja já.
vika á morgun kæru vinir og lesendur síðunnar.
enda dreymir mig ekki um neitt annað allar nætur. samt fer ég nú ekki að sofa fyrr en uppúr þrjú. er komin í drekafýlu enn eitt skiptið.
´úff.
svo er laugardagurinn að fyllast og mig grunar að allir eigi eftir að verða fúlir út í mig, hvað svo sem ég geri. en í þetta skiptið hef ég með töluverðri fyrirhöfn Þríbókað mig. eitthvað sem gerist ekki of oft, en nógu oft samt til að mig hryllir við. en hinir heppnu félagar mínir sem fá að berjast um að hata mig á laugardaginn eru:

nr. 1 = Kammersveit tónlistarskóla Hafnarfjarðar
stjórnandi/aðalfýlupoki: Óliver Kentish
aðrir/"runner-up" fýlupokar: fjölmargir vinir mínir (Baldur, Fríða, Sif, Sigrún o.fl), ásamt heilu foreldrafélagi sem ætlar að selja kökur. Ásgerður þar fremst í flokki vopnuð rommpela og brennivíni.

nr.2 = Kvartett L.H.Í
kennari/aðalfýlupoki: Gunnar Kvaran
aðrir/"runner-up" fýlupokar: Helga Þóra, Ingrid og Gyða. þess má til gamans geta að 2-3 síðustu tímar hafa fallið niður/breysts vegna mín

nr.3 = Mamma sæta
foreldri/aðstandandi: Lovísa G. Ásbjörnsdóttir
aðrir/"runner-up" fýlupokar: ég sjálf og allir þeir sem hafa beðið Sveittir eftir að geta keypt á okurverði, ljótar litlar vatnslitamyndir af Drekum...

nú er bara að bíða og sjá til hver verður sá heppni.....
:/

mánudagur, nóvember 25, 2002

ég fann þessa líka sniðugu leiki á netinu og er búin að segja linka á þá hér til vinstri. ég má þetta ábiggilega ekki og einhver á eftir ða senda mér hótunar email... en svona er bara lífið...
hótaðu eða vertu hótað
uh....
eða eitthvað
helgin var næstum því eiginlega allt í læ. var á Egilsstöðum með Hljómeyki að syngja gömlu góðu lummurnar.... sjá gamalt
#84058454
sem við sungum við illan rammleik á ísafirði 1. til 3. nóvember :p
en það var nú svossem allt í læ, svona þegar á heildina er litið og tekið tillit til þess að við þurftum að stelast til að fara á fyllerí.




Take the What
animal best portrays your sexual appetite??
Quiz